Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 8
Um nokkurra ára skeid hefur þuí verid haldid fram í þröngum hópi þeirra, sem til þekkja, að Hjálpar- stofnun kirkjunnar standi ekki und- ir nafni afþeirri einföldu ástœðu, að langstœrstur hluti ráðstöfunarfjár hennar renni til allt annarra hluta en hjálparstarfs og þróunaraðstoð- ar. Eftir könnun á starfsemi stofnun- arinnar og reikningum hefur HP komist að þeirri niðurstöðu, að kostnaður við rekstur skrifstofunn- ar, laun, rekstur bifreiða, ferðalög, safnanir, kynningarstarf og frakt, ásamt fleiru og fleiru, nemi einhvers staðar á bilinu 70—80% af ráöstöf- unarfénu. Dœmi er um ár, þar sem innan við 10% af söfnunarfé lands- manna komst í hendur bágstaddra. ÓNÁKVÆMIR ÁRSREIKNINGAR Við athugun á ársreikningum Hjálparstofnunarinnar kemur í ljós, að lesa þarf á milli línanna til þess að fá rétta mynd af ráðstöfun fjárins og uppruna þess. Þannig eru t.d. fjármunir frá Alkirkjuráðinu í Genf skráðir í sömu tölu og innlent söfn- unarfé. Svo vill hins vegar til, að þessir peningar runnu til Hjálpar- stofnunarinnar eingöngu til kaupa á matvælum. Rekstrarkostnaður er settur undir hina ýmsu liði í árs- reikningunum, en slíkan kostnað er m.a. að finna í ósundurliðuðum töi- um eins og t.d. ,,til Eþíópíu". Bókhaldsdæmi af þessu tagi eru mörg. Þá hefur HP tryggar heimildir fyr- ir því, að iaun starfsmanna, risna, ferðakostnaður þeirra og annarra, dagpeningar og fleira hafi verið og sé svo slælega skráð, að nær ómögulegt sé að gera sér grein fyrir heildarkostnaði af slíku. Þó er vitað, að þessi kostnaður er mjög mikill og hótelreikningar oft frá dýrum hótel- um. ATHUGASEMDIR ENDURSKOÐENDA Þessi óreiða í bókhaldi Hjálpar- stofnunarinnar er ekki ný af nálinni. Að lokinni endurskoðun á ársreikn- ingi fyrir árið 1982 gerði Lárus Hall- dórsson, endurskoðandi stofnunar- innar, mjög ákveðnar athugasemdir við bókhaldið og gerði jafnframt til- lögur um eftirlitskerfi, þar sem girt væri fyrir hvers kyns hugsanlega misnotkun á fjármunum til ferða- laga, lánveitinga og styrkja. Ekki hefur verið farið hátt með þessar at- hugasemdir og eru þær á fárra vit- orði. I tillögum sínum gerir Lárus m.a. ráð fyrir að færðar verði tvær að- skildar bækur í bókhaldi Hjálpar- stofnunarinnar, önnur greini frá öll- um styrkjum og lánveitingum og í hina verði færður allur kostnaður við ferðalög. Hver færsla í styrkja- bókina ætti að vera númeruð og á móti ætti að koma móttökukvittun, sem jafnframt væri númeruð. Til- greina ætti nöfn þeirra sem þægju styrki, upphæðin yrði tilgreind og dagsetning færð. í ferðabókina skyldi færa allar ferðir sem farnar væru á vegum Hjálparstofnunarinn- ar og þá skipti ekki máli hvort ferðin væri vegna sérstakra verkefna eða almenns eðlis. í henni ætti að koma fram hver eða hverjir fóru, hvert var farið, hversu lengi ferðin stóð og til hvers var farið. Auk þess tók Lárus skýrt fram að upphæðir fargjalda, dagpeninga og annars kostnaðar ætti að koma skýrt fram í þessari bók og kostnaður vegna þessara liða skýrt afmarkaður. Lárus Halldórsson endurskoðandi gerði kurteislega en jafnframt mjög ákveðna kröfu um að farið yrði að þessum tilmælum hans strax og reyndar hefur HP heimildir fyrir því að Lárus hafi tiltekið að styrkjabók og ferðabók yrðu færðar frá 1. jan- úar 1983. í samtali við HP sl. þriðju- dag neitaði Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnun- arinnar, hins vegar að þessar bækur væru til hjá stofnuninni. Framkvæmdastjórinn hefur þá annað hvort alls ekki farið að þess- um tilmælum endurskoðandans, en þau eru einungis hluti af þeim at- hugasemdum sem hann gerði við ársreikninginn 1982, eða þá ekki viljað láta koma fram að hann gæti með auðveldum hætti flett upp og svarað spurningum HP. TRÚNAÐARBRESTUR VIÐ GEFENDUR I áðurnefndu samtali HP við Guð- mund, neitaði framkvæmdastjórinn að sundurgreina einstaka þætti þró- unar- og neyðaraðstoðar. Hann neit- aði því hins vegar ekki, að t.d. undir liðnum ,,til Eþíópíu" væri að finna ferðakostnað starfsmanna Hjálpar- stofnunarinnar og ýmsan annan kostnað, sem erfitt er að flokka und- ir beina þróunarhjálp. Samkvæmt heimildum HP, hefur slík sundurliðun á einstökum verk- efnum stofnunarinnar aldrei verið lögð fyrir aðalfund hennar og marg- ir af viðmælendum HP drógu í efa að þesskonar könnun á því í hvað fjármunir Hjálparstofnunarinnar hefðu í raun farið, hefði nokkurn tímann verið gerð. Slíkt verður að teljast alvarlegur trúnaðarbrestur gagnvart þeim sem gefa fé til Hjálp- arstofnunarinnar og það er fáheyrt á Vesturlöndum að samskonar stofnanir gefi ekki út nákvæma og sundurliðaða reikninga fyrir hvert einstakt verkefni eftir hvert starfsár. Þrátt fyrir viðkvæði Guðmundar um að hér væri um trúnaðarmál stofnunarinnar að ræða hefur HP sent stjórn Hjálparstofnunarinnar og endurskoðanda hennar bréfleið- is 54 af þeim spurningum sem vökn- uðu er ársreikningar stofnunarinn- ar voru skoðaðir. Enn sem komið er hefur ekkert svar borist. GJAFIR METNAR TIL FJÁR I ársreikningum Hjálparstofnun- arinnar er beitt ýmsum aðferðum, sem halda hlutfalli rekstrarkostnað- ar niðri. Matvæli og aðrar gjafir sem sendar eru til hungursvæða eru t.d. metnar til fjár og með því fengin upphæð, sem samkvæmt heimild- um HP er oft á tíðum langt yfir markaðsverði þessara gjafa. Þannig var t.d. afrakstur fatasöfnunar á ár- inu 1984 metinn á milljónir króna og niðurgreitt mjókurduft, sem stofnunin keypti af Mjólkursamsöl- unni, er fært inn og út af reikningum Hjálparstofnunarinnar á íslensku framleiðsluverði. Þegar HP innti Guðmund Einars- son, framkvæmdastjóra, eftir því hvaða aðferðum Hjálparstofnunin beitti við að meta notuð föt til fjár, sagði hann, að til þess væri notaður alþjóðlegur staðall sem beitt væri af hjálparstofnunum um allan heim. Hann væri þannig fenginn, að verð á ódýrasta, nýjum og sambærileg- um fatnaði, sem fáanlegur væri á markaönum, væri lagt til grundvall- ar við verðútreikninga á fatasend- ingum. Þegar HP bar þetta undir menn, sem vel þekkja til hjálparstarfs með- ai annarra þjóða, kváðu þeir Guð- mund fara með staðlausa stafi. Ekk- ert væri til, sem kalla mætti alþjóð- legan staðal til að verðleggja notuð föt hjá hjálparstofnunum erlendis, enda hefðu nær allar slíkar stofnan- ir fyrir löngu hætt fatasendingum til Þriðja heimsins. Þær nýttust þeim hjálparþurfi að takniörkuðu leyti og því hefðu þessar stofnanir snúið sér að árangursríkari verkefnum. AFDRIF SÖFNUNAR- FJÁRINS Viðmælandi HP, sem setið hefur aðalfundi Hjálparstofnunarinnar, sagði að samkvæmt þeim reikning- um sem þar væru lagðir fram, næmi neyðar- og þróunarhjálp erlendis á bilinu 60—70% af tekjum stofnunar- innar. Á árinu 1984 hefði þessi liður t.d. numið 71% af tekjunum. Sam- kvæmt heimildum HP hafa stjórnar- menn stofnunarinnar ekki véfengt þessar tölur og framkvæmdastjór- inn hefur aldrei verið krafinn um nánari útlistanir á því hvers eðlis þetta 60—70% framlag af tekjunum er. Þar sem hlutfall erlendrar aðstoð- ar, eða „ráðstafað erlendis" eins og það heitir í ársreikningunum, er mjög hátt árið 1984 skulum við staldra aðeins við það ár. Þetta ár var ráðstafað erlendis, samkvæmt ársreikningi, rúmum 34 milljónum króna. Ef frá þeirri upp- hæð eru dregin framlög Alkirkju- ráðsins til matvælakaupa hérlendis (enda var Hjálparstofnunin einungis umboðsaðili í þeim viðskiptum), um 9 millj. kr„ og „metið verðmæti gjafa“ (sem þetta ár var að stórum hluta notuð föt, frímiðar með flugfé- lögum og afsláttur af frakt), um 20 miilj. kr„ standa eftir rúmar 5 millj- ónir króna. Ríkissjóður lagði fram 1.5 millj. kr. árið 1984 vegna hung- urs í heiminum og þegar sú upphæð hefur verið dregin frá standa eftir rúmar 4 millj.kr. Undir liðinn „ráð- stafað erlendis" er einnig færður launakostnaður, um 1 millj. króna, og kostnaður vegna alþjóðaráð- stefnu Alkirkjuráðsins, sem reyndar var haldin hérlendis, rúmar eitt hundrað þúsund kr. Að þessum lið- um frádregnum standa eftir rúmar 2.5 millj. kr. sem varið er af inn- lendu söfnunarfé til aðstoðar í þró- unarlöndunum. Eins og fram hefur komið hér að framan hefur Guðmundur Einars- son, framkvæmdastjóri stofnunar- innar, staðfest það í samtali við HP að undir liðum eins og t.d. „til Eþíópíu" og „til Póllands" sé að finna öll fjárútlát til þessara verk- efna undir einum hatti — hvort sem um er að ræða beina aðstoð eða kostnað vegna undirbúnings, kynn- ingar eða fundahalda vegna þeirra. Því er óhætt að gera ráð fyrir því að eitthvað af þessum 25 millj. króna af íslensku söfnunarfé, sem varið var erlendis, hafi farið í kostnaðarliði sem ekki er hægt að flokka undir neyðar- eða þróunarhjálp. Samkvæmt heimildum HP fóru innan við 10% af innlendu söfnun- arfé, sem ráðstafað var á árinu 1984, til beinnar neyðar- og þróunarhjálp- ar. Alls var á þessu ári ráðstafað um 15 milljónum kr. (um 23 millj. kr. á núvirði) af innlendu söfnunarfé og samkvæmt heimildum HP hefur því um 13,5 milljónum kr. (um 20 millj. kr. á núvirði) af því verið varið í Nýlokið er við að dreifa hvítum pennum og gíróseðlum f hvert hús á landinu, og fylgir með þessu bréf frá stjórnarformanni og framkvaemdastjóra. I því er ekki minnst einu orði á þær framkvæmdir, sem verið er að safna fyrir að þessu sinni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.