Helgarpósturinn - 14.01.1988, Side 35

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Side 35
- Alfreö hefur gífurlegan stökkkraft og hér svífur hann hátt yfir vörn andstæðinga í landsleik. Helsta vopn okkar í Seoul? Alfreð Gíslason er án efa ein skærasta stjarna íslensks handknattleiks um þefesar mundir. Hann leikur í Þýska- landi, hefur gert það um fimmi ára skeið, og er nú á leið- inni heim aftur, ætlar í KR, sagðist í einhverju viðtali ekki vera mikið fyrir að flakka milli félaga. Hann hefur aðeins leikið með þremur félögum um dagana, fyrst með KA á Akureyri, þar sem hann er fæddur og uppalinn, síðan með KR og svo Tusem Essen í V-Þýskalandi. Ólíkt mörg- um öðrum íþróttastjörnum hefur hann ekki verið ýkja mikið í sviðsijósinu hér heima, enda ekki mikið gefinn fyrir að trana sér fram. Samt hefur hann sennilegast náð lengst af okkar handknattleiksmönnum á erlendri grund og sennilegast lengra en sterkustu knattspyrnumenn okkar ef hægt er að gera samanburð þar á. Að vera burð- arás í meistaraliði Tusem Essen í úrvalsdeildinni í V-pýskalandi, en þar hefur Alfreð orðið þýskur meistari tvö ár í röð, er sambærilegt við að Ásgeir Sigurvinsson hefði einhvern tíma náð að verða leikstjórnandi hjá Bayern Múnchen, eða Arnór Guðjohnsen stjórni sókninni hjá Real Madrid í framtíðinni. Það lið sem verður þýskur meistari í handknattleik, einni sterkustu hand- knattleiksdeild í heimi, er örugglega eitt af tíu bestu fé- lagsliðum í heimi í hvert sinn. Að vera lykilmaður, bæði í sókn og vörn, hjá slíku liði er frábær árangur. UPPHAFIÐ Alfreð var ekki sérstaklega efni- legur sem unglingur. Það var ekkert sem benti til þess að hann ætti eftir að verða landsliðsmaður í hand- knattleik. Hann var sæmilegur fót- boltamaður, heldur ekkert sérstak- ur þar reyndar. Gunnar Gíslason, bróðir hans, landsliðsmaður í fót- bolta, reyndar líka í handbolta, var miklu efnilegri í báðum greinum og Hjörtur, eldri bróðir Alfreðs, var lyft- ingamaður og hafði þá þegar sett mörg íslandsmet. Alfreð byrjaði að leika með meist- araflokki KA þegar hann var sautján ára, árið 1976, en það er ekki fyrr en árið eftir sem eitthvað fer raunverulega að gerast hjá hon- um. Þá kom norður hinn kunni kappi Birgir Björnsson, fyrrverandi landsliðsmaður og leikjahæsti mað- ur á fslandi þá. Birgir tók að sér þjálfun KA-liðsins og átti að koma því upp í 1. deild og ná þar með langþráðu takmarki. KA-liðið hafði mörg undangengin ár verið í ann- arri deild og oftast alveg við það að komast upp, lenti í öðru sæti oftar en tölu verður á komið og það hélt áfram meðan Alfreð lék með liðinu. Birgir var fljótur að sjá hvert efni Alfreð hafði að geyma og fyrr en varði hafði þessi piltur, sem ekki þótti brúklegur árið áður, tekið við því hlutverki að vera aðalstórskytta KA-liðsins. Alfreð er reyndar ekki alveg sammála því að hann hafi ver- ið lélegur í yngri flokkunum. Þó segir hann að það sé eflaust rétt að hann hafi verið lélegur framan af, rekur minni til að hafa verið notað- ur sem horna- og línumaður og að hann hafi alls ekki þótt sérlega fjöl- hæfur leikmaður. Hann byrjaði seint að æfa handbolta, fimmtán ára gamall, mest vegna þess að vinir hans og kunningjar tóku hann með en ekki vegna einhverra sérstakra hæfileika segir hann. Birgir Björns- son segir þetta um Alfreð og fyrstu kynni sín af honum sem hand- knattleiksmanni. „Það var ekki reiknað með miklu af honum, en ég var ekki á sömu skoðun og benti honum strax á að hann gæti náð langt en jafnframt sagði ég honum að hann myndi þurfa að leggja hart að sér. Ég var ekkert að leyna þeirri skoðun minni að þarna væri á leið- inni einn sá besti." Um þetta segir Alfreð sjálfur: „Ég var alls ekki viss um neitt slíkt, en auðvitað stefndi ég hátt. Ég æfði alltaf mum meira en félagar mínir, var mikið á aukaæf- ingum líka hjá Birgi fyrir norðan og eins eftir að ég kom suður í KR. Fyrsta takmarkið var á sínum tíma að komast inn í meistaraflokk KA og satt að segja var ég ekkert alltof bjartsýnn á það. Ég hef reynt að þróa mig áfram í gegnum tíðina og held ekki að ég sé fæddur neinn stórkostlegur hæfileikamaður, sú geta sem ég nú hef er frekar eitt- hvað sem áunnist hefur í gegnum tíðina." VILJI Mikil vinna.og ástundun hafa ein- mitt verið aðal Alfreðs í gegnum tíðina, hann var óheflaður leikmað- ur í upphafi og fram eftir ferlinum en hefur alltaf haft viljann og agann til að leggja hart að sér við að bæta það sem þurft hefur. Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari Alfreðs hjá Essen og fyrrum landsliðsþjálfari, segir einmitt að það sé kannski það skemmtilegasta við þann árangur sem Alfreð hefur náð að hann hafi þurft að leggja mikið á sig til að ná honum og sömuleiðis þurft að læra öll atriði handknattleiksins, fæst af því hafi hann haft í blóðinu, eins og sé til dæmis tilfellið með mann eins IEFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON MYND EINAR ÓIÁSON O.Fd HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.