Helgarpósturinn - 22.01.1987, Page 10

Helgarpósturinn - 22.01.1987, Page 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjóri: Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúar: Helgi Már Arthursson Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaðamenn: Friðrik Þór Guðmundsson, Gunnar Smári Egilsson, Guðlaugur Bergmundsson, Jónína Leósdóttir og Óskar Guðmundsson. Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson Ljósmyndir: Jim Smart Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson. Auglýsingar: Sigurður Baldursson, Sveinbjörn Kristjánsson. Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471) Guðrún Geirsdóttir. Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36, sími 681511. Útgefandi: Goðgá h/f Setning og umbrot: Leturval s/f. Prentun: Blaðaprent h/f. LEIÐARI Þegar „sökin ( seinni tíð hefur það orðið æ algengara, að stjórnmálamenn, sem komnir eru út í horn í málsvörn, kenna fjölmiðlum um það sem amar að hjá þeim sjálfum. Hér í Helgarpóstinum höf- um við fjallað um þetta stöku sinnum, þegar til- efni hefur verið til. Nú er hins vegar svo komið, að þessi varnaraðferð stjórnmálamanna og hagsmunagaeslumanna hvers konar er orðin svo algeng, að fullt tilefni er til að staldra við og átta sig á því, hvað er á seyði. Eru stjórnmálamenn, og einkum þá þeir, sem sitja við stjórnvölinn, farnir að apa hver eftir öðrum hugsunarlaust, eða er um að ræða róttæk sinnaskipti þessara manna í garð fjölmiðla? Þeir sem fylgjast með fréttum og hafa atvinnu af því að segja fréttir af atburðum líðandi stund- ar hafa óneitanlega orðið varir við andúð sumra stjórnmálamanna á fjölmiðlum. Hreina og beina andúð. Ekki á þetta við um alla stjórnmálamenn, en þeir eru of margir. Oftast nær á andúð þessi rætur að rekja til þess, að stjórnmálamaðurinn hefur lent úti íhorni í málflutningi og fjölmiðlarn- ir hafa skýrt satt og rétt frá staðreyndum. Fjölmiðlafár, halda menn fram í beinni útsend- ingu og ásaka fréttamenn um að „blása" mál upp, eins og það er kallað. Sömu menn fullyrða að það sé fréttamönnum sérstakt kappsmál að „blása" upp mál og koma með því af stað illind- um og deilum. Afstaða þessi byggist á þeirri ' er fjölmiðla heimsku (í fornri merkingu orðsins), að það séu fjölmiðlarnir sjálfir sem búi til málin. Nokkrir embættismenn — opinberir starfs- menn — hafa verið reknir frá störfum sl. misseri. Sigurjón Valdimarsson var rekinn frá Lánasjóði ísl. námsmanna, Wilhelm V. Steindórsson var rekinn frá Hitaveitu Akureyrar, Stefán Ingólfsson hrakinn frá Fasteignamati rfkisins. Sturlumálið, sem mætti raunar allt eins kalla Sverrismálið vegna þeirra yfirlýsinga, sem Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra hef- ur látið út ganga í fjölmiðlum, er nýjasta dæmið um þetta. Ráðherra greip til umdeildra aðgerða. Viðbrögð úr öllum áttum eru mjög hörð og hafa að líkindum komið ráðherra á óvart. Hann er krafinn svara við brennandi spurningum um málið, en svarar í hálfkveðnum vísum. Hann er kominn í vörn — og farinn að gagnrýna fjöl- miðla. Sverrir Hermannsson er bardagamaður mikill og reynir hvað hann getur að snúa vörn í sókn, sem í sjálfu sér er skiljanlegt, en einmitt hér valdi Sverrir leiðina, sem orðin er ekki aðeins algeng heldur hættulega algeng. Efnislega hefur Sverrir beitt þeim rökum, að hér væri um fjölmiðlafár að ræða, magnað upp af Mývetningum og Alla- böllum. Og enn á ný beitir ráðherra orðasam- bandinu „þið fjölmiðlamenn" með mikilli fyrir- litningu í röddinni. nna Spurt var í upphafi, hvort þessi almenna til- hneiging ráðamanna væri kækur, eða róttæk af- stöðubreyting. I Ijósi reynslu síðustu missera virðist mega draga þá ályktun, að um sé að tefla afstöðubreytingu hinna eldri stjórnmálamanna til fjölmiðla. Og það virðist vera full þörf á því að fjölmiðlarnir séu vel á verði gagnvart þessari af- stöðu. Ástæðan er einfaldlega sú, að fjölmiðlar gegna veigamiklu hlutverki í lýðræðisþjóðfé- lagi. Þeir tryggja að til sé opinber vettangur þar sem menn geta skipst á skoðunum. Tryggja að upplýsingar komi fram um hin ýmsu málefni, sem almenningur verður að taka afstöðu til. Það er og nauðsynlegur þáttur í starfi fjölmiðils að grafa fram upplýsingar sem hagsmunagæslu- menn hindra að komi fyrir almenningssjónir. Tögstreitan á milli fjölmiðla og þeirra sem sjá sér hag í því að liggja á upplýsingum er ekki ný af nálinni. Þetta er „klassískur" vandi, sem allir þeir þekkja sem starfa á fjölmiðlum. Það sem er nýtt í þeim tilhneigingum ráðamanna nú er ann- ars vegar það að vilja gera fjölmiðla háða eigin hagsmunum og hins vegar það, að fara gegn embættismönnum með miklu offorsi — ef þeir hafa skoðun sem gengur gegn vilja þeirra. I margbrotnu samfélagi er það hlutverk fjölmiðla að standa vörð um frjáls skoðanaskipti — frjálsa skoðanamyndun. Lesendakönnun Helgarpostsins: Myndbandstækið fór í Garðinn Fyrsti vinningur í happdrætti, Fischer myndbandstæki af full- sem haldið var samhliða lesenda- komnustu gerð. Vinningshafinn könnun Helgarpóstsins á dögunum, reyndist vera Sesselja Hannesdóttir var afhentur í vikunni, en það var úr Garði á Suðurnesjum — og sést Áramótamyndgáta HP Dregið var í verðlaunamyndgátu Helgarpóstsins í lok síðustu viku, en frestur til að skila inn lausnum rann út fimmtudaginn 15. janúar. Mjög góð þátttaka var og þakkar starfs- fólk HP öllum þeim sem sendu blað- inu lausnir. Fyrstu verðlaun, kvöldverð fyr- ir tvo á veitingastaðnum íKvosinni, að upphæð kr. 6000.- fékk Helga Sveinsdóttir, Bröttukinn 7 í Hafnar- firði. Önnur verðlaun, Ordabók menn- ingarsjóös, fékk Sigurður Guðjóns- son, Háholti 31 á Akranesi. Þriðju verðlaun, bókina Nútíma- fólk, eftir sálfræðingana Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal, fékk Katrín Sigurjónsdóttir, Öldu- granda 5 í Reykjavík. Helgarpósturinn óskar þeim heppnu til hamingju og vonar að vinningarnir verði þeim til ánægju- auka. Bækurnar sem voru í verð- laun, verða sendar heim til réttra aðila, en sú sem vann kvöldverðinn á veitingastaðnum I Kvosinni, ætti að vera búin að heyra frá okkur á HP, þegar þetta er birt. Ritstj. hún hér til hliðar ásamt fjölskyldu sinni, taka á móti tækinu úr hendi starfsmanns Sjónvarpsbúðarinnar, sem hefur umboð fyrir Fischer- merkið. í þessu happdrætti voru fleiri vinningar. Sjö útvarpsklukkur komu á miða nr. 4307, 3306, 739, 3232, 4561, 1320 og 4039 og er það áréttað hér með, þar eð nokkrir vinningshafanna hafa ekki enn haft samband við blaðið. Svör vid manngerðarprófinu: 1. a) Þ b) Ö c) Æ 2. a) Æ b) Ö c) Þ 3. a) Æ b) Þ c) Ö 4. a) Þ b) Ö c) Æ 5. a) Æ b) Ö c) Þ 6. a) Æ b) Þ c) Ö 7. a) Þ b) Ö c) Æ 8. a) Æ b) Þ c) Ö 9. a) Æ b) Þ c) Ö d) Ö d) Þ 10. a) Þ b) Ö c) Æ Samtals: Mest P — Þú ert nautnaseggur og nýtur þess! Þér finnst lífsins lysti- semdir vera til þess að einhver njóti þeirra og hvers vegna skyldir þú þá ekki bjóða þig fram í það hlutverk? Þú hefur einstakt lag á því að þefa uppi samkvæmi og kannt hvergi jafnvel við þig og á mannamótum. Góða skemmtun! Mest Æ — Þú heldur mikið upp á orðatiltækið „Heima er best“! Þér finnst algjör óþarfi að þeysast út um borg og bý í leit að skemmtan og viðmælendum. Eiginlega finnst þér að fólk geti bara leitað þig uppi, ef það vill eitthvað við þig tala. Það getur líka gengið að þér vísum í hægindastólnum fyrir framan sjón- varpið. Mest Ö — Þú leggur mikið á þig til þess aö sýnast eitthvað, sem þú ert innst inni alls ekki viss um að vera. Þig langar óskaplega að teljast til þekkta og auðuga hluta þjóðarinnar og gera ekkert, sem gæti verið álitið ósmekklegt eða óviöeigandi af því útvalda liði. Vonandi þolirðu álagið, sem óneitanlega fylgir þessu. Hér sést Bryndís Hilmarsdóttir, starfsmaður HR draga út vinningshafana. Einsog mvnd- in ber með sér var gífurleg þátttaka í áramótamyndgátu blaðsins að þessu sinni. ^^^tjórnmálasdl Þorsteins Pálssonar fer nú mjög hækkandi. Þetta merkja menn t.d. eftir að fundaherferð Sjálfstæðisflokks- ins fyrir kosningarnar var hleypt af stað fyrir fáum vikum. Á fundi með sjálfstæðismönnum í Garðabæ í vikunni þótti Þorsteinn fara á kost- um; vera venju fremur skýr í máli, afdráttarlaus í málflutningi, rökfast- ur og harður. Hann kom því til skila sem þurfti á máli fólksins — og ber hér að hafa í huga, að heimildir HP í þessu efni koma ekki einasta úr íhaldsátt stjórnmálanna.. . LAUSNIR Á SKÁIC- ÞRAUT 37. Frú Rowland 1 e4! (hótar Hd5 mát) 1 - He5 2. Ha6 1 — Hxe4 2. Rxe4 1 - fe3 2. Dxd4 1 - de3 2. Ddl 1 - He8+ 2. fe8R Þetta snotra dæmi varð snemma víðfrægt og er enn vin- sælt, einkum vegna framhjáhlaup- anna og mátanna Dd4 og Ddl. 38. Massrnann 1. Rg4! Kb6 2 Hb5+ Kc6 3 Re5 (eða 2 — Ka6 3 Rc7). Mátið er hreint og sparneytið, það er kór- rétt og hver einasti maður hvíts á hlut að því. deild" sjálfstæðismanna í Reykja- vík, er ýmislegt að gerast næstu daga. Á mánudag stendur þannig til að velja þingmann ársins og heiðra hann í Alþingishúsinu. Væntanlega verður sjálfstæðisþingmaður fyrir valinu, en ekki gott að giska á hver þeirra það verður. Djúpt hugsandi mönnum dettur fyrst í hug Þor- steinn Pálsson, Friðrik Sophus- son, — eða Sverrir! Síðast þeg- ar valið var sigraði Eyjólfur Kon-, ráð Jónsson, en til að sigra þarf viðkomandi að hafa barist þing- manna „ötulast fyrir jákvæðum þjóðfélagsbreytingum". En í millitíð- inni sitja Heimdellingar ekki auðum höndum. Á laugardagsmorgun stendur nefnilega til að storma upp á Keflavíkurflugvöll í utanríkis- málanámskeið hjá Friðþóri Eydal, blaðafulltrúa Varnarliðsins, sem m.a. ætlar að sýna unglingunum flugvélakost stöðvarinnar.. . M n ú hefur Verslunarbank- inn slitið viðræðum við forráða- menn Útvegsbankans og Iðnað- arbanka auk Seðlabankamanna um sameiningu þessara þriggja banka. Samkvæmt heimildum HP er það mat Útvegsbankamanna, að í raun hafi alls ekki fylgt hugur máli í viðræðunum, hvorki af hálfu Versl- unarbanka né lðnaðarbanka og raunar hafi fulltrúar Iðnaðarbank- ans með Davíð Scheving Thor- steinsson í broddi fylkingar komið þannig fram í viðræðunum, að full ástæða hafi verið til að efast um heilindi þeirra. Til dæmis urðu þeir seint, illa eða alls ekki við óskum nefndarmanna um upplýsingar, sem bæði Útvegsbankinn og Versl- unarbankinn lögðu fram... ^^^kuldir þrotabús Kaupfélags Svalbarðseyrar eru í raun mun meiri en kröfuskrá gefur til kynna. Þannig er að nokkrir aðilar, t.d. Stofnlánadeild landbúnaðarins, Iðnlánasjóður og Iðnrekstrar- sjóður, lýstu ekki kröfum sínum í búið. Þeir eiga hins vegar fyrsta og annan veðrétt í nokkrum verðmæt- ustu eignum KSÞ. Þegar þessu er bætt við áður framkomnar veðkröf- ur eru þær orðnar í heild um 145 milljónir kr. Það má telja af og frá að nokkurn tíma fáist svo hátt verð fyr-- ir eignirnar. Því er ljóst að jafnvel þeir sem hafa tryggt sér veð í eign- um KSÞ muni tapa stórum uppboð- uni á gjaldþrotinu, þá sérstaklega Santvinnubankinn og Iðnaðar- bankinn sem hafa ekki góð veð fyr- ir lánum sínum. Jafnframt er ljóst að ekkert mun koma upp í almennar kröfur en þær eru um 166 milljónir samkvæmt kröfuskránni...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.