Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 9

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 9
\BÚI ÁSMUNDARSTAÐABRÆÐRA: búa, þar eru risabændur ef þeir bræður eru ekki iðnjöfrar eins og komið var að áður. Risabændur í landinu — sem eru fáir en stórir — hafa stolið burt því viðurværi sem annars hefði getað orðið mörgum væntanlegum og nýorðnum eyði- býlum til bjargar. Það er löngu við- urkennd staðreynd að íslenskir bændur brugðust seint við þegar sýnt var að vaxtarbroddar hefð- bundinnar landbúnaðarframleiðslu væru úr sögunni og voru tregir til að fara út í nýjar atvinnugreinar. Stjórnvöld stuðluðu að þessu sinnu- leysi og ungii) framtakssamir menn eins og Asmundarstaðabræður gripu gæsina — eða öllu heldur hænsnin og gengu að þeim kjörum sem ætluð voru bændum. Önnur ástæða, sem menn til- greina fyrir óvild margra í garð Asmundarstaðabúsins, er að það var Ingólfur Jónsson á Hellu sem studdi þá við uppbyggingu Ásmund- arstaða. Ingólfur var virtur foringi meðal sjálfstæðismanna á Suður- landi en jafn umdeildur þar sem saman komu menn úr fleiri flokk- um. Líklega hefur andstaða fram- sóknarmanna við Ingólf þó hvergi verið eins hatröm og mikil og í heimasveitum hans; Holtum, Ása- hreppi og nærsveitum þeirra. Kaup- félagið Þór á Hellu var stofnað fyrir atbeina Ingólfs og lengi vel versluðu framsóknarmenn alls ekki í ,,íhalds“kaupfélaginu en beindu viðskiptum sínum að Rauðalæk, þar sem starfandi var framsóknarkaup- félag. Pólitíkin var hatrammari í þessum sveitum og enginn efaðist um það hvoru megin Ásmundar- staðamenn skipuðu sér í þeim efn- um. Margháttað samstarf þeirra við Kaupfélagið Þór hefur enn ítrekað þetta. Ekki er hægt að leiða fram hversu almennt það er í nágrannabyggðum Ásmundarstaða að menn hafi óvildar- og öfundar- horn í síðu þessara nágranna sinna. Sumir sem HP ræddi við vildu gera lítið úr þessu, bentu á að flestir sem þekktu þá Ásmundarstaðabræður vel kynnu ágætlega við þá. Þá er komið að enn einni ástæðu þessa — mjög margir íbúar í heimasveit þeirra bræðra þekkja alls ekki þessa granna sína. Eftir því sem árin líða virðist heldur draga úr tortryggni i þeirra garð og gömlu verslunardeil- urnar vegna kaupfélags Ingólfs á Hellu heyra brátt sögunni til. Sá yngsti er fyrir- liðinn Nokkra athygli vekur að Gunnar, sem er yngstur þeirra bræðra, er fyrir þeim út á við og sér um sölu- mál og fjármál. Engir af heimilda- mönnum HP kunnu ákveðna skýr- ingu á þessu en töldu þó að jafnræði væri með þeim. ,,Þeir eru allir mjög frekir eða ákveðnir, hvort sem þú vilt kalla það,“ sagði einn heimilda- manna blaðsins. Af bílaeign og sumarbústað Gunnars ráða menn líka að hann lifi íburðarmeira lífi. Hér verður ekkert mat lagt á þetta en á móti sumar bústað og jarðareign Gunnars að Árbæ í Holtum kemur að hinir bræðurnir eiga sitt einbýlishúsið hvor að Hellu. Aðrar eignir þeirra bræðra austanfjalls eru skráðar á hlutafélög þeirra; Holtabúið og slát- urhúsið Dímon. Eignir og skuldir austanfjalls Ásmundarstaðabræður buðu Holtabúið falt fyrir 200 milljónir króna síðastliðið haust. Helmingur átti að borgast í reiðufé á næstu 10 árum en 100 milljónir voru áhvíl- andi skuldir Holtabúsins. „En þetta var alltof hátt verð,“ sagði einn heimildamanna HP. Annar heim- ildamanna HP benti á að svona batt- erí væri ekki hægt að selja. Það væri mjög dýrt og auk þess væri við of- framleiðslu að stríða í kjúklinga- og eggjaframleiðslu. Á það hefur verið bent að kjúklinga- og eggjabú í land- inu séu illseljanlegar eignir eftir verðhrun á liðnum vetri. Ef litið er á veðbókarvottorð allra eigna Ásmundarstaðabræðra aust- anfjalls, með hliðsjón af eignaupp- talningunni hér á síðunni, má ætla að samanlagðar skuldir Holtabúsins séu milli 100 og 150 milljónir króna. Árið 1984 greiddu þeir bræður að- eins um 75 þúsund í eignaskatt sem gefur þá eina vísbendingu að þeim hefur, eins og vel flestum sem byggðu upp á verðbólguárunum, tekist að afskrifa eignir sínar hraðar en raunverulegt ástand þeirra segir til um. 200 milljóna króna kaupverð þótti væntanlegum kaupendum síð- asta haust vera of hátt — sumpart vegna þess að þeir gátu ekki tekið veð í því sem keypt var fyrir þeim 100 milljónum sem þurfti að greiða á 10 árum. Til þess hvíldi of mikið á búinu. Það er á hinn bóginn ljóst að skuldir Ásmundarstaða eru tæpast umfram raunverulegt kaupverð — sé á annað borð mögulegt að selja risabú sem þetta. „Þeir skulda ekki neitt hérna, hafa allt sitt á hreinu og okkur hafa ekki borist neinar fjárnáms- eða gjaldþrotakröfur," sagði Friðjón Guðröðarson, sýslumaður á Hvols- velli, þegar blaðamaður sótti hjá honum veðbókarvottorð vegna eigna þeirra bræðra. HP hefur eng- ar heimildir fyrir vanskilum þeirra bræðra, engar fjárnámskröfur eru á Ibúðarhús þeirra bræðra: Ekki (burðarmeiri en algengt er til sveita. Gunnar hefur nú flutt úr slnu húsi en hefur sitt heimili í Reykjavlk og athvarf austanfjalls [„sumarbústað" skot- spöl frá Ásmundarstöðum. EIGNIR - FRAMLEIÐSLA - UMSVIF Holtabúið er til húsa á Ásmundarstöðum í Ásahreppi. Ef ekið er hringveg- inn sem leið liggur austur yfir Þjórsárbrú þá blasa byggingar þeirra bræðra við í nokkrum fjarska ofan af hæðardragi rétt austan við Þjórsá. Ásmundar- staðir standa þar á kambi sunnan þjóðvegar og sér glitta í þök alifuglahús- anna. Aðkoman að þessu stórbúi er likust því að ekið sé inn í lítið sveitaþorp eða samyrkjubú suður í ísrael. Þeir bræður búa á Ásmundarstöðum II og III en að Ásmundarstöðum 1 er rekinn hefðbundinn búskapur og standa hús Jörgens bónda þar yst á torfunni. Eignir Holtabúsins á Ásmundarstöðum eru sem hér segir: Fimm íbúðar- hús. Þrjú sem þeir bræður bjuggu í, í einu þeirra hýsa þeir vinnufólk og það fimmta tilheyrði gjaldþrota svínabúi á nýbýlinu Ásheimum sem þeir bræður hafa nýlega keypt. Nokkrar gamlar byggingar eru á jörðinni sem tilheyrðu fyrri búskap. Þá eru á Ásmundarstöðum 19 alifuglahús, 1 geymsluhús og eggjapökkunarstöð. Á búinu eru um 100 þúsund hænsnfuglar, þar af um 30 þúsund varphænur. Þaðan koma um 6 til 7 milljónir eggja á ári og vikulega eru 6 til 7000 fuglar sendir til slátrunar. Eignir Holtabúsins á Hellu eru tvö einbýlishús (þess utan eiga Jón og Garð- ar sitt hvor þar) en hús þeesi eru að nokkru leyti notuð við útungun. A Hellu er einnig alifuglasláturhús þeirra bræðra en um það er hlutafélagið Dímon. Húseignin er um 2000 femetrar að gólffleti og að 38% í eigu Rangárvalla- hrepps en hlutafélagið, sem á hin 62%, er að langmestu leyti í eigu þeirra bræðra. Þegar rætt var um sölu Holtabúsins síðastliðið haust fyrir 200 millj- ónir króna var sláturhúsið á Hellu og allar eignir á Ásmundarstöðum með í dæminum. Áhvílandi skuldir á öllum eignum Ásmundarstaðabræðra aust- anfjalls nema um 100 til 150 milljónum króna. Við Holtabúið, sláturhúsið á Hellu og útungunarhúsið þar vinná að jafnaði 40 til 50 manns. Heima á búinu eru um 15 til 20 fastir starfsmenn. Fyrirtæki þeirra bræðra er talið það stærsta, ef ekki langstærst af öllum fyrirtækjum í Rangárþingi. Þá á Holtabúið meirihluta í hlutafélaginu Fóðurblöndunni, sem aftur er meirihlutaeigandi að Ewos hf. og væntanlegur eigandi að hveitimyllu sem byggð verður seinna á þessu ári. Allar þessar fjárfestingar í Reykjavík telja heimildamenn HP að séu ekki mikið undir 150 milljónum og hvergi nærri lokið. Áhvílandi skuldir á Fóðurblöndunni, og þar með Ewos hf„ nema um 80 milljónum króna. Stærstur hluti þessa er í erlendu láni sem Búnaðar- banki ábyrgist og nemur 2,7 milljónum svissneskum franka. Þá eru ótaldar aðrar eignir þeirra bræðra í Reykjavík. Alkunna er að við umtalað útboð á Stigahlíðarlóðunum í Reykjavík keyptu þeir bræður þrjár lóðir og nýlega keypti Holtabúið hús fyrir Gunnar Jóhannsson fyrir 11 millj- ónir króna. Heildareignir Ásmundarstaðabræðra gætu numið um 300 milljónum króna en skuldir þeirra eru tæplega mikið yfir 200 milljónum. veðbókarvottorðum, ekkert þar sem styður sögusagnir um erfið- leika eða gjaldþrot. Helmingur af skuldum ahvílandi á Holtabúinu er vegna kaupa á Fóð- urblöndunni hf. Áður en þeir bræð- ur réðust i þau kaup á miðju ári '84 hafa skuldir á Holtabúinu ekki verið mjög miklar. Síðan þá hafa þeir stað- ið í mjög viðmiklum fjárfestingum í Reykjavík sem nú mun verða vikið að. Verksmiðjur fyrir hundruð milljóna Ásmundarstaðabræður keyptu meirihluta í Fóðurblöndunni hf. af Lýsi h.f. fyrir 50 milljónir króna árið 1984. Sjálf verksmiðja fyrirtækisins var þá mjög úr sér gengin og réðust þeir í smíði nýrrar sem getur fram- leitt allt að 60 þúsund tonn af fóðri á ári. Heildarnotkun landsmanna nemur um 70 þúsund tonnum en markaðshlutdeild Fóðurblöndunn- ar telja heimildamenn blaðsins að sé um eða rétt yfir 10 þúsund tonn- um. Talið er að þessi nýja verk- smiðja hafi kostað um 100 milljónir króna. Heimildamenn blaðsins töldu margir að erfiðleikar Ásmund- arstaðabræðra stöfuðu fyrst og fremst af þessum miklu fjárfesting- um, frekar en að rekstur búsins hefði ekki gengið mjög vel. í Morgunblaðinu síðasta laugar- dag birtist frétt þess efnis að Fóður- blandan h.f. hefði gengið til sam- starfs við sænskt fyrirtæki um fram- leiðslu á fiskeldisfóðri og stofnað í þeim efnum hlutafélagið Ewos hf. sem Fóðurblandan á 51% í en hinir 49%. Fóðurblandan leggur þessu nýja hlutafélagi til nýbyggða verk- smiðju sína en sænska móðurfyrir- tækið, sem líka heitir Ewos, mun væntanlega leggja fram um 50 mill- jónir króna í sjóði félagsins. Að sögn Gunnars á Ásmundarstöðum er kostnaður við að gera verksmiðjuna hæfa til þess að framleiða fiskeldis- fóður óverulegur. Því er ljóst að hafi erfiðleikar Fóðurblöndunnar verið verulegir þá eru þeir það áreiðan- lega ekki lengur. Það eru á hinn bóginn ekki neinar traustar heimild- ir fyrir erfiðleikum þeim megin, frekar en á vígstöðvum þeirra bræðra austanfjalls. Auk þessa er ætlun Fóðurblönd- unnar — sem áfram er til — að ganga til samstarfs við danskt fyrir- tæki (í sænskri eigu) um byggingu hveitimyllu sem mun þá væntan- lega geta framleitt allt það hveiti til manneldis sem landsmenn þurfa! Með framleiðslu á hveitinu myndast hrat sem nýtanlegt er í skepnufóður. Vegna flókinna skattalaga á fóðri til búpenings verður fóður unnið úr hráefni sem flutt er inn til manneldis margfalt ódýrara en fóður sem unn- ið er úr efnum sem flutt eru inn und- ir réttum formerkjum. Með þessu segja heimildamenn HP að Fóður- blandan geti boðið lægra verð á fóðri en áður hafi þekkst. En til þess að koma þessu öllu af stað, segja heimildamenn HP að þeim sé nauðsynlegt að selja Holta- búið. „Það fer enginn að kaupa fóð- ur af sínum keppinautum. Meðan þeir eiga Holtabúið geta þeir engan veginn fengið bændur til að kaupa af sér fóður, allra síst þá sem eru með kjúklinga- og eggjabú,“ sagði einn heimildarmaður HP. „Klókir menn, Ásmundarstaða- bræður," sagði einn heimildamanna HP. „Fyrir helgi vissi enginn, sem mér er kunnugt um, að þeir ætluðu að selja Ewos helminginn í Fóður- blöndunni. Það fréttist ekkert hjá svona mönnum fyrr en þeir láta blöðin vita.“ Útsjónarsemi, haröýögi og heppni ráðið velgengninni. Líka frekir, ákveðnir ,,og vaða yfir hvern sem er...!“ Gunnar er áreiðan- lega eini bóndinn sem ekur um á Benz 500! Líkist mest iðnfyrir- tœki, en skilgreint sem landbánaður. Tilheyra annarri veröld i augum nágranna sinna... Einn á þrjá einbýlis- hás ásamt leiguhúsi í Sviss með hinum. Framleiða 350 þásund kjáklinga og 7 milljónir eggja á ári. Ekki stórbœndur, heldur risabœndur — eða bara iðn- jöfrar. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.