Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 7
Höll frímúrara á Akur- eyri. Þar stýra málum þeir Þórður Gunnars- son, stjórnarformaður Sjallans og Ragnar Steinbergsson lögfraeðingur. Sjallinn er gjqldþrota og undir smásjá rannsóknarlögreglunnar Eigendurnir eru sjáifstæðismenn og frimúrarar, Bæjarfóget- inn er sjálfstæðismaður. Rannsóknarstjórinn og aðstoðaryfir- lögregluþjónninn eru frímúrarar. Þrír af fjórum bæjarfulltrú- um Sjalfstæðisflokksins eru frímúrarar. Lykilmenn hjá stærsta lánardrottninum eru frimurarar. Hinn gamalkunni og rótgróni skemmtistaöur á Akur- eyri, Sjallinn, rambar nú á barmi gjaldþrots. Á morgun, föstudag, veröur fyrra naudungaruppboðid haldið. Skuldir fyrirtækisins eru taldar vera um 120 milljónir króna, sem er heldur meira en brunabótamat húseignar- innar. Eigendur Sjallans hafa reynt að selja sig út úr vandanum, en enginn vill kaupa. Um leið er reksturinn undir smásjá rannsóknarlögregl- unnar, sem nú kannar meint misferli með aðgöngumiða, „svarta kassa“, smyglað áfengi og kjöt. Þegar rannsókn- araðilar höfðu yfirheyrt nokkra starfsmenn Sjallans sendu þeir málið til ríkissaksóknarans í Reykjavík. Þá höfðu þeir ekki einu sinni yfirheyrt stjórnarmenn og eig- endur Sjallans! Ríkissaksóknari endursendi málið og vildi frekari rannsókn. Enn hafa ekki verið yfirheyrðir stjórnarmenn og eigendur. Sjallamálið má rekja inn í innstu raðir Sjálfstœðis- flokksins og Frímúrarareglunnar. Allir helstu stjórnar- menn og eigendur Sjallans eru þannig hvorutveggja sjálfstœðismenn og frímúrarar. Þá eru einnig frímúrarar stjórnendur rannsóknarinnar og margir af lykilmönnum Iðnaðarbankans, sem er stærsti lánardrottinn fyrirtækis- ins, með helming skulda þess. Auk þess eru þrír affjórum bœjarfulltrúum Sjálfstœðisflokksins á Akureyri í Frí- múrarareglunni. A Akureyri bíða menn með öndina í hálsinum á meðan Sjallinn riðar til falls. Og það lítur út fyrir stórt fall! eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Kristján Arngrímsson og fleiri■■■■■■■■■ HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.