Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 31

Helgarpósturinn - 26.06.1986, Síða 31
IISTAPOSTURINN Hrakningasaga Söguleikanna heldur áfram: Verða Rauð- hólar endastöðin? — allt bendir til þess að hópurinn fái ekki að sýna í Hafnarfjarðarhrauni Hrakningasögu Söguleikanna, sem í sumar hugdust í gódum til- gangi sýna landsmönnum nýja leik- gerd a f Njálssögu, er sídur en svo lokið. Eins og HP skýrði frá fyrir skemmstu heimilaði Þingvalla- nefnd leikhópnum ekki að leika í Hvannagjá og þegar hópurinn taldi sig loksins hafa fundið hentugan stað í Kaldárselshrauni við Hafnar- fjörð, kom babb í bátinn. „Helgi Þórðarson, sem þykist eiga þetta land og veifar drögum að lóð- arréttindum sem hann lét stimpla hjá fógeta fyrir 12 árum, kærir sig ekki um sýningar okkar á landinu. Hann ber við umhverfisverndar- sjónarmiðum sem okkur virðast heldur einkennileg í ljósi þess að þegar við komum fyrst í gjána var þar allt í sóðaskap og rusli en við höfðum hins vegar bæði boðist til að gróðursetja tré og lagfæra annað jarðrask sem við kynnum að valda," sagði Sveinn R. Sveinsson, fram- kvœmdastjóri Söguleikanna, í sam- tali við HP. Sveinn sagði að ekki væri ljóst á hve sterkum grunni eignarréttur hans á landinu væri reistur. Bæjarráð Hafnarfjarðar myndi reyna að komast að sam- komulagi við Helga, en ef það tæk- ist ekki væri Söguleikafólk hrætt um að hann kynni að fara í lögfræð- ingaleik, s.s. lögbann, sem kæmi í veg fyrir sýningar hópsins í hraun- inu á þessu sumri. „Þetta er allt saman á misskilningi byggt, þetta fólk virðist ekki skilja að þarna er um landréttindi að ræða sem gengið hafa kaupum og sölum,“ sagði Helgi Þórðarson verkfræðing- ur. Helgi sagði að það væri nóg af öðrum stöðum sem hópurinn gæti sýnt á án þess að vera að sælast inn á einkalóð þar sem hann hygðist reisa sér sumarbústað og stunda jarðrækt. „Nei, ég myndi ekki vilja leigja þeim landið undir sýningar og þau geta aldrei bætt þann skaða sem landið yrði fyrir. Synir mínir sögðu mér að þarna hefðu blaða- menn komið um daginn og tekið ljósmyndir og skilið eftir sig för í mosanum. Þess vegna endurreistu þeir girðingu þá sem upphaflega var komið fyrir þegar árið 1944.“ Helgi viðurkenndi að plagg það er hann hefði í höndum væri ekki formlegur lóðarsamningur en sagð- ist ekki trúa öðru en að pappírar sín- ir tryggðu að hann gæti náð fram rétti sínum. „Já, það lítur út fyrir að við verð- um að færa okkur um set á nýjan leik,“ sagði Helgi Skúlason, annar leikstjóri og höfundur leikgerðar- innar. Hann sagði að nú á síðustu dögum hefði hópnum verið boðið að setja verkið upp í Rauðhólum og Hveragerði. Rauðhólar þættu betri kostur og ef allur undirbúningur næðist yðri frumsýning verksins lík- lega þar um þessa helgi. „Þetta hef- ur verið óskaplegt álag en þótt sterkir vindar blási í mót er mikill hugur í öllum aðstandendum sýn- ingarinnar enda úrvalsfólk á hverj- um pósti. Við viljum alls ekki gefast upp og vonum að þessum hrakn- ingum sé nú að ljúka." -Mrún Leikarar og leikstjórar Njálssögu sem Sögu- leikarnir settu upp í góðri trú og tilgangi en eru nú hrakin burt af hverjum staðnum á fætur öðrum. Mynd: Söguleikarnir. Ralph Christians, einn kvikmyndagerðarmannanna ( Magmafilm, og Vilhjálmur Ragnarsson hjá Hrif. Þýsk-íslenskt kvikmyndasamstarf Hingað til lands eru væntanlegir þýskir kvikmyndagerðarmenn og miklir Islandsvinir frá kvikmynda- fyrirtækinu Magmafilm. Þeir ættu ekki að vera með öllu ókunnir á Is- landi því þeir hafa gert heil ósköp af myndum um Island og íslendinga fyrir þýska sjónvarpið, m.a. um ís- lenska kvikmyndagerð, fálkaþjófn- að á íslandi og meginlandi Evrópu, og fiskveiðar Islendinga, í samvinnu við íslenska kvikmyndafyrirtækið Hrif. Að sögn Vilhjálms Ragnarssonar hjá Hrif eru þeir að þessu sinni að vinna að heimildakvikmynd fyrir börn um unga íslenska hestamenn. Aðalsöguhetja myndarinnar er Edda Gísladóttir, 11 ára gömul. í upphafi myndarinnar býr hún sig og hestinn sinn undir þátttöku í Lands- móti hestamanna, og þeir munu, í gegnum kvikmyndatökuvélina, fylgjast með því hvernig henni vegnar í keppni í unglingaflokki. Fjölskylda Eddu mun einnig koma fram í myndinni og væntanlegir áhorfendur munu auk þess fá að skyggnast inní framleiðslu kvik- myndarinnar stig af stigi. Myndin mun bera nafnið „Kein Tag wie jeder anderer" eða Öðruvísi dagur. Hún verður 20 mínútna löng og er framleidd fyrir suður-þýsku sjón- varpsstöðina í Köln. Fyrirtækin Magmafilm og Hrif eru þessa stundina að ganga frá heimildakvikmynd fyrir þýska sjón- varpið um börn og sprang í Vest- mannaeyjum. Eftir áramótin munu kvikmyndafyrirtækin tvö síðan beina sjónum frá íslandi um stund og vinna að gerð heimildamynda um mannlíf á Lófóten og í Færeyjum og um norsku konungsfjölskylduna. Þess má að lokum geta að Magmafilm hefur einnig dreifingar- rétt fyrir flestar íslenskar kvikmynd- ir í V-Þýskalandi og hefur þegar tek- ist að selja Dalalíf Þráins Bertelsson- ar og góðar horfur eru á blómlegri sölustarfsemi ‘íslensku kvikmynd- anna til þýsku sjónvarpsstöðvanna í allra nánustu framtíð. LEIKUST * A vit fortíöar og framtíöar eftir Gunnlaug Ástgeirsson Leikfélag Kópavogs í Iðnó: Svört sólskin eftir Jón Hjartarson. Leikstjóri: Ragnheiður Tryggvadóttir. Leikmynd: Gylfi Gíslason. Tónlist: Gunnar Reynir Sveinsson. Ljósahönnun: Lárus Björnsson og Egill Orn Arnason. Undirleikari: Guðrún Birna Hannesdóttir. Búningar: Gylfi Gíslason og Ragnheiður Tryggvadóttir. Leikendur: Eggert A. Kaaber, Margrét Sœberg Sigurðardóttir, Sigríður Ragnars- dóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Sylvía Gústafs- dóttir, Rúnar Lund, Jóna Guðmundsdóttir, Ragnheiður Thorsteinsson, Ragnheiður Ástvaldsdóttir, Katrín Anna Lund, Ögmundur Jóhannesson, Hörður Sigurðarson, Finnur Magnússon, Sólrún Yngvadóttir, Sigfús Aðalsteinsson. I þessari viku stendur yfir Norræn leiklist- arhátíð áhugaleikfélaga. Frá íslandi eru þrjár sýningar á þessari hátíð: sýning Leikfélags Hafnarfjarðar á Galdra-Lofti, sýning áhuga- leikfélagsins Hugleiks á Sálum Jónanna og ný uppfærsla Leikfélags Kópavogs á frum- sömdu leikriti eftir Jón Hjartarson sem heitir Svört sólskin og frumsýnt var í Iðnó á sunnu- dagskvöld. Þessi sýning er einnig upphafið að hátíðahöldum Leikfélags Kópavogs í til- efni þrjátíu ára afmælis sem verður á næsta ári. A leiklistarhátíðinni norrænu er einskonar þema eða yfirskrift að vinna með menning- ararf þjóðanna sem hlut eiga að máli. Jón Hjartarson sækir efni sitt víða í sögu og bók- menntir þjóðarinnar. Völuspá notar hann sem einskonar stef og byggir reyndar verkið á nokkrum grunnhugmyndum hennar. Það er samt alls ekki svo að hér sé um að ræða einhverskonar leikgerð Völuspár eða eitt- hvað í þá átt, langt því frá. Verkið skiptist í þrjá þætti. Fyrsti þátturinn gerist í árdaga. Þar er vikið að sköpun heims og manns, hinu saklausa upphafi. Leidd eru fram tvö ungmenni sem verða táknmyndir sakleysis og vonar og tengja saman þættina þrjá. En þarna er einnig að finna upphaf hins illa með rót í ágirnd og baráttu um auð og völd. í þessum þætti er mikið Völuspárefni auk margra vísana í önnur Eddukvæði og fleiri forn fræði. Annar þátturinn gerist á „hinum myrku öldum íslandssögunnar." Þar er byggt á vís- unum í ýmsa sögulega atburði á tímum þeg- ar veraldleg og andleg kúgun þjóðarinnar nær nánast hámarki. Sýnd er átakanleg meðferð umkomulauss fólks sem hefur ekki unnið annað til saka en að reyna að gera sér lífið örlítið bærilegra. Þriðji þátturinn er svo einskonar fram- tíðar- og samtíðarsýn, þegar allt lífið hefur verið prógrammerað af vísindalegri hárná- kvæmni og öllu svigrúmi fyrir sjálfstæðar ákvarðanir einstaklingsins eytt. Það er myrk veraldarsýn í þessu verki og kannski ekki ástæða til annars á þessum síð- ustu og verstu tímum. Ógnin sem steðjar að er ærin og full ástæða til þess að minna á hana, ekki síst með tilstyrk fornra bók- mennta þjóðarinar og sögunnar. En þrátt fyr- ir góðan efnivið og víða vel gerðan texta og skemmtilegar útfærslur á efni sínu finnst mér Jón ekki ná þessu alveg saman. í heild verður þetta verk of sundurlaust, þættirnir ná ekki að tengjast í samstæða og vel virka heild og þar af leiðandi verða heildaráhrifin veikari en efni standa til. Það er heilmikið vandaverk að sviðsetja þetta verk, ekki síst með misþjálfuðum leik- kröftum. Ragnheiður Tryggvadóttir sýnir góða útsjónarsemi við uppfærsluna og eru mjög mörg atriði vel og skemmtilega útfærð. Ekki síst á það við um söngatriðin, sem eru mörg, og nutu textar Jóns sín vel við lipra músik Gunnars Reynis. Búningar og leik- mynd þjónuðu vel anda verksins í hverju atriði um sig. Leikendurnir stdðu sig býsna vel ef á heild- ina er litið. Samleikur var góður í hópatrið- unum og einstakir leikendur gerðu góða hluti, þrátt fyrir að persónusköpunin væri yf- irleitt ekki mjög djúp af höfundarins hálfu. Persónurnar eru flestar fremur fulltrúar ákveðinna hópa eða eiginleika en eftir- minnilegir einstaklingar í sjálfu sér. Eggert Kaaber og Margrét Sæbert Sigurðardóttir áttu þokkafullan leik í hlutverkum unga fólksins. Nornirnar, Sigríður, Sylvía og Jó- hanna, sýndu heilmikil tilþrif og sungu einn- ig með ágætum. Katrín Anna Lund flutti Völuspártexta með tónsetningu Gunnars Reynis mjög fallega. Ögmundur Jóhannes- son og Rúnar Lund áttu ágætan leik í hlut- verkum klerks og valdsmanns og eins var mynd þeirra Jónu, Ragnheiðar, Ragnhildar og Katrínar af kúguðum og aumkunarverð- um konum sterk. í lokaatriðinu áttu Sólrún og Finnur skemmtileg atriði og þar voru þær Ragnheiður og Ragnhildur hæfilega óhugn- anlegar í hlutverkum framtíðarstjórnend- anna. Það er mikið átak fyrir áhugaleikfélag að leggja út í sýningu eins og þessa. Þetta er erfitt verk og glíman við það hefur áreiðanlega verið erfið, en árangurinn er býsna góður. Menn eiga ekkert að vera hræddir við að gera eitthvað nýtt og óvenjulegt, þó svo að útkoman sé alltaf happdrætti. HELGARPÚSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.