Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 4
eftir Óskar Gu&mundsson
Steingrfmur. Allra manna vinsælastur, en
býr við nokkurt andstreymi meðal fylgj-
enda flokksins og virðist ekki fá aðdáend-
ur sína til að kjósa sig. Þversögn?
Þorsteinn. Þó Þorsteinn sé á uppleið í
vinsældum vill mjög stórt hlutfall kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins skipta um
forystu.
Halldór Asgrlmsson — traustur eins og
bjarg.
Jón Baldvin. Meðal þeirra vinsælustu og
til alls líklegur, en virðist samt hætt við
vaxandi andstreymi.
STEINGRIMUR HÆFA
i
í skodanahönnun HP, sem fram-
kvœmd var fyrir rúmri viku um af-
stöðu almennings til flokkanna, var
einnig spurt um mal fólks á því hver
vœri hœfasti stjórnmálaleiðtoginn í
landinu núna. Þeir einir voru spurð-
ir, sem áður höfðu gefið upp afstöðu
sína til flokkanna. Alls tóku um 520
afþeim afstöðu til flokkanna en 142
tóku ekki afstöðu til stjórnmálaleið-
togans. Útkoman varð sú að for-
sœtisráðherra, Steingrímur Her-
mannsson varð í fyrsta sœti með 108
tilnefningar, í öðru varð Þorsteinn
Pálsson með 67, þá Halldór Ás-
grímsson 53, Jón Baldvin 49, og
Svavar Gestsson 20. Síðan komu
þau Davíð Oddsson, Albert Guð-
mundsson, Jóhanna Sigurðardóttir
og Ólafur Ragnar Grímsson með 6
til 13 tilnefningar.
ÞORSTEINN PÁLSSON KOMINN
UPPÍ ANNAÐ SÆTI Á VINSÆLDA-
LISTANUM. HALLDOR
ÁSGRÍMSSON TRAUSTUR EINS OG
BJARG OG HAFNAR í ÞRIÐJA SÆTI.
JÓN BALDVIN í KYRRSTÖÐU í
FJÓRÐA SÆTI. SVAVAR SITUR í
FIMMTA SÆTI.
í desember var skoðanakönnun
hjá DV, þar sem spurt var hver ætti
að verða forsætisráðherra. Niður-
stöðurnar voru í samræmi við úrslit-
in úr þessari könnun Helgarpóstsins
á dögunum. Steingrímur er lang-
vinsælastur samkvæmt okkar
könnun og DV. Megin frávikin eru
þó þau, að Þorsteinn Pálsson hefur
sótt eilítið í sig veðrið og er í öðru
sæti hjá HP en var í þriöja um for-
sætisráðherraembættið hjá DV. Þó
ekki sé verið að spyrja um sama
atriðið, þá er um vissar hliðstæður
að ræða og óhætt er að fullyrða út
frá þessum niðurstöðum að vegur
Þorsteins hafi vaxið nokkuð síðus.u
vikur.
Steingrímur er maður vinsæll, að
mörgu leyti af skiljanlegum ástæð-
um. Forsætisráðherraembættið ljær
stjórnmálamanni traust og fylgi í
sjálfu sér og forverar hans í því
embætti hafa notið góðs af embætt-
inu á hliðstæðan hátt í svipuðum
vinsældakönnunum. En það kemur
fleira til; Steingrímur þykir yfirveg-
aður og hefur ímynd sáttasemjarans
(sem á einnig rætur að rekja til
embættisins sjálfs) og hann þykir
koma vel fram í fjölmiðlum. í þessu
sambandi er athyglisvert að þessi
vinsæli stjórnmálamaður skuli ekki
hafa mælst með ávinning í skoðana;
könnuninni um fylgi flokkanna. I
Reykjaneskjördæmi varð ekki merkj-
anleg nein sveifla milli skoðana-
kannana frá því að tilkynnt var um
framboð hans, þ.e. frá desember-
könnun HP tii janúarkönnunar.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra er í þriðja sæti þessarar
könnunar hjá HP. Hann hefur ekki
fengið á sig áföll eins og margir
hinna ráðherranna í ríkisstjórninni
og þykir manna traustastur. Virðist
vera óumdeilanlega meðal traust-
ustu stjórnmálamannanna.
stjórnmálaflokks þjóðarinnar. Nú
hefur hann skotið Jóni Baldvin nið-
ur fyrir sig og því íhugunarvert
hvort Þorsteinn hafi gert eitthvað
síðan í desember sem breytti ímynd
hans, þannig að hafi orðið til vin-
sældaauka. Og þá taka kenninga-
smiðirnir við: Þorsteinn hefur ekki
gert nein mistök síðustu vikurnar.
Hann átti nokkur útspil, þar sem
hann sýndi klókindi, sem margir
hafa saknað af hans hálfu — t.d.
sagðist hann mundu leggja sjálfur
fram ráðherralista þegar og ef þar
að kæmi. Þá þótti mönnum vel til
fundið hjá fjármálaráðherranum að
hafa orð á góðu gengi Thors Vil-
hjálmssonar í jólabókaslagsmálun-
um fyrir hátíðirnar. Og ef þetta er
allt rétt, þá hafa vinsældir Þorsteins
vaxið enn meðal kjósenda með því
að ráðherrann stöðvaði lagasetn-
ingu á sjómenn enda þótt hann hafi
verið gagnrýndur fyrir þá aðferð
sem hann beitti. Samt eru þó margir
enn sem vilja skipta um forystu í
Sjálfstæðisflokknum.
LÆGÐ YFIR KRÖTUM
Síðustu vikur hefur greinilega
verið nokkur lægð yfir krötum.
Einnig í þessari vinsældakönnun
HP má merkja nokkurt bakslag í
segl Jóns Baldvins Hannibalssonar.
í könnun DV um forsætisráðherra-
efni var Jón Baldvin í öðru sæti — á
undan Þorsteini Pálssyni, en hjá HP
nú lendir Jón Baldvin í 4. sæti.
Nú er vel að merkja ekki um sömu
spurningu að ræða, en samt má full-
yrða að þetta merki afturkipp hjá
krötum. Astæðurnar geta verið mý-
margar; minna hefur farið fyrir
krötum síðustu vikur í samanburði
við hina flokkana. Jón Baldvin hef-
ur greinilega ákveðið að eyða tíma
í minnstu kjördæmin, þar sem krat-
ar hafa staðið lakast að vígi í kosn-
ingum. Þessi áhersla hefur hins veg-
ar verið á kostnað höfuðborgar-
fylgisins, ef marka má skoðana-
könnunina að öðru leyti. Jón Bald-
vin hefur áður mátt heilsa sveiflum
í skoðanakönnunum og eins og sagt
var frá í síðasta HP, þá eiga kratar
meiri möguleika í kosningabarátt-
unni, ef tekið er mark á þeim vís-
bendingum sem fram komu í skoð-
anakönnunum. Sama gildir um for-
manninn Jón Baldvin.
Jóhanna Sigurðardóttir lær þó
nokkrar tilnefningar og lendir í átt-
unda sæti. Svo virðist sem þingmað-
urinn njóti mikils trausts og vax-
andi. Margir líta svo á, að hún standi
fremst í flokki þeirra, sem verja ör-
yrkja, gamalt fólk og fleiri hópa sem
hafa orðið undir gagnvart kerfinu á
vettvangi Alþingis. Síðustu misseri
þykir mörgum og, að Jóhanna hafi
orðið skeleggari málafylgjumaður
og er skemmst að minnast tann-
læknadeilunnar í því sambandi. Þá
hefur hún einnig sýnt ofurlítið
meira sjálfstæði gagnvart flokks- og
verkalýðsforystunni í seinni tíð, —
og er þá átt við meira en flugfreyju-
deiluna í fyrra.
í BIÐSALNUM
Af þeim sem ekki sitja á þingi, en
fá tilnefningar í þessari óformlegu
vinsældakönnun, eru þeir Davíð
Oddsson og Ólafur Ragnar Gríms-
son. Davíð er sterki maðurinn í
Sjálfstæðisflokknum og það finnst
glöggt úti í þjóðfélaginu. Hann virð-
ist vera sá, sem kallað verður á um
leið og eitthvað bjátar á. Hins vegar
má leiða líkur að þvi, að á meðan
Þorsteinn stendur sig vel og er á
uppleið, þá komi nafn Davíðs síður
upp á. Á hinn bóginn er á að líta, að
maðurinn situr ekki á Alþingi og er
ekki um þessar mundir í neinum
hugleiðingum um slíka vegsemd.
Þess vegna er það mikill styrkleika-
vottur, að vera tilnefndur í slikri
skoðanakönnun, þar sem spurt er
einungis í tengslum við þingkosn-
ingar.
Bæði í þessari könnun og í tilvitn-
aðri DV-könnun fær Ólafur Ragnar
Grímsson næstbesta útkomu al-
þýðubandalagsmanna. Hann situr
eins og kunnugt er ekki á þingi og
tilnefningar hans því margar, ef til
þess er eingöngu litið. Hins vegar
hefur hann fengið á sig virðuleika-
ímynd i gegnum starf sitt á alþjóða-
vettvangi og er eini íslenski stjórn-
málamaðurinn sem nýtur trausts
fyrir störf utan landhelginnar.
Annars er það umhugsunarvert,
að í könnunum eins og þessum,
skuli þeir Davíð og Ólafur Ragnar
vera oft nefndir, — merin sem flokk-
ar þeirra hafa ekki sett á oddinn í
þingkosningum, eða notfært sér
sterka stöðu þeirra umfram það sem
flokkarnir eru nauðbeygðir til. Þeir
eru mennirnir í biðsalnum.
Albert Guðmundsson fær þó
nokkrar tilnefningar og nýtur þar
sígildra persónuvinsælda sinna, þó
menn fái á tilfinninguna að eitthvað
sé þar farið að gefa sig. Ef litið er til
þess, að hann er oddviti stærsta
ÞORSTEINN I
UPPSVEIFLU
í könnun DV í desember varð
Þorsteinn Pálsson í þriðja sæti á eftir
Jóni Baldvin. En það voru að sjálf-
sögðu mikil tíðindi þar sem Þor-
steinn er formaður langstærsta
4 HELGARPÓSTURINN
FORYSTA ALÞÝÐUBANDALAGS OG
SJALFSTÆDISFLOKKS í ÓHÆGUM SESSI
39,7% FYLGJENDA ALÞÝÐUBANDALAGS TELJA TÍMABÆRT AÐ SKIPTA UM FORYSTU.
37,7% FYLGJENDA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, 23,3% FYLGJENDA FRAMSÓKNAR,
16,5% FYLGJENDA ALÞÝÐUFLOKKSINS OG 8,6% FYLGJENDA KVENNALISTA
TELJA TÍMABÆRT AÐ SKIPTA UM FORYSTU f FLOKKNUM SEM ÞEIR STYÐJA.
39,7% þeirra sem taka afstöðu
eru þeirrar skoðunar aö tímabœrt
sé að skipta um forystu í Alþýðu-
bandalaginu, 37,7% hjá Sjálfstœðis-
flokknum meðan 8,6% eru þessarar
skoðunar af fylgjendum Kvenna-
lista.
Ískoðanakönnuninni á dögunum
var spurt hvort viökomandi teldi
tímabcert að skipta um forystu í
þeim flokki, sem studdur vœri. 75%
fylgjenda Alþýðubandalagsins tóku
afstöðu til spurningarinnar, 74,5%
fylgjenda Kvennalista, en 70,5%
þess, að einmitt Samtök um kvenna-
lista hafa ákveðið að skipta um for-
ystu hjá sér, ef litið er á þingmenn
sem forystu. Tilkynning um fram-
boðslista Kvennalistans í Reykjavík
kom eftir að þessi könnun var gerð.
16,5% fylgjenda Alþýðuflokksins
kváðu tímabært að skipta um for-
ystu flokksins, 23,3% fylgjenda
Framsóknarflokksins, 37,7% fylgj-
enda Sjálfstæðisflokksins og 39,7%
fylgjenda Alþýðubandalagsins.
Samkvæmt þessu stendur flokks-
forysta Sjálfstæðisflokksins og Al-
leiðtoginn — og þvi hefði verið for-
vitnilegt að kanna viðhorf fyrir
nokkrum mánuðum til þessarar
spurningar.
Jón Baldvin, sem hefur allt að því
„halelúja" í kringum sig á flokks-
samkomum má búast við meira
andstreymi inn á við næstu árin.
16,5% fylgjenda telja tímabært nú
þegar að skipta um forystu í flokkn-
um, en þessi hlutfallstala er þó vafa-
lítið í samræmi við ,,klassískar“
óánægjuraddir með forystu flokka
yfirleitt. Steingrímur Hermannsson
hefur í þessu efni meðaltalsand-
stöðu, eða 23,3% sem telja tíma-
bært að skipta um forystu í Fram-
sóknarflokknum. Svavar Gestsson
stendur lakast að vígi í þessu efni en
litlu munar á honum og Þorsteini
Pálssyni.
Sjá meðfylgjandi töflu.
Telur þú tímabœrt að skipta um forystu í flokknum sem þú styður?
fylgjenda Alþýðuflokksins. þýðubandalagsins lakast að vígi Fjöldi Tóku Hlut- Sögðu Hlut-
meðal fylgjenda sinna, en Kvenna- alls afstöðu fall Já fall
Langminnstar efasemdir um for- lista best að vígi (þar er ekki kosinn Alþýðuflokkur 129 91 70,5 15 16,5%
ystuna voru meðai fylgjenda formaðurl). Nú er þess að gæta, að Framsóknarflokku r 84 60 71,4 14 23,3%
Kvennaiista. Einungis 8,6% kváðu Þorsteinn Pálssön formaður Sjálf- Sjálfstæðisflokkur 187 138 73,8 52 37,7%
tímabært að skipta um forystu. stæðisflokksins hefur vaxandi fylgi Alþýðubandalag 84 63 75,0 25 39,7%
Þetta er merkileg niðurstaða í ljósi að fagna sem hæfasti stjórnmála- Kvennalisti 47 35 74,5 3 8,6%