Helgarpósturinn - 14.01.1988, Síða 39

Helgarpósturinn - 14.01.1988, Síða 39
FRJTTAPÓSTUR Lög um stjórnun fiskveiða samþykkt á Alþingi. Sjávarútvegsráðuneytið vinnur nú að endanlegri útgáfu reglugerðar í samræmi við lög um stjórnun fiskveiða, sem samþykkt voru á Alþingi aðfaranótt föstudags liðinnar viku. Jafnframt verða send út bréf til útgerða þeirra skipa sem falla undir kvóta- kerfið, þar sem mönnum er gert, eins og áður, að velja milli sóknarmarks og aflamarks fyrir tiltek- inn tíma. Bkki er um stórfelldar breytingar að ræða á framkvæmd kvótakerfisins frá fyrri lögum, en miklar breytingar verða hins vegar á veiði- stjórnun smábáta og úthafsrækjuskipa. Strax koma þó vandkvæði varðandi smábátana. Sam- kvæmt fyrri lögum voru veiðar þeirra báta sem ein- göngu stunduðu veiðar á handfæri og línu háðar banndögum í janúar, en veiðar netabáta voru undir kvóta. Núna er handfæra- og línubátum hins vegar heimilt að sækja um aflahámark og falla bann- dagar þá úr gildi. Mjög erfitt mun verða að fram- fylgja ákvæðum um banndaga í þessum mánuði þar eð lögin voru svo seint á ferð. Heimild ráðuneyt- isins til að gefa út leyfi til að veiða í dragnót hefur opnast aftur, en sú heimild féll niður frá áramótum fram að gildistöku laganna. Skýrsla um ammóníaksgeymi Áburðarverksmiðj- unnar kynnt rikisstjórn. Starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem gera átti tillögur um úrlausn vandamála vegna ammóníaksgeymis Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, hefur komist að þeirri niðurstöðu að komi mikill leki að geyminum eins og hann er nú geti það haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér og stefnt lífi starfsmanna og íbúa á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins í hættu. Líkurnar eru þó ekki taldar miklar en ekki er hægt að útiloka að slíkt geti orðið. Niðurstöður skýrslu starfshópsins voru kynntar á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag af Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Jó- hanna lagði til að byggður yrði nýr kæligeymir og þeim öryggisráðstöfunum sem nauðsynlegar eru yrði framfylgt. Að öðrum kosti yrði verksmiðjan lögð niður, einkum vegna þeirrar hættu sem er samfara staðsetningu hennar. • Við rannsóknarboranir við Njarðvík og Keflavík hefur komið í ljós að olía er í grunnvatni á svæðinu. Vatnssýni eru enn i rannsókn og ekki vitað hvort mengunin er afleiðing olíulekans í vetur eða merki eldri mengunar. Sérfræðingar sem kvaddir hafa verið til telja ólíklegt að vatnsból Njarðvíkinga og Keflvíkinga séu í yfirvofandi hættu. Steingrimur Hermannsson utanrikisráðherra, lagði fram gögn á ríkisstjórnarfundi sl. fimmtudag varðandi olíu- mengunina. Steingrímur kynnti ríkisstjórninni stöðu mála, en nánari rannsóknir á svæðinu eru fyrirhugaðar. • Þrotabú Hafskips hf. hefur verið sýknað í Skiptarétti Reykjavíkur af kröfum Ragnars Kjart- anssonar, fyrrverandi forstjóra og stjórnarfor- manns Hafskips hf., um skuldajöfnun kröfu sem hann gerði í búið vegna ógoldinna viðbótarlauna á móti kröfum búsins á hendur honum. Úrskurðað var að Ragnari bæri að greiða þrotabúinu rúmlega 2,8 milljónir króna með vöxtum vegna skuldar hans, m.a. vegna bifreiðakaupaláns, úttektar af hlaupareikningum Hafskips og oftekinna viðbót- arlauna. • Trúnaðarráð Verkamannafélagsins Dagsbrúnar samþykkti samhljóða á fundi í síðustu viku að boða fljótlega til félagsfundar þar sem leitað verði eftir heimild til verkfallsboðunar. • Pundur framkvæmdastjórnar Verkamannasam- bands íslands var haldinn á föstudag. Þar var ákveðið að fresta formannaráðstefnu sambandsins sem fyrirhugað var að halda um miðjan mánuðinn, en efna þess í stað til funda á næstunni með stjórn- um aðildarfélaganna viða um land. Ákvörðun um þessa fundi var tekin til þess að skýra sjónarmið forystu sambandsins í kjaramálum. Ennfremur til að fá viðhorf stjórna aðildarfélaganna og tillögur um hvað gera skuli. Staðan í kjaramálunum er óljós og sagði Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður VMSÍ, að uppi væru mismunandi sjónarmið um hvernig bæta skyldi kjör félagsmanna VMSÍ. Hins vegar er algjör samstaða um að laun hækki ekki öll jafnmikið i prósentum talið, lægstu launin verði að hækka mest. • Þrir menn björguðust, en tveggja er saknað, eftir að fiskibáturinn Bergþór KB 5 sökk um 8 sjómílur norðvestur af Garðskaga á Reykjanesi á föstudag- inn. Bergþór fékk á sig brotsjó er hann var við línu- veiðar og lagðist báturinn á stjórnborðshlið og sökk nær samstundis. Leit að mönnunum tveimur hefur enn engan árangur borið. • Árni Vilhjálmsson prófessor sagði sig úr banka- ráði Landsbanka íslands sl. mánudag, en hann var annar af tveimur fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í bankaráðinu. Árni tilkynnti afsögn sína með bréfi til bankaráðs og bankastjórnar Landsbankans og sendi jafnframt Þorsteini Pálssyni, formanni Sjálf- stæðisflokksins, bréf þar sem hann gerði grein fyr- ir ákvörðun sinni. Ástæða úrsagnar Árna er ágreiningur milli hans og forystumanna Sjálf- stæðisflokksins um ráðningu bankastjóra Lands- bankans í stað Jónasar H. Haralz sem gert er ráð fyrir að láti af störfum um mitt ár. Ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins höfðu afráðið að styðja Sverri Her- mannsson til starfans og höfðu skýrt Árna Vil- hjálmssyni frá afstöðu sinni, en Árni studdi Tryggva Pálsson. < w S 1= ALVÖRU VERÐLÆKKUN Tilboðsverð Nesco er langt fyrir neðan tollalækkunina Auðvitað er tollalækkunin komin til framkvæmda hjá okkur. En við gerum enn betur. Nú bjóðum við stór- lækkað TILBOÐSVERÐ á sjónvarps- tækjum, myndbandstækjum og hljóm- flutningstækjum, sem er langt fyrir neðan tollalækkunina. Staðreyndirnar hér fyrir neðan tala sínu máli: XEfMOINI CDH03 geislaspilari: bse'zr t. sssBBaöKK : ' Verð í nóv. '87 19.900 kr. stgr. Verð eftir tollalækkun 14.900 kr. stgr. TILBOÐSVERÐ 11.900 kr. stgr. XEIMOINI HV02 myndbandstæki: Verð í nóv. '87 38.900 kr. stgr. Verð eftir tollalækkun 31.900 kr. stgr. TILBOÐSVERÐ 25.900 kr. stgr. ORION 20" litsiónvcirp: Verð í nóv. '87 35.900 kr. stgr. Verð eftir tollalækkun 31.900 kr. stgr. TILBOÐSVERÐ 28.900 kr. stgr. Þetta er eins og þú sérð mun meiri lækkun en tollalækkunin hefur í för með sér, og meiri lækkun en gengur og gerist. Nú eru einnig háværar raddir um að gengisfelling sé væntanleg á næstunni. Það er því NUNA sem þú nýtir þetta einstaka tilboð Nesco því það eru takmarkaðar birgðir á þessu ótrúlega verði. nesco IRLJGFHÆGUR HF Laugavegi 10, sími 27788 Kringlunni, sími 687720 HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.