Morgunblaðið - 03.12.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.12.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1988 Hef sagt mig úr Alþýðuflokknum - segir Grétar Þorleifsson vara- formaður Sambands byggingamanna „EG HEF sagt mig úr Alþýðuflokknum og þessi úrsögn er fyrst og fremst mótmæli við því að Alþýðusamband Islands skuli líða fyrir pólitísk plott,“ sagði Grétar Þorleifsson, formað- ur Félags byggingariðnaðarmanna í Hafinarfirði og varaform- aður Sambands byggingamanna, í samtali við Morgunblaðið. „Það hefur ýmislegt komið upp tel mig hafa orðið varan við mikla á en þó keyrði um þverbak á ASÍ- þinginu um daginn," sagði Grétar. „Eg náði þar ekki kjöri sem vara- maður í miðstjórn og ég get full- yrt að Alþýðuflokksmenn unnu þar gegn mér. Ég náði þó kjöri í Sam- bandsstjómina enda þótt Alþýðu- flokksmenn ynnu gegn mér. Ég hægri sveiflu í Alþýðuflokknum. Frá þvi að Jón Baldvin tók þar við forystunni hefur mikið stokk- ast upp í flokknum og hann er ekki eins mikill verkalýðsflokkur og hann var,“ sagði Grétar Þor- leifsson. Tugir árekstra í mikilli ísingu SNEMMA morguns í gær rákust tveir bílar á í Kollafirði. Einn var fluttur á sjúkrahús úr hvor- um bíl, báðir með áverka á höfði. Annar missti meðvitund um stund. Samkvæmt upplýs- ingum lögreglu voru mennirnir ekki taldir í lífshættu. Mikil ísing var á höfúðborgarsvæðinu á föstudag, einkum aðfaranótt- ina og fyrri hluta dagsins. Tug- ir árekstra, sem rekja má til ástands gatnanna, voru til- kynntir lögreglu en aðeins var vitað um alvarleg meiðsl í þessu eina tilfelli. Lögreglumenn sögðu að það væri helst við aðstæður líkar þeim, sem mynduðust í gær, að nagla- dekk gætu skipt sköpum um hvort ökumönnum tækist að forðast árekstra. Ökumenn tveggja saltdreifingarbíla lentu í erfiðleik- um er þeir voru, snemma morg- uns, að dreifa salti til hálkueyðing- ar á svæðinu við Kleppsspítala. Þar reyndist svo hált að báðir misstu stjóm á bílum sínum. Ann- ar bíllinn valt á hliðinni og hafn- aði utan vegar, hinn lenti á um- ferðarmerki og reif það upp. Hvor- ugur ökumannanna slasast. mun hafa Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson OXULDRATTUR Skipsskrúfúr eru engin smásmíði og ekki veitir af stórum skrúíúm til að knýja áfram skuttogara, líkt og þennan, sem var í Slippstöðinni á Akureyri á dögunum. Það þarf því allmiklar tilfæringar þegar lagfæra þarf það sem fer úrskeiðis. TJtvarpsráð: Bókun vegna skemmtíþáttar Á FUNDI útvarpsráðs í gær var samþykkt bókun vegna þáttar Hermanns Gunnarssonar, „Á tali“, sl. miðvikudagskvöld. I bókuninni segir: „Vegna atriðis í þætti Hermanns Gunnarssonar sl. miðvikudagskvöld telur útvarpsráð það óviðeigandi að hafa persónulegt ólán einstakra manna í flimtingum með þeim hætti sem gert var, eða tengja óviðkomandi einstaklinga slíkum málum. Það er ekki Ríkisút- varpinu samboðið." Tveir dýrbít- ar skotnir TVEIR hundar voru skotnir í gær við bæinn Litlu-Fellsöxl I Skilmannahreppi. Höfðu þeir lagst þar á fé og drepið eina kind. Komið var að hundunum þar sem þeir ólmuðust í fénu og lá þá ein kindin dauð eftir þá og sá á öðrum. Ekki var í gær vitað hvað- an þessir hundar voru. Áfengi á sérkjörum: Ráðherra höfðar einkamál til embættismissis dómara Fimm keyptu áfengi sem handhafar forsetavalds á síðustu sjö árum FORSETI íslands féllst í gær formlega á tillögu dómsmálaráð- herra um að víkja Magnúsi Thor- oddsen úr embætti hæstaréttar- dómara um stundarsakir, meðan dómstólar fialla um áfengiskaup hans sem handhafa forsetavalds. Ákveðið hefúr verið að höfða einkamál til embættismissis, sem rikislögmaður rekur fyrir hönd dómsmálaráðherra. Ráðherra sagði i gær að sú ákvörðun væri studd með tilvísun í lagaákvæði sem kveður á um að ráðherra geti vísað dómara úr starfi um stundarsakir ef hann telur hann hafa rýrt svo álit sitt siðferðilega að hann megi ekki lengur gegna dómaraembætti. Fjármálaráð- herra hefúr ákveðið, að hér efitir fari kaup handhafa forsetavalds á áfengi eingöngu í gegnum embætti forseta íslands, hafi þeir gestgjafaskyldum að gegna í Qarveru forseta. I gær sendi fjármálaráðherra frá sér fréttatilkynningu, þar sem kem- ur fram að fjórir forsetar Hæsta- réttar árin 1982-1988 keyptu áfengi á sérverði sem handhafar forsetavalds. Þá keypti forseti sam- einaðs þings árin 1984-1988 einnig áfengi á sérkjörum. Upplýsingarnar miðast við árin 1382-1988, að báð- um meðtöldum. Tilkynning fjármálaráðherra er svohljóðandi: „I framhaldi af um- ræðum um kaup Magnúsar Thor- Olafiir Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra: Hækkun vörugjalds snertir ekki daglegar nauðsynjar launafólks Svik við neytendur, segir Þorsteinn Pálsson ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fiármálaráðherra„ kynnti frumvarp um hækkun vörugjalds fyrir fúlltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í gær, en segfr að ekki hafi verið rætt efiiislega hvort flokkarnir styddu framgang málsins á þingi. Ráðherra segir, að fi-umvarpið sé þannig sniðið að það snerti ekki daglegar nauðsynjar launafólks. Hann stefinir að því að leggja frumvarpið fram á mánudag og segir æskilegt að það verði afgreitt á sem skemmstum tíma. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vonast ráðherra til að frumvarpið verði að lögum í lok næstu viku. Ólafur fundaði í gær með fulltrú- um Kvennalista og Sjálfstæðis- flokks, kynnti þeim þau áform sín að fjalla um vörugjaldsfrumvarpið með fulltrúum stjórnarandstöðunn- ar og bað þá að ræða í sínum flokk- um hvort þeir vildu eiga aðild að slíkri umfjöllun. Þá var ákveðinn fundur ráðherra og fulltrúa Borg- araflokks í dag. „Það var ekki rætt efnislega hvort flokkamir vildu styðja framgang frumvarpsins á þingi," sagði ólafur. Þegar matarskatturinn svonefndi var lagður á voru tollar og vöru- gjöld lækkuð. Fjármálaráðherra var spurður hvort Alþýðubandalagið væri ekki andsnúið matarskattin- um. „Það er alveg rétt að við Al- þýðubandalagsmenn töldum matar- skattinn ekki gott skattform," svar- aði ráðherra. „Við stefndum að því einnig að lækka verð á nauðsynleg- um matvælum og nota frekar tekju- öflunina til þess. Hins vegar féll- umst við á það þegar þessi stjóm var mynduð að matarskatturinn héldi gildi sínu í eitt ár og pening- amir væru frekar notaðir til þess að greiða niður verð á nauðsynleg- um matvælum. Það var nú meðal annars gert á kjöttegundum þegar ríkisstjórnin var mynduð. Þetta vörugjald er þannig sniðið að það snertir ekki daglegar nauðsynjar launafólks. Að því leyti er það í samræmi við það grundvallaratriði í tekju- og skattastefnu ríkisstjóm- arinoar að reyna að hlífa tekjulágu fólki og brýnustu lífsnauðsynjum launafólks," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra. Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra í síðustu ríkisstjórn, var spurður hvort hann gæti stutt fyrirhugaðar vömgjaldshækkanir. „Málið er ósköp einfalt. Það er búið að gera grein fyrir því í greinar- gerð fjárlaga að þetta er partur af tekjuöflunarforsendum fjárlaga, þetta er afgreitt mál milli þing- flokka ríkisstjómarinnar.“ Jón svar- aði ekki spurningu um hvort málið hefði verið afgreitt með hans stuðn- ingi. „Mér sýnist að þama sé verið að stefna inn á mjög varasama braut," sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég hef auðvitað ekki séð þetta frum- varp og get þess vegna ekki dæmt um það í einstökum atriðum. En, í heild sinni er alveg augljóst að það er ekkert tilefni til þess að hækka verð á þessum vömm með þessum hætti. Eg tel þar að auki að það sé mjög varasamt að bijóta niður þá einföldun á tolla- og vömgjalda- kerfínu sem ákveðin var í fyrra. Ég minni á að lækkun tolla og vöm- gjalda í fyrra kom á móti því að 25% söluskattur var lagður á allar matvömr. Það er að mínu mati al- veg fráleitt að koma svo ári síðar með fmmvarp um hækkun gjald- anna, ef ekki fylgir um leið endur- skoðun skattlagningar á matvæli þar sem þessir þættir vom óijúfan- lega tengdir í skattkerfisbreyting- unni í fyrra. Það em hrein svik við neytendur ef þessi hluti er dreginn til baka núna án þess að skattlagn- ingá matvæli verði endurskoðuð." oddsens hæstaréttardómara á áfengi á árinu 1988, sem hann fékk á sérkjörum, hefur verið óskað upp- lýsinga um áfengiskaup handhafa forsetavalds á undanfömum ámm. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að veita þessar upplýsingar vegna eðl- is málsins. Eftirfarandi upplýsingar miðast við tímabilið 1982-1988. Mag^nús Thoroddsen keypti á þessu ári 1440 flöskur af áfengi á sérkjömm og var það allt sterkt vín. Á árinu 1987 keypti Magnús 720 flöskur af áfengi, þar af 636 flöskur af sterku víni. Aðrir hæstaréttardómarar, sem verið hafa handhafar forsetavalds á þessu tímabili, hafa keypt áfengi á sömu kjömm sem hér segir: Magnús Torfason keypti 216 flöskur á árinu 1986 og 174 á árinu 1985, þar af 156 af sterku fyrra árið og 92 seinna árið. Þór Vil- hjálmsson keypti 387 flöskur af áfengi á árinu 1984 og 447 á árinu 1983, þar af rúmlega 230 flöskur af sterku áfengi hvort árið. Logi Einarsson keypti 180 flöskur af áfengi á árinu 1982, þar af 48 af sterku. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fyrrverandi forseti sameinaðs þings, keypti 246 flöskur árið 1988, 444 flöskur árið 1986, 216 flöskur 1985 og 324 flöskur 1984. Skipting er nokkuð jöfn á milli sterks og létts víns og um er að ræða margar tegundir af hvom. Aðrir handhafar forsetavalds hafa ekki keypt áfengi á þessum kjörum á tímabilinu.“ Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, ákvað í gær að kaup handhafa forsetavalds á áfengi á sérkjömm fari hér eftir í gegnum embætti forseta íslands. „Ég tel eðlilegt að tilefni slíkra áfengis- kaupa handhafa forsetavalds séu vegna gestgjafaskyldu þeirra, ef þeir verða að halda veislur sem for- seti héldi ella. Og það er ástæða til að ítreka, að handhafar forseta- valds verða ávallt að koma fram þrír saman," sagði Ólafur. Halldór Ásgrímsson, dómsmála- ráðherra, sagði í gær áð hann hefði ekki séð þessar tölur og vildi því ekki tjá sig frekar um málið. Sjá forystugrein á miðopnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.