Helgarpósturinn - 14.01.1988, Page 29

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Page 29
af músíkalíteti og hrifningareldmóði Og þetta kvöld var vel spilað af öryggi og krafti. Öll túlkun Zuk- ofskys var innblásin og rétt. Hann gjörþekkir öll stílbrigði hljómsveit- ar Haydns og Schumanns, þannig að þessi gömlu meistaraverk virka fersk og ný. Haydn virðist nú höfða til okkar æ sterkar, og ekki skil ég þá fræðimannauppbyggingu að Schu- mann hafi ekki kunnað að beita hljómsveit. Starf Zukofskys með Sinfóníu- hljómsveit æskunnar er frábært í stuttu máli sagt. Svo gott að það sprengir merkingu hástemmdra lýs- ingarorða. Atli Heimir Sveinsson Geiri Sæm — Fíllinn irk Mér leiðist að skrifa um svona plötur, sem gerðar eru af ungum mönnum sem lagt hafa fé sitt að veði. Eytt miklum og dýrmætum tíma í hugverk sitt og fengið hina ágætustu hljóðfæraleikara í lið með sér. Já, lagt allt undir, en eru þó greinilega ekki með vinningsmið- ann í vasanum. Ég fyllist einhverri vorkunnsemi þegar svona plötur eru að koma út, á sama tíma og mik- ið af góðum íslenskum plötum er að líta dagsins Ijós. Platan hans Geira Sæm hefur allt til að bera til að geta talist góð. Það er góður hljóðfæraleikur, mjög þokkalegur söngur (nema það skilst varla orð af því sem sungið er) og hljómurinn er alveg ágætur. Það er bara eitt sem er að. Lögin eru ekki nógu góð og þar með fellur platan. Það sem þó er verra er að textarnir eru sérlega lélegir, að minnsta kosti sá hluti þeirra sem skilst. Já, „Fíllinn" fellur og fær bara tvær stjörnur. Greifarnir — Dúbl í horn ★★★ Greifarnir eru fyrst og fremst popphljómsveit. Hvort þeir eru góð- ir hljóðfæraleikarar að gera merki- lega hluti tónlistarlega skiptir ekki máli þegar svona hljómsveitir eiga hlut að máli. Það er aðalatriði að þeir framreiði tónlist sína skamm- laust og séu skemmtilegir. Og Greif- arnir eru það að mati margra af yngri kynslóðinni. Ef gengið er út frá tölulegum staðreyndum eru þeir meira að segja ein skemmtilegasta hljómsveit landsins, því fram að út- gáfu þessarar plötu höfðu flest þau lög, sem frá þeim hafa komið, farið hátt á vinsældalista útvarpsstöðva þessa lands. Á „Dúbl í horn" eru þeir víða skemmtilegir en þeir sýna líka á sér aðra hlið. Alvarlegri hlið — og þó hún sé ekki alveg eins skemmtileg og hin hliðin (sú sem við höfum áð- ur þekkt), þá tekst þeim bara sums staðar ágætlega upp. Á stöku stað verður alvarlega hliðin þó slæm, eins og t.d. í laginu '85, sem hefur inni að halda afskaplega illa saminn og leiðinlegan eins konar þjóðfé- lagsvandamálatexta. Þá hefur Greifunum greinilega farið fram sem hljómsveit og ekki má gleyma þætti Tómasar upptöku- stjóra Íömassonar, sem stýrt hefur verkinu í höfn stórslysalaust. Ég verð að vísu að játa að ekki hef ég nú mikla eirð í mér til að setjast niður heima hjá mér og hlusta á þessa plötu, en eitt og eitt lag í út- varpi hljómar ágætlega í mínum eyrum, það er að segja svo framar- lega sem ég þarf ekki að hlusta á það hundrað sinnum. Og þegar á heildina er litið held ég að Greifarn- ir geti bara vel við unað. Textones — Cedar Creek ★★★★ Textones er bandarísk hljómsveit, sem kemur nánar tiltekið frá Austin í Texas. Það er kvenmaður sem fer fyrir sveitinni og heitir Carla Olson. Hún semur hin ágætustu lög, þá er hún liðtækur gítarleikari og við þetta bætist að hún er hin ágætasta söngkona. Textones flytja rokktónlist sem er einfaldrar gerðar og minnir helst á þá tónlist sem John Fogerty hefur verið að fást við. Umfram allt gera þau í Textones vel það sem þau eru að gera og í mínu safni er alltaf pláss fyrir tónlist sem þessa, því þegar um allt þrýtur stendur þetta tiltölulega gamaldags rokk alitaf fyrir sínu. BÍLA'HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSUNDS 10 SUZUKI FOX JEPPAR - með drifi á ollum. eins og landsliðið okkar 25 SUZUKi SWiFT - tískubíilinn í ár ■ ■?$, : , ■ ■■ - : . ■ ..V.: ,' ' 35 BÍLAR Dregið mánudagskvöld FLUGLEIÐIR/mr :r ;ysaöJ: * í S i /fe-Sfy **'f£**ti& *** i/f*® Eitt umslag ..engin bið! Starfsfólk Útvegsbankans segir biðröðum stríð á hendur! Þú færð þér umslag og lætur reikningana þína í það. Þú skilar umslaginu í næstu afgreiðslu bankans. Við greiðum og millifærum samdægurs. Þú færð síðan kvittanirnar sendar heim í pósti. Komdu og kynntu þér málið. Sóaðu ekki lengur tíma þínum í biðraðir. Þú getur gengið frá umslaginu heima. bað borgar sig að skipta við Útvegsbankann! --vs-- - Qc> Sl ^ffipðpjónusfá • 'V £ O S 3 A-N-K-A-N S j&hostu 1 '> vt '**M<.rSrt.lpU.-v1,-,, .. J wmbJS'Sb, „S® « ft' ;1 ftft''™*-'****’a «Kií J -U. o Utvegsbanki Islandshf HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.