Helgarpósturinn - 25.09.1986, Síða 22
KRON VANN KAPPHLAUPIÐ UM VÍÐI
Keyptu Víði í Mjóddinni fyrir 250 milljónir 100 mi
• / • /
onir i
útborgun Þáttaskil í verslun
Hagkaup töpuðu slagnum Borgarstjóri í viðræðum um kaupin Tugir verslana að fara á
hausinn f Reykjavík Heildsalar æfir
Verslunin Viöir í Mjóddinni var
seld á mánudag. Kaupandi var
KRON — Kaupfélag Reykjavíkur og
nágrennis. Kaupverd er 250 milljón-
ir og er KRON gert ad greida 100
milljónir át — fyrir áramót. Örar
greiðslur til áramóta benda til þess,
aö Verslunin Víðir hafi staðið illa.
Með eigendaskiptum eru duglegir
kaupmenn — og djarfir — keyptir út
úr verslunarrekstri og kaupfélag
kemur í þeirra stað. Innrás KRON í
Breiðholtiö er annar sigur sam-
vinnumanna í því verslunarstríöi,
sem staðið hefur í Reykjavík í nokk-
ur ár.
250 mSLLJÓNíR
FYRIR VERSLUN
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum HP höfðu nokkrir aðilar aðrir
augastað á Versluninni Víði. Hag-
kaup voru inní myndinni fram á síð-
asta dag. Heildsalar veltu þeim
möguleika fyrir sér að kaupa Víði,
auk þess sem Sláturfélag Suður-
lands hafði áhuga á verslun í Breið-
holti. Forráðamenn þess fyrirtækis
hafa vaxandi áhyggjur af því hve
illa SS-verslanirnar ganga og óttast
innrás kaupfélags í Breiðholtið. En,
eins og áður sagði, KRON vann
kapphiaupið. Bauð 250 milljónir á
móti Hagkaupum, sem buðu um 180
milljónir. Stjórnarfundur KRON á
þriðjudag staðfesti bráðabirgðasam-
komulag fulltrúa KRON og eigenda
Víðis.
Verslunin Víðir á byggingarétt
uppá þrjár hæðir í Mjóddinni. Munu
Víðisbræður hafa velt þeim mögu-
leika fyrir sér, að byggja húsið upp
og selja hæðirnar tvær til að auð-
velda sér rekstur verslunarinnar. Á
annarri hæð var áformað að reisa
verslunar- og skrifstofuhúsnæði, en
á þriðju hæðinni var fyrirhugað að
koma fyrir Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar. Viðræður höfðu
farið fram við borgarstjóra, Davíð
Oddsson, í þessu sambandi og leist
honum, og embættismönnum borg-
arinnar, vel á staðsetningu Félags-
málastofnunar á þessum stað.
Borgarstjóri staðfesti í samtali við
HP, að þessar viðræður hefðu farið
fram. Hann sagði, að staðurinn
hentaði starfsemi Félagsmálastofn-
unar og benti á, að það húsnæði
sem stofnunin væri í nú, væri ófull-
nægjandi fyrir þá starfsemi sem félli
undir hana. Aðspurður um kaup-
verð — 60 milljónir — sagði borgar-
stjóri, að ekki hafi verið rætt um
verð í þessu sambandi. En kaupir
borgin af KRON?
„Staðsetningin skiptir okkur
máli. Ekki eigendur," sagði borgar-
stjóri, Davíð Oddsson. Það er því
ekki útilokað, að borgin kaupi efstu
hæðina í Mjóddinni. Sá er munurinn
að seljandi yrði ekki Víðir, heldur
KRON.
ÞATTASKIL
Með kaupum KRON á Víði verða
þáttaskil í verslun í Reykjavík. Ef
fyrirtækið hefði ekki náð Mjóddinni
undir sig hefði Mikligarður, KRON
og SÍS verið dæmdir úr leik í þeirri
miklu samkeppni sem nú ríkir á
sviði matvöruverslunar í Reykjavík.
Með kaupunum er framsókn Hag-
kaupa stöðvuð og er það snar þáttur
í þeirri ákvörðun KRON að kaupa
Víði. Með því að Hagkaup hefðu
keypt Víði, eins og til stóð, þá hefði
fyrirtækið eignast „kirkju í hverri
sókn“. Verslun í Breiðholti, aðra í
Skeifunni (sem Hagkaup ætlar ekki
að leggja niður þegar í nýja húsið er
komið), þá þriðju í nýja húsinu,
fjórðu í Húsi verslunarinnar, fimmtu
á Laugaveginum og þá sjöttu í Aust-
urstræti. Þetta var áætlun Hag-
kaupa og hefði leitt til þess að þeir
næðu til sín um 60% allrar verslunar
með matvöru í Reykjavík.
Talið er víst að í kjölfar kaupa
KRON á Víði muni öll verslunarstarf-
semi kaupfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu verða endurskoðuð. Gert
er ráð fyrir að Mikligarður muni
starfa áfram, eins og Hagkaup í
Skeifunni, enda þótt báðar verslanir
hafi tímabundin starfsleyfi á báðum
stöðum. Verslun borgarinnar stefnir
því á tvær hendur. Hagkaup og
kaupfélagið.
Ástæðan fyrir því að Víðisbræður
verða að láta undan í hinni miklu
samkeppni er líklega sú, að þeir
hafa ekki haft nægilegt fjármagn í
upphafi til að geta staðið undir þeim
miklu framkvæmdum, sem þeir réð-
ust í með uppbyggingu fyrirtækisins
í Mjóddinni. Talið er að húsið sjálft
hafi kostað um 130 milljónir og að
innréttingar, tæki og lager hafi kost-
að annað eins. Samtals hátt á þriðja
hundrað milljónir króna. Fyrirtækið
tók á sínum tíma um 40 milljóna
króna lán til kaupa á tækjum og inn-
réttingum og voru þessi lán í er-
lendri mynt. Afgreidd eftir umfjöll-
un í langlánanefnd ríkisstjórnar.
Þess utan er talið að fyrirtækið hafi
tekið allt að 70 milljónir að láni inn-
anlands til að fjármagna fram-
kvæmdir fyrirtækisins.
Til að standa undir þessum dýru
lánum urðu Víðisbræður að taka
mikið fé út úr rekstri fyrirtækisins
og lentu þcir cif leiðandi í mcugs konar
greiðsluerfiðleikum gagnvart heild-
sölum og öðrum. Búnaðarbanki er
nefndur til í þessu sambandi, en „fit-
kostnaður" fyrirtækisins var gífur-
lega mikill.
Ekki er talið, að þeir hafi leitað til
„útleysará' (efnaðir kaupsýslumenn
sem leysa út vörusendingar gegn
þóknun) í sínum viðskiptum, en sú
aðferð hefur gert mörgum kaup-
mönnum erfitt fyrir síðustu misseri.
Það voru m.ö.o. erfið erlend lán, og
hár fjármagnskostnaður sem felldi
Víðisbræður.
VERSLANIR Á
HAUSNUM
Gífurleg samkeppni er í matvöru-
verslun á höfuðborgarsvæðinu. Og
þeir sem stunda smásöluverslun ótt-
ast mjög þær breytingar sem fyrir-
sjáanlegar eru í versluninni. Telja
margir kaupmenn að samkeppni
muni harðna enn frekar með þeim
atburðum sem nú hafa gerst.
Ástandið er svo alvarlegt, að 30
verslanir hafa neyðst til að hætta
starfsemi sinni á síðustu sextán
mánuðum. Og álíka fjöldi kaup-
manna berst í bökkum. Staða
margra þeirra gagnvart innflutn-
ingsaðilum — heildsölum er hrika-
leg í mörgum tilvikum og hreint
ekki ólíklegt að fjöldi verslana muni
loka á næstu tólf til átján mánuðum.
Með opnun Miklagarðs hófst það
einvígi í verslun sem nú stendur
hæst á milli Hagkaupa og kaupfé-
laganna. Með því að markaðir hafa
lækkað vöruverð hefur verslunin
færst frá smákaupmönnum og yfir í
markaðina. Þeir hafa til skamms
tíma getað boðið mun lægra vöru-
verð en smákaupmenn, en á síðustu
mánuðum hefur dregið saman með
smákaupmönnum og mörkuðum í
verði vöru. Þessi mikla samkeppni
hefur haft það í för með sér, að
álagningarprósenta í smásöluversl-
un hefur farið lækkandi. Er að með-
altali um 17% nú, á móti 21—22%
fyrir nokkrum misserum. Lækkun
álagningar hefur komið verst við
smákaupmenn. Markaðirnir hafa
hins vegar fleytt sér áfram með því
að stórauka eigin innflutning á vör-
um og fara framhjá heildsölum.
Hagkaup er dæmi um þetta, en þeir
flytja í vaxandi mæli inn sína vöru
sjálfir. Fyrirtækið kaupir þá vöruna
beint inn. Frá Hollandi, Þýskalandi
eða Bretlandi og fer framhjá heild-
sölum, sem í mörgum tilvikum kaupa
sömu vöru inn frá Skandinavíu fyrir
10—15% hærra verð en ella.
Töluverður skjálfti er í röðum inn-
flutningsaðila vegna þess sem gerst
hefur í verslun á síðustu tveimur ár-
um. Missa þeir spón úr aski sínum
með sjálfstæðum innflutningi mark-
aðanna og fækkun verslana í
Reykjavík. Hafa sumir þeirra haft
áhuga á að reyna að snúa vörn í
sókn gagnvart mörkuðunum með
því að hasla sér völl í smásöluversl-
un sjálfir, en án árangurs. Einn
stærsti heildsaii iandsir.S tx t.cí.m.
talinn hafa mikinn áhuga á að kom-
ast yfir stórverslun til að koma vöru
sinni á markað, en hann hefur misst
töluvert af viðskiptum eftir að Hag-
kaup fóru að flytja sjáifir inn sína
vöru. í þessu sambandi hefur Vöru-
markaðurinn verið nefndur, en skv.
heimildum HP er sala á Vörumark-
aðinum í burðarliðnum. Heyrst
hefur að kaupendur séu S.S., Heild-
verslunin Sund og ónefndur athafna-
maður. Um framtíðina er ekkert vit-
að annað en það, að með sigri sam-
vinnumanna í kapphlaupinu um
Víði má gera ráð fyrir mikilli sam-
keppni á milli KRON og Hagkaupa.
Sú tvípólun gæti pressað smásölu-
álagningu enn frekar niður og beinn
innflutningur haft veruleg áhrif á
innflutningsverslun í landinu. Lágt
vöruverð er af hinu góða fyrir neyt-
endur. Smákaupmenn verða hins
vegar að bregða skjótt við og endur-
reisa eitthvað af þeim innkaupa-
samtökum, sem þeir hafa stofnsett í
því skyni að kaupa ódýra vöru inn.
Aukinn innflutningur — beinn inn-
flutningur — og viðskipti við stórar
verslunarkeðjur erlendis myndu
hafa það í för með sér, að heildsalar
misstu enn einn spón úr aski sínum.
Ólafur Sveirissqn, verðandi kaup-
félagsstjóri KRON, vildi í samtali
ekki upplýsa HP um það hvernig
KRON fjármagnaði kaupin á Víði.
Kunnáttumenn í verslun telja að
það sem ráðið hafi úrslitum í kapp-
hlaupinu um Verslunina Víði, hafi
verið, að KRON hefur betri aðgang
að bankakerfinu í landinu. Nefna
menn þar til sögunnar pólitísk áhrif
KRON í ríkisstjórn og ríkisbönkum
og í langlánanefnd, sem lánað hefur
til verslunarinnar í landinu, auk að:
gangs að sjóðum Sambandsins. í
ljósi þess, að Mikligarður tapaði
heilum sex milljónum á síðasta ári
eru bankamenn hissa á kaupunum á
Víði. Aðrir telja að lífsvon KRON
liggi í Mjóddinni. Án verslunar í
Breiðholti væri KRON illa statt.
22 HELGARPÓSTURINN
leftir Helga Má Arthúrsson
mynd Jim Smart