Helgarpósturinn - 26.06.1986, Qupperneq 25

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Qupperneq 25
Helgi Þór Jónsson og Sólveig Sigurgeirsdóttir kona hans taka við heillaóskum frá Birgi Þorgilssyni ferðamálastjóra. „GESTIRNIR KOMA" - MÚGUR, MARGMENNI OG ÓMÆLT KAMPAVÍN VIÐ OPNUN HÓTEL ARKAR í HVERAGERÐI „Stórkostlegt œuintýri", „krafta- verk" ,,hér hefur Grettistaki veriö lyft", sagði samhljóda kór framá- manna sem steig á pall við opnun Hótel Arkar í Hveragerdi á laugar- daginn. Jú, þad sögdu Árni Johnsen alþingismaður, sem stjórnaði at- höfninni, Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra, Kjartan Lárusson, forstjóri Feröaskrifstofu ríkisins, Karl Guðmundsson sveitarstjóri og Hafsteinn Kristinsson oddviti, sem taldi víst að Örk Helga Jónssonar myndi fljóta, engu síður en hin upp- runalega örk gamla Nóa. Líklega voru þeir fjölmörgu gestir, sem sóttu opnun Hótel Arkar, á sama máli og framámennirnir sem höföu orðið — hér hefur óneitan- lega verið unnið mikið þrekvirki; þetta stóra hús, sem rúmar 120 gesti, hefur verið reist á aðeins niu mánuðum — bygging þess hófst ekki fyrr en síðla hausts 1985. Og nú er holan, sem þá var grafin, orðin hið reisulegasta hús sem blasir við frá þjóðveginum austur fyrir fjall. Það ætti tæpast að væsa um gesti á Hótel Ork; þar eru samtals 59 her- bergi, fimmtíu tveggja manna her- bergi og níu svítur, einsog það heitir. I öllum herbergjunum er sjónvarp, sími, ísskápur og bað. Á fyrstu hæð hótelsins er stór veitingasalur og annar salur með sérinngangi, ætl- aður fyrir ráðstefnur og til útleigu. Þar er líka pöbb í enskum stíl. Á jarðhæð er aðstaða til heilsuræktar af ýmsu tagi; tækjasalur, gufubað, leirbað, kísilbað, lækningastofa og aðstaða fyrir sjúkraþjálfara og nuddara. Ekki hefur minni rækt verið lögð við umhverfi hótelsins, en þar eru meðal annars þrír tennisvellir, golf- aðstaða, skokkbraut, sparkvöllur og sundlaug með forláta rennibraut. Þar hafa líka verið gróðursett tré og blómplöntur til yndisauka. Og nú þykir mönnum forvitnilegt að sjá hvort þessi herlegheit og lúx- us nægi til að lokka erlenda og inn- lenda lysthafendur austur í Hvera- gerði. Gestir við opnunina voru náttúrlega ekki á einu máli um það, enda þótt flestallir dáðust að fram- takinu og framkvæmdinni. Sumir töldu að Hótel Örk væri of langt frá bænum, aðrir sögðu að hótelið væri of nálægt bænum — nema þá að það væri hvort tveggja of nálægt og of langt frá bænum. Enn aðrir töldu að hér væri verið að bera í bakka- fullan lækinn — það væri yfrið nóg af gistirými á suðvesturhorni lands- ins, Suðurlandsundirlendið þar með talið, enda líka verið að opna annað hótel á Selfossi. Arkarsmiðurinn Helgi Þór Jónsson er þó viss í sinni sök og segir í samtali við Helgar- póstinn: „Gestirnir koma — ég hef minnstar áhyggjur af því.“ Og það er víst að sá múgur og margmenni sem fylgdi Örkinni úr hlaði og þáði ómælt kampavín á laugardaginn hefði ekkert haft á móti því að gista eins og eina nótt þarna undir Kömbunum. Það hafa varla verið miklu færri en þúsund manns sem þáðu veitingar hjá Helga Þór Jónssyni þennan hátíðis- dag; alþingismenn, ferðamálafólk, þekktir borgarar af öllum stærðum og gerðum og fólk úr Hveragerði og nærsveitum. Þeir kváðu vera byrjaðir að bóka hótelherbergi á Örkinni, það er enn- þá hægt að fá pláss í sumar — venju- legt verð fyrir tveggja manna her- bergi mun vera tæpar fimm þúsund. „Er þetta ekki annars nokkuð gott hjá honum Helga?" Magnús Hreggviðsson blaðaútgefandi, Þorgeir Ástvaldsson rásarstjóri og Sigfríð Þórisdótt- ir veitingamaður á Krákunni. Mitt í náttúrunni í gróðurskála Hótel Arkar; Halldór E. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, og Margrét Gísladóttir. Helgi Þór Jónsson hefur verið kallaður „krafta- verkamaður", en þessi er víst kraftaverkamaður líka; Kristinn Finnbogason, fyrrverandi og núver- andi framkvæmdastjóri Tímans, og kona hans Guð- björg Jóhannsdóttir. Þessi tvö þekkja víst allir; Bryndís Schram borgar- stjórnarframbjóðandi og Ingólfur Guðbrandsson, ferðaskrifstofustjóri og söngmálafrömuður. Samgöngumálafrömuðir, hvor á sinn hátt: Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, og Ingólfur Pétursson, yfirumsjónarmaður hótel- halds í Valhöll á Þingvöllum. Hluti af þeim fjölda sem sótti Hótel örk heim á opnunardaginn hlýðir á ávarp Þorsteins Pálssonar, fjármálaráðherra og fyrsta þing- manns Suðurlandskjördæmis; á myndinni þekkjum við meðal ann- arra flokksbróður hans, Ölaf G. Einarsson þingflokksformann. ■Heftir Egil Helgason myndir Jim SmartMMB Nærsveitungar Hótel Arkar voru meðal gesta við opnunina; þar á meðal þessir. HELGARPÖSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.