Helgarpósturinn - 24.07.1986, Side 31
FRÉTTAPÓSTUR
Kvennaathvarfið á hausnum
Kvennaathvarfið á við mikla fjárhagserfiðleika að stríða,
en tillögu minnihlutans í borgarstjórn um tafarlausa
greiðslu á seinni helmingi þeirra 625 þúsund króna sem at-
hvarfið fékk úthlutað á fjárhagsáætlun borgarinnar, var
vísað frá á borgarráðsfundi á þriðjudag. Fjárhagsstaða
Kvennaathvarfsins er svo bág að ekki hefur reynst unnt að
borga starfsmönnum tilskilin laun og ekki reynst unnt að
hefja lagfæringar á annars hálfónýtu húsi athvarfsins. En
þótt opinberir fjárveitingamenn séu tregir á athvarfið sér
hauk í horni sem er Bubbi Morthens en hann mun gangast
fyrir tónleikum til styrktar athvarfinu. Kvennathvarfið
fékk um 2 milljónir á fjárlögum rikisins til ráðstöfunar en
gróflega áætlað vantar eina milljón uppá svo unnt reynist að
starfrækja athvarfið fram að áramótum.
Arnarflug stendur í ströngu
Arnarflug hefur ákveðið að segja upp starfsmönnum
vegna fyrirhugaðrar endurskipulagningar fyrirtækisins.
írska flugáhafnaleigan Perc Ltd. hefur hótað að fara fram á
gjaldþrotaskipti Arnarflugs vegna vangreiddrar 26 milljóna
króna skuldar flugfélagsins en samningaviðræður fyrir-
tækjanna um greiðslu skuldarinnar standa nú yfir og eru
Arnarflugsmenn bjartsýnir um að samkomulag takist.
Útgerðin skilar bullandi hagnaði
Utgerðin í landinu býr við eitt mesta góðæri íslandssög-
unnar því að sögn Þjóðhagsstofnunar er meðal hagnaður af
bolfiskveiðibátum 9,4% í ár. Hagnaður af loðnubátum og
frystiskipum mun vera enn meiri þótt ekki sé vitað ná-
kvæmlega hve mikill hann er. Olíulækkun, gott tíðarfar og
mikill afli munu hér valda mestu.
N‘ART hátíðin sett
N‘ART ’86 sem er hugsuð sem norræn afmæliskveðja til
Reykjavikurborgar vegna 200 ára afmælisins var sett með
pompi og pragt á laugardag. Kulturprojekt Island 86 stend-
ur að þessari 10 daga hátið sem samanstendur m.a. af fjölda
leiksýninga, myndlistarsýninga, tónleika o.fl., með inn-
lendum en þó aðallega skandinavískum listamönnum.
Nýtt loðnuverð ákveðið
Nýtt loðnuverð, 19 þúsund krónur á tonnið, var ákveðið á
þriðjudag, á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins, með atkvæðum oddamanns og seljenda gegn atkvæðum
fulltrúa kaupenda sem segjast vera algerlega mótfallnir
þessari verðákvörðun við núverandi markaðsaðstæður.
Mokveiði er á loðnumiðum.
Breyting á vali vinsældalista rásar 2
Nokkur óvissa var um það hvort vinsældalisti rásar 2 til-
heyrði sögunni eða ekki í kjölfar deilna umsjónarmanna
listans við hljómsveitina Skriðjökla á Akureyri, en umsjón-
armennirnir grunuðu þá um að hafa staðið fyrir skipulögð-
um hringingum við val vinsældalistans, sem síðan var lýst-
ur ómerkur. Listinn mun hins vegar ekki verða lagður nið-
ur en héðan í frá verður fólk beðið um ýmsar persónulegar
upplýsingar, s.s. nafn, nafnnúmer, heimilisfang og síma-
númer til að koma í veg fyrir frekari leiðindi í framtiðinni.
• Aðalkjarasamningur Bandalags kennarafélaga og Kenn-
arasambands íslands við fulltrúa fjármálaráðuneytisins
voru undirritaðir á þriðjudag. Samingurinn er samhljóða
aðalkjarasamningi ríkisstarfsmanna í BHM nema lagaður
sérstaklega að kröfum kennara en viðræður um sérkjara-.
samninga kennarafélaganna hefjast í næsta mánuði.
• Fargjöld i innanlandsflugi hafa hækkað um 6% og hefur
flugfargjald milli Akureyrar og Reykjavíkur þannig hækk-
að í 2314 krónur. Fulltrúar flugfélaganna segja að kostnað-
arhækkanir hafi knúið á um hækkunina.
• Greiðslubyrði skattaeftirstöðva þessa árs verða mun
meiri en hækkun skattavisitölunnar gerði ráð fyrir því laun
milli áranna 1984-5 hækka meira en gert var ráð fyrir eða
um 40%, en að auki var fyrirframgreiðsla skatta nokkuð
lægri en áður.
• Landssamband lögreglumanna ákvað að seinka allsherj-
aratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um nýgerðan
sérkjarasamning við fjármálaráðuneytið. Munu lögreglu-
menn helst vera óánægðir með sk/viðmiðunarreglu þar sem
gengið er út frá launum hópa í BSRB, BHMR og Kennara-
samböndunum.
• Hugmyndin um haustkosningar mun enn ekki dauð og
hafa m.a. þingmennirnir Guðmundur Bjarnason og Friðrik
Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins hafa lýst
fylgi sinu við hana.
• Vísitala byggingarkostnaðar hefur verið reiknuð fyrir
júlimánuð og er 272,72 stig sem er 1,8% hækkun frá siðasta
mánuði.
• Samvinnubanki íslands, Samvinnusjóður íslands og
franski fjölþjóðabankinn Banque Indosuez stofnuðu á
þriðjudag fjármögnunarfyrirtækið Lind hf. Fyrirtækinu er
ætlað að gegna hlutverki fjármögnunarleigu og kaupleigu
en síðar mun ráðgert að hefja lánaviðskipti, bæði áhættu- og
fjárfestingarlán auk ábyrgða og almennrar fjármálaþjón-
ustu. íslensku fyrirtækin eiga samtals 60% í hinu nýja fyr-
irtæki og Þórður Ingvi Guðmundsson hefur verið ráðinn
bráðabirgðaframkvæmdastjóri.
• Áhugi ASÍ, BSRB og SÍS á sameiginlegum útvarps- og sjón-
varpsrekstri er slokknaður. Ákvörðun SÍS um rekstur fjöl-
miðlafyrirtækis og tilboö þess til ýmissa aðila um viðræður
án samráðs við fyrrgreinda aðila mun ekki hafa liðkað fyrir
frekari samvinnu þessara aðila.
LADY OF PARIS
laugavegi 84 (2. hoeö) - Sími 1 28 58
HELGARPÓSTURINN 31