Helgarpósturinn - 06.03.1986, Page 13
fjölmiðlum, var forstöðumaður eili-
og hjúkrunarheimilis Reykjavíkur-
borgar við Dalbraut skyndilega
leystur frá störfum í vetur. Margrét
Einarsdóttir, varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, hefur gegnt
starfinu undanfarnar vikur, en hún
er sjúkraliði að mennt og hefur til-
tölulega litla starfsreynslu.
Umsóknarfrestur um forstöðu-
mannsstöðuna rann út um síðastlið-
in mánaðamót og er Margrét ein af
umsækjendum. Vitað er um ein-
staklinga, sem sótt hafa um stöðuna
og eru bæði betur menntaðir og
hafa mun meiri reynslu af slíku
stjórnunarstarfi en sjálfstæðiskon-
an. Samt sem áður þykir nokkuð ör-
uggt að Davíðsmeirihlutinn ætli
henni hnossið. Sjálfstæðismenn vita
að ráðningu Margrétar Einarsdóttur
í starfið verður harðlega mótmælt
og þess vegna var fyrir skemmstu
gripið til þess ráðs að „iáta“ gamla
fólkið á stofnuninni skrifa undir
skjal þar sem það mælir eindregið
með ráðningu Margrétar. Þessu
plaggi verður síðan veifað, þegar
óánægjuraddir taka að heyrast og
farið verður að tala um óþægilega
hluti eins og pólitískar ráðningar,
bitlinga og siðleysi.
Það er ekkert leyndarmál að nú-
verandi forstöðumaður hefur alls
ekki verið of vinsæll meðal vist-
manna og þeir síður en svo ánægðir
með að skrifa undir listann henni til
stuðnings. Auðvitað var enginn
neyddur til þess að skrifa undir, en
margt af gamla fólkinu kveið því
skiljanlega að komast í ónáð hjá for-
ystumönnum stofnunarinnar, ef það
neitaði að skrifa nafn sitt á blaðið.
Félagsmálaráð Reykjavíkurborg-
ar kemur saman í dag, fimmtudag,
og verður þá væntanlega rætt um
ráðningarmálin á Dalbraut. Heyrst
hefur, að Davíðsmenn hafi mikinn
hug á að „keyra málið í gegn", eins
og það heitir á slæmu máli.. .
A
Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, sem þekkt er fyrir störf sín
í útvarpinu og umsvif í Framsóknar-
flokknum, hefur nú haslað sér völl í
viðskiptalífinu. Ásta Ragnheiður
hefur nefnilega tekið við starfi inn-
kaupastjóra hjá Hagkaup. Þessa
dagana er hún á sérstöku þjálfunar-
námskeiði á vegum fyrirtækisins en
mun hefja störf að fullu innan tíð-
ar...
N
■ ýlega var haldinn fundur í
Alþýðubandalaginu í Reykjavík þar
sem listaframboðið í Reykjavík var
endanlega samþykkt. Sú samþykkt
gekk þó ekki alveg átakalaust fyrir
sig, því á fundinum voru uppi til-
raunir til að breyta niðurstöðu for-
valsins. Það sem aðallega fór fyrir
brjóstið á flokksforystunni var að
Anna Hildur Hildibrandsdóttir,
sem flokkseigendafélagið hefur
miklar mætur á, skyldi ekki komast
ofarlega á listann. Var því komið
með uppástungu þess efnis að ung
stúlka væri heppileg í 6. sætið. í því
sæti er hins vegar fyrir Skúli Thor-
oddsen lögmaður og fyrrum lög-
fræðingur Dagsbrúnar. Skúli hefur
hins vegar ekki verið ýkja vinsæll
hjá flokksforystunni og illa séður
hjá forystumönnum Dagsbrúnar
sem Guðmundi J. Guðmundssyni
og Þresti Ólafssyni. Það kom hins
vegar í hlut Þorbjarnar Brodda-
sonar háskólakennara að bera upp
breytingartillöguna á fundinum.
Allir þeir sem töluðu um þessa til-
lögu voru hins vegar á móti breyt-
ingum á listanum. Þó keyrði um
þverbak þegar verkamaður í
Áburðarverksmiðjunni og gamall
Dagsbrúnarmaður, Árni Jóhanns-
son, stóð á fætur og lýsti því yfir að
hann hefði alltaf litið á Skúla sem
Dagsbrúnarmann eftir störf hans
hjá félaginu og sér fyndist ótækt að
fleiri menntamenn færu í efri sætin
en fulltrúar verkamanna látnir
víkja. Var þá Önnu Hildi nóg boðið
og stóð hún á fætur og lýsti því yfir
að hún myndi afþakka að setjast í
sæti Skúla. Fékk Skúli því að sitja
áfram í 6. sæti þótt fáir telji það bar-
áttusæti. Hins vegar telja margir
sem þekkja til innviða Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík að tillaga
þessi sé runnin undan rifjum oddvit-
ans, Sigurjóns Péturssonar...
lE kki alls fyrir löngu var auglýst
laust til umsóknar starf húsvarðar í
Arnarhváli, þar sem fjármálaráðu-
neytið er til húsa. Ekki þættu þetta
nú tíðindi ef ekki kæmi til að fjár-
málaráðherra Þorsteinn Pálsson
tók inn á borð til sín allar umsókn-
irnar tuttuguogfjórar. Ekki heyrði
ráðningin treint undir hann, en ef-
laust hefur fjármálaráðherra þótt
það tryggara að frændi hans eða
flokksbróðir hreppti stöðuna. Enda
eflaust illt til þess að vita ef kommi
færi að opna fyrir honum hurðina
inní Arnarhvál. . .
S_ ...
farið mjög fyrir brjóstið á sjoppueig-
endum. Þannig er nefnilega mál
með vexti að sjoppur greiða kvöld-
söluleyfi af allri verslun meðan
myndbandaleigur sleppa alveg við
slíkan skatt. En það sem gerir þó
sjoppueigendur æra er að matar-
verslanir þær sem hafa opið á kvöld-
in sleppa algjörlega við kvöldsölu-
leyfisgjaldið. Já, það er margt órétt-
lætið í heiminum. . .
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans
á þessu ári hefur stjórn bankans ákveðið að gera
sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð:
100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur
sem gefur 7,25% ársvexti umfram vísitölu
og er aðeins bundinn í 15 mánuði.
Þetta er tilboð sem allir peningamenn
m Landsbanki
fslands