Helgarpósturinn - 26.11.1987, Side 22
mönnum & Sjónvarpinu. Nú mun
afráðið að Olína Þorvarðardóttir,
sem hefur getið sér gott orð sem
fréttamaður, hætti á Sjónvarpinu
um áramót. Ætlar Ólína að flytja sig
yfir á Heimsmynd frænku sinnar,
Herdísar Þorgeirsdóttur, og
verður hún þar ritstjóri ásamt þeirri
síðarnefndu. . .
u
■ okkrir menn hafa sagt sig
úr Borgaraflokknum síðustu daga
og herma heimildir HP í röðum
borgaraflokksmanna, að óánægju
gæti með yfirgang framkvæmda-
nefndar flokksins. I kvöld verður
síðan haldinn fundur um eitt ,,við-
kvæmu" málanna í Borgaraflokkn-
um, breytingar á fóstureyðingalög-
gjöfinni, en Hulda Jensdóttir er
skeleggur talsmaður þrengingar.
laganna um fóstureyðingar. Hún
verður frummælandi á fundi flokks-
ins. . .
HVERJU SINNI
Húsnæöislánin eru hagstæö lán, eins og vera ber.
En af þeim þarf aö greiöa, jafnt sem af öörum lánum og dráttarvextir eru háir
ef ekki er greitt á réttum tíma.
Þegar innheimtukostnaöur bætist viö aö auki, fer greiðslubyröin
óneitanlega aö þyngjast.
Viö minnum á þetta núna vegna þess að
haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiðsluseðlar
hafa verið sendir gjaldendum.
Greiðslur er að sjálfsögðu hægt að inna af hendi í
hvaða banka, bankaútibúi og sparisjóði sem er.
Dráttarvextir lögðust á lán með lánskjaravísitölu
fráog með 16. nóvember s.l.
Dráttarvextir feggjast á ián með byggíngar-
vísitölu frá og með t, desember n.k.
Við viljum auk þess benda á að þú getur greitt lánið
upp.hafir þú tök á því. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess,
ásamt verðbótum, frá upphafi lánstímans til
greiðsludags.
Á síðustu 12 mánuðum hafa 12 þúsund lán verið
greidd upp, áður en lánstíma lauk.
Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú
greiða inn á hann. Það getur komið sér vel þegar til
lengri tíma er litið.
HAFÐU HÚSNÆÐISLÁNIÐ PITT EFSTÁ BLAÐI.
PAÐ BORGAR SIG.
gróska virðist vera
um þessar mundir í starfsemi svo-
kallaðra frjálsra leikhópa. Á laugar-
daginn vaknar Gránufjelagið úr
dvala og setur upp Endatafl
Becketts undir leikstjórn Kára
Halldórs. HP hefur einnig fregnað
að nýtt leikhús muni taka til starfa í
janúar og hefur það hlotið nafið P-
leikhúsið. Frumkvöðullinn að því
er Andrés Sigurvinsson og hann
mun leikstýra fyrsta verki þessa
nýja leikhúss, sem verður til húsa í
íslensku óperunni. Verkið sem
setja á upp er ekki af verri endanum
en það er Heimkoman eftir Har-
old Pinter hinn breska. Meðal
leikara verða þrír af snjöllustu leik-
urum landsins sem stendur, Rúrik
Haraldsson, Róbert Arnfinns-
son og Hjalti Rögnvaldsson, sem
kemur sérstaklega frá Svíþjóð til að
taka þátt í uppfærslunni, en nokkur
ár eru síðan hann lék hér síðast. Aðr-
ir leikarar verða þau Ragnheiður
Elfa Arnardóttir, Halldór
Björnsson og Hákon Waage.. . .
AUÐVELDUM VIÐ ÖSj^íS,
a/7/7
FATLAÐRA?
||XEB04R
^nn
&
=S^IN
Bilbeltin skal aö
sjálfsögðu spenna
í upphafi ferðar.
Þau geta bjargað lífi i
alvarlegu slysi og
hindrað áverka í minni
háttar árekstrum. Hnakka-
púðana þarf einnig að stilla
í rétta hæð.
Il
UMFERÐAR
Ð
22 HELGARPÓSTURINN