Morgunblaðið - 28.05.1964, Qupperneq 5
Fimmtucfagtrr 28. maí I9S4
MORGUNBLAÐID
5
Á ÞESSARl mynd sjáití þið heilmikla skrúðgöngu koma gangandi
frá tjörninni í garöi konungshallarinnar brezku, Buckingham
Palace.
. Þetta er andamamma með 11 unga á eftir sér.
Hún komst í svolítil vandræði við hliðið, en lögregluþjónninn á
mvndinni hjálpaði upp á sakirnar og stjórnaði siðan umferðinni
yfir mikla umferðargötu, sem þarna er nálægt,
Andamamma var að í'ara með börnin sín í garðinn hjá St. James.
SÖFNIN
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er
opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu
daga frá kl. 1:30—■*. * verð
ur safnið opið alla daga á sama tíma
nema laugardaga.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS er opið
þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga
og sunnudaga frá 1.30—4 e.h.
. LISTASAFN iSLANDS ei opið á
þriðjudögum, fimmtudögum laugar-
dögum og sunnudögum 6.1 13.30—16
Listasafn Einars Jónssonar er opið
kl. 1.30 — 3.30.
Bókasafn Seltjarnarness: Opið er
Mánudaga kl. 5,15—7 og 8—10 Mið-
vikudaga kl. 5,15—7. Föstudaea kl.
Bókasafn Kópavogs 1 Félagsheimil-
inu er opið á Þriðjudögum, miðyiku-
dögum, fimmtud. og föstud. kl. 4,30
til 6 fyrir börn, en kl. 8,15 ti! 10
fyrir fullorðna. Barnatimar i Kárs-
Borgarbókasafnið: Aðalsafnið Þing-
holtsstræti 29 A, sími 1-23-08. Útláns-
daga 2-7, sunnudaga 5-7. Lesstofa 10-
10 alla virka daga, laugardaga 10-7.
sunnudaga 2-7. Útibúið Hólmgarði 34,
opið 5-7 alla virka daga nema iaug-
ardaga. Utibúið Hofsvallagötu 16. Op-
tð 5-7 alla virka daga nema laugar-
daga. Utibúið við Sólheima 27. Opið
fyrir fullorðna mánud., miðvikud. og
föstudaga 4-9, þriðjudaga og fimmtu-
daga 4-7. Fyrir börn er opið kl. 4-7
alla virka daga, nema laugardaga.
<3>--------------------------
Andaspjall
HÉR kemur svo önnur anda-
mamma, en hún er frá Stokk-
hólmL Einnig hún ferðast með
litlu krílin í lögregluvernd til
þess að komast úr garðinúm
sínum y.fir að Riddarafirðinum.
Sú hefur ekki nema 7 börn að
passa, en faiiegur er fótaburður-
inn hjá þeim og hermannlega er
sá síðasti vaxinn!
• •• ■
að hann hefði verið að fljúga
yíir Tjörnina í gær í góða
veðrinu. Fyrir utan Slökkvistöð-
ina hafi nokkrir brunaverðir ver
ið að sóla sig, þegar allt í einu
gall í brunabjöllu. Og hvílík við
brögð, sagði storkurinn. Engu
munaði, að þeir settu mig um
koll. Storkurinn sagðist hafa
eetzt upp á þakið á bil, sem ljós-
myndari Mbl. ók, og síðan var
ekið af stað á ofsahraða, og
reyndist Slökkviiiðið komið jafn
enemma á staðinn og Ijósmyndar
inn, og þó þurftu þeir að aka
út um hinar þröngu hurðir þar
á stöðinni.
Sem betur fer var þetta ekki
ítor brunL cðeins kaffikanna,
sem skilin hafði verið eftir á raf
magnshellu, sem lifði á, inni í
læstri íbúð. Brunalykt hins vegar
ósvikin, og þurfti að brjóta upp
hurðina.
En það er annað, sagði stork-
urinn, sem e- aðalatriðið í mál-
inu, og það er hin þrönga út- og
innkeyrsla úr bifreiðargeymslu
Slökkvistöðvarinnar. Aldeilis er
það stórmerkilegt, að svona nokk
uð skuli ekki vera lagfært, sagði
etorkurinn um leið og hann flaug
lipp á turninn á Slökkvistöðinni
og stóð þar á annarri löppinni.
FRÉTTIR
Minningarspjöld barnaspítalasjóðs
Hringsins fást á eftirtöldum stöðum:
Skartgripaverziun Jóhannesar Norð-
fjörð, t Eymundsonarkjallaranum,
verzluninni Vesturgötu 14, verzlun-
inni Speglinum, Laugaveg 48, Þor-
steinsbúð, Snorrabraut 61 og Vestur-
bæjarapóteki, Holtsapóteki og hja
Sigriði Bachmann, Landspítalanum.
Sjómannadagsráð Reykjavíkur bið-
ur þær sklpshafnlr og sjómenn sem
ætla að taka þatt i kappróðri og
sundi á Sjómannadaginn, sunnndag-
inn 7. júni n.k. tð tilkynna þátttöku
sína scm fyrst í síma 15131.
Frá Guðspekifclaginu:: Sumarskóli
félagsins verður haldinn i Hlíðardals-
skóla dagana 13. til 25. júní n.k. Aðal
fyrirlesari skólans verður Bretinn
Edward Gall, scm var forseii skozkii
deildarinnar árin 1045 — 1955. Allal
upplýsingar gefur Anna Guðmunds
dóttir Hagamel 27. Sími 15569.
Frá Mæðrastyrksnefnd.
Konur, sem óska eftir að fá Sum-
ardvöl fyrir sig og börn sín 1 sum-
ar á heimili Mæðrastyrksnefndar að
Hlaðgerðurkoti í Mosfellssveit tali við
skrifstofuna sem fyrst. Skrifstofan er
opin alla virka daga nema laugar-
daga frá 2—4. Sími 14349.
Fyrrvrandi nemcndur Löngumýrar-
skóla. Þið sem hafið áhuga á þvi
að Vera með i hópferð á -afmælismót-
ið 30. maí hringi 1 síma 40682 eða
40591.
Öfugmœlavísa
Músin skrifar manna bezt,
merkust allra dýra.
Asninn sækir ailra mest
eftir skipi að stýra.
H O R N I Ð
Konur byggja loftkastala nú til
I dags, en nú hafa þeir oliukynd-
I ingu, sjónvarp og bílskúr.
Á sjóskíðum
UM síðastliðna helgi gaf að líta óvenjulega sjón á Reykjavikur-
höfn. Þar voru brezkir sjóiiðar af brezka eftirlitsskipinu Malcolm
að leika sér á sjóskíðum. Máski á þetta eftir að verða uppáhalds
íþrótt Reykvíkinga hér við sundin bláu, þegar fram líða stundir.
Reglusöm stúlka
getur fengið leigt 1 herb.
og eldhús ásamt aðgangi að
baði og síma. Tilboð send-
ist afgr. Mbl. fyrir föstu-
dagskvöld, merkt: „Hag-
kvæmt — 9706“.
KONA
með 2 ára dreng óskar eftir
ráðskonustöðu á fámennu
heimili. Svar óskast sent
Mbl. fyrir mánaðamót,
merkt: „Ráðskona — 3054“
i.
Safnaðarfundur
í Dómkirkjusöfnuðinum í Reykjavík verður hald-
inn í Dómkirkjunni sunnudaginn 31. maí 1964 og
hefst kl. 17. -L
DAGSKRÁ:
1. Sóknargjöld.
2. Önnur mál, sem löglega verða upp borin.
Sóknarnefndin.
íhúð til sölu
á 4. hæð í sambýlishúsi við Kleppsveg er til solu
næstum ný, glæsileg íbúðarhæð, 3—4 herbergi,
eldhús, bað o. fl. Innréttingar í íbúðinni eru vandað-
ar og gólf teppalögð. — Mjög fagurt útsýnL —
Stærð íbúðarinnar um 130 ferm.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Einbýlishús
Glæsilegt einbýlishús við Heiðargrrði til sölu. —
Ný viðbygging. — Kjallari undir öllu húsinu.
Upplýsingar gefnar á lögfræðiskrifstofu:
ÁRNA GUÐJÓNSSONAR, HRL.
Garðastræti 17. — Símar 12831 og 15221.
Sfúlka
Ábyggileg stúlka óskast til afgreiðslustarfa í sér-
verzlun í Miðbænum. Umsóknir sendist í Pósthólf
502, Reykjavík.
Skrifs fofus tarf
Útflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir stúlku
til vélritunar og almennra skrifstofustarfa. Þarf
að geta sett upp verzlunarbréf og vélritað á ensku.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 10. júní, 1964, merkt:
„3053“.
Frá bœjarskrifstofunni
í Kópavogi
Vegna flutninga verða skrifstofurnar lokaðar á
föstudag og laugardag nk., á mánudag 1. júní verða
skrifstofurnar opnar á venjulegum tíma á III. hæð í
félagsheimiinu.
Bæjarstjórinn.
LONDON
DÖMUDEILD
— ★ —
H E L A N C A
síðbuxur
í úrvali.
— Póstsendum —
— ★ —
LONDON
DÖMUDEILD
Austurstræti 14.
Sími 14260.