Helgarpósturinn - 25.09.1986, Side 30
LEIÐARVISIR HELGARINNAR
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ
GERA UM HELGINA?
Erlendur Einarsson
forstjóri Sambandsins
„Ég ætla austur yfir helgina —
austur í Landbrot og renna fyrir sjó-
birting. Ég fer með erlendum
kunningjum mínum og það verður
ærinn starfi. Kem ekki í bæinn fyrr
en á sunnudag aftur. Það er afar
gott að komast frá hvunndagserlin-
um og geta slakað á útí náttúrunni
stöku sinnum. Maður verður að
slaka á frá fjölmiðlum og vinnu
endrum og eins í góðra vina hópi."
SÝNINGAR
ÁSMUNDARSAFN
Reykjavíkurverk Ásmundar til sýnis fram
á haustið kl. 10—17 alla daga.
GALLERl ISLENSK LIST
Sumarsýning listmálarafélagsins verður
opin í sumar virka daga kl. 9—17. Sýnd
um 30 verk eftir 15 félaga.
KJARVALSSTAÐIR
Sýningin Reykjavík í myndlist þar sem 60
Reykjavíkurverk eru sýnd eftir 33 lista-
menn. Sýningin er opin kl. 14—22. Sýn-
ingin Reykjavík í 200 ár opin til 28. sept.
LISTASAFN HÁSKÓLA
ÍSLANDS,
í Odda
Til sýnis eru 90 verk safnsins aðallega eft-
ir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur
ókeypis.
GALLERl BORG
Harpa Björnsdóttir sýnir 20 myndir unnar
með þlandaðri tækni. Sýningin stendur
frá 18. september til mánaðamóta og er
opin frá 10—18 virka daga en 14—18 um
helgar. Harpa Björnsdóttir er fædd árið
1955 og lauk námi frá Nýlistadeild Mynd-
lista- og handlðaskóla íslands 1981.
Harpa málar og vinnur I grafík, myndir af
konum og körlum, fuglum og fiskum,
sem á stundum renna saman við mann-
skepnuna og verða að táknmyndum um
tvíeðli, erótík og afl skáldskaparins.
EDEN HVERAGERÐI
G.R. Lúðvíksson hefur opnað sína 13.
myndlistarsýningu í Eden Hveragerði.
Sýningin stendur til 7. okt. G.R. Lúðvíks-
son sýnir þar olíu, vatnslitamyndir ásamt
skúlptúrum úr rúgmjöli og grjótskúlptúr.
GALLERf LANGBRÓK
Opið þriðjudaga til föstudaga frá kl.
12—18, laugardaga frá kl. 12—16.
NÝLISTASAFNIÐ
Sýning Ástu Ólafsdóttur á málverkum,
skúlptúr, hljóðinnsetningu, myndbönd-
um o.fl. hefur verið framlengd fram á
laugardagskvöld. Hún er opin frá kl.;
16—20 virka daga, en frá kl. 14—20 á
laugardag.
NORRÆNA HÚSIÐ
Laugardaginn 27. september verður opn-
uð sýning á verkum norska málarans
Edvard Munch og stendur hún yfir til 2.
nóvember. Hún er opin daglega frá kl.
14—19. Sunnudaginn 28. september kl.
17 heldur forstöðumaður Munchsafnsins
í Osló, Arne Eggum, fyrirlestur með lit-
skyggnum um Edvard Munch og list
hans.
GULLNI HANINN
í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur
heldur Sólveig Eggerz sýningu á Reykja-
víkurmyndum í húsakynnum veitinga-
hússins Gullna hanans að Laugavegi 178.
Hún er opin frá kl. 11.30—14.30 og frá kl.
18 alla daga en lokað er ( hádeginu á
sunnudögum.
LISTASAFN
EINARS JÓNSSONAR
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30—16. Höggmyndagarðurinn er op-
inn daglega frá kl. 10—17.
GALLERl GANGSKÖR
Sumarsýning um þessar mundir, opið
virka daga kl. 12—18.
GALLERÍ GRJÓT
Samsýning. Jónina Guðnadóttir, kera-
mík; Ragnheiður Jónsdóttir, grafík; Þor-
björg Höskuldsdóttir, málverk; örn Þor-
steinsson, málverk; Magnús Tómasson,
málverk; Steinunn Þórarinsdóttir, skúlpt-
úr og Ófeigur Björnsson, skartgripir og
skúlptúr. Opið virka daga kl. 12—18.
MOKKA-KAFFI
Hafin er sýning á sérhannaðri prjónavöru
Ólafar Sigurðardóttur (Lóu). Sýningin
stendur yfir í september.
INGÓLFSBRUNNUR
Um þessar mundir stendur yfir Ijós-
myndasýning Jóns Júlíusar, sem standa
mun yfir til 10. október. Opið 8—18.
CAFÉ GESTUR
Nú hangir á veggjum sýning Axels Jó-
hannssonar, sem hann kallar einfaldlega
„Skissur". Opið daglega á virkum dögum
frá 11—00.30, en til 2.30 um helgar.
ÁRBÆJARSAFNIÐ
Safnið er opið 13.30—18 alla daga nema
mánudaga.
ÁSGRfMSSAFN
Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga 13.30—16.
LEIKHÚS
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Verkefni í áskrift eru: „Uppreisnin á Isa-
firði" eftir Ragnar Arnalds, „Tosca" eftir
Puccini, „Aurasálin" eftir Moliére, „Ball-
ett" eftir Jochen Ulrich, „Rúmúlus mikli"
eftir Durrenmatt, „Yerma" eftir F.G. Lorca
og „Lend me a tenor" eftir Ken Ludwig.
Verð pr. sæti kr. 3200. Miðasala kl.
13.15-20. Sími 11200.
— Uppreisnin á ísafirði er frumsýnt á
föstudag, önnur sýning laugardag, sú
þriðja sunnudag.
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR
Nú er verið að sýna Land míns föður eftir
Kjartan Ragnarsson og Atla Heimi
Sveinsson og Upp með teppið, Sól-
mundur! eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Og á morgun (26. sept.) hefjast aftur sýn-
ingar á leikgerð Bríetar Héðinsdóttur á
Svartfugli, skáldsögu Gunnars Gunnars-
sonar um Sjöundármorðin og réttarhöld-
in sem þeim fylgdu. Leikstjóri er Bríet
Héðinsdóttir og samdi hún einnig leik-
handrit. Leikmynd og búninga hannaði
Steinþór Sigurðsson. Tónlist er eftir Jón
Þórarinsson. Lýsingu annast David
Walters. Með helstu hlutverk fara: Jakob
Þór Einarsson, Þorsteinn Gunnarsson,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Soffía Jakobs-
dóttir, Jón Sigurbjörnsson, Kjartan Ragn-
arsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Gísli
Halldórsson, Gísli Rúnar Jónsson, Stein-
dór Hjörleifsson, Guðmundur Rálsson,
Sigurður Karlsson, Valgerður Dan, Karl
Guðmundsson og Margrét Helga Jó-
hannsdóttir.
VIÐBURÐIR
BUBBI OG MX21
Samkvæmt okkar kokkabókum lýkur
hringferð Bubba og félaga með ærlegum
dansleik ÍKeflavík nú á föstudagskvöldið,
26. september. Samkvæmt sömu bókum
voru hljómleikar Bubba með gítar, munn-
hörpu og rödd á Hólmavík á miðvikudag
síðustu opinberu tónleikar Bubba í því
formi að sinni!
NORRÆNIR MÚSÍKDAGAR
Á laugardag kl. 14.30 leikur Sinfóníu-
hljómsveit islands í Háskólabíói. Stjórn-
andi er Páll R Pálsson og verða tekin fyrir
verk eftir Abrahamsen, Kalevi Aho og
John Speight.
Sama dag kl. 17 verður framin elektr-
ónísk tónlist í.Norræna husinu. Verk eftir
Enström, Fersen/Rudi, Romanowsky,
Sermiia og Þorstein Hauksson.
Á sunnudag kl. 16 leikur Anna Áslaug
Ragnarsdóttir á píanó að Kjarvalsstöðum
verk eftir Nörgaard, Rasmussen, Nör-
holm, Nevanlinnaog Hjálmar H. Ragnars-
son.
Sama dag kl. 20.30 í Bústaðakirkju gef-
ur að hlýða á Electric Phoenix.
Á mánudag kl. 17 ættu unnendur fær-
eyskrar tónlistar að mæta til leiks ( Nor-
ræna húsið. Kl. 20.30 um kvöldið verður
mikið að gerast í Langholtskirkju, því þá
verður framin kórtónlist og koma fram
Hamrahlíðarkórinn, Langholtskirkjukór-
inn og Hljómeyki. Verk eftir Lorentzen,
Jennefelt, Rautavaara og Werle.
Á þriðjudag leika Kammersveit Reykja-
víkur og Musica Nova á Kjarvalsstöðum
frá kl. 20.30. Stjórnandi Miklos Maros.
LABBAÐU OG HANA NÚ!
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 27. september. Lagt af stað kl.
10 frá Digranesvegi 12.
Garðar bæjarins skarta haustlitum. Bú-
ið ykkur vel. Markmið göngunnar: Sam-
vera, súrefni, hreyfing. Allir aldurshópar.
Nýlegað molakaffi.
NÁMSTEFNA
Iðntæknistofnun hef ur ákveðið að efna til
námstefnu um nýja tækni í iðnaði. Nám-
stefnan verður haldin föstudaginn 26.
september að Borgartúni 6 (gömlu rúg-
brauðsgerðinni). Námstefnan er ætluð
stjórnendum fyrirtækja.
Námstefnan tengist verkefni sem Raf-
tæknideild Iðntæknistofnunar vinnur að í
samvinnu við Iðnþróunarsjóð og nefnist
„Ný tækni í iðnaði".
FUNDUR UM
DÆGURLAGATEXTA
Nú á laugardaginn verður fyrsti fundur
Félags áhugamanna um bókmenntir á
þessu hausti. Fundarefnið er óvenjulegt
eins og þykir við hæfi: Textar fslenskra
dægurlaga. Hvernig hafa þeir þróast
undanfarinn áratug eða svo? Hvernig eru
þeir núna? Hvernig líta textahöfundar á
sig? Hvernig líta bókmenntamenn á
þessa texta?
Þrjú framsöguerindi verða flutt:
Andrea Jónsdóttir og Mörður Árnason
lýsa þróun síðustu ára og meta stöðuna
núna. Indriði G. Þorsteinsson talar sem
gagnrýnandi og Valgeir Guðjónsson sem
textaskáld. Fundarstjóri er Vilborg Dag-
bjartsdóttir.
Fundurinn verður haldinn ( Odda,
næsta húsi við Norræna húsið, ( salnum
glæsilega á fyrstu hæð. Hann hefst klukk-
an tvö eftir hádegi, klukkan 14.00, laugar-
daginn 27. september.
FOLD '86
Um helgar er nú mikið að gera f Vatns-
mýrinni, því þar fer nú fram ýmiss konar
þjóðleg iðja, séríslenskar uppákomur í
námunda við torfhús og önnur torfverk.
Um næstu helgi, laugardag og sunnudag
frá kl. 15, getur að líta bardagalist, glímu,
bogfimi og jafnvel fallhlífarstökk. Auk
þess sviðsverkið Seifur. Fjör fram eftir
kvöldi.
BIÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
AUSTURBÆJARBÍÓ
Purpuraliturinn
(The color purple)
★★★
Þessi mynd Spielbergs fær hjá okkur
einkunnina „Látlaus, fögur, hrífandi, mjög
góð, kvikmyndataka frábær, sömuleiðis
klippingin, tónlist Quincy Jones og leikur,
þar sem Whoopy Goldberg rfs hæst, að
öðrum ólöstuðum..."
Sýnd kl. 5 og 9 í sal 1.
KynKfsgamanmál á Jónsmessunótt
(A Midsummer night's sex comedy)
Eitt af virtustu meistaraverkum Woody
Allens mætt til leiks á íslandi — að v(su
enn án íslensks texta, hvort sem Sverri l(k-
ar betur eða verr.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 ( sal 2.
Cobra
Stallone í sal 3 kl. 5, 7, 9 og 11 fyrir þá
sem eru 16 ára og eldri...
BIÓHÖLLIN
Eftir miðnætti
(After hours)
Grínmynd Martins Scorsese, sem hlotið
hefur góða dóma.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Poltergeist 2: Hin hliðin
★★★
Hryllingurinn sem margir biðu eftir. Þó
svo að Fbltergeist II jafnist e.t.v. ekki á við
fyrirrennara sinn hvað frumleik og mark-
sækni handritsgerðarinnar varðar, þá
bregst hún svo sannarlega ekki vænting-
um áhorfenda sinna varðandi framan-
greint. Myndmál hennar er svo kraftmik-
ið, að við komumst engan veginn hjá því
að hrífast með, hversu fjarstæðukenndur
sem söguþráðurinn annars kann að virð-
ast. Ftoltergeist er fyrst og fremst veisla
fyrir augað.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Svikamyllan
(Raw deal)
★
Spennumynd með Arnold kraftajötni
Schwarzenegger undir handleiðslu leik-
stjórans John Irvins.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Fyndið fólk í bíó
(You're in the Movies)
Sjálfstætt framhald hinna myndanna þar
sem illgjarnir og hugmyndaríkir menn
rýja aðra menn á förnum vegi öllu sjálfs-
áliti og -virðingu.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn III
(Run for Cover)
★★
Léttgeggjuð ærslamynd sem hefur þann
sjaldgæfa eiginleika framhaldsmynda að
vera besta eintakið. Aðalhlutverk: Steve
Guttenberg og Bubba Smith. Leikstjórn:
Jerry Paris.
Sýnd kl. 5 og 9.
Myrkrahöfðinginn
(Legend)
★★★
Stórmynd leikstjórans Ridley Scott (Ali-
en) með Tom Cruise og Tim Curry í farar-
broddi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Villikettirnir
Sýnd kl. 7 og 11.
Barnasýningar
laugardag og sunnudag kl. 3 í öllum söl-
um.
BfÚHÚSIÐ
Á fullri ferð í L.A.
(To live and die in LA)
★★★
Leikstjóri er William Friedkin en í aðal-
hlutverki er William Retersen. Sjá Lista-
póst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Skógarlíf
(Jungle book)
Barnasýning kl. 3 á sunnudag
HÁSKÓLABfÓ
Þeir bestu
(Top Gun)
★★★
„Top Gun er á margan hátt dásamleg
kvikmynd og einkum fyrir þá sök, að hún
getur skoðast sem skólabókardæmi um
það, hvernig staðið skuli að gerð áhrifa-
ríkrar áróðurskvikmyndar fyrir nánar til-
tekinn málstað."
Sýnd kl. 5, 7, 9.05 og 11.15.
LAUGARÁSBÍÓ
Salur A
Rottufangi i Dallas
(Hostage in Dallas)
Samkvæmt óáreiðanlegum heimildum
er hér á ferðinni rottutryllir, sem gerist í
borg J.R., vinabæ Davíðsborgar. Nátt-
úrulífsmyndir af jörðu niðri — þeir sem
vilja út fyrir bregði sér í sal B.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Lepparnir
(Critters)
★★
Critters er ein af þessum myndum, sem
maður getur engan veginn verið viss um
hvort skoðast skuli sem skopstæling á
sjálfum sér, eða hvort aðstandendum hafi
í raun búið alvara í huga, og ætlað sér að
koma í verk einhverju, sem um síðir
reyndist þeim aldeilis um megn.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur C
Skuldafen
(Money Pit)
★
Aðalhlutverk Tom Hanks og Shelley Long
undir leikstjórn Richard Benjamins.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Barnasýningar
Kl. 3 í öllum sölum (Ronja ræningjadóttir
kl. 2.45).
REGNBOGINN
Til varnar krúnunni
(Defence of the realm)
★★★
„Hörkuþriller" segir Mrún. Yfirleitt veit
hún hvað hún syngur, blessunin.
Sýnd kl. 7, 9 og 11.15.
BMX meistararnir
★
Hjólreiðamynd fyrir unglingana og
kannski alla fjölskylduna ef því er að
skipta. Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Jekyll og Hyde aftur á ferð
Grínmynd af klikkaðri sortinni.
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15, og 11.15.
Martröð á þjóðveginum
(Hitcher)
Roger Hauer og C. Thomas Howell leika
undir stjórn Roberts Harmon. Myndin er
stranglega bönnuð yngri en 16 ára og er
sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15
Ottó
★★★
Dæmalaus farsi og hin besta skemmtun
fyrir þá sem hafa gaman af sæmilega
rugluðum kómedíum. Ottó leikur aðal-
hlutverkið og leikstýrir að hluta.
Sýnd kl. 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
STJÖRNUBÍÓ
Salur A
Algjört klúður
(A fine mess)
★★
Enn einn farsinn frá Blake Edwards. Aðal-
hlutverk eru í höndum Ted Danson og
Richard Mulligans. Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Salur B
Karate Kid II
Hinn mjóslegni og strákslegi Ralph
Macchio þjarmar að japönskum löndum
vinar síns Ftet Morita og er það alls ekki al-
gjört klúður hjá þeim félögum.
Sýnd kl. 3, 5 og 9.
Ógleymanlegt sumar
Leikstjóri er Jack Fisk en í aðalhlutverki er
engin önnur en Sissy Spacek.
Sýnd kl. 7 og 11.
TÓNABÍÓ
Hálendingurinn
(Highlander)
★★
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
30 HELGARPÓSTURINN