Helgarpósturinn - 22.01.1987, Blaðsíða 40
Íl^ár
Á
Þ
Ijármál Stöðvar 2 hafa verið
nokkuð til umræðu í fjölmiðlum að
undanförnu, og ganga margar sög-
ur um slæma fjárhagsstöðu þessarar
fyrstu frjálsu sjónvarpsstöðvar
landsins. Stöðvarmenn bera sig hins
vegar vel og telja reksturinn gull-
tryggan. Það þykir og til marks um
það, að barist sé af alvöru á þeim
bæ, að einn af aðaleigendum stöðv-
arinnar, Ólafur H. Jónsson kaup-
maður í Hummel-búðinni og aðal-
eigandi Stefaníu-hótelsins á Akur-
eyri og fyrrum landsliðsmaður í
handknattleik, hefur afhent rekstur
búðar sinnar til annars manns og
hefur hafið að fullu störf við fjár-
málastjórn Stöðvar 2.. .
Ijá Ríkissjónvarpinu mun
,,mórallinn“ ekki vera í sem bestu
lagi þessa dagana og stafar það að-
allega af flótta margra gamalgró-
inna starfsmanna frá stofnuninni.
Þannig hefur Maríanna Friðjóns-
dóttir kvatt RÚV, en hún er „fædd
og alin upp í sjónvarpinu", eins og
félagar hennar segja. Maríanna fer
til Stöðvar 2, þar sem hún verður
tæknilegur yfirmaður innlendrar
dagskrárgerðar. Með henni frá sjón-
varpinu fór Erna Kettler skrifta. Þá
hefur Óli Örn Andreasen upp-
tökustjóri einnig kvatt sjónvarpið
og fer hann tii Staría hjá Sámveri á
Akureyri, en það fyrirtæki er aðili
að útsendingum Stöðvar 2 á Akur-
eyri. Þá telja menn fullvíst, að
Bogi Ágústsson fréttamaður sé á
förum niður á Skúlagötu 4, þar sem
hann mun taka við starfi fulltrúa
Markúsar Arnar Antonssonar
og Elfu Bjarkar framkvæmda-
stjóra. Mun Bogi hafa verið beðinn
um að sækja um starfið, en það mun
einkum felast í því að rífa Rás 2 upp
og gera hana samkeppnishæfa við
Bylgjuna. En straumurinn liggur
ekki bara í eina átt. Nú hefur Albert
Jónsson fréttamaður hjá hljóð-
varpi flutt sig um set til sjónvarps og
samkvæmt því, sem við heyrum
mun útvarpsfréttamaðurinn Katrín
Pálsdóttir vera á leiðinni upp á
sjónvarp líka. . .
L.
þessu ári hverfa gömlu
kempurnar, Ingi 'fryggvason hjá
Stéttarsambandi hœnda og
Gunnar Guðbjnrtsson hjá Fram-
leiðsluráði, frá störfum fyrir aldurs
sakir. Alls mun vera óvíst hver tekur
við af Gunnari, þar sem fáir hafa þá
yfirsýn sem nauðsynleg er í þessu
starfi. Gunnar ætlar að starfa við
hlið eftirmanns síns í einhvern tíma,
en erfðaprinsinn er sem sagt enn
ófundinn. Það sama er ekki að segja
um stéttarsambandið. Þar hafa ýms-
ir verið nefndir til sögunnar. Má t.d.
nefna Hauk Halldórsson í Svein-
bjarnargerði, sem m.a. er formaður
Félags íslenskra loðdýrarækt-
enda. Þá hefur nafn Böðvars Páls-
sonar að Búrfelli í Grímsnesi einnig
heyrst í þessu sambandi og enn-
fremur er Jóhannes Geir Sigur-
geirsson á Öngulstöðum talinn
koma til greina. Þetta eru þó alls
ekki þeir einu, sem hugsanlega
gætu tekið við af Inga Tryggva-
syni. . .
landsvirkjunarmenn hafa
að undanförnu setið á samninga-
fundum með fulltrúum bandaríska
tölvufyrirtækisins „Harris“ um
kaup á nýjum kerfiráði fyrir virkj-
anakerfið. Fullvíst má telja, að inn-
an skamms verði samkomulag þess-
ara aðila komið í heila höfn. Kerfi-
ráðurinn, sem er stjórntæki fyrir
virkjanir og línur Landsvirkjunar,
mun kosta nálægt 200 milljónum
króna...
Ý
■ ms
I ú eru menn önnum kafnir
við að undirbúa endanlega útgáfu
laganna tíu, sem valin voru til úrslita
í Eurovision-keppninni. Jón
Ólafsson í Skífunni stendur að út-
gáfu einhverra þessara laga og eins
munu þeir félagarnir Pétur Krist-
jánsson og Steinar Berg hafa ver-
ið mættir til leiks á Hótel Holti,
þegar úrslitin voru gerð kunn þar á
fréttamannafundi um daginn. Hvort
þeim tókst að fá einhvern höfund-
inn til þess að skrifa undir samning
á staðnum, fylgdi ekki sögunni. ..
t msum sögum fer af fram-
göngu Þorsteins Pálssonar á Al-
þingi vegna sjómannasamninganna
og lagafrumvapirsins, sem búið var
að leggja fram. Sem kunnugt er
snerist formaður Sjálfstæðisflokks-
ins gegn öðrum ráðherrum og taldi
lög ónauðsynleg og viðsemjendur
ættu að setjast aftur niður til þess að
komast að niðurstöðu. í samtölum
við þingmenn og fleiri kunnuga ber
mönnum ekki saman um það hvort
Þorsteinn hafi látið þetta út úr sér
óvart eður ei. Hins vegar hefur HP
heimildir fyrir því, að á ríkisstjórn-
arfundi um morguninn sama dag
hafi komið fram, að lausn fengist í
deilunni á meðan kjaradómsfrum-
varpið væri í nefnd á þingi. Þá hefur
HP jafnframt fregnað, að Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
hafi rætt við þá Óskar Vigfússon
Guðjón A. Kristjánsson og Krist-
ján Ragnarsson, forystumenn
samningsaðila, og samtali þessara
manna verið slitið með handsali um
að samið yrði áður en málið kæmist
úr nefnd. Samkvæmt sömu heimild-
um, sem ekki hafa fengist staðfestar,
mun sjávarútvegsráðherra hafa ver-
ið bundinn þagnareiði um handsal-
ið og því gat hann ekki sagt neitt á
þingi. Allt að einu virðist Ijóst að
andstaða Þorsteins við lagafrum-
varpið hafi verið sjónarspil, hvort
sem hún var óvart eða látin vaða
með þegjandi samþykki sjálfstæðis-
ráðherranna...
að er alltaf svoiítið gaman að
þessu innbyggða grobbi í Akureyr-
ingum. í Degi var skýrt frá því um
daginn, að Geirmundur Valtýs-
son ætti lag í íslenskri undankeppni
Evrópusöngvakeppninnar. Þetta
þótti blaðamanni Dags mjög merki-
legt og einkum vegna þess, að þetta
væri annað árið í röð, sem hann ætti
lag í þessari keppni. Svo vill hins
vegar til, að flestir þeirra sem eiga
lag í keppninni núna áttu lag í sömu
keppni í fyrra og má þar til nefna
Ólaf Hauk Símonarson, Jóhann
G. Jóhannsson, ofl.. . .
40 HELGARPÓSTURINN
T
I vö kvikmyndahús í Reykjavík
eru nú til söiu, Austurbæjarbíó og
Tónabíó. Rekstur húsanna hefur
gengið erfiðlega upp á síðkastið og
sjá núverandi eigendur ekki aðra
leið úr ógöngunum. Tilboð munu
hafa borist í bæði bíóin og verður
Austurbæjarbíó væntanlega áfram
rekið sem kvikmyndahús. En það er
allt eins líklegt, að Tónabíó verði
selt undir annan rekstur. . .
Nú er kominn tími
til að bregða undir
sig betri fœtinum
og skreppa á skíði
til Mayrhofen
í Austurríki.
Á þessum skemmti-
lega skíðastað eru
brekkur við allra
hœfi, frábœrt
gönguskíðasvœði
og víðfrœgir skíða-
skólar í öllum
greinum skíða-
íþrótta. Veitingahús
eru um allar brekkur
þar sem notalegt
er að setjast niður
með ölkollu og slappa af fyrir
nœsta áfanga. Á ölstofum þorpsins
safnast fólk saman eftir góðan dag
á skíðum, bregður sér á diskótek
eða slappar af
á glœsilegum gististað.
Allt þetta og meira
til kostar
ekki svo mikið:
Tveggja vikna
ferð með
gistingu og
morgunmat á
Rauchenwalder-
hof, sem er
sérlega fallegur
gististaður í ekta
tírólskum stfl,
kostar
ekki nema
kr. 23.272*
á mann,
sé miðað við tvo í herbergi.
Allar nánari upplýsingar fást á
söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðs-
mönnum og ferðaskrifstofum.
Upplýsingasími 25100
FLUCLEIÐIR
* Gildir til 31/1. Aðrar brottfarir kr. 24.511