Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 2
UNDIR SOLINNI Kvöl meö listamanni Við grípum hér nibur í mennirigarþátt sjónvarpsins á sunnudögum: Kvöl með lista- manni. Jónas Jónsson rœðir við Magnús Þórðarson hljómlistarmann. Jónas er klœddur í dökkan jakka með einföldu sniði, grœnt bindi við og gleraugu frá Sviss. Magn- ús er í hvítum jakka með marglitum rákum, funað hár og sólgleraugu við. Þeir eru mjög kasjúel. Jónas: — Hvernig byrjaði þetta? Ég meina, hvenær fékkstu áhuga fyrir tónlistinni? Listamaður: „Tja, hvað skal segja.. . Ég er auðvitað úr Keflavík. Maður fékk þetta í blóðið...“ Jónas: — Meinarðu að þú hafir orðið fyrir áhrifum af Keflavíkurútvarpinu? Listamaður: „Það er hart að admitta það, en náttúrlega var Kanaútvarpið inspírasjón. Já, ég myndi segja það.“ Jónas: — En víkjum að öðru: Hvenær kom þín fyrsta plata út? Listamaður: „Það var 1969. Lúlli í Limbó, Siggi og Addi í Blómabörnunum og ég kom- um saman í stúdíó og hljóðrituðum „A ban- anahýðinu". Hún sló strax í gegn.“ Jónas: — Hafðirðu búist við að Banana- hýðið myndi verða svona vinsæl? Listamaður: „Nei, ja, það er að segja jú, ég vissi auðvitað að þarna var gott stöff á ferð- inni en að Bananahýðið yrði þjóðarsössex, vissi ég náttúrlega ekki. Það er að segja svona þjóðarplága, hahahaha!!!" Jónas: — Já. En víkjum að öðru: Þú fórst síðar í Slökkviliðið? Listamaður: „Já, ég gerði það. Okkur lang- aði til að gera eitthvað annað en þetta hefð- bundna popp, svo við bjuggum til svona al- þýðlegt band með partísöngvum, ef ég má kalla það því nafni. Sándið byggðist mikið á bakkvojsi og stuði.“ Jónas: — Og þá varð smellurinn „Á leið- inu“ til. Listamaður: „Já, já. Ég verð eiginlega að segja frá því fyrst ég er kominn í stúdíó. Það var sko þannig, að eitt kvöldið átti ég leið í gegnum kirkjugarðinn gamla og þá eru þarna grafarar í eftirvinnu og einn þeirra raular: „Ég er á leiðinu, ég er á leiðinu." Og ég kom heim, þá samdi ég lagið eins og skot.“ mér fannst þetta rosalega gott kjú, svo þegar Jónas: —■ Hvernig væri að hlusta á lagið? Listamaður: „Það er alveg guð vel komið.“ (Listamaður klöngrast upp úr skjanna- bjartri gryfju og sest við hvítan flygil. Regn- bogalína er máluð bak við listamanninn á ljósan vegg og kemur aftan að honum, gegn- um haus tónlistarmannsins og heldur áfram út á flygilinn. Að loknum söng með þriggja gripa undirleik, sest listamaðurinn aftur hjá spyrli.) Jónas: — En víkjum að öðru: Þú ert kom- inn með hljómsveit sem spilar á hverju kvöldi á skemmtistað. Og svo kemurðu fram á tveimur öðrum stöðum á hverju kvöldi. Segðu mér, Magnús: Hvernig ferðu að þessu? Listamaður: „Hahahaha! Það er von að þú spyrjir. Það eru margir búnir að spyrja mig að þessu. En menn vita að líf okkar lista- mannanna er stundum strembið. Ég skal segja þér galdurinn: Ég hef alltaf leigubíl til- búin fyrir utan staðinn, svo í pásunni þeytist ég niður og inn í bíl og keyri í loftinu á tvo aðra staði þar sem ég næ lagi á hvorum stað. Og kominn aftur til baka um leið og pásan er búinn á fyrsta staðnum. Það er stundum erf- itt að vera vinsæll, hahahahaha!" Jónas: — Láttu mig þekkja það. En víkjum að öðru: Þú fórst til Rússlands? Listamaður: „Já, það var æðislegt. Maggi, Stína og Björgvin og þú fóru með og við sungum þarna fyrir Rússann, manstu?" Jónas: — Hvað kom þér mest á óvart? Listamaður: „Fólkið. Það var svo næs og vingjarnlegt." Jónas: — Getur það verið? Listamaður: „Já, það er alveg ótrúlegt, en Rússarnir voru rosalega frendlí og um- hyggjusamir." Jónas: — Þá varð til Iagið „Vinir við Volgu", ekki satt? Listamaður: „Jú, jú. Það væri kannski við hæfi að leika það fyrir þig?“ Jónas: — Já, þakka þér fyrir. „Vinir við Volgu“ með Magnúsi Þórðarsyni, gjöriðisvo- vel. Við látum þetta nœgja að sinni, en minn- um á Kvöl með listamanni nœsta sunnudag. Þá mun Magnús Þórðarson rœða við Jónas Jónsson, hljómlistarmann. HAUKURIHORNI mtímsm Maðurinn með hamarinn 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.