Helgarpósturinn - 25.09.1986, Síða 34
Félag áhugamanna um bókmenntir efnir til fundar:
✓
Islensk dægurlagatextagerd
Á nk. laugardag 27. september kl.
14 mun Félag áhugamanna um bók-
menntir standa fyrir umrϚufundi
um íslenska dœgurlagatexta í húsi
félagsuísindadeildar Háskólans í
Odda. Lífleg umrœda fór fram um
þetta efni ueturinn '79—80 með út-
gangspunkt í ,,gú anótextum"
Bubba Morthens, og snerust þœr
ekki síst um það huort telja mætti
téða texta til skáldskapar eða ekki.
Það er nú e.t.u. ekki mergurinn
málsins.
„Nú vaknar sú spurning hvort ein-
hverjar umtaisverðar breytingar
hafa orðið á dægurlagatextum und-
anfarin ár þegar á heildina er litið,"
sagði Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri
sem situr í stjórn Félags áhuga-
manna um bókmenntir í samtali við
HP. „Hvort verið geti að talsverður
vaxtarbroddur íslenskrar ljóðlistar
leynist á þessum vettvangi, hvort
einhverjir angar gömlu ljóðlistar-
innar hafi vaxið þarna og dafnað."
Silja telur þetta verðugt rannsókn-
arefni. Hvað sem því líður er hún
ekki frá því að börn og unglingar í
dag geri meira af því að syngja ís-
lenska dægurlagatexta en þau
gerðu fyrir nokkrum árum. Þá
vaknar spurningin hvaða eigindir
það eru sem textarnir hafi í ríkari
mæli nú en þá.
Framsöguerindin á fundinum eru
þrjú, mælt af munni þeirra Indriöa
G. Þorsteinssonar rithöfundar, Val-
geirs Guðjónssonar hljómlistar-
manns og textagerðar, og þá munu
blaðamennirnir Mörður Árnason
og Andrea Jónsdóttir setja saman
sameiginlega tölu að Ieikmanna
hætti þar sem þau velta fyrir sér
hvort hægt sé að greina einhverja
strauma og stefnur í dægurlaga-
textagerð frá stofnun hljómsveitar-
innar Hljóma á fyrri hluta sjöunda
áratugarins og fram til dagsins í dag.
Þau ætla að líta yfir söguna, eða
„vaða á stórum stígvélum yfir þetta
tímabil" eins og Mörður komst að
orði í samtali við blaðið. Eitt af því
sem þau munu velta upp er hvort
menn beiti fyrir sig enskum textum
á einhverjum tímabilum öðrum
fremur.
Valgeir Guðjónsson Stuðmaður
hefur samið urmulinn allan af text-
um og á fundinum á laugardaginn
ætlar hann að tala um textagerð út
frá sjónarhóli höfundar. „Þetta
verða sjálfsagt heldur óformlegar
vangaveltur," sagði Valgeir í samtali
við HP. „Um að gera að njörva þetta
ekki of mikið niður fyrir fram því
með því móti á maður sjens á að
koma sjálfum sér skemmtilega á
óvart. Ég mæti bara með tunguna
vel smurða og kannski tek ég gítar-
inn með. Hver veit.
Hvort ég sé hræddur um að verða
tekinn í karphúsið? Ja, það hefur nú
eiginlega enginn umboð til að gefa
forskrift fyrir dægurlagatextum.
Þeir hljóta alltaf að koma heim í
heilabú hvers og eins, þess sem sem-
ur og þess sem nýtur. En það er mjög
þarft að ræða þessa textagerð. Þetta
er nú það sem dynur á þjóðinni all-
an sólarhringinn."
Indriði G. Þorsteinsson rithöfund-
ur er elstur frummælenda fundarins
og væntanlega sá sem er best í stakk
búinn til að bera saman gamalt og
nýtt. „Jú, ég ætla m.a. að athuga
hverju hefur farið hnignandi í
vinnslu dægurlagatexta í tímans
rás," sagði Indriði í samtali við blað-
ið. „Menn hafa að mínu mati glutrað
niður ákveðnum hlutum sem skipta
máli í textagerð. Þetta er orðin
skrýtin súpa, þó að textarnir geti oft
á tíðum verið ágætis orðræða.
Tímarnir eru líka breyttir að því
leyti að dægurlög eru orðinn svo
stór hluti af lífi fólks, t.d. með til-
komu stöðva sem útvarpa poppi all-
an sólarhringinn," bætti Indriði við.
„í mínu ungdæmi heyrði maður
þessa texta einungis á dansleikjum
og gleymdi þeim síðan. Þeir voru
ekki þessi ósköp í lífi manns eins og
nú. Nú geta menn hæglega orðið
þjóðhetjur af töktum og tilbrigðum
einum saman. Þetta er undarlegt og
út úr kú orðið. Þessi ballöðutími
minnir mig á dansæðið sem greip
um sig á miðöldum. Spurning hvað
hann endist lengi," sagði Indriði G.
Þorsteinsson ábúðarmikill.
Þá vill stjórn Félags áhugamanna
um bókmenntir hvetja fundargesti
til að sitja ekki hljóða hjá, heldur
koma með styttri eða iengri innlegg
um einstaka texta eða höfunda, eða
hvaðeina sem þeim kann að koma í
hug. Fundarstjóri verður Vilborg
Dagbjartsdóttir.
„Enginn hefur umboð til að gefa forskrift að dægurlagatextum. Þeir hljóta alltaf að
koma heim í heilabú hvers og eins, þess sem semur og þess sem nýtur. En það er mjög
þarft að ræða þessa textagerð," segir Valgeir Guðjónsson Stuðmaður, einn frummæl-
enda fundarins.
Bergþóra á
barnasnældu
Hingað til hafa ungmenni þurft
að lesa og syngja sjálf Skólaljóðin
og uerður suo sjálfsagt um hríð enn.
Hins vegar er búið að einfalda mál-
ið svolítið núna, þut Bergþóra Arna-
dóttir þjóðlagasöngkona hefur tek-
iö sig til ásamt félögum og komið 16
skólaljóðum og lögum á hljóð-
snœldu.
A annarri hliðinni eru lögin og
ljóðin 16 flutt af Bergþóru, en á B-
hliðinni eru lögin einungis leikin og
það í öfugri röð þannig að þegar
búið er að leika eitthvert lag á A-hlið
sungið, þá er hægt að snúa snæld-
unni við og fá sama lagið, sem þá er
einungis leikið.
Á snældunni er hluti þeirra laga
og ljóða, sem 10 til 11 ára börnum er
ætlað að læra og er hljóðsnældan
„Skólaljóð 1“ hugsuð sem kennslu-
gagn að einhverju leyti.
Næst á svo að búa til snældu
handa 12—14 ára nemendum.
POPP
Paul McSmiths
PRESS TO PLAY — Paul McCartney
EMI/Fálkinn
Press To Play er fimmtánda platan á löng-
um og öldóttum sólóferli Pauls McCartneys.
Oft hef ég furðað mig á því sem gamli Bítill-
inn hefur látið frá sér fara. í blaðaviðtali sem
tekið var við hann á dögunum kom og í ljós
að Paul var mér hjartanlega sammála! Sjálf-
ur hefur hann stundum verið standandi
hlessa á eigin óvandvirkni og gagnrýnisleysi
á verk sín.
Paul er nú kominn vel á fimmtugsaldurinn
eins og á gráum hárum má sjá. Það fer því
tími að verða kominn til að hann sendi frá
sér meistaraverkið. — Nema það hafi
kannski verið gefið út meðan hann starfaði
með félögum sínum þremur í frægri hljóm-
sveit frá Liverpool. — Alltént getur Press To
Play ekki talist toppurinn á ferli þessa heims-
kunna poppara. Þó er hún langt frá því að
vera með því slakasta heldur einhvers staðar
við meðallagið.
Flestir popparar sem eru komnir á fimm-
tugsaldurinn hafa markað sér tónlistarstefnu
fyrir löngu. Og henni breyta þeir trauðla. í
mesta lagi að þeir leyfi sér að flippa ofurlítið
á B-hliðum tveggja laga platnanna sinna.
Paul McCartney er enn að leita sér stefnu ef
marka má lagavalið á Press To Play. Hann
langar auðheyrilega til að keppa við þá sem
eru vinsælastir hjá táningum um þessar
mundir. Einnig vill hann halda tryggð við
gamla aðdáendur. Því miður blandast þetta
tvennt ekki vel. Því er heildarmynd plötunn-
ar full grautarleg og stefnulaus fyrir minn
smekk.
Og nú kemur þversögnin í öllu saman og
haldið ykkur fast: Paul McCartney stendur
sig ágætlega í báðum hlutverkum sínum.
Hann getur rokkað hressilega (samanber
Move Over Busker og Angry) og hann getur
ennþá samið ágæta íhaldssama tónlist til að
höfða til þeirra sem stöðnuðu í kringum
1970! (Dæmi: Footprints, Only Love Re-
mains, Talk More Talk.) Hvers vegna er svo
verið að kvarta? Jú, fyrst og fremst vegna
stefnuleysis Pauls sem fyrr var getið og þess
að hann virðist ekki geta gert það upp við sig
til hverra hann eigi fyrst og fremst að höfða.
Þegar Paul McCartney tekur upp plötu get-
ur hann hóað í svotil hvern sem er sér til
hjálpar. Á Tug Of War (1982) voru all bland-
aðir ávextir í stjörnuhópnum: Denny Laine,
Stanley Clarke, Carl Perkins, Steve Gadd og
Stevie Wonder svo að nokkrir séu nefndir. Á
Pipes of Peace (1983) voru til dæmis Ringo
Starr, Andy McKay og Michael Jackson. Ekki
vantar stóru nöfnin á vinnulista Press To
Play. Þar eru Carlos Alomar, Phil Collins, Pete
Townshend og Ray Cooper meðal annarra.
Og ekki má gleyma Eric Stewart fyrrum liðs-
manni lOcc sem leikur með Paul á öllum
þremur plötunum sem hér hafa verið nefnd-
ar. Hann virðist nú fara með öllu stærra hlut-
verk en áður því að hann semur sex af tíu
lögum plötunnar með Paul McCartney.
Eins manns sakna ég sem spilaði stóra
rullu á Tug Of War og Pipes Of Peace: George
Martins. Hann er ekki í upptökustjórasætinu
að þessu sinni heldur Hugh Padgham. Sá er
svo sem enginn aukvisi en miðað við heildar-
útkomuna á plötunum tveimur sem fyrr var
vitnað til hefði McCartney ekki veitt af að
hafa einhvern pottþéttari til að stjórna sér.
Sérfræðingar mínir í upptökustjóramálum
segja mér reyndar að þeir George og Paul
hafi verið búnir að mjólka hvor út úr öðrum
allt sem þeir gátu. Því hafi leiðir orðið að
skilja.
1 blaðaviðtalinu sem ég vitnaði til í upphafi
þessarar umsagnar segir Paul McCartney
meðal annars að það sé gaman að eldast og
þroskast. Ég tel — eftir að hafa hlustað á
Press To Play allnokkrum sinnum — að gamli
gráni ætti að leyfa tónlist sinni að eldast og
þroskast með sér. Það er allt gott um það að
segja að fylgjast með þróun hljóðvera og nýta
sér hana út í ystu æsar. En með þessum nýju
tækjum þurfa menn ekkert endilega að
framieiða táningabólur frekar en þeir sjálfir
vilja. Og þegar húð manna er orðin jafn slétt
eftir Ásgeir Tómasson
og felld og sjá má á umslagi Press To Play þá
eru allar bólur í hróplegu ósamræmi við það
sem ætti löngu að vera orðið húðtryggt.
THE QUEENIS DEAD — The Smiths
Rough Trade/Grammið
Af óviðráðanlegum orsökum hefur dregist
úr hömlu að hrósa nýjustu plötu The Smiths
dálítið.
Fjórmenningarnir Morrissey, Marr, Andy
Rourke og Mike Joyce eru í stöðugri framför.
Sérstaklega vil ég benda á batnandi gítarleik
Johnnys Marrs. Hann er nú þéttari og tækni-
legri en nokkru sinni fyrr. The Smiths nota
nú í fyrsta skipti strengjasveit á plötu og það
var einmitt Marr sem útsetti tónlistina fyrir
hana.
Textar Morrisseys eru sem fyrr innhverfir
og þunglyndislegir. í hróplegu ósamræmi
við létta og hressa tónlist Marrs. Reyndar skil
ég ekki alltaf um hvað Morrissey er að syngja
en textarnir eru áreiðanlega ekkert verri
fyrir það. Einsemdin er honum ofarlega í huga
eins og svo oft áður og í titillaginu kemst
hann að þeirri niðurstöðu að lífið sé mjög
langt þegar menn eru einmana. Skarplega
athugað.
Fyrir utan það að Johnny Marr sýnir mikl-
ar framfarir á gítar frá því á Meat Is Murder
þá er hljómsveitin í heild sinni orðin á ein-
hvern hátt mun veraldarvanari en áður. Sem
hlýtur að vera eðlileg þróun því að fátt verra
gæti komið fyrir en að staðna í upphafi ferils
síns. Það er því ánægjulegt að heyra að The
Smiths halda enn áfram að vaxa þótt þeir séu
fyrir löngu komnir í úrvalsdeildina.
34 HELGARPÓSTURINN