Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 38

Helgarpósturinn - 25.09.1986, Blaðsíða 38
HELGARDAGSKRÁVEIFAN Föstudagur 26. september 19.15 Á döfinni. 19.25 Litlu Prúöuleikararnir. 20.00 Fréttir. 20.40 Rokkarnir. 21.20 Bergerac. Lokaþáttur. 22.15 Á heitu sumri (The Long Hot Summer) ★★ Bandarísk sjónvarps- mynd í tveimur hlutum, gerö eftir sögu William Faulkners. Leikstjóri Stuart Cooper. Aöalhlutverk: Jason Robards, Ava Gardner, Don Johnson, Cybill Shepherd, Judith Ivey og Willi- am Russ. Myndin gerist í sveit í Suður- ríkjunum þar sem stórbóndinn og jarðeigandinn Will Varner ræöur lög- um og lofum. Hins vegar gengur hon- um illa að tjónka við fjölskyldu sína. Sonurinn er duglítill, tengdadóttirin • hálfgerð gála en dóttirin hlédræg um of. Allslaus aðkomumaður, sem kemst í náðina hjá Will, hleypir síðan öllu í bál og brand í fjölskyldunni. Sögulokin eru á dagskrá á laugar- dagskvöldið. 00.00 Dagskrárlok. Laugardagur 27. september 17.30 Iþróttir. 19.25 Ævintýri frá ýmsum löndum. 20.00 Fréttir. 20.35 Fyrirmyndarfaöir. 21.05 Laumufarþegar ★★ (Monkey Busi- ness). Bandarísk grínmynd frá 1931, s/h. Aðalhlutverk leika fjörkálfarnir Marxbræður, þeir Groucho, Harpo, Chico og Zeppo. Þeir bræður gerast laumufarþegar um borð í risaskipi á leið vestur um haf. Ekki líður á löngu þar til yfirmenn á skipinu fá veður af þessum aðskotadýrum og hefst þá mikil leit og eltingaleikur sem berst víða. 22.25 Á heitu sumri — s(ðari hluti. ★★ Bandarísk sjónvarpsmynd gerð eftir sögu William Faulkners. Aðalhlut- verk: Jason Robards og Ava Gardner. Efni fyrri hluta: Hörkutólið Will Varner hefur boöið allslausum aðkomu- manni, Ben Quick, jörð og dóttur sína fyrir konu. Tengdadóttir Varner lítur Ben einnig hýru auga og hefur þetta þegar valdiö árekstrum á heimilinu. 00.05 Dagskrárlok. Sunnudagur 28. september 17.00 Guösþjónusta f Strandarkirkju. 18.10 Andrós, Mikki og fólagar. 18.35 Sumariö '83. íslensk sjónvarpsmynd um sumardvöl Reykjavíkurstúlku í Flatey á Breiðafirði. 20.00 Fróttir. 20.50 Flóttamenn '86. Fyrsti norræni fræðsluþátturinn af fimm sem sýndir verða í Sjónvarpinu í tengslum við sameiginlegt átak á Norðurlöndum til hjálpar flóttamönnum í Afríku og Asíu. 21.05 Janis Carol ó Sögu. 21.30 StaÖgengillinn. Kanadísk sjónvarps mynd gerð eftir vísindasmásögu eftir Ray Bradbury. 22.00 Samuel Beckett. Heimildarmynd frá írska sjónvarpinu um nóbelsskáldiö og verk hans. 23.30 Dagskrórlok. © Fimmtudagur 25. september 19.00 Fréttir. 19.50 Daglegt mól. 20.00 Leikrit: „Kappinn að vestan" eftir John M. Synge. 22.20 Fró Loömundarfirði. 23.00 Á slóðum Jóhanns Sebastians Bach. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 26. september 7.15 Morgunvaktin. 9.05 Morgunstund barnanna. 10.30 Ljóöu mór eyra. 11.03 Samhljómur. 12.20 Fréttir. 14.00 Miðdegissagan. 14.30 Nýtt undir nólinni. 15.20 Landpósturinn. 16.20 Sfðdegistónleikar. 17.03 Barnaútvarpið. 17.45 Torgiö — Skólabörnin og umferðin. 19.00 Fréttir. 19.50 Nóttúruskoöun. 20.00 Lög unga fólksins. 20.40 Sumarvaka. 21.30 Frá tónskáldum. 22.20 Hljómskólamúsík. 23.00 Frjólsar hendur. 00.05 Lógnætti. Spilað og spjallað um tón- list. 01.00 Dagskrárlok. Laugardagur 27. september 7.30 Morgunglettur. 8.45 Nú er sumar. Hildur Hermóösdóttir hefur ofan af fyrir ungum hlustend- um. 9.20 Óskalög sjúklinga. 10.25 Morguntónleikar. 11.00 Frá útlöndum. 12.20 Fréttir. Af staö. Sigurður T. Björgvins- son sór um umferðarþátt. 13.50 Sinna. Listir og menningarmál líð- andi stundar. 15.00 Miðdegistónleikar. 16.20 Á hringveginum. 17.00 Iþróttafróttir. 17.03 Barnaútvarpið. MEÐMÆLI SJÓNVARP Óhætt er að mæla með heimilislegum húmor Cosbýs á miðju laugardagskvöldi, og svo fyrsta af fimm þáttunum um flóttamenn á sunnudags- kvöldi. Samuel Beckett-þátt- urinn er víst þrusa. ÚTVARP RÁS 1 Frjálsar hendur Illuga Jökuls- sonar á föstudagskvöldum eru notalegar, Lágnætti Eddu Þórarinsdóttur þar á eftir ljúft og Svavar Gests svo á sunnu- dag, með athyglisverða útvarpsupprifjun. RÁS 2 Bylgjur Árna Daníels og Ásmundar koma gjarnan á óvart. Djassspjall Linnets ómissandi fyrir geggjara og gott fleiri. Fjörkippir Ástu Ragnheiðar á sunnudag. BYLGJAN Vert er að gefa Vökulokum Bylgjunnar gaum en þar núa starfsmenn hennar saman fréttanefum sínum. Reykjavík síðdegis heldur ágætu flugi. Og vikuskammtur útvarps- stjórans í sunnudagshádegi. 17.40 Einsöngur í útvarpssal. 19.00 Fréttir. 19.35 ,,Hundamúllinn", gamansaga eft- ir Heinrich Spoerl. 20.00 Sagan: ,,Sonur elds og ísa" eftir Johannes Heggland. 20.30 Harmoníkuþáttur. 21.00 Gullgröftur og Drangeyjarsund. Ari Trausti Guðmundsson ræðir við Hauk Einarsson frá Miðdal. 21.40 Islensk einsöngslög. Þuríður Páls- dóttir syngur lög eftir Pál Isólfsson og Karl O. Runólfsson. 22.20 Laugardagsvaka. 23.30 Danslög. 00.05 Miðnæturtónleikar. 01.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 28. september 8.00 Morgunandakt. 8.35 Létt morgunlög. 9.05 Morguntónleikar. 10.25 Út og suður. 11.00 Messa í Fríkirkjunni í Reykjavík. 12.20 Fréttir. 13.30 Aþeningurinn Evrípídes. 14.30 Miödegistónleikar. 15.10 Alltaf ó sunnudögum. Svavar Gests velur, býr til flutnings og kynnir efni úr gömlum útvarpsþáttum. 16.20 Upphaf og endir íslenskrar hlut- leysisstefnu. 17.00 Frá tónleikum Musica Antiqua í Langholtskirkju í fyrra. 18.00 Síðslægjur. 19.00 Fréttir. 19.35 Frá hátíðinni N'art '86. 20.00 Ekkert mál. 21.00 Kvöldtónleikar. 21.30 Útvarpssagan: ,,Frásögur af Þögla" eftir Cecil Bödker. 22.20 ,,Haustheimar". 22.30 Síðsumarstund. 23.15 Úr íslenskri tónmenntasögu. 00.05 Gítarbókin. 00.55 Dagskrárlok. íitw Fimmtudagur 25. september 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö. 21.00 Um nóttmól. 22.00 Rökkurtónar. 23.00 Dyrnar að hinu óþekkta. Annar þáttur af þremur um Jim Morrison og hljómsveitina Doors. 24.00 Dagskrárlok. Föstudagur 26. september 9.00 Morgunþóttur. 14.00 Bót í máli. 16.00 Frítfminn. 17.00 Endasprettur. 20.00 Þræðir. 21.00 Rokkrásin. 22.00 Kvöldsýn. 23.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 27. september 10.00 Morgunþáttur. 14.00 Við rósmarkiö. 16.00 Listapopp. 17.00 iþróttafréttir. 17.03 Tveir gítarar, bassi og tromma. 20.00 Bylgjur. 21.00 Djassspjall. 22.00 Svifflugur. 23.00 Á næturvakt. 03.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 28. september 13.30 Krydd í tilveruna. 15.00 Fjörkippir. 16.00 Vinsældalisti hlustenda rósar tvö. 18.00 Dagskrárlok. yay 'BYLGJA Ni Fimmtudagur 25. september 06.00 Tónlist í morgunsárið. 07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. 09.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. 12.00 Á hádegismarkaöi með Jóhönnu Harðardóttur. 14.00 Pótur Steinn á réttri bylgjulengd. 17.00 HallgrímurThorsteinsson (Reykja- vík síðdegis. 19.00 Tónlist með léttum takti. 20.00 Jónína Leósdóttir á fimmtudegi. 21.30 Spurningaleikur. 23.00 Vökulok. Fréttamenn Bylgjunnar Ijúka dagskránni með fréttatengdu efni og Ijúfri tónlist. 24.00 Dagskrárlok. Föstudagur 26. september 06.00 Tónlist í morgunsárið. 07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. 09.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. 12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu Harðardóttur. 14.00 Pótur Steinn á réttri bylgjulengd. 17.00 Hallgrfmur Thorsteinsson (Reykja- vík síðdegis. 19.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson leikur létta tónlist og kannar hvað næturlífið hefur upp á að bjóða. 22.00 Nótthrafn Bylgjunnar leikur létta tónlist úr ýmsum áttum og spjallar við hlustendur. 04.00 Dagskrárlok. ÚTVARP eftir Óskar Guðmundsson Nýmiðlar í öngviti Einhvern veginn fannst manni ástæða til að fagna pínulítið inní sér, þegar Bylgjan fór af stað, afþví í einfeldni sinni gengur bjartsýnn maður útfrá, að fleiri fjölmiðlar ættu að leiða til aukinnar fjöibreytni. En þessi rifjagleði stóð einungis í skamma hríð. Og eftir að hafa gert tilraunir til að hlusta á rás 2 og Bylgjuna til skiptis í nokkra daga kenni ég efasemda — og jafnvel meðaumkunar. Það er tæpast hægt að finna að sam- keppnin á öldum ljósvakans hafi leitt til aukinnar fjölbreytni, — og eitt er alveg á hreinu, að samkeppnin hefur ekki staðið um gæði. Hún .kann að hafa staðið um fjölda hlustenda (og mun bráðlega standa um fjölda áhorfenda) en gæðin láta á sér standa. Samkeppnin um hlustendur virðist ein- göngu háð á léttu nótunum þannig að lög- málið um að því minna sem er til umhugs- unar, þeim mun fleiri verði til að nota tæk- in sín, virðist helst haft í heiðri. Metnaður- inn er allur í eina átt, einsog best sést á dag- skrárkynningum rásar 2 og Bylgjunnar: tónlist með léttum takti, á réttri bylgju- lengd, frívakt, um náttmál, rökkurtónar, endasprettur, léttur sprettur, vökulok, á léttum nótum og gvuðmávitahvað. Ekkert af þessu til þess fallið að vekja fólk til um- hugsunar eða bæta mannlífið á menning- arvísu. Fréttatengda efnið er á sömu bók- ina lært; létt einsog allt á að vera nú um stundir. Enginn veit betur en sá sem unnið hefur á blöðum að léttmeti er nauðsynlegt — meðlœti. En það er jafn fráleitt að bjóða notendum nánast einungis uppá léttmeti. í fjölmiðlunum verða og eiga að koma fram mismunandi skoðanir og vera þar til um- fjöllunar. Og í fréttum og umfjöllun um þær verður líka, að minnsta kosti öðruhvoru, að komast undir yfirborðið. Summa summarum: nýmiðlarnir virðast ganga út- frá því að fólk og þá sérstaklega ungt fólk sé ekki annað en eitt stórt poppeyra. Þetta er ekki nógu gott. Léttmetið flóir yfir alla bakka og felur í sér lítilsvirðingu gagnvart fólki. Stendur samkeppnin þá í raun og veru um það hvaða stöð geti lítilsvirt fólkið mest? Hvaða stöð geti gargað hæst — og lengst? Allt er þetta gert í nafni samkeppninnar —■ og því var nánast menningaráfall að heyra viðbrögð yfirstjórnar útvarpsins við samkeppni. Yfirstjórn útvarpsins hugsar nefnilega á sömu „léttu nótunum" og hyggst svara samkeppninni bæði í hljóð- varpi og sjónvarpi á sama „létta sprettin- um“ — með því að garga lengur — helst all- an sólarhringinn. Ekkert var minnst á sam- keppni um innihald, gæði. Útgangspunkt- ur fjölmiðianna er sá, að fólkið liggi hvort- eðer i öngviti — en þarmeð liggja þeir sjálf- ir í því sama viti. Samkeppnin hefur einnig sínar skoplegu hliðar. Samkvæmt skoðana- könnun er yfirgnæfandi meirihluti sjón- varpsáhorfenda þakklátur forsjóninni fyrir að ekki skuli sjónvarpað á fimmtudögum. Stöð 2 hlýtur að draga sínar ályktanir af þessari staðreynd og gefa þjóðinni orlof á fimmtudögum — og máske oftar — til að þóknast áhorfendum betur en ríkissjón- varpið — í nafni samkeppninnar. SJÓNVARP eftir Helga Má Arthúrsson Útvarp fyrir sjónvarp Þegar fréttastofa sjónvarps segir frá list- viðburðum er fréttapunkturinn peningar. Picasso sýning í sumar sem leið snérist um peninga. Gjöfin til frú Vigdísar snérist um verðmæti myndar. Og Munch myndir í Norræna húsi um tryggingafé. Þetta er ótrúlegur útkjálkaháttur og ber vitni van- metakennd hins smáa. Viðmiðunarramm- inn er þröngur. Otrúlega frumstæður. í tæp tuttugu ár hefur sjónvarp tekið út- varpsefni, sett við það myndir og sent það út sem umræðuþátt í sjónvarpi. Uppskriftin hefur jafnan verið sú sama. Þú tekur frétta- mann, eða mann utan stofnunar, og raðar í kringum hann fimm mönnum. Tíu, ef mikið liggur við, eins og í fyrrakvöld. Síðan setur þú upp þrjár sjónvarpsvélar og sendir út. í dagskrá kallar þú fyrirbrigðið: Um- ræðuþáttur í sjónvarpssal. Yfirburðir sjónvarps yfir útvarp eru þeir, að mynd og tal er sent út samtímis. Og numið samtímis í stofum landsmanna. Með öðrum þjóðum er lagt mikið uppúr mynd- málinu og yfirburðir sjónvarps nýttir til fullnustu. Það er ekki gert hér. Kannski er það spurning um peninga, eina ferðina enn. En ef við ætlum að gera sjónvarp, þá verðum við að gera það eins og menn. Það kostar sitt að sjónvarpa, eða nota þá tækni sem við höfum í höndunum. Útvarpsefni fyrir sjónvarp er leiðinlegt. Svo leiðinlegt, að klassískir umræðuþættir sjónvarps eru venjulega misheppnaðir, nema menn fari að rífast í sjónvarpi, eða geri eitthvað það fyrir opnum skermi sem brýtur þann fasta ramma, sem umræðu- þáttum er sniðinn. Þá tala menn um hið óvenjulega. Og hafa af mikla skemmtan. Björn Vignir Sigurpálsson og Magnús Bjarnfreðsson stjórnuðu á þriðjudag um- ræðuþætti undir yfirskriftinni: íslenskir fjölmiðlar á tímamótum. Og þrátt fyrir að viðmælendur væru tíu — í stað fimm — var þátturinn hrútleiðinlegur. Magn tryggir ekki gæði. Lotning fyrir tæknibrellum —- ljósleiðurum, gervitunglum og leysigeisl- um — réð ferð í þessum þætti. Asamt hrifn- ingu hins smáa, að loksins vera í hópi stór- þjóða, sem útvarpa og sjónvarpa á mörg- um rásum. Sérhver tímenninganna hafði frá ein- hverju að segja. En þeir fá vitaskuld ekki tíma til neinna útlistana í beinni útsend- ingu. Þennan þátt átti að pródúsera og leggja í hann mikla vinnu — og metnað sem yfirmenn Ríkisútvarps virðist vanta. Þátt þennan átti að klippa sundur og saman. Raða brotum uppá nýtt og senda út fullbúinn með umsögnum og mismunandi skoðunum. Slíkur þáttur er sjónvarpsefni. Það sem við sáum á skjánum var fimmtudagsumræða fyrir sjónvarp. Ég horfði á þáttinn til enda. Bjóst við því í einfeldni minni, að menntamálaráðherra hefði eitthvað að segja. Það eina sem ég man eftir var að ráðherra lofaði að beita sér fyrir eflingu Ríkisútvarpsins. Og að hann hafði engar áhyggjur af frjálsri sam- keppni. Eg hef áhyggjur af Ríkisútvarpinu. Mér finnst skorta mikið á metnað stjórn- enda RÚV eftir miklar mannabreytingar hjá stofnuninni. Það er hreint ekki riægjan- legt, að mála bílana bláa. Búa til nýtt merki og biðja Gunnar Þórðarson um ný stef — auglýsingastef. Það vantar metnaðarfulla stjórnendur. Fólk sem lítur á Ríkisútvarpið se fjölmiðil í samkeppni. Ekki flokkspóli- tíska stassíón. 38 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.