Helgarpósturinn - 25.09.1986, Qupperneq 7
maskínu Sjálfstæðisflokksins eru*
farnir að reikna út mögulega niður-
stöðu í prófkjöri flokksins. Og hafa
þeir komist að þeirri niðurstöðu, að
hætta sé á, að Albert Guðmunds-
son, iðnaðarráðherra, muni enn á
ný hafna í efsta sætinu og þar með
verða fyrsti þingmaður Reykvík-
inga. Af öðrum frambjóðendum sé
enginn einn sem safnað geti fylgi
sambærilegu við það sem stuðn-
ingsmenn Alberts veita honum, en
allir hans stuðningsmenn setja hann
í fyrsta sæti. Hefur verið rætt í Sjálf-
stæðisflokki að fara í opið stríð við
Albert, en enginn þorir. Hefur nafn
Friðriks Sophussonar oftar en
einu sinni verið nefnt í þessu sam-
bandi. Benda menn á að hann, sem
varaformaður flokksins, verði að
leiða listann í Reykjavík og því sé
honum skylt að sjá svo til að iðnað-
arráðherra fari ekki með sigur af
hólmi í prófkjöri öðru sinni. . .
Þ
eir sem vinna á fjölmiðlum
komast ekki hjá því að taka eftir
miklu pappírsflóði, sem sýknt og
heilagt streymir frá Umferðarráði
og er sosum allt gott um það að
segja því Óli H. og félagar gefa oft
góð ráð í umferðarmálum enda
þeirra starf. Hins vegar getum við
ekki orða bundist yfir síðustu send-
ingunni frá Umferðarráði. Hún var
bréf frá ráðinu, merkt ÓHÞ, þ.e. Óla
H. Þórðar, ásamt auglýsingu frá tré-
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRent
smíðaverkstæði í Hafnarfirði. I aug-
lýsingunni er farið fögrum orðum
um „örugga og handhæga umferð-
artálmá' frá fyrirtækinu. f bréfi Um-
ferðarráðs er líka mælt með þessari
„kærkomnu nýjung“. Við á HP héld-
um nú, að Umferðarráð hefði öðru
hlutverki að gegna en því að aug-
lýsa innlendan iðnað. ..
lÉhnar Valur Ingimundarson
er nýr spútnik í viðskiptaheiminum.
Hann hefur nýverið fest kaup á Há-
bæ, hinum forna veitingastað við
Skólavörðustíg og er kaupverðið tal-
ið hafa verið um 9 milljónir króna.
Hann gerir sér vonir um lán úr
Stofnlánadeild landbúnaðarins út á
baunaspírur, sem hann hefur verið
að rækta um skeið. Einar Valur kem-
ur víðar við í viðskiptunum; hann
mun vera hluthafi í bókaforlaginu
Svart á hvítu og eiga hlut í Natura
Casa, fyrirtækinu sem flytur inn
náttúruleg byggingarefni. Þá rekur
Einar Valur Austurlenska ævin-
týrið, sem framleiðir baunaspírurn-
ar til manneldis. Einar Valur hyggst
opna veitingastað í Hábæ innan
ekki langs tíma, sjálfur eða með því
að leigja út frá sér...
Njótið lífsins og reynið nýjan og spennandi haust sérrétta-
seðil aukfjölda annarra úrvals mdlsverða.
Víkingaskipið er d sínum stað hlaðið alskyns grænmeti og
brauðum.
Sigurður Þ. Guðmundsson leikur hugljúf lög á píanóið.
Rómantískt og huggulegt kvöld í Blómasal hennar vegna.
HQTEL
FLUGLEIÐA HÓTEL
LOFTLEIÐIR
6 HELGARPÓSTURINN
eftir Gunnar Smára Egilsson myndir Jim Smart
Lðeins brot af
SÖFNUNARFÉ
KEMST TIL SKILA
FRAMKVÆMDASTJÓRINN FER EKKI AÐ TILMÆLUM ENDURSKOÐANDANS
STJORNIN LÆTUR ÓNÁKVÆMNINA ÓÁTALDA
NOTUÐ FÖT FÆRÐ í REIKNINGANA Á MARKAÐSVERÐI NÝRRA FATA
TRÚNAÐARBRESTUR STOFNUNARINNAR GAGNVART GEFENDUM
BÍLABRASK OG ÍBURÐUR Á SKRIFSTOFUNNI
STOFNUNIN EKKI UNDIR NEINU OPINBERU EFTIRLITI
NINGAR HJALPARSTOFNIINAR
KIRKJUNNAR VEKJA FLEIRISPURNINGAR EN SVÖR
HELGARPÓSTURINN 7