Helgarpósturinn - 06.03.1986, Side 8
Jón Kr. Sólnes frtmúrari er lögfræðingur
Iðnaðarbankans, þar sem bankastjóri er
frímúrarinn Siguröur Ringsted.
Gunnar Sólnes, fyrrum stjórnarmaður og
endurskoðandi Sjallans. Hann er frímúr-
ari og eins og Jón Kr. sonur Jóns G. Sól-
nes, frímúrara og bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins.
Elías I. Elíasson: Stjórnarmenn hafa ekki
verið yfirheyrðir.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
rannsakar um þessar mundir rekst-
ur skemmtistaðarins Sjallans þar i
bæ. Hófst rannsóknin eftir að upp
kom þrálátur orðrómur um ýmiss
konar misferli í rekstrinum. Einkum
var rætt um sölu á smygluðu áfengi
og kjöti, um tvíselda aðgöngumiða
og vínsölu á svokölluðum „svörtum
kössum". í fjölmiðlum opnaðist mál-
ið með ítarlegri fréttaskýringu dag-
blaðsins Dags á Akureyri. Þar var
meðal annars greint frá því, að dyra-
verðir Sjallans leituðust við að taka
aðgöngumiða í heilu lagi af gestum
til að selja aftur, en miðarnir koma
númeraðir frá bæjarfógeta. Með
þessum hætti fær bæjarfógeti mun
lægri gestatölu en raun ber vitni og
um leið greiðir Sjallinn lægri sölu-
skatt. Hafði blaðið eftir starfsmanni
bæjarfógeta að söluskattsundan-
dráttur þessi hefði verið „opinbert
leyndarmál" en embættið ekkert
gert til að koma upp um svindlið og
ekki talið út úr Sjallanum í mörg ár.
Það gerði hins vegar blaðamaður
Dags og þóttu hans niðurstöður
staðfesta gruninn.
Reyndar fullyrti einn viðmælenda
Helgarpóstsins að mál þetta hefði í
raun opnast þegar fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sjallans, Sigurður Þ.
Sigurðsson var handtekinn einn
daginn með smygl úr bátnum
„Svanurinn" Sigurður og annar
maður til voru sektaðir um 60 þús-
und krónur hvor. Átti smyglið að
notast í Sjallanum.
Stjórnarmenn ekki
yfirheyrðir!
Það vakti athygli við rannsókn-
ina, að þegar nokkrir starfsmenn
höfðu verið yfirheyrðir, en stjórnar-
menn ekki, var málið sent til emb-
ættis ríkissaksóknara í Reykjavík.
Er fullyrt að embættinu í Reykjavík
hafi ekki þótt rannsóknin nægilega
ítarleg, enda var málið sent aftur
norður með beiðni um frekari rann-
sókn. Framhaldsrannsóknin stend-
ur nú yfir og s'agði Elías I. Elíasson
bæjarfógeti í samtali við Helgar-
póstinn í vikunni að enn hefðu
aðeins starfsmenn verið yfirheyrðir.
Sagði hann að ekkert hefði komið
fram sem benti til þess að stjórnar-
menn og eigendur Sjallans tengdust
rannsóknarefninu, hvað sem síðar
kynni að koma í ljós.
Það má heita allmerkilegt að
rannsóknarmönnum hafi enn ekki
þótt ástæða til að yfirheyra stjórnar-
menn og eigendur Sjallans. Við-
mælendur Helgarpóstsins voru á
einu máli um að það væru furðuleg
vinnubrögð að þessum aðilum hefði
verið hlíft við að svara spurningum
um reksturinn. Enda er erfitt að
skilja hvernig möguleg sala á smygl-
uðu áfengi og kjöti og endurtekin
sala á aðgöngumiðum ætti að geta
farið framhjá stjórnarmönnum og
eigendum Sjallans.
Hverjir eiga
Akur h/f?
Sjallann á og rekur hlutafélagið
Akur. í núverandi stjórn sitja þeir
Þóröur Gurmarsson, umboðsmaður
Brunabótafélagsins, Adalgeir Finns-
son, forstjóri byggingarfyrirtækisins
Aðalgeir og Viðar og Jón Kr. Sólnes,
héraðsdómslögmaður. Til skamms
tíma sat í stjórninni Gunnar Sólnes,
lögfræðingur og bróðir Jóns, en
hann hefur verið endurskoðandi
fyrirtækisins. Núverandi endur-
skoðendur Akurs eru Pétur Antons-
son, einn eigenda og Þórarinn B.
Jónsson, fyrrum meðeigandi. Nú-
verandi framkvæmdastjóri er Oskar
Steingrímsson og hefur hann
prókúru ásamt Þórði og Jóni Kr.
Heimildir Helgargóstsins greina
reyndar frá því að Óskar hafi þegar
sagt upp og sé nú einungis að klára
nauðsynleg bókhaldsverkefni.
Þetta hafi hann gert til að sín mál
kæmust á hreint.
Þá eru tilnefndir sem meðeigend-
ur Sveinbjörn Vigfússon, bóksali,
Karl Gunnlaugsson, kaupfélags-
stjóri og Skarphéðinn Ásgeirsson,
eigandi Amaro.
Þessir aðilar tóku sig saman eftir
að Sjallinn brann í desember 1981
og keyptu meirihlutaeign Sjálfstæð-
isflokksins í fyrirtækinu. Síðan hafa
verið haldnir stopulir aðalfundir,
Notuðu eigendur Sjallans illa fenginn gróða til að kaupa sér flotta bila? Það segir sagan sem gengur i bænmu Þennan Range
.Rover á Jón Kr. Sólnes. Hann er eins og Range Rover bílar Þórðar Gunnarssonar, Aðalgeirs Finnssonar og Béturs Antonssonar.
Slíka bíla má fá hjá Kennedy-bræðrum, sem eru góðir og gegnir frímúrarar...