Helgarpósturinn - 26.06.1986, Side 39
FRETTAPOSTUR
Gamli Iðnskólinn brann.
Allt tiltækt slökkvilið borgarinnar var kallað út þegar
eldur kom upp í gamla Iðnskólahúsinu við Tjörnina, við hlið
Iðnó leikhússins. Kviknaði í út frá radíógrammafóni og
reyndist afar erfitt að slökkva eldinn. Þegar slökkvistarfi
lauk hafði orðið verulegt tjón og húsið mjög illa farið. Nú
velta menn því fyrir sér hver skuli verða örlög hússins, sem
hefur sett mjög mikinn svip á umhverfi sitt. Verndarsinnar
vilja að húsið verði endurbyggt, en þaö verður erfitt og telja
svartsýnismenn einfaldast að rífa húsið. Meðal þess sem
eyðilagðist var mikið af leikbúningum Leikfélags Reykja-
víkur og baðstofa Iðnaöarmannafélags Reykjavikur, þar
sem var fágætur tréskurður Ríkharðs Jónssonar mynd-
höggvara. Haft er eftir borgarstjóra að hann telji einsýnt að
húsið verði byggt upp aftur.
Giftusamleg björgun skipstjóra
Áhöfnin á Sigurfara frá Vestmannaeyjum tók skyndilega
eftir því við togveiðar vestan eyjanna að skipstjórann vant-
aði um borð. Þetta var í byrjun þessarar viku og var bátnum
snúið við á punktinum með trollið úti. Eftir eins kilómetra
siglingu til baka fannst skipstjórinn, Benóný Færseth, heill
á húfi en aðframkominn af kulda í sjónum, enda hitastigið
5—6 gráður. Það þótti ganga kraftaverki næst að ekki fór
verr.
Örlítill hagnaður hjá SÍS
Á aðalfundi Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem
haldinn var um síðustu helgi, kom meðal annars fram að
hagnaður SÍS á siðasta ári varð 3 milljónir króna. Heildar-
veltan nam 11.8 milljörðum króna, sem er 37% aukning frá
1984. Þá kom fram nokkur hagnaður á fyrstu þremur mán-
uðum þessa árs. Á hinn bóginn er ljóst að fjölmörg kaupfé-
laganna standa höllum fæti, heildartap þeirra í fyrra nam
334 milljónum króna.
Fleiri kariar en konur í landinu.
íslendingar töldust vera 242.089 hinn 1. desember 1985
og hafði okkur fjölgað um 1.646 frá árinu áður eða um
0,68%. Alls eru þetta 121.672 karlar og 120.417 konur. Á
Stór-Reykjavíkursvæðinu eru konur heldur fleiri en karlar,
en öfugt á landsbyggðinni. íbúar Reykjavikurborgar reynd-
ust 89.868 og á Stór-Reykjavíkursvæðinu alls 130.898. ís-
lendingar eru greinilega eitthvað að hægja á ferð sinni, því
hlutfallsleg fjölgun árið áður varð 0,95%.
Hassinnflytjendur handteknir.
Lögreglan í Reykjavik handtók um helgina níu einstakl-
inga, sem reyndu að smygla til landsins nokkrum kílóum af
hreinu hassi. Lögreglan hafði fylgst með þessu fólki og lét til
skarar skriða þegar erlendur sendimaður seljenda afhenti
einu þeirra tösku í hóteli hér í bæ, er reyndist sneisafull af
efninu.
Málshöfðun gegn Útvegsbankanum.
Á fyrsta skiptafundinum í þrotabúi Hafskips var bústjór-
unum veitt heimild til málshöfðunar gegn Utvegsbankan-
um meðal annarra. Áætlað er að kröfuhafar fái aðeins greitt
10—15% af almennum kröfum. Kröfur í búið hljóða samtals
upp á um 2.5 milljarða króna en bústjórarnir hafa sam-
þykkt kröfur upp á rétt rúmlega 1 milljarð. Eignir þrotabús-
ins eru taldar nema 720 milljónum króna.
Bóndinn að Höfða borinn út.
Sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu fór á þriðjudag
ásamt fjölda manna að bænum Höf ða í Eyjahreppi til að gera
sína aðra tilraun til að bera út bóndann þar, Sigurð Oddsson.
í fyrri tilraun komu sveitungar Sigurðar í veg fyrir útburð,
en að þessu sinni tókst fyrirætlun embættismannanna eftir
að hurðir voru brotnar upp. Sigurður bóndi hefur staðið í
deilum viö landeigendur vegna húsbyggingar sem þeir hafa
nýlega reist á jörðinni. Höfði er ein af nokkrum jörðum við
Haffjarðará sem er í eigu dánarbús Thors R. Thors og var
lögfræðingur búsins, Jón Steinar Gunnlaugsson, mættur á
staðinn við útburðinn.
Fréttapunktar
• Strandeldisstöð íslandslax hf. (SÍS og Norðmenn) var
opnuð í síðustu viku við hátíðlega athöfn, þar sem Stein-
grímur forsætisráðherra Hermannsson sleppti seiðum
lausum.
• Fyrsta hjartaaðgerðin á íslandi hefur farið fram á Land-
spítalanum. Er talið að á næstunni verði unnt að gera hér
um 90% þeirra aðgerða sem annars færu fram erlendis og
er einnig ráðgert að hér fari fram hjartaaðgerðir fuyrir
Grænlendinga og Færeyinga.
• Þrír menn hafa sótt um stöðu ríkissaksóknara, en Þórður
Björnsson lætur brátt af störfum. Umsækjendur eru Bragi
Steinarsson vararíkissaksóknari, Hallvarður Einvarðsson,
rannsóknarlögreglustjóri og Jónatan Sveinsson, saksókn-
ari.
LOKSINS!
Það er búið að opna
versiunina.
LADY OF PARIS
Laugavegi 84 (2. hœð) - Sími 1 28 58
hAÐBESTA
KOSTAR OFT MINNST
RAÐSETT
VELJÍÐ
ÁKLÆÐIÐ
SJÁLF
SVEFNSÓFAR
EÐA STAKAR
DÝNUR
HEIMALIST HF
HUSGAGNAVERSLUN
SÍÐUMÚLA 23
SÍMI 84131
HELGARPÖSTURINN 39