Helgarpósturinn - 25.09.1986, Síða 27
BERLlNARMÚRINN:
„FORMLEG LANDAMÆRI"
I agust 1961 hófust Austur-Þjóö-
verjar (og Rússar) handa vid aö
reisa Berlínarmúrinn. Á Þjóövitja-
máli þeirrar tíöar hét þetta aö
,,koma upp formlegum landamœr-
um á mörkum borgarhlutanna “ og
„gaddavírsmunnsöfnuöur" harö-
lega gagnrýndur.
Tuttugasta og annan ágúst birtist
á leiðarasíðu Þjóðviljans greinin
„Gaddavírshugleiðing". Þar var
„sannieikanum" umbúðalaust kom-
ið á framfæri með eftirfarandi gull-
molum:
„Til að binda enda á hið svívirði-
lega svindlbrask að fullu og öllu, svo
að ekki sé minnst á hina svívirði-
legu njósna- og undirróðurstarf-
semi, sem allir vita að rekin hefur
verið í Vestur-Berlín, var gripið til
þess ráðs að setja upp gaddavír".
„Flóttamannastraumurinn vestur
yfir fer minnkandi ár frá ári, en
fólksflutningar austur yfir fara vax-
andi“.
„Almenn ánægja austanmegin.
Uppsetning gaddavírsins kom eng-
um á óvart í Austur-Þýskalandi. Þar
var líka almannarómur að tími væri
til kominn og meir en það að binda
endi á svartamarkaðsbraskið og
aðra þá svívirðu sem viðgekkst í
Vestur-Berlín sökum hins óeðlilega
ástands".
Greininni lauk með miklum spá-
dómsorðum: „Og gaddavírinn verð-
ur tekinn niður aftur“. Ritstjórar
blaðsins voru Magnús Kjartansson,
Magnús Torfi Ólafsson og Sigurður
Guðmundsson. Og gaddavírinn sá
hvarf vissulega. En við tók ramm-
gerður múr...
GADDAVÍRS
HUGLElilNl
SPUTNIK:
SIGUR SÓSÍALÍSKS ÞJÓÐSKIPULAGS
Fjóröa október 1957 skutu Sovét-
menn fyrsta gervitunglinu á braut
og þóttu þaö mikil tíöindi. Slœm tíö-
indi fyrir vestan, því Spútnik þýddi
aö Sovétmenn vœru aö taka forystu
á tœknisviöinu, en góö tíöindi fyrir
austan.
Og Þjóðviljinn fagnaði auðvitað:
Mikilvægri orrustu í vísindastríði
stórveldanna hafði lokið með sigri
Sovétríkjanna. í leiðara var sérstak-
lega vitnað í Tass: „Gervitunglin eru
fyrsta sporið á ferðum manna milli
reikistjarnanna, og svo virðist sem
okkar kynslóð eigi eftir að lifa það,
að menn hins nýja þjóðfélags sósíal-
ismans geri djörfustu vonir mann-
kyns að veruleika með frjálsu og
vökulu starfi".
Skömmu síðar kom annar leiðari
í Þjóðviljanum með eftirfarandi
fagnaðarorðum: „Gervihnötturinn
er ekki aðeins vottur um snilligáfu
vísindamanna og tæknifræðinga
heldur óhrekjanlegt tákn um afrek
þess þjóðskipulags sem hefur ger-
breytt Sovétríkjunum á ótrúlega
skömmum tíma. . . ætli stórstígar
framfarir í tækni og vísindum séu
ekki undirstaða þess að öll alþýða
geti lifað við menningu, frelsi og
góð kjör?"
Spútnik endurspeglaði sam-
kvæmt Þjóðviljanum anno 1957 þá
þróun sem væri fyrirboði þess
hvernig fara myndi í keppni auð-
valdsskipulags og sósíalisma.
FORHEIMSKUNARBLAÐA"
svo víðtæk og hvöss, að segja má að
hann hafi tætt stefnu hans sundur,
svo að þar standi ekki steinn yfir
steini" sagði í aukablaði Frjálsrar
þjóðar 20. febrúar og Tíminn sagði
tveimur dögum síðar: „í stuttu máli
sagt, þeir hafa „afmáð" félaga
Stalín".
Sama dag og Krúsjeff flutti leyni-
ræðu sína birti Þjóðviljinn greinina
„Það sem Mikojan sagði á flokks-
þinginu í Moskva" og var það svar
við , ,fréttaflutningi forheimskunar-
blaða". Aður hafði birst greinin
„Rússagrýlumenn miður sín“. Þjóð-
viljinn viðurkenndi að ýmsir ræðu-
menn á þinginu hefðu gagnrýnt
gerðir sínar og mistök, en að nokk-
uð hafi verið sagt í líkingu við ofan-
greint var af og frá.
Nú er það hins vegar viðurkennd
söguleg staðreynd að á þinginu hafi
Krúsjeff, Mikojan og fleiri endan-
lega sett Stalín út í kuldann: Hann
hafi misnotað vald sitt, hefði staðið
fyrir fölsuðum ákærum og órétt-
mætum dómum gegn hollum
kommúnistum, hefði ekki búið land
sitt sem skyldi undir innrás Þjóð-
verja, hefði gert sig sekan um alvar-
leg skipulagsmistök og borið ábyrgð
á klofningi Sovétríkjanna og Júgó-
slavíu 1948. Pravda bætti um betur
skömmu síðar og sagði Stalín hafa
virt að vettugi grundvallarregluna
um „samvirka forystu", hefði iðu-
lega tekið ákvarðanir einn, hefði af-
skræmt grundvallarreglur flokksins
og brotið í bága við lögmál bylting-
arinnar.
VATN +
velUðan
»*> - ■
._..■ ÉSim
Þaö jafnast ekkert á viö
nýstandsett baðherbergi
frá PARMA í Hafnarfirði.
útborgun 20%.
Eftirstöövar í allt að 9 mánuöi.
HEILDVERSLUN-SÍMI: 27444-PÓSTHÓLF: 167-BRAUTARHOLT 28-REYKJAVÍK
Hugsaöu þér þvottavél af
svipaöri stærö og venjuleg
heimilisþvottavél en með af-
köst á viö nokkrar slíkar.
Hugsaðu þér síöan þurrkara
og strauvél sem skila þvottin-
um þurrum, stroknum og ilm-
andi án tafa. Ef þú getur séö
þetta fyrir þér, þá ertu að
hugsa um WE 60, WE 120
háþeytivindu-
þvottavélamar
og W 74 lág-
þeytivindu-
þvottavélamar
frá Wascator
ásamt þurrkara og strauvél.
Þetta eru kjörin tæki í þvotta-
hús fjölbýlishúsa, smærri
fyrirtækja, veitingahúsa, lítilla
hótelao.fl. o.fl.
Kynntu þér iðnaðarþvotta-
tækin frá Wascator ef þú vilt
tæki sem eru miðuð við 24
tíma notkun á sólarhring árið
út og inn.
Slíktæki mala
eigendum
sínum gull
fyrr en þá
grunar.
Viðhalds- og varahluta-
þjónustu annast sérhæfðir
starfsmenn þá sjaldan á
þarf að halda.
HF.
Við veitum faglega ráðgjöf
um tækjakaup og upp-
setningu þvottahúsa sé
þess óskað.