Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 16
eftir: G Pétur Matthíasson myndir: Jim Smart
Ráðuneytastríð:
Rúmur milljarður
höndum sýslumanna
í hendur oddvita
Alexander er ráðherra sveitarstjórnarmanna en Þorsteinn er ráðherra
sýslumanna og þeir rœðast ekki við, a.m.k. ekki um jöfnunarsjóð sveitarfélaganna
Alexander Stefánsson félags-
málarádherra er í klípu. Hann til-
kynnti í desemher s.l. ad frá og med
áramótum yrði framlag ár jöfnun-
arsjódi sveitarfélaga greitt beint til
sveitarfélaganna, en ekki eins og
tíðkast hefur alla tíð til sýslunefnd-
anna. Sýslumenn hafa hingað til út-
deilt fénu einsog vera ber, eftir að
hafa áður tekið frá fé til sameigin-
legra nota í sjúkrasamlög, til menn-
ingar- og menntamála t.d. Eftir
breytingarnar eiga sýslumenn að
innheimta gjaldið af sveitarfélögum
og munu þeir telja þaö erfiðleikum
bundið þar sem staða sveitarfélag-
anna víðast hvar er ekki góð.
Alexander þarf ekki að fara með
þessar breytingar fyrir þingið. Hann
þarf ekki einu sinni að breyta reglu-
gerð, það nægir að hann ákveði
þetta, sem hann og hefur gert. En
ekkert hefur enn orðið úr fram-
kvæmdinni. Sýslumenn fengu eins
og venjulega greitt úr jöfnunarsjóði
sveitarfélaganna nú í febrúar fyrir
janúarmánuð. Ástæðan: Þorsteinn
Pálsson fjármálaráðherra vill ekki
gera eins og Alexander býður og
það er fjármálaráðuneytið sem
borgar út. Það mun hafa steytt á
þessu máli í ríkisstjórninni, þó að
staða Alexanders sé veik vegna
áhugaleysis samflokksmanna hans
á þessu máli, og munu þeir ekki allir
vera á sama máli.
Milljarður í jöfnunarsjóði
Hlutverk jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laganna er að greiða framlag til
sveitarfélaganna, að greiða auka-
framlag, að greiða fólksfækkunar-
framlag o.fl. o.fl. Tekjur jöfnunar-
sjóðs samkv. lögum frá 1980 eru 8%
af söluskatti, 5% af verðtollstekjum
og landsútsvar. Landsútsvar greiða
fyrirtæki einsog Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins. Sölunefnd varnar-
liðseigna, Áburðarverksmiðjan og
Sementsverksmiðja ríkisins o.fl. rík-
isfyrirtæki, olíufélögin og bankarn-
ir, þannig að um verulegar upphæð-
ir er að ræða. Olíufélögin greiða t.d.
í landsútsvar VA% af heildarsöl-
unni. Tekjur jöfnunarsjóðs eru nú
meira en 80 millj. á mánuði og áætl-
að er að tekjurnar í ár verði einn
milljarður eitthundrað og átján mill-
jónir, 1.118.000.000,00. Hér er á
ferðinni mikið fé sem fer mjög
hljótt. Fé sem félagsmálaráðherra
sér einn um því hann hefur á hendi
yfirstjórn sjóðsins. Rennsli þessara
peninga í gegnum kerfið hefur að
undanförnu gengið mjög vel fyrir
sig þangað til núna að Alexander
ætlar að færa féð úr höndum sýslu-
manna i hendurnar á sveitarstjórn-
unum.
Félagsmálaráðherra og ráðherra
fjármála eiga sem sagt í stríði og á
þessari stundu er óljóst hvernig mál-
ið fer. Hvor vinnur. En stríðið hófst
ekki hjá ráðherrunum, stríðið felst í
valdabaráttu sveitarstjórnarmanna
annarsvegar og sýslumanna hins-
vegar. Að vissu leyti berjast sýslu-
nefndir fyrir lífi sínu í þessu máli þar
sem nú liggur fyrir þinginu frum-
varp þar sem lagt er til að sýslu-
nefndir verði lagðar niður. Missi
sýslurnar gegnumstreymið úr jöfn-
unarsjóði standa þær lakar í barátt-
unni fyrir tilverurétti sínum. Það
munu fyrst og fremst vera hin stærri
sveitarfélög og kaupstaðir sem hafa
hug á að fá þetta fé beint í veltuna til
sin. Minni sveitarfélög njóta góðs af
sýslufélögunum og sum hver nota
jafnvel sýsluskrifstofurnar til að sjá
að mestu leyti um bókhald viðkom-
andi sveitarfélags, enda fer mest allt
fé sveitarfélagsins í gegnum hend-
urnar á starfsmönnum sýsluskrif-
stofunnar.
Sjálfstæðisbrölt atvinnu-
sveitarstjórnarmanna
„Þetta er sjálfstæðisbrölt þeirra
sem ég kalla atvinnusveitarstjórnar-
menn sem finnst það niðurlægjandi
að ganga fyrir sýslumann til þess að
fá uppgjörið sitt,“ sagði Friðjón Guð-
röðarson sýslumaður á Hvolsvelli,
áður á Höfn í Hornafirði. „Þetta er
partur af minnimáttarkennd þeirra
sem aldrei hafa komist í sýslunefnd-
ir og hafa aldrei getað litiö þær réttu
auga.“ Friðjón sagði að sér fyndist
það vera galli á sýslunefndunum að
sýslumaður yrði sjálfvirkt formaður
og framkvæmdastjóri nefndarinnar,
því menn gætu setið uppi með sjálf-
dauðan sýslumann í aldarfjórðung
og það gæti verið mikið vandamál.
„Þetta mál allt saman er valdabar-
átta á milli þeirra sem ég kallaði at-
vinnusveitarstjórnarmenn sem sitja
alla daga suður í Reykjavík á fund-
um í Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga og koma yfirleitt frá stærri
sveitarfélögum og kaupstöðunum
og hafa þarafleiðandi aldrei verið í
sýslufélagi sumir hverjir, og svo
hinna sem eru á heimavelli og eru
að reyna að vinna að hlutunum
saman. Þetta er vindmyllubarátta
atvinnusveitarstjórnarmannanna.
En verði sýslunefndirnar lagðar
niður verður það stærsta byggða-
röskunarmál aldarinnar af manna-
völdum. Alexander Stefánsson til-
kynnti um þessa breyttu tilhögun á
Alexander Stefánsson, staddur erlendis
einsog allir hinir.
greiðsiufyrirkomulaginu í desem-
ber, svona sem jólagjöf til sveitar-
stjórnarmanna, en fjármálaráðu-
neytið hefur ekki viljað fallast á
breytinguna, þannig að það er enn
verið að berjast og ekki útséð um
það hver vinnur. Alexander er nátt-
úrulega þeirrar skoðunar að hér sé
verið að höggva stórt og það er
vissulega hart fyrir hann sem fag-
ráðherra ef að hann kemur þessu
ekki í gegn. En ég tel þessa breyt-
ingu til hinnar mestu bölvunar.
Þetta verður bara til þess að minni
sveitarfélögin fái minni þjónustu á
sýsluskrifstofunum sem þau hafa
fengið mikla, að ég tali nú ekki um
ósköpin ef sýslunefndirnar verða
lagðar niður. En það er ekki að vita
hvernig það mál springur út á
þingi," sagði Friðjón að lokum.
Ekki náðist í Alexander Stefáns-
son félagsmálaráðherra vegna
þessa máls, þar sem hann, líkt og
flestir ráðherranna, er staddur er-
lendis þessa dagana.
„Félagsmálaráðherra hefur
ekkert rætt við mig,“ sagði
fjármálaráðherra
Þorsteinn Rálsson: „Ekki eitt orð við mig
HP sló á þráðinn til Þorsteins
Pálssonar fjármálaráðherra þar
sem hann dvaldist á kostnað skatt-
greiðenda á Hotel dAngleterre.
Hann hafði lítið um málið að
segja, vildi greinilega sem minnst
af því vita en vissi auðheyrilega
allt. Það er greinilegt að ráðherrar
í ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar rœðast helst við í gegnum
menn úti í bœ, ná eða blaðamenn.
En:
„Félagsmálaráðherra hefur ekki
nefnt þetta mál einu orði við mig,“
sagði Þorsteinn.
— Bíðurðu þá eftir því að
heyra frá félagsmálaráðherra?
„Ég svo sem bíð ekki eftir því,
hann hefur ekkert rætt þetta við
mig.“
— Þú ert þá alveg áhyggju-
laus útaf þessu máli?
„Já, já. Eg er það.“
— Ber þetta ekki vott um
sambandsleysi í ríkisstjórn-
inni?
„Ég hef bara heyrt það utan að
mér að hann hafi sýnt þessu
áhuga en hann hefur ekki rætt
þetta við mig. Það hafa einhverjar
viðræður farið fram við embættis-
menn í ráðuneytinu en það hefur
ekki verið borin fram nein beiðni
við mig.“
16 HELGARPÖSTURINN