Helgarpósturinn - 25.09.1986, Síða 13
Ef þú hefur yfirdráttarheimild hjá Spron
... eru óvænt útgiöld ekkert stórmál!
l HP í liðinni viku vorum við að
velta fyrir okkur því hvort útflutn-
ingur á Svala gæti verið niður-
greiddur. Ástæðan var sú. að tíð-
indamaður okkar í Lundúnum
komst að því að þessi svaladrykkur
væri mun ódýrari þar ytra en heima
á Fróni. Nú getum við upplýst, að út-
flutningur Davíðs Schevings
Thorsteinssonar er ekki niður-
greiddur. Skýringarnar á „útlenda
verðinu" eru fólgnar í margannál-
uðu verðmyndunarkerfi Alþingis og
hins opinbera. Við útflutning á
Svala gerist nefnilega eftirfarandi:
1. Framleiðandi fær endurgreiddan
toil af innfluttu hráefni; 2. Hann fær
endurgreiddan uppsafnaðan sölu-
skatt; 3. Á Bretlandseyjum þarf ekki
að greiða vörugjaldið og í 4. lagi er
söluskattur 70% hærri á íslandi en á
Bretlandi. Þá mun álagning á Sval-
ann á Bretlandi vera minni þessar
vikurnar á meðan unnið er að kynn-
ingu vörunnar á nýjum markaði.
Davíð Scheving sagði við HP, að
hægt væri að lækka verðið á Sval-
anum um heiming hérlendis, ef búið
væri við sömu skilyrði og á Eng-
landi. í fyrra greiddi fyrirtæki
Davíðs 40 milljónir króna í opinber
gjöld af Svala, sem er u.þ.b. ‘h af
heildarinnkomunni af þessari vöru.
Þetta voru samanburðarfræði um
íslenskan iðnvarning á innlendum
og erlendum markaði. ..
Ítokksstjórn Alþýðuflokksins
kom saman á þriðjudaginn var. Til-
efnið var að undirbúa flokksþing-
ið á Hótel Örk. Á sjötugasta afmæl-
isári flokksins. Átti á fundinum að
undirbúa mál þau sem rædd verða á
þinginu og stilla upp frummælend-
um vegna almennra umræðna um
hin margvíslegustu efni. Til fundar-
ins mættu 15 flokksstjórnarfull-
trúar, auk formanns flokksins.
Samtals sextán manns. Gekk fund-
urinn vel fyrir sig. Kom fram að þeg-
ar væru um 400 manns búnir að skrá
sig til flokksþings. Er það von al-
þýðuflokksmanna, að þátttaka
verði í samræmi við þátttökutil-
kynningar og ekki í samræmi við
áhuga manna á starfi flokksstjórn-
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis tók upp þá
nýbreytni fyrir tveimur
árum að bjóða yfirdráttar-
heimild á tékkareikning-
um, allt að 10.000 krónur.
Þetta mæltist vel fyrir.
Áskilið er þó að viðskiptin
við sparisjóðinn hafi verið
stöðug, traust, án van-
rækslu eða vanskila.
Þar sem sparisjóðurinn
hefur alltaf lagt áherslu á
góða þjónustu hefur yfir-
dráttarheimildin verið
hækkuð um helming í
20.000 kr. Þannig vill
sparisjóðurinn veita við-
skiptavinum sínum
aðgang að varasjóði ef
óvænt útgjöld bera að.
Sækja þarf um nýja og
breytta yfirdráttarheimild
í sparisjóðnum og nýir
viðskiptavinir fá hana
samþykkta þegar þeir geta
sýnt fram á föst
launareikningsviðskipti.
Regluleg greiðsla trygg-
ingabóta á innlánsreikn-
ing teljast föst viðskipti.
Heimildargjald er reiknað
á þá yfirdráttarheimild
sem veitt er og vextir
reiknaðir á yfirdráttar-
stöðu hvers dags. Þessi
kostnaður er skuldfærður
á viðkomandi tékkareikn-
ing síðasta dag hvers
mánaðar. Vaxtanóta er
skrifuð út og send reikn-
ingshöfum mánaðarlega.
Sparísjóður Reykjavíkurog nágrennis
SKÓLAVORÐUSTIG 11 HÁTÚNI 2B AUSTURSTRÓND 3
r
RAMMA
SXGTON 20 - 105 REYKJAVIK -
Álrammar 15 stærðir
Margir litir
Smellurammar 20 stærðir
Plaköt mikið úrval
Innrömmun
Opið á laugardag