Helgarpósturinn - 26.11.1987, Side 10

Helgarpósturinn - 26.11.1987, Side 10
VETTVANGUR HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Halldór Halldórsson, Helgi Már Arthursson Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Friörik Þór Guömundsson, Gunnar Smárii Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Ólafur Hannibalsson, Páll Hannesson. Prófarkir: Sigríður H. Gunnarsdóttir Ljosmyndir: Jim Smart Útlit: Jón Óskar Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir Dreifing: Guðrún Geirsdóttir Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir Sendingar: Ástríður Helga Jónsdóttir Ritstjórn og auglýsingar eru í Ármúla 36, Reykjavík, sími 68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru í Ármúla 36, sími 68-15-11 Útgefandi: Goðgá hf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Vinsældir Steingríms Steingrímur Hermannsson er merkilegasti stjórnmála- maður samtímans. Það sem gerir hann svona merkileg- an eru þær vinsældir sem hann nýtur. Endurteknar vin- sældakannanir Helgarpóstsins leiða í ljós að utanríkis- ráðherra ber höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálamenn — mælt í vinsældum. Hann er a.m.k. sá stjórnmálamað- ur sem mönnum dettur fyrstur í hug þegar spurt er um þessa embættismenn þjóðarinnar. Og nýtur fylgis langt út fyrir raðir framsóknarmanna. Það er engin einföld skýring á vinsældum utanríkis- ráðherra. Sá sem hefur þá skýringu á reiðum höndum þætti vafalaust tillögugóður í öðrum flokkum sem eiga og hafa átt við forystuvanda að stríða. Ef forysta Sjálf- stæðisflokksins hefði til að mynda svar við spurningunni þá væru menn ekki að velta því fyrir sér hvort Davíð Oddsson sé næsta leiðtogaefni flokksins, eða einhver annar kandídat. Eitt sést mönnum oft yfir þegar þeir velta fyrir sér vin- sældum Steingríms Hermannssonar. Hann kom tiltölu- lega seint inn í pólitík, en er samt alinn upp í henni. Og eftir að hann sest á þing nýtur hann nærveru reyndra framsóknarþingmanna, áður en hann verður talsmaður flokksins. Reyndar má segja að hann hafi sprungið út eft- ir að hann varð forsætisráðherra 1983. Þá tókst honum að leiða ríkisstjórn í gegnum efnahagsaðgerðir, sem fyr- irfram mátti ætla að yrði mikil píslarganga. Verkalýðs- hreyfingin fór ekki af stað fyrr en hálfu öðru ári eftir fautalegar efnahagsaðgerðir og þá með hálfum hug. Og Steingrími Hermannssyni, þáverandi forsætisráðherra, tókst það sem föður hans tókst ekki tæpum þremur ára- tugum áður — að máta verkalýðshreyfinguna. Og með því hlotnaðist honum „landsföðurímyndin" sem svo margir minni spekingar í pólitík vildu hafa. Og þá er komið að „ímyndinni“. Sjálft hugtakið ber með sér að það nái e.t.v. ekki yfir það fyrirbæri sem það á að lýsa. Að ímynd stórnmálamanns sé eitthvað annað en hann í raun og veru er. Eitthvað sem þess vegna er hægt að selja í kosningum — óháð því hvort innstæða er til fyrir vörunni. í Helgarpóstinum í þessari viku reyna menn að skyggnast á bak við þessa „ímynd“ og tína til ýmislegt sem færir hana nær raunveruleikanum. Þar segir m.a.: „Stjórnmálamaður nútímans er ekki settur saman úr ferli sjálfs sín, aðgerðum og aðgerðaleysi, stefnu og stefnuleysi. Hann er samsettur úr margs konar goðsögn- um, sem fjölmiðlar koma á framfæri. Þá og þessa stund- ina má ýkja þennan dráttinn eða hinn og breyta mynd- inni. Minni manna er stutt, nýjar kynslóðir koma án af- láts, sem ekki muna lengra en það sem gerðist í gær. Orð stjórnmálamanna eru ekki lengur skjalfest né munuð stundinni Iengur." Vinsældir Steingríms Hermannssonar benda til þess að hann sé goðsögn. Honum leyfist nánast allt. í blaða- viðtölum tekur hann samherja og andstæðinga og tugtar til og gengur lengra en aðrir leyfa sér. Nýlegt viðtal í tímaritinu Heimsmynd er dæmi um þetta. Og þegar hann fer yfir strikið þá fyrirgefst honum. Almennt hefur ekki verið kvartað yfir því að utanríkisráðherra lýðveld- isins skuli taka þátt í markaðssetningu bókar eftir Gorba- sjoff sovétleiðtoga í kompaníi við sovéska sendiherrann á Islandi. Veigamikil ástæða fyrir vinsældum utanríkisráðherra kann að vera sú, að í honum sér þjóðin sjálfa sig. Að Steingrímur sé sumpart hinn ,;íslenski draumur“ — það sem svo oft er nefnt „sannur Islendingur". Sé svo hefur þjóðin búið til Steingrím úr vonum sínum og löngunum. 10 HELGARPÓSTURINN Réttmæt rifrildismál Það er fleira matur en feitt kjöt og fleira, sem er þess vert að hugsa um það og skoða en pólitísk deilumál. Þó eru ýmis slík mál, sem þjóðin ætti ekki að láta stjórnmálamenn- ina eina um að útkljá í þingsölum eða bakherbergjum, heldur taka af- stöðu til og láta í Ijós skoðanir á. Til þess eru reyndar stjórnmálaflokkar að hjálpa liðsfólki sínu að skerpa lín- urnar í slíkum málum og auðvelda því þannig að mynda sér skoðun. Eitt slíkra mála er „kvótamálið". Fyrir nokkrum árum stillti einn stjórnmálaflokkurinn upp spurning- unni: Hver á ísland ? og leitaðist við að gefa svör við henni og eins hverj- ir, að hans áliti, ættu að eiga þetta ágæta land. Fyrsta spurningin í sam- bandi við kvótann er ekki um fisk- veiðistjórnun, heldur hitt hver á að eiga hina nýfengnu 200 mílna land- helgi íslands. Eiga þeir, sem fyrir til- viljun áttu fleytur þegar kvótinn var ákveðinn, að eiga um aldur og ævi fiskveiðiréttinn og hafa til þess heimild að láta hann ganga kaupum og sölum? Eigum við að láta mynd- ast hér útgerðaraðal, sem fær rétt- indi sín ókeypis frá ríkisvaldinu, rétt eins og aðalsstéttin á miðöldum fékk réttindi sín frá krúnunni og sat yfir hlut állra annarra þjóðfélags- þegna? Sérstaklega er einkennileg afstaða samtaka sjómanna, sem telja sjálfsagt að fiskurinn í sjónum sé eign núverandi útgerðarfyrir- tækja og að í framtíðinni verði út- gerðarmenn að kaupa sig inn í stétt- ina með því að komast yfir einhvern kláf. Hér þarf að taka ákvörðun áð- ur en núverandi fyrirkomulag nær að festa sig frekar í sessi. Annað mál, sem miklu varðar alla þegna þessa þjóðfélags, eru húsnæð- ismálin. Húsnæðislánakerfið hefur sprungið reglulega á eins til tveggja ára fresti allan síðasta áratug. Hver félagsmálaráðherrann af öðrum hefur lýst yfir gjaldþroti fyrirrenn- ara síns í starfi og ætlað að reisa sér minnisvarða með varanlegri lausn þessara mála: Fyrst Magnús H. Magnússon, síðan Svavar Gestsson, þá Alexander Stefánsson. Og nú er röðin komin að Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Svo virðist sem aðgerðir í þessum málum hverju sinni verði til að hækka íbúðaverðið meira en nemur hækkun lánanna. Þannig dugði lán til þriggja herbergja íbúð- ar 1. september í fyrra fyrir 69% af íbúðarverðinu, en 15 mánuðum síðr ar dugar lánið, þrátt fyrir hækkun, fyrir aðeins 54% verðsins. Enginn stjórnmálaflokkur virðist átta sig á því að þessi mál verður að skoða alveg upp á nýtt og í samhengi við heildarfjármagnskerfi þjóðarinnar. Húsnæðiskerfið verður að vera í jafnvægi við aðra geira fjármagns- markaðarins, þannig að það spenni ekki upp almenna vexti og valdi aukinni ásókn í niðurgreidd hús- næðislán, sem krefst þá jafnframt síaukinna framlaga til þessarar vaxtaniðurgreiðslu. Alþingi verður að leysa þetta mál i samráði við eig- endur fjármagnsins, lífeyrissjóðina. Almennt lífeyriskerfi er á stefnu- skrá þessarar ríkisstjórnar. í fjörutíu ár er það búið að vefjast fyrir Al- þingi að taka á þessum málum með þeim afleiðingum, að það, sem menn kalla launamisrétti er svipur einn hjá sjón hjá því gífurlega mis- rétti, sem bíður ellilífeyrisþega og nær raunar út yfir gröf og dauða með makabótum og örorkulífeyri. Vissir hópar þjóðfélagsins hafa á þessu sviði skapað sér samnings- bundin forréttindi, sem enginn minnsti möguleiki er á að þjóðfélag- ið hafi efni á að uppfylla. Þessi mál dugar ekki að skoða í smábútum. Þau verður að taka upp til skoðunar í heild og í samhengi. Ólafur Hannibalsson Bréf til ritstjórnar Heiðraði ritstjóri. Vegna deilu, sem virðist risin út af einkunn Þorgeirs Þorgeirssonar í ís- lenzku á meðan hann stundaði nám við Menntaskólann, vil ég láta eftir- farandi koma fram: Þorgeir lauk stúdentsprófi vorið 1953 og hlaut einkunnina 7,8 í árs- einkunn í skriflegri íslenzku hjá Magnúsi Finnbogasyni og 7,0 í prófseinkunn hjá Magnúsi og stjórn- skipuðum prófdómara. Talan 1,0 kemur hvergi fram í plöggum skól- ans. Hafi Þorgeir mislesið töluna 1,0 fyrir 7,0 sl. hartnær 35 ár þá leið- réttist það hér með, og getur hann þá vonandi tekið gleði sína aftur, hafi hann týnt henni vegna þessa misminnis. Virðingarfyllst, Guðni Guðmundsson, rektor. Athugasemd frá SKÁÍS Vegna tæknilegrar skekkju í tölvuvinnslu í síðustu skoðanakönn- un birtust rangar niðurstöður í töflu um fylgi flokkanna fyrir landiö í heild. I umræddri töflu féllu einnig niður atkvæði Þjóðarflokksins. Forsvarsmenn SKAISS biðja lesend- ur og umfram allt Helgarpóstinn velvirðingar á þessum leiðu mistök- um. Leiðrétt tafla fyrir landið í heild birtist hér með. AII1 landið % af þeim % af þeim sem náðist sem tóku Flokkar Fjöldi í afstöðu Alþýðuflokkur 76 10,2% 15,4% Framsóknarflokkur 93 12,4% 18,9% Sjálfstæðisflokkur 147 19,7% 29,8% Alþýðubandalag 54 7,2% 11,0% Kvennalisti 73 9,8% 14,% Borgaraflokkur 33 4,4% 6,7% Þjóðarflokkur 9 1,2% 1,8% Aðrir flokkar 8 1,1% 1,6% Svara ekki 121 16,2% Óákveðnir 102 13,6% Kjósa ekki/skila auðu 32 4,3%

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.