Helgarpósturinn - 26.06.1986, Side 5
mjög hrifnir af grein sem Páll Berg-
þórsson skrifaði í Moggann á mið-
vikudaginn, svo hrifnir að þeir gátu
ekki setið á sér að klippa hana út og
hengja upp í lyftunni svo að sem
flestir gætu notið hennar. 1 greininni
segir Páll að útvarpsráð hafi hengt
bakara fyrir smið er það fordæmdi
fréttaflutning sjónvarps og útvarps
af heilsustyrk Gvendar Jaka. Páll
hélt því fram að þessi fréttaflutning-
ur væri afsprengi nýrrar stefnu er
Markús Orn Antonsson útvarps-
stjóri hefði sjálfur fengið í gegn og
því væri það hann sem bæri ábyrgð
á því sem hneykslaði útvarpsráð.
Síðan ber Páll Markús saman við
fyrrverandi útvarpsstjóra og kemur
hann illa út úr þeim samanburði. En
það voru ekki allir jafnhrifnir af
greininni og þeir sem hengdu hana
upp í lyftunni. Eftir skamma stund
hafði Markús, eða einhver fylgi-
sveina hans, rifið hana niður og nú
er fátt að lesa fyrir þá sem ferðast
með lyftunni. ..
V
Vv ið skýrðum fra þvi um dag-
inn að Páll Magnússon, fréttastjóri
sjónvarpsins, hefði vísað á bug
beiðni Sigrúnar Valbergsdóttur,
framkvæmdastjóra Norrænu leik-
listarhátíðarinnar, um að þessi
sterki miðill segði eitthvað frá hátíð-
inni í fréttum. En þar við sat ekki,
því málið fór fyrir Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóra, sem tal-
aði við Pál vegna þessa máls. Páll
brást víst hinn versti við og sakaði
Sigrúnu um að hafa klagað sig, sem
Sigrún vildi nú ekki fallast á; hennar
starf væri að vinna að því að þessi
hátíð yrði velheppnuð í hvívetna og
menn hefðu fullan rétt á að koma
skoðunum sínum á framfæri í landi
þar sem skoðanafrelsi ætti að vera
við lýði. En viðtal var svo loks tekið
við Sigrúnu, sem eitthvað gekk þó
illa, því spólan neitaði að fara í gang.
Leið nú og beið og var annað viðtal
tekið við Sigrúnu viku síðar. En ekki
átti viðtalið greiðan aðgang að
fréttatíma sjónvarps því enn liðu 5
dagar þar til það birtist á skjánum
eða 10 dögum frá því að útvarps-
stjóri ræddi málið við Pál. . .
Fyrsti ratmvertilegi
luxttssmábíHínn!
Það er bjart framundan hjá kaupendum smábíla, því nú er kominn á markaðinn
byltingarkenndur lítill bíll, sem á ekkert sameíginlegt með öðrum smábílum,
nema stærðina!
LANCIA „SKUTLAN" er framleídd af rótgrónum bílaverksmíðjum, sem híngað
til hafa eingöngu einbeitt sér að framleíðslu stórra, vandaðra luxusbíla og sport-
bíla.
Hún er „lítíl að utan — en stór að ínnan“ og býður upp á áöur óþekkt þægindi
og íburð í bílum af þessarí stærð: Luxusínnrétttíngu með sérbólstruðum sætum,
fullkomið mælaborð, rafknúnar rúður, rafknúnar hurðalæsingar og margt
fleira.
Með öllu þessu kostar Skutlan aðeins 278.000 krónur!!
Lancia „SKUTLAN" er fyrir þá, sem kjósa Iítinn, lipran 5 manna bíl, sem býður
samt upp á íburð og þægindi eins og í bestu Iuxusbílum.
Komdu því og skoðaðu og reynsluaktu Skutlunní frá LANCIA — þú verður ekki
fyrír vonbrigðum!!
Smiðshöföa 23sími 6812 99
GOTT KAST GEFUR FISK
51LS17XR
HELGARPÓSTURINN 5