Helgarpósturinn - 06.03.1986, Blaðsíða 24
VERKAKVENNAHÚS
HP SKOÐAR NÝTT HÚSNÆÐI TVEGGJA VERKAKVENNAFÉLAGA VIÐ SKIPHOLT í REYKJAVÍK
eftir Jónínu Leósdóttur myndir Jim Smart
Við Skipholt í Reykjavík stendur
reisulegt, hvítt hús, sem er þó í raun
mun stœrra og glœsilegra en ytra út-
lit gefur t fljótu bragöi til kynna.
Undanfarna mánuöi hefur líf færst í
þetta hús í síauknum mœli og enn eru
iönaðarmenn þar ad störfum affull-
um krafti. Blaöamaöur Helgar-
póstsins lagði leiö sína í Skipholtiö
og kannaöi þá stórmerku aöstööu,
sem konur í Starfsmannafélaginu
Sókn og Verkakvennafélaginu
Framsókn eru þarna aö koma sér
upp.
Á jarðhæð hússins, sem ekki væri
óeðlilegt að kalla Verkakvennahöll,
eru skrifstofur Verkakvennafélags-
ins Framsóknar, en Ragna Berg-
mann veitir því félagi forstöðu.
Framsókn var áður með aðstöðu í
gamla Alþýðuhúsinu á horni Hverf-
isgötu og ingólfsstrætis og má því
segja að um hreina byltingu hafi
verið að ræða í húsnæðismálum
þeirra við vistaskiptin.
Ekki er liðinn mánuður frá því að
Ragna flutti inn í Skipholtið og sagð-
ist hún afskaplega ánægð með nýju
skrifstofurnar og stórt fundaher-
bergi, sem þarna er. Var innanhúss-
arkitekt fenginn til þess að sjá al-
gjörlega um hönnunina og hefur
hann látið setja smekkleg blá teppi
um allt, en skrifstofuhúsgögnin eru
úr ljósum viði. Veggir eru hvítir og
lýsingu haganlega komið fyrir á lítt
áberandi hátt.
Langþráður draumur
að rætast
Svipað yfirbragð er á skrifstofum
Sóknar á efri hæð hússins, en þar er
það auðvitað Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir sem ræður ríkjum. Tók
hún blaðamanni og Ijósmyndara
opnum örmum, lagði öll önnur
Salurinn undirbúinn fyrir fyrsta fundinn.
Aukín
Auk hinnar margrómuðu þjónustu, sem ásamt hlýlegu umhverfi og
fjölbreYttum matseðli hafa aflað veitingahúsinu svo mikilla vinsælda, eykur
Amarhóll enn við umsvif sín. Við hínn almenna veitingarekstur hefur
berlega komið í Ijós að margír afvíðskiptavinum Amarhóls hafa brýna þörf
fyrir aðstöðu til lokaðra funda og samkvæma. Til þess að koma til móts
við þessar þarfir gesta sinna hafa aðstandendur Amarhóls ákveðið að veita
þessa þjónustu og eins og alltaf þegar Amarhóll er annars vegar situr
fjölbreytnin í ÍYrirrúmi. Að aflokinni hagræðingu á salarkynnum
veitíngastaðarins getur Amarhóll nú boðið fjölbreYttum hópí viðskíptavína
sinna margvíslega þjónustu.
KLÚBBAR FÉLAGASAMTÖK FYRIRTÆKI
Amarhóll býður ykkur aðstöðu tíl fastra hádegisverðafunda jafnt sem
einstakra og einnig einkasamkvæma.__________________
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:
Smærri hópa (frá 10 manns) hádegi og kvöld alla virka daga(í koníakssal).
EINKASAMKVÆMI
Stórar veislur jafnt sem smáar. Sama hvert tílefnið er, brúðkaup, afmæli,
fermingar, próflok, Amarhóll annar öllu. ___________________
ARNARHÓLL BÝÐUR AÐSTÖÐU FYRIR:_________________________
Stærri samkvæmi (allt að 100 manna matarveíslur og 200 manna hanastél
til kl. 18.00) hádegí Iaugardaga og sunnudaga.
Gestir utan af landi - Ópera-Leikhús___________________
AmarhóII tekur á móti hóppöntunum óperu- og leíkhúsgesta utan af landi.
verkefni til hliðar og sýndi okkur
hreykin hin rúmgóðu húsakynni.
Greinilegt var að þarna var lang-
þráður draumur að rætast, því Aðal-
heiður gekk afar brosmild um skrif-
stofur og sali.
Á gólfum eru ýmist blá teppi eða
blár gólfdúkur og allar innréttingar
og húsgögn eru úr ljósum viði, eins
og á skrifstofum Framsóknar. Allt er
þetta að sjálfsögðu glænýtt, hreint
og snyrtilegt — jafnt skrifstofur,
gangar, salir og eldhús. Lítill funda-
salur er þarna á annarri hæðinni, en
þar er einnig gengið inn í útbygg-
ingu, sem hefur ýmislegt merkilegt
að geyma.
Gengið er niður nokkrar tröppur,
út í stórt fordyri með myndarlegu
fatahengi. Þar inn af er gríðarstór
fundasalur, sem leigður verður út
fyrir ýmsa fundi og samkundur og
getur auðveldlega rúmað um 300
manns. Nú þegar hafa borist fjöl-
margar pantanir vegna yfirvofandi
fermingatíðar, og voru iðnaðar-
menn að leggja síðustu hönd á verk-
ið, þegar okkur bar að garði. Pá um
kvöldið stóð einmitt til að halda í
salnum fyrsta fundinn og var verið
að líma mjúkt efni undir stólfætur til
þess að hlífa glansandi parketgólfr
inu.
Formleg opnun hússins mun hins
vegar ekki fara fram fyrr en að
samningalotunni yfirstaðinni, að
sögn Aðalheiðar. Pá stendur til að
hafa opið hús í einn dag og í það
eina sinn verða Sóknarkonur beðn-
ar um að leggja til kökur, svo bjóða
megi gestum upp á hressingu. Húsið
mun þá verða til sýnis Sóknarkon-
um og öllum velunnurum félagsins.
Garðstofa og
stórar svalir
Fyrir ofan salinn er ófrágengin
garðstofa, sem greinilega á eftir að
verða perla Verkakvennahússins.
Stofan er mjög rúmgóð og björt og
út úr henni er gengið á stórar og
miklar svalir. Raunar eru svalirnar
líkari garði, og þar munu Sóknar-
konur geta komið og notið sólar og
hvíldar, þegar þær eiga frí. Sagðist
Aðalheiður vonast til þess að kon-
urnar kæmu þangað með börnin
sín, því þarna gætu þau leikið sér að
vild án þess að nokkur hætta væri á
að þau gætu klifrað yfir vegginn
umhverfis svalirnar. Þarf ekki að efa
að konurnar munu notfæra sér
þetta að sumarlagi, ekki síst þar sem
mjög margar þeirra búa í húsnæði
þar sem hvorki eru svalir né að-
gangur að garði.
Skrifstofur Sóknar voru áður við
Freyjugötu, en þær fluttu inn í nýja
húsið töluvert fyrr en Framsóknar-
konur, eða í lok ágúst á síðasta ári.
Sagði Aðalheiður að þeim hefði
fundist að það myndi ganga betur
að koma húsnæðinu ,,í stand“, ef
þær væru mættar á staðinn. Það var
því margt ógert, þegar Sóknarkon-
ur fluttu, en síðan hefur verið unnið
þarna af miklum krafti.
Heilsurækt
Á jarðhæð útbyggingarinnar er
„hið allra heilagasta“, en það er
heilsurækt fyrir verkakonurnar.
Ánægja formannsins með þennan
hluta starfseminnar fór síður en svo
leynt. Hún bókstaflega geislaði,
þegar hún sýndi okkur inn í bún-