Helgarpósturinn - 06.03.1986, Qupperneq 20
Magnús L., borgarstjórnarfulltrúi, borgarráðsfull-
trúi, forseti borgarstjórnar, framkvæmdastjóri Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur, I stjórn Lífeyrissjóðs
Reykjavíkurborgar, formaður Innkaupastofnunar
Reykjavikur, formaður atvinnumálanefndar borgar-
innar o.fl.: Tekjukóngur verkalýðsforingjanna með
150—160 þúsund á mánuði.
Þröstur, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, stjórnar-
formaður Miklagarðs, stjórnarformaður KRON, í
bankaráði Seðlabankans og í stjórn Granda hf.:
„Það kemur þér ekkert við. Þú getur flett þessu upp
í Mogganum frá því ( september 1983."
Guðmundur Þ., borgarstjórnarfulltrúi, formaður
Iðju, formaður Landssambands iðnverkafólks og í
stjórr, Verkamannabústaða Reykjavíkur: „Ég tel
ekki fram fyrir blöðin."
Verkalýðsforingjarnir semja sjólfir um sín laun:
VERKAMANNALAUN
I síðustu viku náðust samningar milli ASI og
VSI, fögnuður Morgunblaðsins varð sltkur að
blaðið lagði forsíðuna undir málið. Innlendar
fréttir hafa ekki verið á forsíðu blaðsins síðan
1973 að gosið íHeimaey braust út, a.m.k. hef-
ur öll forsíðan ekki verið brúkuð fyrir inn-
lendar fréttir stðan þá, ekki svona í heild sinni.
Ánœgja Þjóðviljans varð ekki sú sama, enda
engin forsíða til að fórna í innlendar fréttir,
þannigað GuðmundurJ. Guðmundsson sagði
blaðinu upp og hann tjáði blaðamanni HP að
hann hefði t langan tíma ekki lesið HP, þannig
að sennilega er það bara Mogginn sem verka-
lýðsmaðurinn les þessa dagana.
Helgarpósturinn ákvað að taka þessi samn-
ingamál öðrum tökum, enda annarskonar
forsíða á þessu blaði en hinum. HP ákvað að
kanna hvað verkalýðsforkólfarnir hefðu sjálfir
í laun. Ekki vildu þeir sjálfir gefa upp tekjur
sínar og settu flestir á sig snúð, þannig að leita
varð annarra leiða. Það má sjá svör þessara
manna þegar þeir voru spurðir hvað þeir
hefðu í laun, annarsstaðar á síðunni.
Kannaðar voru tekjur fimm foringja, Ás-
mundar Stefánssonar, formanns ASÍ,
Guðmundar J. Guðmundssonar, formanns
Dagsbrúnar og Verkamannasambandsins,
Þrastar Ólafssonar, framkvæmdastjóra
Dagsbrúnar, Magnúsar L. Sveinssonar, for-
manns Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
Guðmundar Þ. Jónssonar, formanns Iðju og
Landssambands iðnverkafólks, og Aðalheið-
Asmundur, formaður ASl: 100 þúsund á mánuði
en ekkert aukalega fyrir vökur og samningaskorpur.
ar Bjarnfreðsdóttur, formanns Starfs-
mannafélagsins Sóknar.
Verkalýðsleiðtogarnir voru mjög stirðir í
svörum er HP innti þá eftir launum þeirra og
fríðindum. Margir hverjir svöruðu því til að
það væri þeirra einkamál, og að launamál
ræddu þeir ekki við fjölmiðla. Einna helst
mátti álíta af svörum þeirra að þeir skömmuð-
ust sín fyrir há laun, enda tekjur þeirra fjarri
launum þeirra sem þeir hafa umboð fyrir.
Foringjarnir semja sjólfir
um sín laun
Það er athyglisvert við laun verkalýðsfor-
ingjanna að þeir fá ekki greitt samkvæmt
taxta, heldur er kaup þeirra samkomulags-
atriði þeirra sjálfra og þeirra sem þeir vinna
hjá, þ.e. verkalýðsfélaganna. Þegar foringjarn-
ir sitja á móti VSI eru þeir þess vegna ekki að
semja fyrir sjálfa sig heldur einungis verkalýð-
inn, sjálfir semja þeir um sín laun við sjálfa sig
innan verkalýðsfélaganna. Það fyrirkomulag
tíðkast víða úti í bæ, fólk reynir að fá hærra
kaup með því að semja sjálft, og hefur þar með
áhrif á svonefnt launaskrið í landinu.
Flestir þessara fimm karla, sem kannaðir
voru, eru hundrað þúsund króna menn. Ás-
mundur fær í laun sem formaður ASÍ kr.
68.883,-, hann fær greidda fasta eftirvinnu
17.221,- kr. og í bílastyrk kr. 12.195.-. Ás-
mundur situr ekki í mörgum nefndum eða
Guðmundur J., alþingismaður, formaður Dags-
brúnar, formaður Verkamannasambandsins o.fl.:
„Ég hef ekkert að segja við Helgarpóstinn."
stjórnum. Hann situr í stjórn Samvinnuferða-
Landsýnar og fær þar lág stjórnarlaun, ein-
ungis 18.000,- kr. á ári. Samtals eru laun for-
manns ASÍ því kr. 99.799,- hvern mánuð, alla
tólf mánuði ársins, sem gerir tæp tólfhundruð
þúsund á ári.
Guðmundur J. þiggur laun
hjó Alþingi, Dagsbrún og
Verkamannasambandinu
Guðmundur J. er alþingismaður og fær þar
af leiðandi þingfararkaup kr. 68.128,-. Venju-
lega fá menn ekki laun sem formenn Dags-
brúnar ef þeir eru einnig þingmenn, en Guð-
mundur J. þiggur 20—25.000,- kr. í laun og
sömu upphæð þiggur hann fyrir að vera for-
maður Verkamannasambandsins. Þannig nær
Guðmundur J. því að vera með 108—
118.000,- kr. á mánuði.
Undirmaður Jakans í Dagsbrún, Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri, hefur það einnig
gott. Auk framkvæmdastjóralaunanna fær
hann þóknun fyrir að vera stjórnarformaður,
bæði í stjórn KRON og Miklagarðs, hann er
einnig í stjórn Granda hf., auk þess að sitja í
bankaráði Seðlabankans. Framkvæmdastjóra-
launin eru u.þ.b. 70.000,- kr. en bankaráðið
gefur tæplega 8.000 kr. á mánuði. Hann verð-
ur ekki mjög feitur af stjórnarlaununum, en
hann fær tvöfalt lítilræði fyrir að vera stjórnar-
formaður. Grandi hf. hefur ekki tekið ákvörð-
Aðalheiður, formaður Starfsmannafélagsins
Sóknar: „Það er alveg sjálfsagt, ég þarf bara að ná
I slðasta launaseðil."
eftir: G Pétur Matthíasson myndir: Jim Smart
un um stjórnarþóknun, og það hefur Mikli-
garður heldur ekki gert, en ef tekið er mið af
stjórn Samvinnuferða-Landsýnar (sem var
það eina af fyrirtækjunum sem ekki eru ríkis-
rekin sem gaf upp laun stjórnarmanna), má
reikna með að annarsstaðar séu þau hærri.
Það má því reikna a.m.k. með um 5.000,- kr. á
mánuði fyrir stjórnarformennsku en 3.000,-
kr. fyrir stjórnarstörf hjá Granda. Alls gerir
þetta kr. 91.000,-. Við þetta bætist síðan
ókeypis sími og ókeypis bíll hjá Dagsbrún.
Magnús L. er
tekjukóngur forkólfanna
Gudmundur Þ. Jónsson var fúll þegar blaða-
maður spurði hann hvað hann hefði í laun,
þótt ekki sé hægt að sjá að hann þurfi að
skammast sín fyrir launin. Hann nær þvi ekki
að vera 100.000,- króna maður, þó að
hann sé bæði formaður Iðju og Landssam-
bands iðnverkafólks, sitji í borgarstjórn og
stjórn Verkamannabústaða Reykjavíkur. Ef
reiknað er með sömu formannslaunum og hjá
Jakanum, hefur hann samtals ,,aðeins“
65-75.000,- kr. á mánuði.
Magnús L. Sveinsson, formaður Verslun-
armannafélags Reykjavíkur, hefur það best
þessara manna. Sem framkvæmdastjóri VR
hefur hann um 80.000,- kr. á mán. Hann fær
20.438,- kr. fyrir að sitja í borgarstjórn, hann
fær um 4.400,- kr. fyrir að vera forseti borgar-
stjórnar, hann fær 30.658,- kr. fyrir að sitja í
borgarráði og er ekki allt talið enn. Magnús er
formaður Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar og hún gefur kr. 10.668,-, hann er for-
maður atvinnumálanefndar borgarinnar með
kr. 4.572,- í mánaðarlaun. Magnús L. Sveins-
son er því launakóngur þessara heiðursmanna
með á milli 150-160.000,- kr. á mánuði.
Þessi upphæð hlýtur að vera allrar athygli
verð fyrir t.d. kassadömuna í einhverjum stór-
markaðnum sem í þrjú ár hefur búið við 30%
kjaraskerðingu og mun búa við hana áfram.
Aðalheiður neðst —
enda kona
Þetta var um karlana í stéttinni. Andstætt
þeim svaraði Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður Starfsmannafélagsins Sóknar,
spurningum blaðamanns greiðlega. Hún sagð-
ist fyrir febrúarmánuð hafa fengið kr. 34.055,-
plús 6.800,- í bílastyrk, þannig að hún losar
40.000,- eða einn fjórða af launum Magnúsar
L. Sveinssonar og helminginn af formanns-
launum hans, sem er athyglisvert í Ijósi þess að
konur eru fjölmennar í báðum þessum verka-
lýðsfélögum.
Þetta eru launin í tölum.
Sá efsti með hátt á
annað hundrað þús.
á mánuði!
Ásmundur Stefánsson, formaður
ASÍ, heildarlaun: 99.799,- kr. á mánuði
+ frfðindi.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar og Verkamanna-
sambandsins, heildarlaun 108—
118.000,- kr. á mánuði + fríðindi.
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Daasbrúnar, heildarlaun áætluð
91,000,- kr. á mónuði + mikil fríðindi.
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju og Landssambands iðnverkafólks,
heildarlaun 65-75.000,- kr. á mánuði
+ fríðindi.
Mognús L. Sveinsson, formaður
Verslunormannafélags Reykjavíkur,
heildarlaun: 150-160.000,- kr. á mán-
uði + fríðindi.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Starfsmannafélagsins Sóknar,
heildarlaun: 40.855,- kr. á mánuði og
engin fríðindi.
20 HELGARPÓSTURINN