Helgarpósturinn - 22.01.1987, Síða 25
Þrettándakvöld í Nemendaleikhúsinu:
„Mjög drífandi hlutverk“
— segir Halldór Björnsson 4. árs nemi
„Ævintýri um
ástir og hrekki“
— segir Þórhallur Sigurðsson leikstjóri um
gamanleik Shakespeares
,,Þrettándakvöld er œvintýri um
ástir og hrekki. Þad er léttur og leik-
andi og auðskilinn gamanleikur um
tvíburana, sem aðskiljast í byrjun,
en ná saman í lokin."
Þetta segir Þórhallur Sigurðsson
leikstjóri um Þrettándakvöld Will-
iam Shakespeares, sem Nemenda-
leikhúsið frumsýnir í Lindarbœ á
laugardag. Þrettándakvöld er ann-
að verkefni lokaársnema Leiklistar-
skólans á þessu ári, en þetta er t
fyrsta sinn sem Þórhallur setur upp
leiksýningu fyrir skólann.
„í sjálfu sér er enginn grundvall-
armunur þar á. Ég geri sömu kröfur
til þeirra og þrautþjálfaðra leikara,"
segir Þórhallur þegar hann er
spurður hvort mikill munur sé á að
leikstýra í Nemendaleikhúsinu og í
atvinnuleikhúsunum. „Reynsluleysi
þeirra kaliar þó á önnur vinnubrögð,"
heldur Þórhallur áfram.
Eins og endranær eru það nem-
endur skólans, sem gera allt sem
gera þarf í sýningunni. Og ólíkt því,
sem verið hefur á undanförnum ár-
um, hafa ekki verið tilkvaddir leik-
arar úr atvinnuleikhúsunum til að
taka þátt í sýningunni. í staðinn
voru fyrsta árs nemar kallaðir til, og
segir Þórhallur það eiga vel við.
„Það gefur sýningunni þennan
þokka æskunnar, sem hæfir henni,“
segir hann. „Það gefur henni mjög
ungan og ferskan svip.“
Um ástæðu þess, að þetta leikrit
varð fyrir valinu, segir Þórhallur að
fyrst og fremst hafi verið leitað að
klassísku verki og Þrettándakvöld
hentaði hópnum vel.
Þórhallur segir það nauðsynlegt
hverjum verðandi leikara að kynn-
ast Shakespeare sem allra fyrst á
ferli sínum. „Það er mikið átak fyrir
krakkana að skila textanum þannig
að frambæriiegt sé,“ segir hann. En
bætir því við, að Þrettándakvöld sé
auðveldara en mörg önnur verk
Shakespeares, þar sem talsvert stór
hluti þess sé í óbundnu máli.
— Hvað geturðu sagt um uppsetn-
inguna?
„Ég hef farið þá leið að gera verk-
ið nær tímalaust, því að ævintýrin
„Tóbías er slarkarinn og aðaldrif-
fjöðrin í undirfléttu verksins."
Halldór Björnsson er leikarinn og
það er hann, sem viðhefur þessi orð
um persónuna sem hann kemur til
með að túlka á sviði Lindarbœjar
nœstu vikurnar. Halldór er nemi á
fjórða ári í Leiklistarskólanum og
hlutverk hans eitt af þeim stœrri í
Þrettándakvöldi Shakespeares.
Tóbías Búlki, eins og persónan
heitir fullu nafni, er níunda hlutverk
Halldórs í Leiklistarskólanum og
hann var spurður hvernig það stæð-
ist samanburð, bæði að umfangi og
skemmtilegheitum.
„Hvert nýtt hlutverk er alltaf það
skemmtilegasta, sem maður hefur
gert," segir Halldór. „Þetta er mjög
drífandi hlutverk og það þarf í það
mikinn kraft.“
Hann segir, að texti Shakespeares
sé tæknilega erfiður í flutningi, en
jafnframt ótrúlega lifandi. „Og það
er varla hægt að útskrifa leiklistar-
nema, nema hann hafi fengið að
glíma við þessa tegund texta,“ segir
Halldór og á þar við texta í bundnu
máli. „Hann þarf að vera manni
alveg tamur og maður þarf að geta
„Gengur
ágætlega“
— segir Björn Ingi Hilmarsson 1. árs nemi
Björn Ingi Hilmarsson átti sjálf-
sagt ekki von á því, þegar hann hóf
nám í Leiklistarskólanum í haust,
að strax á fyrsta ári fengi hann all-
nokkurt hlutverk í Nemendaleik-
húsinu. Sú varð þó raunin og á laug-
ardag þreytir hann frumraun sína
sem sjórœninginn Antonio.
„Þetta er svolítið erfitt," segir
Björn þegar hann er spurður um
hvernig það sé að vera dembt strax
á sviðið. „Ég geri mér grein fyrir, að
nokkur munur er á fyrsta og fjórða
bekk, en ég mun reyna að gera eins
vel og ég get.“
Björn Ingi segir, að sjálfsagt muni
hann fá skrekk klukkutíma fyrir
sýningu, en kvíðinn segist hann
ekki vera. Það er heldur kannski
engin ástæða tii, þar sem hann er
allvel sjóaður úr áhugamannaleik-
húsum. Hann byrjaði að leika í fæð-
ingarbæ sínum Dalvík, en síðan lá
leiðin til Vestmannaeyja og loks til
Reykjavíkur, þar sem hann hefur
starfað með leikhópnum Hugleik.
— Hvernig þykir þér svo að leika
Shakespeare?
„Það eru ofsaleg viðbrigði. En
það er mjög gaman, þegar maður er
farinn að kunna hvernig á að fara
með hann. Það er gaman að fá að
kynnast þessu strax, að fá sma for-
skot á sæluna.“
Og hann viðurkennir, að það sé
erfitt, en bætir svo við: „Eigum við
bara ekki að segja, að mér gangi
ágætlega með þetta?“ segir Björn
Ingi Hilmarsson, 1. árs nemi, sem
tekur þátt í sýningu Nemendaleik-
hússins.
Bjöm Ingi Hilmarsson 1. árs nemi leikur
sjóræningja. HP-mynd Árni Bjarna.
Valgeir Skagfjörð og Ingrid Jónsdóttir gantast í uppfærslu Nemendaleikhússins á Þrett-
ándakvöldi Williams Shakespeares. HP-mynd Árni Bjarna.
talað hann eins og ekkert væri eðli-
legra.“
Halldór segir, að verkið hafi alla
burði til að verða vinsælt, ef þjóð-
sagan um að Shakespeare sé þung-
Halldór Björnsson leikur slarkarann
Tóbías Búlka. HP-mynd Árni Bjarna.
ur og leiðinlegur gangi ekki af því
dauðu. „En áhorfandinn á að geta
skilið allt og notið sýningarinnar,
því að þetta er léttur og skemmtileg-
ur gamanleikur," segir Halldór
Björnsson í Nemendaleikhúsinu.
Þórhallur Sigurðsson leikstjóri Þrettánda-
kvölds. HP-mynd Árni Bjarna.
eru alltaf að gerast, þau eru ekki
bundin neinum ákveðnum tíma. En
ég held miklum trúnaði við text-
ann.“
Og um boðskap verksins, segir
Þórhallur stutt og laggott:
„Það er erfitt að finna annan boð-
skap en þann að njóta stundarinnar,
og maður má ekki hugsa of mikið
um sennileika atburðarásarinnar.
Þetta er fyrst og fremst gert til
skemmtunar," segir Þórhallur Sig-
urðsson leikstjóri.
Alls taka 18 manns þátt í sýning-
unni, sem er sú fjölmennasta í Nem-
endaleikhúsinu til þessa. Þýðinguna
á Þrettándakvöldi gerði Helgi Hálf-
danarson. Og auk Þórhalls eru eftir-
taldir á bak við tjöldin: Una Collins
gerir leikmynd og búninga, Ólafur
Orn Thoroddsen sér um lýsingu,
Guðrún Þorvarðardóttir um förðun
og hárgreiðslu, Halla Helgadóttir
um búningasaum, Þorvaldur Þor-
steinsson gerir veggspjald og tón-
listin í verkinu er eftir einn af nem-
endum Leiklistarskólans, Valgeir
Skagfjörð.
Frumsýning á laugardaginn, 24.
janúar 1987, 2. sýning á mánudag
og sú 3. á miðvikudag.
-G.B.
Höfundurinn
Nafn: William Shakespeare.
Fæddur: 1564 í enska smá-
bænum Stratford við ána Avon.
Látinn: 1616.
Heimilishagir í lifanda lífi:
Kvæntur Ann Hathaway, 3 börn.
Nám: Latínuskóli Stratford.
Störf: Aðstoðarmaður slátrara,
leikari og leikritahöfundur.
Verk: Þrettándakvöld, frumsýnt
6. janúar 1601, að talið er,
Hamlet, Macbeth, Lér konungur
og ótal fleiri.
Sýningar: Um gjörvalla heims-
byggðina.
Viðurkenningar: Hefur löngum
verið talinn eitt mesta leikskáld
allra tíma. Á meðan hann lifði,
naut hann m.a. þeirrar viður-
kenningar að vera einn af
„mönnum konungsins" við hirð
Jakobs fyrsta Englandskonungs.
STELLA , sú hin sama og enn er
í orlofi, er nú komin á lygnan sjó og
ljóst að aðstandendur hennar þurfa
ekki að fara með eigur sínar undir
hamarinn. Áhorfendur að áersla-
leiknum eru nú orðnir nálægt 57
þúsund, þar af um 10 þúsurtd úti á
landi. Um þessar mundir eru þau
Guðný Halldórsdóttir handritshöf-
undur og Halldór Þorgeirsson leik-
myndahönnuður með myndina á
kvikmyndahátíð í Hanaholmen í
Finnlandi. I haust fór Stella á kvik-
myndahátíð kvenna í Svjþióð og
vakti mikla lukku. Krist'ín {’alsdóttir
í kvikmyndafélaginu Umba segir
það öruggt að félagið muni gera
aðra kvikmynd, vaeutanlega á
næsta ári. Umbar eru mikið að spá
og spekúlera, en ekkert hefur enn
verið ákveðið í þeim efnum.
SÆTAnýting á sýningum Þjóð-
leikhússins á Aurasálinni Molíeres,
ku vera með mesta móti, að því er
sagt er. Leikhúsið tekur alls 600
manns í sæti og á þeim tólf sýning-
um sem þegar hafa verið hafa áhorf-
endur aldrei farið undir 500, en það
er langtum betri aðsókn en leikhús-
menn höfðu ætlað. Skýringin mun
ekki síst vera almennar vinsældir
margra aðalleikara uppfærslunnar.
DAGUR vonar, nýja leikritið
hans Birgis Sigurðssonar, fékk fjórar
stjörnur hjá Jóni Óttari á Stöð 2 á
mánudagskvöldið, fyrst alira verka.
Og svo virðist sem það fái jafn marg-
ar hjá almenningi sem er kannski
meira um vert.
„Ég er auðvitað mjög lukkulegur,"
segir Birgir um viðbrögðin. „Það er
greinilegt, að leikritið og leiksýn-
ingin hafa náð til fólks, og betra get-
ur ekki komið fyrir neinn rithöf-
und."
Birgir segist ekki hafa átt von á
þessum rífandi viðtökum, en hann
vissi þó að leikhúsfólkið, sem vann
með verkið var hrifið. „Mér fannst
það góð byrjun og endirinn er
greinilega góður líka,“ segir hann.
„Ég er mjög þakklátur þessu fólki
fyrir hvað vel hefur tekist, en það er
engan veginn sjálfgefið, og þá er ég
fyrst og fremst með Stefán Baldurs-
son leikstjóra í huga. En allir aðrir
skiluðu hlutverkum sínum mjög
vel.“
Ekki telur Birgir, að viðtökurnar,
svo og sú staðhæfing sumra gagn-
rýnenda að minnsta kosti, að hann
sé kominn í allra fremstu röð leik-
skálda okkar, muni gera meiri kröf-
ur til verka hans í framtíðinni.
„Ég hef alltaf vandað mig við allt,
sem ég hef gert. Og það breytist
ekki á neinn hátt,“ segir Birgir Sig-
urðsson rithöfundur.
HELGARPÓSTURINN 25