Helgarpósturinn - 06.03.1986, Page 25
r n r r
r K t h
STYLE
FORMSKL JM
LOREAL
SKLJMí hárið?
J*
— nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAL
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
Hið nýja hús Sóknar og Framsóknar við
Skipholt.
ingsklefana og leiddi okkur þaðan
inn í bjart herbergi, sem í er nokkuð
stór heit laug. Þetta er samskonar
heitur pottur og víða er að finna í
sundlaugum og heimahúsum hér á
landi. Með einu handtaki er hægt að
auka þrýstinginn á vatnsrennslinu
til þess að fá nuddþrýsting fyrir þá
sem í bleyti liggja.
I heilsuræktinni er einnig starf-
rækt nuddstofa, þar er gufubað af
bestu gerð og von er á sólbekk
þangað á næstunni. Þarna er líka
aðstaða fyrir konur til þess að
slappa af eftir nuddið og innan
skamms verður komið fyrir ýmsum
æfingatækjum í rúmgóðum sal, þar
sem er eldhúskrókur með sófum og
rjúkandi kaffi á könnunni. Sannköll-
uð paradís fyrir þreyttar verkakon-
ur.
Aðalheiður segist vonast til þess
að Sóknarkonurnar verði duglegar
að notfæra sér aðstöðuna, því það
sé sorgleg staðreynd að margar af
þessum konum séu hreinlega „bún-
ar“ um sextugt. „Ekki síst konur af
kreppukynsióðinni, eins og ég, sem
unnið hafa hörðum höndum frá
barnæsku." Kvaðst Aðalheiður von-
ast til þess að heilsuræktin í Skip-
holtinu gæti orðið til þess að gera
þessum konum síðustu vinnuárin
bærilegri, því margar konur þyrftu
að pína sig áfram í launavinnu löngu
eftir að þrekið væri í raun búið.
Starfsemi heilsuræktarinnar í
Verkakvennahúsinu verður með
þeim hætti að konurnar geta keypt
sér aðgangskort á kostnaðarverði,
og fengið þannig aðgang að allri að-
stöðu á staðnum. Þó mun verða
seldur aðgangur að sólbekknum
sérstaklega og nuddið verður einnig
aðgreint frá annarri þjónustu heilsu-
ræktarinnar.
Það verður ekki annað sagt en að
staðið hafi verið að öllu með hinum
mesta myndar- og glæsibrag í hús-
næði Sóknar og Framsóknar við
Skipholt. Verkakonurnar eru vel að
því komnar að eiga sér svo vegleg-
an samastað og kvöddum við Aðal-
heiði og Rögnu með hamingjuósk-
um í tilefni þessa merka áfanga.
Heiti nuddpotturinn í heilsurækt Sóknar-
kvenna.
“
HELGARPÓSTURINN 25