Helgarpósturinn - 25.09.1986, Síða 20
s
^^^iðasta timarit Þjóðlífs fór í
taugarnar á mörgum vinstri mönn-
um vegna viðtals við Guðmund J.
Guðmundsson. Engu að síður virð-
ist það hafa verið gott sölumál, því
Þjóðlíf er uppselt víða í söluturnum.
Tímaritið hefur nýverið ráðið sér
nýjan markaðsstjóra. Sú heitir Sig-
ríður Pétursdóttir og hefur komið
nálægt slíkum störfum áður. . .
|f
Ni^^jördæmisþing Alþýðu-
flokksins verður haldið nú um helg-
ina. Þar í kjördæminu eru menn að
sjálfsögðu farnir að velta fyrir sér
framboðslista flokksins í komandi
alþingiskosningum. Eiður Guðna-
son er sagður svo þrjóskur að ekki
einu sinni vígreifustu uppstokkun-
arkratar létu sér koma til hugar að
reyna að fá hann til að skipta um
kjördæmi. Hins vegar velta menn
vöngum yfir því hver muni skipa
annað sæti framboðslistans. í síð-
ustu kosningum skipaði Guðmund-
ur Vésteinsson á Akranesi þetta
sæti, en honum var hafnað með
miklu braki í prófkjöri fyrir síðustu
sveitarstjórnakosningar, þannig að
ekki er gert ráð fyrir honum í slag-
inn. A hinn bóginn er kominn nýr
maður til sögunnar í kjördæminu,
maður sem vann mikinn kosninga-
sigur í Borgarnesi í vor. Sá heitir
Eyjólfur Torfi Finnsson og var
einu sinni formaður Félags ungra
sjálfstæðismanna í Grundarfirði...
l friðlandi Vestfjarða — og lands-
manna allra — í Vatnsfirði á
Barðaströnd, þar sem sauðkindin
ein á öruggt griðland, stendur sum-
arbústaður — afgirtur og glæsilegur.
Bústaður þessi var reistur fyrir tólf
árum vegna þjóðhátíðar Vestfirð-
inga 1974. Að lokinni hátíðinni var
hann auglýstur til sölu og gert ráð
fyrir að hann yrði fluttur á brott.
Það hefur hins vegar ekki gerst.
Hann var seldur Ragnari Guð-
mundssyni, bónda á Brjánslæk,
fyrir smámuni árið 1982. Sá sýslu-
maður um söluna skv. umboði.
Ragnar bóndi hefur, eins og áður
sagði, girt bústað sinn af og hyggst
hvergi fara, náttúruverndarmönn-
um til mikillar hrellingar.. .
rir nýir leikarar 'koma í stað
annarra fjögurra í söngleiknum
Land míns föður sem endursýnt
verður 5. október og ku víst hafa
Kennsla hefst 2. október.
&
Byijendur (yngst 5 ára) og framhaldsnemendur.
Innrítun í síma 72154 ki 11-19.
Kermslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DAKCING
RCJSSIAN METHOD
Einnig býður skólinn upp á kenrtslu í spænskum
dönsum: FLAMENCO, JOTA, SEVILLAHAS o.fl.
Félag íslenskra listdansara.
SKÚLAGÖTU 32-34 <><►<►
BAUKURINN,
KJÖRBÓKIN OG
LANDSBANKiNN
HJÁLPA ÞÉR
AÐNÁENDUM
SAMAN
Þegar lítið fólk ræðst í stórar
fjárfestingar er gott að minnast
þess að margt smátt gerir eitt
stórt. Smámynt sem safnað er
í sparibauk og síðan lögð á
Kjörbók stækkar og ávaxt-
ast hraðar en þig grunar.
Bangsa baukurinn fæst í öllum
sparisjóðsdeildum Lands-
bankans. Þegar spariféð úr
honum er lagt inn er Kjörbók-
in vísasta leiðin að settu
marki. Barnið, baukurinn og
bankinn leggjast á eitt;
tölurnar hækka og að lokum
ná endar saman.
Kennum börnunum okkar að
spara peninga og ávaxta þá,
það er gott veganesti og
gagnlegt.
Jgr Landsbanki
BL íslands
ffiSLÆm Banki allra landsmanna f 100 ár
20 HELGARPÓSTURINN