Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 18
íeftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd Jim Smart Fram á svid Þjóöleikhússins haltrar krypplingur meö klumbufót og vis- inn handlegg, augun logandi af heift og mœlir milli samanbitinna tanna út í sal til áhorfenda: „En ég sem var ekki’ œtlaöur til ásta, né til aö hampa hylli spegilsins, ég, klúr í sniöum, sneyddur þokkans valdi.. .“ Síöan fá áhorfendur aö vita hvernig þetta fatlafól ætlar sér aö snúa vörn ísókn, komast til valda og ásta jafnvel, meö hinum svíviröilegustu klœkja- brögöum. Þaö er Helgi Skúlason sem hér fer meö hlutverk Ríkarös III, ein- hvers mesta fóls ísamanlögöum heimsbókmenntunum, ísamnefndu verki Shakespeares sem veröur frumsýnt nú um helgina. Helga Skúlason þarf ekki aö kynna eftir þrjátíu ára leikferil á fjölum Þjóöleikhúss og Iönós, í sjónvarpi, kvikmyndum og víöar. Vonandi móöga ég engan íþessari viökvæmu stéttmeö því aö kalla hann einhvern fjölhœf- asta leikara þjóöarinnar. Þó kœmi mér ekki á óvart aö einhverjum sem ekki þekkja hann persónulega standi stuggur af hans haukfránu augum, hvassa nefi ogsamanbitna munnsvip. Á þessari opnu kemur vonandi í Ijós hvort hann er tannhvass og bítur frá sér eins og útlitiö gefur eftil vill tilefni til aö ætla. Helgi hefur verið afar önnum kafinn undan- farnar vikur og mánuði, hvergi laus viðtalsstund á milli Jóns Hreggviðssonar, Ríkarðs III og per- sónugallerísins í Reykjavíkursögum Ástu. „Enda er ég alveg tómur þegar svona stendur á. Heldurðu að ég segi ekki bara tómt rugl?“ spurði Helgi mig eitt sinn þegar ég beitti hann umtalsverðum þrýstingi símleiðis. En þegar ís- landsklukkan hafði loks glumið honum í síðasta sinn og Shakespeare var orðinn honum tungu- tamur, negldum við niður viðtal að aflokinni æf- ingu eitt síðdegi í síðustu viku. Fyrst fylgdist ég með æfingunni af mikilli nautn. Shakespeare-þýðingar Helga Hálfdanar- sonar eru eitthvert mesta eyrnakonfekt sem um getur; sé textinn vel fluttur fer um mann sér- kennilegur sæluhrollur sem á stundum verður að stöðugum rafstraumi. John Burgess leikstjóri virðist hafa ótrúlegt næmi fyrir íslenskri hrynj- andi þótt hann skilji ekki málið. Er á stöðugum hlaupum utan úr sal og upp á svið, útskýrandi hljómfallið fyrir leikurunum með hjóllaga handahreyfingum. Vinnumaður í garði drottins Að aflokinni æfingu og myndatöku klukkan langt gengin í fimm, röltum við Helgi niður á Torfu þar sem ætla má að sé gott næði til viðtals. Ég spyr eina þjónustustúlkuna hvort við megum ekki vera uppi. ,,Jú, jú,“ segir hún hálfvandræða- leg. Svo getur hún ekki leynt undrun sinni og spyr; „Bara tvö?“ Hefur þá reiknað með að öll- um öðrum gestum yrði meinaður aðgangur að loftinu meðan við sætum þar. Andartak líður mér eins og við Helgi séum stödd í hótelmóttöku í vafasömum erindagjörðum. Ég útskýri rriálið fyrir vesalings stúlkunni og við Helgi örkum ó- áreitt upp á loft og byrjum á því að ræða erilinn í starfi hans undanfarið. „Já, síðasta árið hefur verið óvenju hlaðið," segir Helgi. „Ekki síst vegna skyndiupphlaups- ins með Kjallaraleikhúsið síðastliðið vor. Helga fékk þá hugmynd að dramatísera Reykjavíkur- sögur Ástu.“ Þessi Helga er náttúrulega Bach- mann, eiginkona Helga. „Svo fann hún kjallar- ann að Vesturgötu 3 og hann var fullur af drasli og gjörsamlega óárennilegur og það tók okkur sumarið að koma upp þessum vísi að leikhúsi sem orðinn er, jafnhliða því að æfa sýninguna. Ég er skorpumaður og hafði voðalega gaman af að gera þetta. En auðvitað vorum við bæði óvön því að reka leikhús og hlökkuðum óskap- lega til þess að frumsýningin yrði afstaðin og héldum að þá gætum við slappað af. En þá kom að því að reka leikhúsið og það var meiri háttar djobb þannig að vinnan hefur verið alveg sam- felld. En þetta hefur verið ógurlega skemmtilegt ævintýri, og sýningarnar orðnar sjötíu og fimm.“ — Hefurðu áöur unnið við „frjálst'‘ leikhús, svokallað? „Á 7. áratugnum vann ég að einni sýningu með Grímu sem var fyrsti vísirinn hérlendis að frjálsu leikhúsi, því að fólk bæði frá stofnana- leikhúsunum og annað leikhúsfólk sameinaðist í því að nota frítíma sinn og setja upp sýningar. Síðan hefur eitt leikhúsið skotið upp kollinum af öðru. Það er öllum hollt. Ég hef verið dálítið jójó á milli leikhúsa þótt spottarnir hafi verið langir. Ég byrjaði í Þjóðleikhúsinu og var þar í átta, níu ár, fór síðan nður í Iðnó og var þar í u.þ.b. fimm- tán ár, svo aftur upp í Þjóðleikhús og hef nú ver- ið þar í tíu ár. Það er óskaplega mikil hætta á að fólk staðni ef það fer inn í eina stofnun og hugsar sér ekki til hreyfings eftir það. Ef það tekur engin hliðar- stökk er þetta hreinlega deyfandi." — Er svo ekki alltaf verið að tala um að stofn- analeikhúsin séu svo miklar Ijónagryfjur? Helgi brosir í skeggið. „Það er ekkert ofmælt. Fari fólk inn á stofnanir og lokar á eftir sér skreppur heimur þess saman. Þá er það illa séð að nýtt fólk „ryðjist þar inn“ og trufli friðinn. Heiftin var t.d. það mikil þegar við Helga hófum störf hjá Þjóðleikhúsinu að núna, eftir tíu ár, eru sumir ekki farnir að bjóða okkur góðan daginn." 32 þús. í laun eftir 30 ára starf — Svo hlýtur það að hafa neikvœð áhrif að leikarar hjá stofnanaleikhúsunum hafa svo til engin áhrif á verkefnaval og hlutverkaskipan. „Já, þeir eru í rauninni vinnumenn í garði drottins allt sitt líf! Við höfum engin áhrif á hvað við fáum að gera. Þetta er sambærilegt við það að væru listmálarar inni á svona stofnun segði yfirstjórn hennar við þá; Næstu mánuði fáið þið bara gula túpu og rauða, svo er hugsanlegt að þið fáið enga túpu næstu sex mánuði. Eða rithöf- undi væri sagt að skrifa tiltekna gerð af bók í þrjá mánuði en síðan mætti hann ekkert skrifa í eitt! Nú skjóta stálgrá augu Helga viðlíka gneistum og þegar hann var að blóta Oðin í hlut- verki Þórðar í Hrafninn flýgur. — Og ofan á allt bœtast slæm launakjör, ekki rétt? „Jú, mikil ósköp. Við vorum einmitt að þinga um þetta um daginn. Þegar Þjóðleikhúsið var stofnað 1955 þá gengu mennta- og fjármála- ráðuneyti út frá því að hæstu laun leikara mið- uðust við prófessoralaun. Síðan hefur sigið svo á ógæfuhliðina að þeir leikarar sem eru í hæsta flokki, sem einu sinni hét heiðurslaunaflokkur, eru ekki hálfdrættingar á við prófessorana sem er þó ómögulega hægt að segja að séu hálauna- menn í dag með 45 þúsund krónur í meðallaun. Því hafa leikarar í dag smánarlaun. Leiklist er orðin einhver dýrasti lúxus sem fólk getur leyft sér.“ — Hvað fœrð þú í mánaðarlaun? „Ég er með 32 þúsund brúttó eftir þrjátíu ára starf. En hver einasta króna er gefin upp þannig að ég fæ útborgað 6.500 krónur á mánuði. Þess vegna lendir maður í þeim vítahring að þurfa að vinna eitt eða tvö aukastörf til að geta lifað. Auð- vitað langar til dæmis engan leikara til að vera sígjammandi í auglýsingum. En þegar maður stendur frammi fyrir því að fá 6.500 krónur út- borgað á mánuði og fær jafnmikið fyrir að lesa inn á eina auglýsingu, þá þarf helvíti sterk bein til að segja nei takk.“ Að þessari launaúttekt lokinni víkjum við að glímu Helga við Ríkarð III og líðan hans undan- farnar vikur. „Ég viðurkenni að þegar ég stóð frammi fyrir þessu magni af texta varð ég alveg skelfingu lostinn," segir Helgi. „Þar fyrir utan var aðdragandinn sérkennilegur. Uppfærslunni hafði verið frestað æ ofan í æ, í fyrstu vegna verkfalls BSRB haustið '84, og því var ég farinn að trúa að aldrei yrði af þessu. Svo þurfti ég end- anlega að horfast í augu við þetta erfiða hlut- verk og áður en ég hafði lært textann var hann eins og ókleifur hamar. Við æfum í leikhúsinu frá tíu til fjögur og síðan tek ég tvo til fjóra tíma á dag til að læra textann blaðsíðu fyrir bfaðsíðu." Sprautaður niður með morfíni — Ber hegðun þín og orðrœða utan leikhúss- ins aldrei keim af þeim hlutverkum sem þú ert að glíma við? „Það kemur fyrir. Upp á síðkastið hef ég haft tilhneigingu til að setja stuðla og höfuðstafi inn í þetta venjulega slangurmál sem ég tala. Ég er svo fastur í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. En það er svo sem ekkert verra . . . En ég þarf ekki bara að glíma við textann, heldur er það aukið puð að ná öllum líkamslýt- um Ríkarðs. Eftir sex tíma æfingar er maður sjálfkrafa orðinn dálítið bæklaður. Ég hef farið varlega í að fullkomna þennan fatlaða fóla vegna þess að fyrir tíu árum eða svo var ég skor- inn upp við brjósklosi í baki og hef þurft að forð- ast ákveðnar hreyfingar'síðan. Þannig var að eitt sinn lenti ég í því að hjálpa pabba við að koma tonni af kartöflum undan rigningu, hljóp með alla kartöflupokana yfir marga garða. Þá fékk ég svona rosalega í bakið að ég bara steinlá emjandi af kvölum. Svo var farið með mig á ónefndan spítala hér í borg og mér sagt að þetta væri bara slæmt þursabit sem myndi læknast með æfingum. Ég var settur í meðferð hjá einhverri þýskri kerl- ingu með þeim hroðalegu afleiðingum að eftir hverja törn sáu læknarnir þann kost vænstan að sprauta migniður með morfíni. Þegar þetta hafði gengið í nokkra daga var Helgu alveg hætt að lítast á blikuna, hún sá að ég var orðinn mjög úr heimi hallur. Hún spurði lækni sem hún þekkti hversu langan tíma tæki að gera mann að morf- ínista og hann sagði að það færi eftir mótstöðu- aflinu, það tæki svona frá fimm dögum upp í fimm vikur. Helga hafði þá samband við skurð- lækni sem var nýkominn til landsins og hann fór með henni að kíkja á mig í heimsóknartíman- um, sá eins og skot að þetta var alvarlegt brjósk- los. Síðan stal hann mér eiginlega yfir á sinn spít- ala og skar mig upp. Því er skiljanlegt að ég fari mér varlega og ég hef blessunarlega sloppið fram að þessu.“ — Finnst þér Ríkarður, þessi fúla, kýtta könguló sem hann er nefndur, vera þannig skrif- aður að fólk fái samúð með honum? „Kannski ekki samúð, en ég held að fólk hafi gaman af að sjá svona fullkomna skepnu sem einskis svífst. Hann brýtur einhvern móralskan hljóðmúr svo að það verður áhugavert að fylgj- ast með hvort maðurinn ætli virkilega ekki að stoppa við neitt. Er honum ekkert heilagt? Er ekki til samviskutaug í hans skrokki?" Nú er Helgi virkilega kominn í ham, heldur viðmælanda sínum föngnum með augnaráðinu og vingsar kaffibollanum svo úr skvettist: „Það sem er svo snjallt hjá Shakespeare er að hann lætur Ríkarð segja strax í upphafi við áhorfend- ur: Ég er skepna og ætla mér að klífa á kjöl með hrottaskap! Ég er búinn að leggja út ákveðið net og ætla mér engu að tapa. Hann lætur áhorfend- ur ævinlega vita fyrirfram hvað hann ætlar að gera næst og svo fylgjast þeir með hvernig hann leysir málin. Það er t.d. alveg makalaust þegar hann talar við ekkjuna sem hann hefur drepið fyrir bæði eiginmann og tengdaföður og hatar hann eins og pestina, að honum skuli takast að snúa taflinu þannig við með orðaskylmingum að eftir tíu mínútur hefur hún ákveðið að ganga í eina sæng með honum! Ríkarður er bæklaður fóli, en manískur. Hann ætlar sér að eignast þessa ekkju fyrir konu, hann skal, og gegnum það lamast mótstöðuafl konunnar. Ríkarður III og kona Paul McCartney „John Burgess leikstjóri sagði okkur eitt lítið dæmi af svipuðum karakter. Þegar hinn heims- frægi Bítill, Paul McCartney, var hamingjusam- lega giftur fyrri konu sinni, ákveður lítill, óásjá- legur Skoti, algjör padda, að ná þessari konu frá Paul. Hann tekur upp á því að hringja í hana, sendir henni rósavönd á hverjum einasta morgni ásamt yndislegum orðsendingum. Á þessu gengur þangað til konan fer frá Paul. En þegar áætlun Skotans hafði heppnast hefur hann engan áhuga á konunni lengur og fer út að djamma með strákunum, en hún húkir ein eins og dáleidd hæna í íbúð þessa manns og veslast upp. Eitthvað svipað á við um Ríkarð: hann hef- ur til að bera einhvern æðislega manískan styrk sem gerir ekkjuna vankaða." — Hefur þú eitthvað af þessum eiginleika í sjálfum þér? „Nei. En sem leikari verður maður að geta allt. Annars hef ég oft verið talinn dálítill maní- ak, en ég held það sé fyrst og fremst vegna útlits- ins.“ — Þú ert þá enginn maníak? „Ekki að öðru leyti en því að ég er ógurlegt fagidjót. Ég hef lifað og hrærst í þessu í þrjátíu ár og aldrei getað hugsað mér að gera neitt ann- að. Svo hef ég prófað ýmsar hliðar leiklistarstarf- seminnar fram undir það síðasta: leikið og leik- stýrt til skiptis, unnið við sjónvarp og kvikmynd- ir. Ég er óskaplega manískur að því leyti að mér finnst að leikarar eigi að geta allt. Það er svo hrífandi að sjá leikara sem virkilega ráða við sitt fag, eins og mér finnst skelfilegt, bæði sem ieik- stjóri og áhorfandi, að sjá hversu algeng meðal- mennskan er. Ég segi ekki að ég geti allt, en ég reyni allt hvað af tekur." — Og engar maníur í einkalífinu? „Nei. Það er hreinlega ekki pláss fyrir þær, og áhugamálin ráðast svo til alveg af leikhúsmaní- unni. Ég hef aldrei haft þörf fyrir hestamennsku, laxveiði og annað slíkt.“ — Lestu mikið? „Ekki nærri nógu mikið. En fyrir nokkrum ár- um eignuðumst við Helga dálítinn húskofa fjarri heimsins glaumi og þar höfðum við kvöldvökur, og reyndar hér í bænum líka. Ef við eignuðumst nýja bók þá ákváðum við að lesa hana í samein- ingu, upphátt hvortfyrir annað. Ég las í hálftíma meðan hún bróderaði eða prjónaði, og svo tók hún við. Þannig fórum við í gegnum ansi stóran bunka af litteratúr." — Nú eruð þið í sama starfi og hafið unnið mikið saman. Hvernig hefur það reynst? „Mjög vel. Ég hef oft vorkennt mökum leik- ara. Fólk verður óhjákvæmilega manískt á ein- hvern hátt fljótlega eftir að það byrjar í Leiklist- arskólanum. Kunningjahópurinn breytist þang- að til hann samanstendur af hörðum kjarna sern hugsar ekki um neitt annað en leikhúsið. Ég held að hin ideala samsetning sé eins og hjá okk- ur Helgu, að hjónin séu bæði í þessu." — En getur það samt ekki boðið heim ein- hvers konar samkeppnishœttu? „Hugsanlega. En við höfum alveg losnað við það, guði sé lof. Sem betur fer hefur alltaf verið einhver öldugangur í þessu, maður ber ekki stöðugt stórvirki á herðum sér. Við höfum axlað þetta nokkurn veginn til skiptis, þannig að af- brýðisemi hefur aldrei komið til.“ — En ef þið standið samtímis í stórrœðum? „Þá höfum við yfirleitt verið svo heppin að vera að vinna saman. Og þá reynum við að bera kápuna á fjórum öxlum." — Hvernig hefur ykkur gengið að skipta með ykkur heimilisstörfum og barnauppeldi? „Vel, held ég. Við höfum aldrei litið á fjölskyld- una sem hátíðlega stofnun. Börnin okkar þrjú hafa alltaf tekið gott og gilt að annað okkar eða bæði þyrfti að vinna. Eg veit ekki hvort barna- lán okkar stafar af þessu heppilega uppeldi eða hvort þau eru svona að upplagi, en þau hafa aldrei gert þá kröfu að við skyldum absólútt vera heima." „Kikkið" sem frekju- hundurinn fékk — Hvað með heimilisverkin? „Ekkert system, ekkert system," segir Helgi og hristir hausinn ákaft. „Það sem er laust þá

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.