Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 3
FYRST OG FREMST
MEINT VINÁTTA Gvendar
Jaka og Alberts Guðmundssonar
hefur löngum þótt tilefni til djúpra
siðfræðiþanka en þó aldrei dýpri
en eftir að upp komst um hress-
ingarstyrkinn. Margir hafa talið
þessa vináttu til örgustu stétta-
samvinnu og að Gvendur Jaki
stefndi hagsmunum verkalýðsins í
hina mestu vá með samskiptum
sínum við íhaldsmanninn Albert.
Þessi skoðun kom fram í mynd er
Haraldur Guðbergsson teiknaði og
birtist í DV þann 22. nóvember
1984, en þá hafði Haraldur teikn-
að fyrir blaðið í hartnær eitt ár.
Myndin sýnir hina meintu vini þar
sem Albert er með vindilinn sinn
og fjárlögin, en Gvendur með glas
í hendi og með Félaga Napólepn
eftir Orwell upp úr vasanum. Árið
1984 var Orwell ofarlega í hugum
manna sem skiljanlegt er og
Haraldur beitti djúpri táknspeki til
að líkja þeim félögum við
persónur Orwells. Gamli sorrý
Gráni táknar hjá honum hina
buguðu Dagsbrúnarverkamenn og
önnur höndin á Guðmundi líkist
svínsklaufum en eins og menn
muna var erfitt að greina hver var
maður og hver var svín í bók
Orwells.
Þótt þessi vinátta sé nú mikið
fréttaefni og menn taki sér jafnvel
orðið mútur í munn, þá voru
ritstjórar DV ekki par ánægðir
með hugleiðingu Haraldar síðla
árs 1984. Þeir afþökkuðu frekari
teikningar eftir Harald og síðan
hefur engin teikning eftir hann
birst í blaðinu. Hann varð að
vonum sár en finnst nú sem
ritstjórar DV hafi vanmetið
spádómshæfileika sína all
gróflega. . .
YFIRLÆTISLAUS smáaug-
lýsing hefur birst annað veifið í
Dagblaðinu nú síðustu vikurnar
og vakið athygli þeirra sem hafa
mætur á þvílíku lesefni. Yfirskrift
dálksins er „Málverk", og auðvitað
ekkert um það að segja, nema
hvað þar eru Kjarvalsmálverk ekki
föluð til kaups eða boðin til sölu,
heldur er auglýsandinn þekktur
miðill hér í bæ, feikiskyggn kona
að sögn. Auglýsingin er svohljóð-
andi: „Dulrœn málverk. Mála
dulrænar myndir fyrir fólk, meðal
annars með litum árunnar. Uppl.
dagl. kl. 18-19. s. 32175. Jóna
Rúna Kvaran." Og nú mætti segja
manni að dulræn árumálverk færu
brátt að prýða stásstofur íslenskra
góðborgara...
ENN Á NÝ hefur Njáluleikhópi
Helga Skúlasonar og Helgu
Bachmann verið stuggað á burt
og tæplega hlæjandi að landlægri
meinbægni og rugli. En við hér
getum þó ekki stillt okkur um að
benda á að líklega er einn staður
þar sem Njála fengist færð í leik-
búning óáreitt. Vestur í Múla-
hreppi er gott landrými og í ofan-
álag getur Njáll sjálfur hreppt þar
oddvitastöðu sem heimamenn
nenna ekki lengur að kjósa til, —
og þá getur enginn sagt neitt.
ÞAÐ hefur tæpast farið framhjá
neinum að klámbylgja mikil hefur
hellst yfir höfuðborgarsvæðið frá
áramótum. Mönnum finnst það
hins vegar torskilið hvers vegna
þessi ósköp dynja nú yfir okkur,
þegar aðrar þjóðir hafa fyrir löngu
fengið leið á fyrirbærinu. í hinu
fyrrum alræmda Sóhó-hverfi í
London eru t.d. aðeins eftir tíu
löglegar klámbúllur og örfáar, sem
starfræktar eru i trássi við lög og
reglur, en þeim verður lokað á
næstu vikum. Þetta er einungis
tíundi hluti þeirrar starfsemi, sem
þarna var í gangi á meðan Sóhó
átti sitt blómaskeið. En nú ætlum
við Islendingar sem sagt að taka
við. . .
ÞAÐ GETUR verið fjör að
fletta Lögbirtingi, því glögga mál-
gagni þjóðfélagsins á Islandi. Nýj-
ar nafngiftir fyrirtækja koma þar á
prent til dæmis, margar óvenju-
legar, eins og Leöurrottan sem er
heiti á einkafyrirtæki hennar
Njálu Laufdal sem ætlar í framtíð-
inni að reka smásöluverslun með
leðurfatnað. Það tísti líka í okkur
hérna á HP á dögunum þegar við
rákumst á enn eitt svona frumiegt
fyrirtækisheiti, Rómeó og Júlía í
þetta skipíið. Heldur jókst hlátur-
inn þegar tíundaður var tilgangur
firma með svona stórbrotnu nafni
sem rekur ættir sínar til mesta
skáldjöfurs eyjunnar utan Frakk-
landsstranda. Smásala...
HELGARPUSTURINN
Jakahlaup
Hvernig fá menn sótt til saka
svona voða stóran jaka?
Aðeins stendur upp úr hafi
einn á móti níu í kafi
IMiðri
UMMÆLI VIKUNNAR
„Mér finnst það nú óttalegt bull sem
veltur upp úr Ólafi Ragnari um þessa
mórölsku, dýnamísku, þjóðfélagslegu
þýðingu."
— Guðmundur J. Guðmundsson við
Þjóðviljann 20. júní, daginn óður en rit-
stjóri sama blaðs krafðist þess að hann
segði af sér þingmennsku.
SMARTSKOT
Keyptir þú þér
eitthvað á útsölu
ÁTVR á iéttvínum?
Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR
„Nei, ekki gerði ég það í þetta skiptið."
— Stendur til að hafa svona útsölu aftur?
„Nei, ekki svona útsölu. En ég geri ráð fyrir að jafnan verði
einhverjartegundir fáanlegar íversluninni á sérkjörum. Útsalan
núna stafar af uppsöfnun á birgðum um nokkum tíma, en ég
geri ráð fyrir því að við munum reyna að losna við af okkar lager
vín sem að við teljum að ekki eigi þar lengur heima. Allt eftir
því sem hentar hverju sinni."
— Hvenær er mesta sala í verslunum ÁTVR?
„I desember, salan er langmest í desember. Það eru líka
gjarnan sölutoppar í kringum stórhátíðir, t.d. fyrir páska þegar
lokað er marga daga, eins fyrir helgar einsog Verslunarmanna-
helgina og stundum reynir á um Hvítasunnuna. Helstu topp-
arnir í sölunni eru um þær helgar þegar langur lokunartími fylg-
ir."
— Eru fleiri breytingar í aðsigi en þær að byrja með
útsölur?
,úá, fyrir utan þær breytingar sem þegar eru kunnar, þ.e. að
hér á landi verði teknar upp sjálfsafgreiðsluverslanir á áfengi,
þá verður breyting á innkaupastefnu Áfengis- og tóbaksversl-
unarinnar. Hér eru tegundir eða sölueiningar um 700 talsins.
Það eru miklu fleiri tegundir heldur en ég tel að réttlætanlegt
sé að hafa, miðað við þann markað sem fyrir hendi er, þ.a
240.000 manns. Hér fækkum við sennilega sölutegundum
verulega. Hinsvegar viljum við koma til móts við þá sem hafa
sérþarfir eða séróskir með því að reyna að efla pöntunarþjón-
ustu fyrir þá."
— Þú býst þá við því að menn muni kvarta verði teg-
undum fækkað?
„Vafalaust verða alltaf einhverjir sem telja að einmitt sú teg-
und sem þeir njóta best hafi verið tekin í burtu."
— Verður aðallega fækkað léttvínstegundum?
„Nei, nei. Sterkum drykkjum verður einnig fækkað."
— Snúum okkur að öðru, ert þú hlynntur þvf að hlut-
verki ÁTVR verði komið til einkaaðila?
„Ég held nú að það sé töluvert í land með að slíkt geti gerst.
Ftersónulega hef ég ekki skoðun á því hvort rlkið eða einkaaðilar
eigi að gegna þessu hlutverki. Ég tel ekki að það sé nokkuð
sem sanni það að ríkið hafi staðið sig áþreifanlega illa í sinni
starfsemi. Hitt er annað mál að ef verða á við öllum þeim ósk-
um sem fram hafa komið um að opna útsölur hingað og þang-
að um landið þá yrði það erfiður rekstur að hafa vínbúð með
opinberum starfsmönnum á stöðum eins og — ég nefni til
dæmis Ólafsvík, Norðfjörð og jafnvel stað eins og Siglufjörð,
þar sem er reyndar verslun. Spurningin er sú hvort ríkið eigi að
hafa verslun og starfsmenn fyrir markað sem ef til vill telur ekki
nema 1000 manns."
— Sérðu þá fram á að erfiðleikum verði bundið að
opna útsölur á þeim stöðum sem nú þegar hafa sam-
þykkt verslanir?
,úá. Ef við gerum ráð fyrir því að rfkið eitt eigi að eiga hlut
að máli á öllum þessum stöðum, þá verður erfitt að eiga við
það. En ef þetta væri samtengt einhverju öðru t.d. bygginga-
vöruverslun eða veiðarfæraverslun eða annarri starfsemi sem
fyrir er á staðnum þá liti málið öðruvísi út. En þá myndi hinn
hefðbundni svipur ríkisverslunarinnar minnka."
— Forstjórastarf ÁTVR, finnst þér það vera hættulegt
starf?
„Nei, ég hef ekki orðið var við neinn lífsháska ennþá. Hins-
vegar ef menn ættu í erfiðleikum með að umgangast alkóhól
gæti starfið reynst erfitt. En það sama á við um mig og alla
starfsmenn fyrirtækisins."
— En fá starfsmennirnir afslátt á vörum verslunar-
innar?
„Nei, það fá þeir ekki, en þeir gætu hafa kíkt inn á útsöl-
una. .."
— Hvað með t.d. jólagjafir frá umboðsaðilum?
„Nú hef ég ekki reynslu af því hvernig þær eru úr garði gerð-
ar þannig að ég get ekki tjáð mig um jólagjafir."
— Að lokum, hvaða vín þykir þér best?
„Ja, það fer eftir tækifærum býst ég við. Ég er svona fastur
í því formi að ég drekk rauðvín með kjöti og hvítvín með fiski
og einstaka sinnum finnst mér gott að fá mér púrtvíns- eða
sérríglas. Þau skipti eru annars ekki mörg. Ég er í eðli mínu frek-
ar umtalsverður bindindismaður."
Það er ekki langt síðan að við forstjórastarfi ÁTVR tók Höskuldur
Jónsson, áður ráðuneytisstjóri. Á þeim stutta tíma hefur margt gerst [
áfengismálum þjóðarinnar, hæst ber að mjög margir þéttbýlisstaðir úti
á landi hafa samþykkt að opna megi áfengisútsölur. En það nýjasta f
áfengismálum þjóðarinnar átti sér stað i gær, það var útsala á léttvínum
í Ríkinu. 1. aprfi s.l. þótti slíkt svo fáránlegt að gert var grfn að slíkum
atburði.
HELGARPÓSTURINN 3