Helgarpósturinn - 21.05.1987, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn:
Friðrik Þór Guðmundsson,
Gunnar Smári Egilsson,
Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Prófarkir:
Sigríður H. Gunnarsdóttir.
Ljósmyndir: Jim Smart
Framkvaemdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstof ustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Auglýsingar:
Sigurður Baldursson,
Sigurrós Pétursdóttir.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasfmi: 74471),
Guðrún Geirsdóttir.
Afgreiðsla:
Bryndís Hilmarsdóttir.
Sendingar: Ástríður Helga.
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
88t§11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, sfrrti 681611.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot: Leturval s4.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Sýknudómur eða peðsfórnir?
Eitt athyglisverðasta mál sem lent hefur fyr-
ir dómstólum í þessu landi er nú rekið fyrir
Sakadómi Reykjavíkur. Það er mál ákæru-
valdsins gegn nokkrum bankastjórum Út-
vegsbanka íslands sem var. Bankastjórarnir
eru sóttir til saka fyrir m.a. stórfellda og ítrek-
aða vanrækslu í opinberu starfi.
Bankastjórarnir sjö, sem nú sitja á bekk
ákærðra, eru í rauninni peð í ríkisbankakerf-
inu. Eins konar framkvæmdastjórar ríkis-
bankaráðanna, sem kosin eru hlutfallskosn-
ingu á Alþingi. Það eru bankaráðin, sem
formlega ráða þessa bankastjóra til starfa, en
alkunna er að hinir pólitísku flokkar hafa í
raun ráðið mestu um hverjir hreppa banka-
stjórastöður í ríkisbönkum. Áhrif stjórnmála-
flokka og Alþingis á stöðuveitingar í þessum
peningastofnunum eru svo mikil að flokkarnir
eigna sér bankastjórastöður — og banka-
stjóra — líkt og væru þeir lén.
Ríkisbankakerfi byggist í sjálfu sér ekki á
bankastjórunum. Þeir bera að vísu ábyrgð á
dagiegum rekstri peningastofnunarinnar, en
starfa, eins og áður sagði, sem eins konar
framkvæmdastjórar bankaráðanna. Banka-
ráð kosin hlutfallskosningu á Alþingi bera
ábyrgð gagnvart eiganda bankanna, íslenska
ríkrnu. Sjálf uppbygging þessa kerfis gerir ráð
fyrir þessum skiintngi. Æðsti yfirmaður rlkis-
bartkakerfisins er viðskiptaráðherra, sem hef-
ur heilan Seðlabanka íslands undir sér til
þess, m.a., að fylgjast með bankastarfsemi í
nafni ríkisins og sjá svo til að þar gangi mál
fyrir sig samkvæmt eðlilegum leikreglum.
Undir stjórn bankastjórnar, eða bankaráðs,
Seðlabanka Islands er síðan að finna sérstakt
bankaeftirlit sem er eftirlitsaðili f.h. Seðla-
banka íslands. Seðlabanki, bankaeftirlit, við-
skiptaráðherra og loks bankaráð viðkomandi
banka eru allt stofnanir til þess að tryggja að
bankastjórar í þessu kerfi taki ekki upp á því
einn góðan veðurdag að dreifa fé til hægri og
vinstri — skuldbindingalaust. öðruvísi verður
þetta kerfi vart skilið. Eða til hvers eru banka-
ráðin?
Bankastjórarnir sjö hafa ekki verið ákærðir
fyrir auðgunarbrot. Og þar sem þeir eru að-
eins einn hluti vaictakerfisins í ríkisbankakerf-
inu hljóta þeir að spyrja sig nú: Gengum við
gegn vilja, eða ákvörðunum bankaráðanna?
Já, gengu bankastjórarnir sjö gegn vilja og
ákvörðunum bankaráðanna, sem réðu þá til
að sinna bankastjórastarfinu? I Ijósi þess að
sjömervmngarnir eru ákærðir fyrir stórfellda
og ítrekaða vanrækskj í starfi, en bankaráð lát-
in afskiptalaus eins og þau væru ekki tii,
mætti ætla að svo vaeri. Það mestti jafnvel
ímynda sér að bankaráðin hefðu Itrekað varað
bankastjórana við — veitt þeim áminningar
svo sem tfðkast áður en opinberir starfsmenn
eru reknir úr starfi fyrir vanrækslu sakir og
mælt er fyrir um í lögum um réttindi og skyld-
ir opinberra starfsmanna frá 1954. En því er
ekki til að dreifa. Bankaráð hafa hreint ekki
veitt bankastjórum áminningu, eða viðvörun.
Allt bendir til þess að bankastjórarnir sjö hafi
farið í einu og öllu eftir þeim ákvörðunum
sem bankaráðin tóku, eða vildu að teknar
yrðu, í nafni Útvegsbanka íslands.
Þrátt fyrir eftirlitsskyldu Seðlabanka is-
lands, nánar tiltekið bankaeftirlits Seðla-
bankans, þrátt fyrir völd, skyldur og ábyrgð
bankaráðs Útvegsbanka Islands, ákvað ríkis-
saksóknari að reka mál gegn sjö bankastjór-
um og ekki bankaráðinu sjáifu. Ákvörðun
ríkissaksóknara virðist studd svipuðum rök-
um og sú niðurstaða Jóns Þorsteinssonar,
sem birtist seint á síðasta ári, að erfitt væri að
koma starfsábyrgð yfir rikisbankaráð. Því
verður ekki trúað að óreyndu, að sú stað-
reynd, að í bankaráði Útvegsbanka íslands
sátu atþingismennirnir og frambjóðendurnir
Albert Guðmundsson, Alexander Stefáns-
son, Jéhann Einvarðsson og Vaidimar Ind-
riðaaon hafi haft áhrif á niðurstöðu Jóns Þor-
steinssonar og ríkissaksóknara. Eða snýst
bankastjóramálið um sýknudóm yftr ríkis-
bankakerfi og peðsfórnir?
fli W ■enntamálaráðherra,
Sverrir Hermannsson, á ekki sjö
daga sæla þessar síðustu vikur sínar
í stjórn Steingríms. Nefnd sem skil-
aði umsögn um hæfasta umsækj-
anda um fræðslustjórastarfið á
Norðurlandi eystra hefur heldur
farið í taugarnar á Sverri, enda
mælti hún sem kunnugt er nær ein-
dregið með endurráðningu Sturiu
Kristjánssonar sem Sverrir var
þegar búinn að reka með látum úr
starfinu. Nú bíður Sverris enn ein
ákvörðun um nýjan mann í emb-
ætti, en það er í stöðu lektors í_
stjórnmálafræði og heimspeki við
Háskóla íslands sem Ólafur Þ.
Harðarson hefur verið settur í og
er reyndar einn umsækjenda um á
móti Hannesi Hóhnsteini
Gissurarsyni. Ljdst þykir að nefnd-
in sem gefa á menntamálaráðherra
umsögn um hæfni umsækjenda sé
öll á bandi Ólafs, en hana skipa
stjórnmálafræðingarnir Gunnar
Gunnarsson, Ölafur Ragnar
Grímsson og Svanur Kristjáns-
son. Hannes Hólmsteinn er rífiega
yfirlýstur flokksbróðir Sverris, sem
nú er semsé enn og aftur í vanda. . .
V,
ið heyrum að Eiríkur Jóns-
son fréttamaður á DV verði frétta-
stjóri nýju útvarpsstöðvarinnar
Stjörnunnar. . .
lEttir því sem heimildir HP
herma er nú verið að vinna í nýju
skipuriti fyrir Flugleiðir sem mið-
ast að því að skipta starfsemi fyrir-
tækisins upp í afmörkuð markaðs-
svæði, þannig að ákveðnir aðilar
verði ábyrgir fyrir rekstri hvers
sviðs fyrir sig. Þessi hugmynd, sem
mun vera runnin undan rifjum Sig-
urðar Helgasonar forstjóra, verð-
ur lögð fyrir stjórn fiugfélagsins á
næstunni, en ljóst þykir að hún eyk-
ur á völd forstjórans á kostnað ann-
arra yfirmanna félagsins. Helst er
nefnt að áhrif Sigfúsar Eriings-
sonar framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs fari minnkandi ef þessar hug-
myndir ganga eftir, en þær gera
nánast ráð fyrir því að markaðssvið-
ið verði aflagt í þeirri mynd sem það
hefur verið. Þessar tiffæringar
hefðu líka í för með sér ýmis ný og
breytt starfssvið og er meðal annars
nefnt að starf kynningarfulltrúa
fyrirtækisins verði ekki einungis út
á við heldur og ekki síður inn á við
svo starfsmenn fylgist betur með
breytingum og þróun þessa stóra
félags á íslenskan mælikvarða...
Ú
tvarpsstöðvarnar spretta
upp á gorkúluhraða. Tíðindamaður
HP var að fikta í viðtækinu í vikunni
og fann sendingu á FM ca. 87,7 sem
við náriari eftirgrennslan reyndist
vera Útvarp Hafnarfjarðar. Sú
stöð mun hafa ætlað að hefja út-
sendingar fyrir nokkru, en ekkert
varð af fyrr en nú að hún heftur til-
raunaútsendingar. Halldór Árni
Sveinsson er eigandi stöðvarinn-
ar, en hann er kunnur frá árum áður
sem plötusnúður á Óðali, Snekkj-
unni og víðar, auk þess sem hann
rak hljóðstúdíó í firðinum í gamla
daga. Síðustu ár hefur hann aftur á
móti rekið auglýsingastofu í eigin
nafni fyrir ofan Prikið á Laugavegi.
Eftir því sem HP heyrir best er ætl-
unin að Útvarp Hafnarfjarðar verði
grenndarstöð sem sérhæfi sig í mál-
efnum Gaflara milli þess sem lög
verða leikin...
v
ikublaðið Reykjanes, sem
reyndar hefur undanfarið komið
tvisvar út í viku og stendur þannig
ekki lengur undir vikublaðsnafn-
inu, er að missa ritstjóra sinn, Sig-
raund Ó. Steinarssra. Sigmundur
hefur starfað við Reykjanes undan-
farna sex mánuði í leyfi frá DV þar
sem hann hefur alla jafna stýrt
íþróttafréttum. Líklegt þykir aðSÖS
fari að sjást aftur á síðum síðdegis-
blaðsins í sumar.. .
II
mmæli Svavars Gests-
sonar formanns Alþýðubandalags-
ins eftir miðstjórnarfund þess flokks
hafa vakið mikla athygli. Hann
sagði í DV að uppgjörið yrði að fara
fram í sumar: „Það uppgjör mun
fara fram í sumar áður en til lands-
fundar kemur," og héldu menn áður
að allaballarnir héldu fundi til að
jafna eða ójafna ágreining sinn. Þá
bætti formaðurinn við: „Það verður
að hafa það þótt einhverjir telji sig
sára eftir og yfirgefi flokkinn, svona
getur þetta ekki gengið til lengurt
Þessi ummæli þykja ekki bera vott
um mikla sáttfýsi og spyrja allaball-
arnir hver annan hvort þeir hafi lent
á aftökulistanum hjá formanninum.
HP hefur heyrt að meðal þeirra sem
lent hafi á listanum séu margir sem
hafa verið opinberlega ósáttir við
pólitík formannsins: Guðrún
Helgadóttir, Ólafur Ragnar
Grímsson, Kristín Ólafsdóttir,
Össur Skarphéðinsson, Guðni
Jóhannesson, Kristján Vaidi-
marsson, Mörður Árnason og
fleiri. Þetta fólk getur hins vegar
huggað sig við að lenda á lista með
mörgum þúsundum kjósenda. Ann-
ars þykir líklegra að það taki her-
skárri áskorun formannsins og hans
manna. . .
Dagbókin
hennar
Dúllu
Kæra dagbók.
Ég er alveg ákveðin í að verða
fjölmiðlafræðingur. Bella vinkona
líka. Við vorum nefniiega í starfs-
kynningu — ég hjá Bylgjunni, en
Bella hjá Stöð 2 — og það var meiri-
háttar!
Ég var að vísu ógeðslega feimin til
að byrja með, rennsvitnaði undir
höndunum og með ofsa hjartslátt.
En svo var þetta bara allt í fína, þó
það væri ekki beinlínis eins og ég
hafði ímyndað mér.
Það er t.d. ekkert pláss þarna og
meira að segja útvarpsstjórinn er
ekki einu sinni með sérherbergi.
Glætan, maður... Og ég sem hélt að
útvarpsstjórar væru með svona for-
stjóraherbergi með sófasetti og svo-
ieiðis. En það var hvergi neitt töff
þarna. Fólkið var hins vegar óstjórn-
lega hresst og alltaf að grínast og
hlæja. (Ég myndi nú samt ekki þora
að endurtaka alla brandarana þegar
mamma væri nálægt. Mennirnir
sem vinna þarna eru stundum svo-
lítið dónaiegir. Sumt skiidi ég nú
bara ekki almennilega, en ég hló
samt með svo enginn fattaði...)
Mamma yrði heldur ekkert hrifin af
hreinlætinu á Bylgjunni, er ég
hrædd um. Annað eins drasl hef ég
hvergi séð, nema í herberginu hans
Adda bróður!
Ég fékk að skrifa tvær fréttir, eina
um bruna á Akranesi og eina um
byltingu úti í heimi, sem ég þýddi af
fréttaskeyti. Svaka var gaman að
heyra fréttirnar eftir mig lesnar svo
allir gætu heyrt. Svo fékkég að velja
þrjú lög og kynna þau. Það var í
morgundagskránni hjá Páli Þor-
steins og ég náttúrulega að missa
röddina af hræðslu. (Páll er nú geð-
veikislega ... þú veist! Það er bara
verst að ég er svo lítil, en hann er
rosalega stór. Þetta myndi líklega
aldrei ganga. Æ, hann er líka giftur,
held ég, og orðinn soldið gamall.)
Það var líka rosa gaman hjá Bellu
á Stöð 2, en hún fékk ekki að gera
eins mikið og ég. Mér heyrist á lýs-
ingunni að það sé miklu flottara á
Stöð 2 en á Bylgjunni — allt í svörtu
og hvítu og ofsalega móðins. Fólkið
þarna er líka ferlega smart, axla-
púðarnir standa langar leiðir út í
loftið (bæði á köllunum og konun-
um), hárið „gelað“ o.s.frv. Alveg
æðislegt! En Bella sagði að það
hefði verið rosalegt stress þarna.
Allir á spani og ekki grínast svona
mikið eins og hjá mér.
Eitt var þó alveg eins á báðum
stöðum. Það voru allir á fullu við að
hæðast að ríkissjónvarpinu og út-
varpinu og gera grín að þáttum og
fólki á öðrum stöðvum. Rosalegur
kapphlaupsandi, eða þannig... en
mér fannst samt margir of hat-
rammir í þessu.
Svo ég er að hugsa um að fara í
einhver útvarpsfræði, vegna þess að
ég er ekki nógu sæt til að vilja láta
alla sjá mig í sjónvarpinu. Svo myndi
ég ekki nenna að vera alltaf svona
stressuð.
Bless, bless, Dúlla.
PS Hvað ætli maður stækki annars
mikið við að fara á háa hæla?
Bara svona pæling...
ATHUGASEMD
í umfjöllun Heigarpóstsins um
nýja húsnæðislánakerfið sl.
fimmtudag var sagt, að þau Katrín
Atladóttir og Hilmar Þórisson,
helstu sérfræðingar Húsnæðisstofn-
unar ríkisins, hefðu búið til forsend-
ur nýja lánakerfisins fyrir laganefnd
þá sem samdi húsnæðisfrumvarpið
undir forystu Hallgríms Snorra-
sonar, forstjóra Hagstofu Islands.
Þetta er ekki rétt.
Laganefnd sú sem bjó til forsend-
ur nýja húsnæðislánakerfisins
studdist ekki við upplýsingar frá
áðurnefndum sérfræðingum Hús-
næðisstofnunar. Þeir eru því beðnir
afsökunar á fullyrðingu um annað.
Eftir stendur að áðurnefnd laga-
nefnd byggði nýja húsnæðislána-
kerfið á ótraustum forsendum. Þótt
ótrúlegt megi virðast byggði nefnd-
in aðallega á íbúaspá, en ekki áætl-
aðri lánsþörf. Með því að leggja til
grundvallar íbúaspá, en ekki þann
raunveruleika sem lesa má af, t.d.
fasteignaviðskiptum á heilu ári, eða
öðrum upplýsingum sem fyrir lágu
um verslun og viðskipti í húseign-
um, þegar húsnæðislánakerfið var
búið til, var fagmennska látin víkja
fyrir hæpinni spámennsku.
ítrekuð skal afsökunarbeiðni til
þeirra Katrínar Atladóttur og Hilm-
ars Þórissonar. Ritstj.
LAUSN Á
SPILAÞRAUT
Spilið kom upp í viðureign Ólafs
Lárussonar og Delta í Reykjavík-
urbikarnum og réð mestu um tap
Delta, í jöfnum og spennandi leik.
♦ 5
C? ADG872
♦ AK84
+ G5
♦' K632 ♦ G109
P 104 K65
O G9 O 7652
+ D8742 * K109
♦ AD874
93
O D103
+ A63
Á báðum borðum hélt austur
áfram með lauf-10, eftir að hata átt
fyrsta slag á kóng. Tían átti slag-
inn á báðum borðum. En nú skildi
leiðir. Spilarinn í sveit Delta spilaði
áfram laufi, í fljótfærni líklega.
Sagnhafi þakkaði fyrir sig með því
að hirða 10 slagi, eftir misheppn-
aða hjartasvíningu.
Á hinu borðinu var austur ekki
eins bjartsýnn; að ætla félaga
spaðaásinn eftir sagnir. En ef hann
ætti kónginn... þá dygði hann jafn
vel. Svo austur skipti í spaðagosa
í þriðja slag.
Lítil þúfa og þungt hlass.
10 HELGARPÓSTURINN