Helgarpósturinn - 14.01.1988, Síða 6
SKOÐANAKÖNNUN HELGARPÓSTSINS OG SKÁÍSS
RÍKISSTJÖRNIN
í MINNIHLUTA
Fjóröungur stuöningsmanna Alþýduflokks, Framsóknarflokks og Sjálfstœdisflokks styöur
ekki ríkisstjórn Porsteins Pálssonar.
Fylgi við ríkisstjórn hefur aldrei
mælst minna í skoðanakönnunum
Helgarpóstsins. Ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar fékk minnst
46 prósenta fylgi í janúar 1985, en
mest mældist fylgi hennar í febrúar
1986, eða 55,7 prósenta fylgi.
stjórnarflokkanna sjálfra. Hækkun
skatta, aukinn söluskattur, kvóta-
mál, óeining og klúður í þinginu,
sem rekja má til hversu seint ríkis-
stjórnin skilaði sínum málum af sér,
eru allt mál sem ætla má að hafi
mótað afstöðu fólks í könnuninni.
Annað sem gæti hafa haft áhrif á
afstöðu fólks er að stjórnarandstað-
an og þeir stjórnarliðar er hafa verið
andvígir ýmsum aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar hafa verið meira áber-
andi í fjölmiðlum á undanförnum
vikum. Þetta má einnig sjá í þeim
þætti könnunarinnar þar sem spurt
Styður þú ríkisstjórnina?
Fjöldi Prósenta þeirra sem tóku afstöðu Nóv. Ágúst Júlí
Já 280 44,4% 55,8% 63,8% 54,6%
Nei 351 55,6% 44,2% 36,2% 45,4%
Alls voru 776 spurðir. Þar at svöruöu 15 ekki (1,9% af úrtaki) og 130 voru óákveðnir (163%
af úrtaki). Það var því 631 sem tók afstöðu eða 81,3 prósent af úrtakinu.
var hvaða stjórnmálamenn fólk
vildi styðja. Á listann yfir þá stjórn-
málamenn sem fengu fleiri atkvæði
en tíu komust aðeins tveir almennir
þingmenn stjórnarflokkanna, Kar-
vel Pálmason og Matthías Bjarna-
son, en þeir hafa báðir lýst sig and-
snúna ýmsum stefnumálum ríkis-
stjórnarinnar svo sem kvótalögun-
um o.fi.
Eins og áður sagði nýtur ríkis-
stjórn Þorsteins Pálssonar nú í fyrsta
skipti fylgis minna en helmings
þeirra sem tóku afstöðu. Hún nýtur
ekki fylgis nema fjórða hvers stuðn-
ingsmanns þeirra flokka sem að
henni standa. Svo mikill munur hef-
ur ekki áður mælst í skoðanakönn-
unum Helgarpóstsins.
Ástæður þessa má sjálfsagt finna í
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar
Samkvæmt skoðanakönnun Helgarpóstsins og SKÁISS hefur rikisstjórnin tapað meirihlutafylgi sínu sem hún hefur haldið í öilum skoðanakönnunum
frá því hún var mynduð. Þeir stjórnmálaflokkar sem standa að ríkisstjórninni njóta fylgis um 60 prósenta aðspurðra, en ríkisstjórnin sjálf ekki nema tæp-
lega 45 prósenta aðspurðra.
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hefur misst fylgi sam-
kvœmt skodanakönnun Helgarpóstsins og SKAISS. Hún
nýtur nú ekki fylgis nema tœplega 45 prósenta þeirra
sem tóku afstööu. Þetta er í fyrsta skipti sídan ríkisstjórn-
in var mynduð að minnihluti aðspurðra segist styðja
hana.
EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON MYND JIM SMART
Andstaðan við ríkisstjórnina nær
inn í raðir stjórnarflokkanna. í
könnuninni sögðust tæplega 60 pró-
sent kjósa einhvern hinna þriggja
stjórnarflokka ef gengið væri til
kosninga í dag. Ef gert er ráð fyrir
að enginn stuðningsmanna annarra
flokka styðji ríkisstjórnina er ljóst,
að um fjórðungur fylgismanna Al-
þýöuflokks, Framsóknarflokks og
Sjálfstœöisflokks styður ekki þessa
ríkisstjórn.
aðgerðum ríkisstjórnarinnar að
undanförnu. Þær hafa mætt and-
stöðu sem nær langt inn í raðir
FYLGI FLOKKANNA
IFÖSTUM SKORÐUM
I
Eftir aö fjórflokkakerfiö hrundi er
komiö annaö landslag I stjórnmál-
in. Niöurstööur skoöanakönnunar
Helgarpóstsins og SKÁÍSS benda til
aö þaö sé aö festa sig í sessi. Hœgri-
flokkur meö fylgi fjóröungs kjós-
enda, miöjuflokkur sem nýtur fýlgis
fimmtungs, Kvennalistinn sem
þriöji stœrsti flokkurinn meö aö
baki sér 15 prósent kjósenda, tveir
jafnstórir sósíaldemókratískir
flokkarsem njóta samtals fylgis um
fjóröa hluta kjósenda og einn lítill
hœgriflokkur til viöbótar.
Þetta eru þær meginlínur sem
hefur mátt lesa út úr niðurstöðum
flestra skoðanakannana sem gerðar
hafa verið eftir kosningar. Sumar
hafa reyndar sýnt einhver frávik, en
þetta eru eftir sem áður meginnið-
urstöðurnar.
Sjálfstœöisflokknum virðist ekki
hafa tekist að vinna aftur upp það
mikla fylgi er hann tapaði í síðustu
kosningum. Þrátt fyrir að fylgi Borg-
araflokksins hafi dregist saman hef-
ur það ekki skilað sér til Sjálfstæðis-
flokksins. Jafnvel þó að fylgi þessara
tveggja flokka væri lagt saman er
það mun lægra en Sjálfstæðisflokk-
urinn var vanur að hafa í skoðana-
könnunum fyrir klofninginn. Orsak-
ir vanda Sjálfstæðisflokksins virðist
því að finna víðar en í klofnings-
framboði Alberts Guömundssonar.
Ef til vill er tími hins gríðarstóra
hægriflokks á fslandi einfaldlega
liðinn.
6 HELGARPÓSTURINN
Framsóknarflokkurinn er fastur
fyrir. í þeim skoðanakönnunum
sem gerðar hafa verið frá kosning-
um hefur hann haft svipað fylgi og
í kosningunum, í kringum 20 pró-
sent. Gríðarlegt persónufylgi þeirra
Steingríms Hermannssonar og Hall-
dórs Ásgrímssonar er sjálfsagt
styrkar stoðir undir íylgi flokksins.
Það nær þó langt út fyrir raðir Fram-
sóknarflokksins, þar sem sam-
kvæmt þessari skoðanakönnun nyti
Framsóknarflokkurinn fylgis um 35
prósenta kjósenda ef persónufylgi
Steingríms og Halldórs skilaði sér
allt til flokksins.
Kvennalistinn virðist vera orðinn
traustur í sessi sem þriðji stærsti
stjórnmálaflokkur landsins. Hann
hefur verið með um 15 prósenta
fylgi í skoðanakönnunum frá kosn-
ingunum. Kvennalistinn virðist því
hafa lagt fjórflokkakerfið í rúst,
nokkuð sem oft hefur verið reynt en
alltaf mistekist. Ástæður fylgisaukn-
ingar Kvennalistans virðist ekki
vera að finna í hinni opinberu
stjórnmálaumræðu, þar sem
Kvennalistinn hefur ekki haft mikil
áhrif á hana. Ástæðurnar virðist
vera að finna annars staðar. Ef til vill
nýtur Kvennalistinn þess að vera
valkostur á móti fjórflokkunum.
Alþýöuflokkurinn fær tæplega 13
prósenta fylgi samkvæmt þessari
könnun. Það er svipað og hann hef-
ur fengið í öðrum könnunum frá
kosningum. Fylgistap hans virðist
því staðreynd. Minnkandi persónu-
fylgi ráðherra flokksins virðist ekki
hafa haft þarna teljandi áhrif.
Draumur Jóns Baldvins um stóran
Alþýðuflokk sem einn réði við hinn
stóra Sjálfstæðisflokk virðist því úti.
Forsendurnar eru reyndar brostnar,
þar sem Sjálfstæðisfiokkurinn hefur
skroppið saman.
Alþýöubandalagiö hefur lítillega
rétt hlut sinn frá því það fékk
hryllilega útreið í hverri skoðana-
könnuninni á fætur annarri. Það
nær þó ekki enn að auka fylgið frá
kosningunum, þar sem flokkurinn
fékk eina verstu útreið sem hann
hefur fengið í samanlagðri sögu
sinni. f þeim kosningum tókst Al-
þýðuflokknum í fyrsta skipti frá
seinna stríði að skjótast upp fyrir
Alþýðubandalagið og forvera þess.
Munurinn á þessum flokkum er nú
lítill samkvæmt þessari skoðana-
könnun. Aðeins munar 0,6 prósent-
um á fylgi þessara flokka.
Borgaraflokkurinn fær minna
fylgi í þessari könnun en í síðustu
kosningum. Fylgistap hans sást
strax í niðurstöðu þeirra skoðana-
Þingmenn
Könnun Kosn.
Alþýöuflokkur 8 10
Framsóknarflokkur 13 13
Sjálfstæðisflokkur 18 18
Alþýöubandalag 8 8
Samtök um jafnrétti 0 1
Borgaraflokkur 5 7
Kvennalisti 10 6
Þjóðarflokkur 1 0
kannana sem gerðar voru fljótlega
eftir síðustu kosningar. Síðan þá hef-
ur hann haldið sér um og yfir 7 pró-
sent atkvæða. Það er því ekki hægt
að spá þessum flokki dauða, þó
framboð utan fjórflokkanna hafi
ekki verið langlíf á fslandi, utan
Kvennalistinn. Þingmenn Borgara-
flokksins hafa auk þess verið
óþreytandi á þingi og í raun barist
fyrir lífi hans úr ræðustólunum þar.
FALLKANDÍDATAR OG ARFTAKAR ÞEIRRA
Samkvæmt útreikningum taina-
spekinga Helgarpóstsins yrðu
helstu breytingar á þingstyrk flokk-
anna, samkvæmt könnuninni, þær
að Kvennalistinn ynni fjóra þing-
menn og fengi því samtals tíu, Borg-
araflokkur og Alþýðuflokkur töpuðu
hvor um sig tveimur þingmönnum,
Stefán Valgeirsson fólli útafþingi og
Þjóðarflokkurinn fengi mann inn.
Þingstyrkur Sjálfstæöisflokks, Fram-
sóknarflokks og Alþýöubandalags
yrði óbreyttur.
En breytingarnar á þingliöinu yrðu
örlítiö meiri, þar sem hiö kostulega
kosningakerfi setur allan þingheim á
hreyfingu við tilfærslu fáeinna at-
kvæða. Ef farið er yfir kjördæmin
yrðu helstu breytingarnar þessar: I
Reykjavík félli Jón Baldvin Hanni-
balsson, fjármálaráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins, út af þingi,
en í hans staö kæmi Guðrún Hall-
dórsdóttir, forstööumaður náms-
flokkanna, fyrir hönd Kvennalistans.
Á Reykjanesi myndi Hreggviöur
Jónsson Borgaraflokksmaður víkja
fyrir Kvennalistakonunni Önnu
Olafsdóttur Björnsson, sagnfræð-
ingi og blaðamanni. Á Vesturlandi
félli Ingi Björn Albertsson, Borgara-
flokki, út og við það tapaði kjör-
dæmið einum þingmanni þar sem
flakkarinn flyttist til. Á Vestfjörðum
myndi sá bláþráður sem hélt Sig-
hvati Björgvinssyni krata inni slitna
og Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir
kæmist þá inn sem eini þingmaður
Þjóðarflokksins. Hún var einnig inni í
síöustu könnun Helgarpóstsins.
Engar breytingar yrðu í Norður-
landskjördæmi vestra, en á Norður-
landi eystra félli Stefán Valgeirsson
út og Björn Dagbjartsson, fyrrver-
andi þingmaður sjálfstæðismanna,
kæmi aftur inn úr kuldanum. En inn-
koma Björns myndi kosta það að
Egill Jónsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, félli út á Austur-
landi. í stól hans settist Kristin Karls-
dóttír, fóstra á Seyðisfirði, fyrir hönd
Kvennalistans. Flakkarinn kæmi í
hlut Suðurlands og við þaö kæmi
Kristín Ástgeirsdóttir, kennari og
Kvennalistakona, inn á þing.
Þó talnameistararnir hafi fellt of-
angreinda þingmenn og sett aðra í
stað þeirra mega fleiri þingmenn ótt-
ast fylgistap sinna flokka. Jón
Sæmundur Sigurjónsson, krati á
Norðurlandi vestra, stendur tæpt,
sömuleiðis Skúli Alexandersson á
Vesturlandi og Margrét Frimanns-
dóttir á Suðurlandi, bæði Alþýðu-
bandalagsfólk.