Helgarpósturinn - 06.03.1986, Page 35
FRÉTTAPÓSTUR
Undirritaður kjarasamningur ASÍ, VSI og VMS
Nýr kjarasamningur aðila vinnumarkaðarins var undir-
ritaður miðvikudagskvöldið 25. febrúar. í honum er gert
ráð fyrir að við gildistöku samningsins muni grunntölur
allra kauptaxta, afkastahvetjandi launakerfa og aðrar
samningsbundnar launagreiðslur hækka um 5%. Síðan
verða launahækkanir á samningstimabilinu þann 1. júní
um 2,5%, 1. sept. um 3% og 1. des. um 2,5%. Sérstök ákvæði
eru í samningunum um launabætur til þeirra sem ekki hafa
notið launaskriðs þannig að tvisvar komi til peninga-'
greiðslu á tímabilinu. Þeir sem hafa 25.000 kr. í heildarlaun
að meðaltali eða minna fái greiddar 3.000 kr. 15. apríl og 15.
júní. Þeir sem hafa heildartekjur á bilinu 25.000—30.000 á
mánuði fái 2.000 kr. launabót og þeir sem hafa 30.000—
35.000 kr. í heildarlaun á mánuði fái 1.500 kr. launauppbót.
Skjót viðbrögð ríkisstjórnarinnar við samningunum
Samningsaðilar fóru á fund forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra siðdegis á fimmtudag. Þá kom í ljós að ríkisstjórn-
in kveðst reiðubúin að verða við tillögum ASÍ, VSÍ og VMS
um aðgerðir á sviði efnahagsmála sem voru forsenda þess að
kjarasamningur þessara aðila öðlaðist gildi. Þær aðgerðir
sem samningsaðilar hafa farið fram á að ríkisstjórnin beiti
sér fyrir til að draga úr verðbólgu og bæta kjör atvinnuveg-
anna og launafólks felast m.a. í eftirfarandi: Lækkun tekju-
skatts, útsvars, vaxta, verðs á opinberri þjónustu, búvöru-
verðs og tolla.
BSRB undirritar kjarasamning
Samninganefndir rikisins og BSRB komust á föstudags-
kvöld að samkomulagi, sem í öllum aðalatriðum er það sama
og samkomulag aðila hins almenna vinnumarkaðar. Þannig
er aðalkjarasamningur BSRB og ríkisins framlengdur með
breytingum sem færa hann til samræmis við meginatriði
kjarasamninga ASÍ, VSÍ og VMS. Ákvæðin um launahækk-
anir eru þau sömu, sömuleiðis ákvæði varðandi þá sem ekki
hafa notið launaskriðs.
Pentax k-1000 myndavél
28 m/m linsa
50 m/m linsa
135 m/m linsa
70—200 m/m ZOOM linsa
Upplýsingar i sima
ádaginnog83151 akvoldm.
Norðurlandaráðsþing sett í Kaupmannahöfn
34. þing Norðurlandaráðs var sett í Kaupmannahöfn á
mánudag og stendur fram á föstudag. Alls sitja 7 íslenskir
þingmenn þingið að þessu sinni auk þess sem flestir ráð-
herranna munu sitja það meira eða minna. Að þessu sinni
verða teknar til lokaafgreiðslu á Norðurlandaráðsþingi
tvær sameiginlegar tillögur íslensku þingmannanefndar-
innar. Fjallar önnur um stofnun norrænnar líftæknistofn-
unar á íslandi en hin um gagnkvæm réttindi og samræmdar
reglur varðandi búferlaflutninga á milli Norðurlandanna.
Á þriðjudagskvöld voru svo afhent við hátíðlega athöfn
í ráðhúsi Kaupmannahafnar tónlistar- og bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs. Verðlaunahafarnir eru eins og
kunnugt er þeir Hafliði Hallgrímsson tónskáld og sellóleik-
ari og ljóðskáldið Rói Patursson frá Færeyjum.
Stærsti sigur íslands í HM
í fyrsta skipti í sögunni tókst íslendingum að vinna Dani
á stórmóti í handknattleik nú á yfirstandandi heimsmeist-
aramótinu í Sviss. Og úrslitin voru að sönnu glæsileg, 25:16.
Þessi leikur var jafnframt stærsti sigur íslands í heims-
meistarakeppni til þessa_. ^
Helmingur íslenskra fyrirtækja skattlaus
Ragnar Arnalds alþingismaður hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um endurskoðun skattalaga. í greinargerð hans
kemur fram að 51% af meðalstórum og stórum fyrirtækjum
á íslandi greiðir engan tekjuskatt. Þrátt fyrir að Þjóðhags-
stofnun áætli veltu þessara fyrirtækja 136 milljarða króna
og að aðstöðugjaldstofn þeirra sé 100 milljónir er tekju-
skattstofninn aðeins 1,4 milljarðar eða tæpur hundraðasti
hluti af veltu. Skýringin á þessu er auðvitað fólgin í undan-
þágum og frádráttarheimildum til fyrirtækja, og afleiðingin
er síaukin skattbyrði almennings.
Ný þjóðhagsspá
Þjóðhagsstofnun hefur endurskoðað þjóðhagsspá sína
fyrir árið í kjölfar nýrra kjarasamninga og er nú talið að
þjóðartekjur i ár muni vaxa um 4% vegna bættra ytri skil-
yrða í stað 1,5% sem spáð var í lok nóvember.
Fréttamolar
• Sambandsstjórn Æskulýðssambands íslands hefur sent
frá sér ályktun þar sem varað er við hugmyndum Sverris
Hermannssonar um breytingar á lögum um Lánasjóð náms-
manna og hann hvattur til að kynna hagsmunaaðilum til-
lögur sinar, sem nú undanfarið hefur verið nokkuð hljótt
um.
• Nýtt útibú Borgarbókasafns Reykjavíkur í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi i Breiðholti var formlega opnað á
þriðjudag.
• Á yfirstandandi Norðurlandaráðsþingi í Kaupmanna-
höfn i vikunni var Guðrún Helgadóttir kjörin formaður rit-
stjórnar tímarits Norðurlandaráðs, Nordisk kontakt, en
Einar Karl Haraldsson er aðalritstjóri tímaritsins.
• Á sama tima og dagvistargjöld lækka um 5% á dagvistar-
stofnunum, hækka þau um 360 kr. á mánuði hjá dagmæðr-
um.
• Elli- og örorkulifeyrisþegar fá 5% hækkun á lifeyri og
tekjutryggingu í þessum mánuði og hækka þessar tvær
greiðslur samtals um 1076 kr., úr 13.198 í 14.274 kr.
• Slæm inflúensa hefur herjað á Reykvikinga undanfarið
og fyrst og fremst á skólabörn og ungt fólk. Fréttir hafa og
borist af því að hún hafi gert vart við sig á mörgum heimil-
um, þannig að allt upp í þrír heimilismanna hafa legið.
• Um kl. 10 á mánudagsmorgun fórst 10 tonna trilla, ÁS RE
H2, út af Búlandshöfða. Þrír menn voru i bátnum og björg-
uðust tveir þeirra en skipstjórans, Skúla Kristjánssonar, er
saknað. Hefur hans árangurslaust verið leitað.
v/Laugalæk s: 33755
FALLEGAR
FINNSKAR
HELGARPÓSTURINN 35