Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 25
r n r r r K t h STYLE FORMSKL JM LOREAL SKLJMí hárið? J* — nýja lagningarskúmið frá L'ORÉAL og hárgreiðslan verður leikur einn. Hið nýja hús Sóknar og Framsóknar við Skipholt. ingsklefana og leiddi okkur þaðan inn í bjart herbergi, sem í er nokkuð stór heit laug. Þetta er samskonar heitur pottur og víða er að finna í sundlaugum og heimahúsum hér á landi. Með einu handtaki er hægt að auka þrýstinginn á vatnsrennslinu til þess að fá nuddþrýsting fyrir þá sem í bleyti liggja. I heilsuræktinni er einnig starf- rækt nuddstofa, þar er gufubað af bestu gerð og von er á sólbekk þangað á næstunni. Þarna er líka aðstaða fyrir konur til þess að slappa af eftir nuddið og innan skamms verður komið fyrir ýmsum æfingatækjum í rúmgóðum sal, þar sem er eldhúskrókur með sófum og rjúkandi kaffi á könnunni. Sannköll- uð paradís fyrir þreyttar verkakon- ur. Aðalheiður segist vonast til þess að Sóknarkonurnar verði duglegar að notfæra sér aðstöðuna, því það sé sorgleg staðreynd að margar af þessum konum séu hreinlega „bún- ar“ um sextugt. „Ekki síst konur af kreppukynsióðinni, eins og ég, sem unnið hafa hörðum höndum frá barnæsku." Kvaðst Aðalheiður von- ast til þess að heilsuræktin í Skip- holtinu gæti orðið til þess að gera þessum konum síðustu vinnuárin bærilegri, því margar konur þyrftu að pína sig áfram í launavinnu löngu eftir að þrekið væri í raun búið. Starfsemi heilsuræktarinnar í Verkakvennahúsinu verður með þeim hætti að konurnar geta keypt sér aðgangskort á kostnaðarverði, og fengið þannig aðgang að allri að- stöðu á staðnum. Þó mun verða seldur aðgangur að sólbekknum sérstaklega og nuddið verður einnig aðgreint frá annarri þjónustu heilsu- ræktarinnar. Það verður ekki annað sagt en að staðið hafi verið að öllu með hinum mesta myndar- og glæsibrag í hús- næði Sóknar og Framsóknar við Skipholt. Verkakonurnar eru vel að því komnar að eiga sér svo vegleg- an samastað og kvöddum við Aðal- heiði og Rögnu með hamingjuósk- um í tilefni þessa merka áfanga. Heiti nuddpotturinn í heilsurækt Sóknar- kvenna. “ HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.