Helgarpósturinn - 22.01.1987, Qupperneq 28
ÍSUNDSÁl
A-EVRÓPUÞ
eftir Þórmund Bergsson myndir: Þjóðviljinn
EYSTRASALTSKEPPNIN í
HANDKNATTLEIK í AUSTUR-
ÞÝSKALANDI
menn og V-Þjóðverjar mundu líta á
það sem hina mestu hneisu ef þeim
tækist ekki að komast á ÓL. Nú, Sví-
ar hafa þegar hafið undirbúning
sinn fyrir ÓL í Seoul í Suður-Kóreu
og þeir sigruðu m.a. Sovétmenn á
sterku móti í Svíþjóð fyrir skömmu
þar sem þeir kepptu einnig við
Júgóslava sem eru núverandi
heimsmeistarar. A-Þjóðverjar eru
einnig að undirbúa sitt lið fyrir ÓL
og íslendingar eru að hefja undir-
búning fyrir ferðina miklu til Seoul
þar sem stefnan er sett á verðlauna-
sæti og ekkert minna.
Sá undirbúningur sem íslenska
liðið mun ganga í gegnum fyrir ÓL
í Seoul er einhver sá mesti sem um
getur í sögu þessarar handbolta-
þjóðar. Ekkert verður til sparað og
áætlað að spilaðir verði hátt í
hundrað leikir, sé miðað við lok síð-
ustu HM keppni. Að sögn fróðra
manna þá jafnast þessi undirbún-
ingur á við undirbúning austan-
tjaldsliðanna fyrir stórmót. Reyndar
er alveg víst að ekki veitir af öllum
þessum undirbúningi ef standa á
uppí hárinu á risum eins og Júgó-
slövum, A-Þjóðverjum og Sovét-
mönnum svo nokkrar þjóðir séu
nefndar. Þannig æfa til að mynda
þjóðir á borð við A-Þjóðverja ekki
eins mikið og fslendingar og nú þeg-
ar eru frændur vorir Danir byrjaðir
að líta upp til litlu eyjarinnar í norð-
urhöfum. Þeir hafa litið mjög til
Handknattleikssambands íslands á
leið sinni að réttum markmiðum
varðandi stuðning við handknatt-
leikinn og handknattleiksmenn
sína.
En það er ekki aðeins að HSÍ sjái
til þess að leikmenn íslenska liðsins
hafi nóg að gera fram að ÓL heldur
hefur sambandið lagt sig mjög í líma
við að ná fjölmiðlunum á sitt band
og í gegnum þá reynt að ná inn fjár-
ígœr hófst í A-Þýskalandi einhver sterkasta landslidakeppni í hand-
knattleik sem efnt er til að jafnaði. Þetta er hin svokallaða Baltic-
keppni eða Eystrasaltskeppnin. Islendingar eru meðal þátttakenda
í þessari keppni þrátt fyrir að skerið liggi ekki að Eystrasalti. Þannig
er að frœndur vorir og vinir Danir sáu sér ekki fœrt að taka þátt í
þessu móti og eru íslendingar því fyrsta varaskeifa. Reyndar verður
tslenska liðið engin varaskeifa á þessu móti því afþeim sex þjóðum
sem þarna keppa þá eru þrjár sem urðu fyrir neðan íslendinga íHM
í handknattleik í Sviss síðastliðinn vetur. Það eru Pólverjar, V-Þjóð-
verjar og hinir einu og sönnu Sovétmenn sem unnu okkur á síðasta
Baltic-móti með 12 marka mun. Þœr tvœr aðrar þjóðir sem mœta
til leiks í A-Þýskalandi eru heimamenn sem urðu í 3. sœti á HM og
Svíar sem urðu íþví fjórða. Gífurlega sterkt mót sem gefur íslending-
um fœri á að sanna að 6. sætið á HMhafi ekki verið nein tilviljun.
Um styrkleika þessara þjóða þarf
ekki að hafa mörg orð. Það þarf að-
eins að minna á að A-Þjóðverjar
urðu þriðju á HM eins og fyrr segir
en þeir urðu í öðru sæti á HM árið
1982 og unnu síðan B-keppnina
árið 1985. Svíar urðu í fjórða sæti á
HM og í því fimmta á ÓL árið 1984.
V-Þjóðverjar urðu sjöundu á HM og
í öðru sæti á HM árið 1984. Sovét-
menn urðu reyndar tíundu á HM í
Sviss á síðasta ári en þeir urðu
heimsmeistarar árið 1982 og þá
héldu sérfræðingar að þeir væru að
stinga af á sviði þessarar íþróttar.
Pólverjar urðu aðeins í þrettánda
sæti á HM í fyrra en þeir urðu þriðju
á HM árið 1982 og eru núna að
byggja upp sterkt lið fyrir B-keppn-
ina á Ítalíu síðar í vetur. ísienska lið-
ið á einnig að baki glæstan feril á
síðustu árum. Liðið varð í sjötta sæti
bæði á ÓL árið 1984 og HM í Sviss
í fyrra.
Það er því ljóst að þarna fara
nokkrar sterkustu þjóðir í heimi á
sviði handknattleiks. En hvað eru
þessar þjóðir að undirbúa með þátt-
töku á Baltic-mótinu? Það er klárt
að þrjár þessara þjóða eru að leggja
síðustu hönd á langan og strangan
undirbúning fyrir B-keppnina á
Ítalíu síðar í vetur. Sovétmenn, Pól-
verjar og V-Þjóðverjar koma til með
að slást þar ásamt ekki minni þjóð-
um en Rúmenum, Tékkum og Dön-
um svo einhverjar séu nefndar. Að-
eins tvær þjóðir komast áfram á ÓL
úr B-keppninni. Róðurinn verður
erfiður fyrir Pólverja en bæði Sovét-
magni til að kosta ailan þennan und-
irbúning. Svo mikið leggur HSÍ upp-
úr Baltic-keppninni að sambandið
ákvað að bjóða „iitlu fjölmiðlunum",
þ.e. Tímanum, Þjóðviljanum og
Degi til þessarar keppni. Allir þessir
fjölmiðlar þáðu boðið og nú er víst
að næsta vika eða svo verður senni-
lega kölluð „Baltic-vikan“ í fjöl-
miðlaheiminum. Sennilega hefur
aldrei verið jafn stíf umfjöllun um
nokkurt íþróttamót erlendis nema
ef skyldi vera HM í Sviss á síðasta
ári. Þá sýndi sjónvarpið alla leiki ís-
lendinga í beinni útsendingu en nú
verður hinsvegar aðeins einn leikur
sýndur og ku það vera vegna þess
að heimamenn taka ekki upp alla
leiki mótsins. Útvarpið verður með
stífa umfjöllun á hverjum degi og
mun öllum leikjum Islendinga
verða lýst í beinni útsendingu. Blöð-
in verða síðan með heilu opnurnar
dag eftir dag um strákana okkar í A-
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari ársins í Vestur-Þýskalandi metur möguleika íslands á Baltic-handboltamótinu fyrir Helgarpóstinn:
GETUM UNNIÐ SOVETMEIS
Sá íslendingur sem hve best hefur
fylgst meö handknattleiknum hjá
þeim þjódum er íslendingar mœta í
Baltic-keppninni í A-Þýskalandi er
Jóhann Ingi Gunnarsson. Jóhann er
sem kunnugt er þjálfari þýska lids-
ins Essen sem nú trónir á toppi v-
þýsku 1. deitdarinnar í handknatt-
leik. HP náði tali afJóhanni Inga og
bað hann um að meta lítillega
andstœöinga okkar á þessu mikla
móti.
A-ÞJÓÐVERJAR: „Um a-þýska liðið
er það helst að segja að þeir verða
mjög erfiðir viðureignar. Þeir leika á
heimavelli í þessari keppni og því
fylgir ákveðin pressa sem þeir
munu reyna og geta staðið undir.
Annað sem gæti spilað inn í er að a-
þýsku félagsliðin, Rostok og Magde-
burg féllu bæði úr Evrópukeppnun-
um í handknattleik um síðustu helgi
og það stappar sennilega stálinu í A-
Þjóðverja. Þeir vilja án efa koma
handknattleiknum á þann stall sem
honum ber. Okkur íslendingum hef-
ur gengið upp og ofan gegn A-Þjóð-
verjum en bilið hefur þó minnkað á
milli þessara þjóða. Munar þar mest
um þann líkamlega styrkleika sem
við höfum krækt okkur í m.a. með
tilkomu atvinnumannanna í íþrótt-
inni. Þetta verður þó sennilega erf-
iðasti leikur okkar á þessu móti. A-
Þjóðverjar hafa í sínum röðum ákaf-
lega reynda og sterka leikmenn eins
og Frank Wahl og besta línumann í
heimi að mínu mati, Ingolf Wigert."
V-ÞJÓDVERJAR: „Lið V-Þjóðverja
fer í þessa keppni með byr undir
báða vængi. Liðið spilaði í svokall-
aðri Karpata-keppni fyrir um þrem-
ur vikum og hafnaði þar í öðru sæti
og tapaði ekki leik. Þeir unnu m.a.
Sovétmenn. Þá eru þrjú lið frá V-
Þýskalandi komin í undanúrsíit
Evrópukeppnanna í handknattleik
þannig að liðið hefur greinilega
meðbyr. Að vísu krefur þessi góði
árangur betri árangurs svo það
verður pressa á iiðinu. Þá eru V-
Þjóðverjar að leggja lokahönd á
undirbúninginn fyrir B-keppnina á
Ítalíu svo þeir eiga að vera í topp-
formi. Leikir íslendinga og V-Þjóð-
verja hafa að undanförnu verið jafn-
ir og spennandi og ég held að það
verði engin breyting á því núna.
Bæði er að leikmönnum okkar í V-
Þýskalandi er í mun að spila vel
gegn þeim og það sama gildir um
Þjóðverjana."
SOVÉTMENN: „Sennilega er þetta
eitthvert besta tækifæri sem við fá-
um til að vinna Sovétmenn. Þeir eru
ekki eins sterkir og þeir hafa verið
venjulega og m.a. töpuðu þeir bæði
fyrir Júgóslövum og Svíum á móti
fyrir skömmu og fyrir V-Þjóðverjum
á Karpata-mótinu eins og ég nefndi
áðan. Sovétmönnum hefur ekki tek-
Jóhann Ingi Gunnarsson þjálfari Essen
og nýkjörinn handknattleiksþjálfari
Vestur-Þýskalands samkvæmt Hand-
ball Magazin. Hann telur sigurlíkur Is-
lendinga talsverðar gegn flestum
keppinautunum.
ist að varðveita þá yfirburði sem
þeir voru búnir að ná 1982 og staða
þeirra núna er ekki of góð. Hinsveg-
ar eru Sovétmenn alltaf erfiðir
keppinautar og þar að auki er þetta
lokaundirbúningur þeirra fyrir B-
keppnina þar sem þeir leika í riðli
með Rúmenum og Pólverjum. Það
væri saga til naesta bæjar ef þeir
kæmust ekki á ÓL. Ég tel þó að í
þessari keppni eigum við jafna
möguleika á að sigra Sovétmenn."
PÓLVERJAR: „Okkur hefur gengið
nokkuð vel með Pólverjana. Þeir
spila handknattleik sem hentar okk-
ur vel og íslensku strákarnir munu
sennilega leggja sig fram í leiknum
gegn Pólverjum þó ekki væri nema
fyrir Bogdan. Kjarninn í pólska lið-
inu eru leikmenn Gdansk-liðsins
sem spilaði gegn Víkingum í
Evrópukeppninni m.a. Bogdan
Wenta og Daniel Waszkiewcz. Við
eigum að vinna Pólverjana."
28 HELGARPÓSTURINN