Morgunblaðið - 28.05.1964, Qupperneq 12
12
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. maí 1964
Lærisveinn Gandhís
„LJÓSIÐ hefur slokknað",
sagði Gulzari Lal Nanda,
þegar hann tilkynnti lát
Jawaharlals Nerús, forsætis-
ráðherra Indlands, sem verið
hefur sameiningartákn þjóð-
ar sinnar og leiðtogi frá því
að hún fékk sjálfstæði fyrir
17 árum. Nehru var læri-
sveinn Mahatma Gandhís og
áhrifamestur liðsmanna hans
í Þjóðþingsflokknum. Gandhí
lert á þennan brezkmenntaða
þjóðernissinna, sem son sinn
í andanum og arftaka á
stjórnmálasviðinu.
Frá því að Indland varð
frjálst hefur þjóðin samein-
azt um Nehru, veitt honum
stuðning sinn á þingi og hyllt
hann ákaft hvenær sem tæki
færi gast. Jafnvel áminning-
um hans var stundum tekið
með fögnuði.
Skömmu eftir að Indverjar
fengu sjálfstæði mótaði
Nehrú utanríkisstefnu þeirrai,
hlutleysisstefnuna. Margar
þjóðir, sem síðar hafa fengið
Lögrfræðingurinn
Jawaharlal Nehru
sjálfsstæði hafa fylgt for-
dæmi Indverja og á alþjóða-
vettvangi hafa Nehru og
þjóð hans gegnt forystuhlut-
verki meðal hlutlausra ríkja.
(Heilmildir greinarinnar, sem
hér fer á eftir um hinn látna
forsætisráðherra eru: Svipmynd
I Lesbók Mbl. 2. des. 1962, „Ind-
Iand” í flokki Almenna bóka-
félagsins um lönd og þjóðir,
„Observer“ og NTB)
JAWAHARLAL NEHRÚ var af
einni tignustu ætt Kasmír. Hann
fæddist 14. nóvember 1889 í
Allahbad og var faðir hans, Motil
al Nethru, einn af auðugustu og
hæfileikamestu lögfræðingum
Indlands, mikill aðdáandi Breta
og brezkrar menningar ,en síðar
barðist hann við hlið sonar síns
fyrir sjálfstæði Indlands.
Bernskuheimili Nehrus var mjög
iglæsilegt og bar al'þjóðlegan
svip. Fyrstu kennarar hans voru
Bretar og til Bretlands hélt hann
sem unglingur. Fyrst stundaði
hann nám í Harrow, en hélt síð-
an ti'l Cambridge til lögfræði-
náms. Nehru var mjög vinsæll
meðal skólafélaga sinna vegna
hæversku sinnar, rólyndis og
festu. í Cambridge umgekkst
hann marga uniga indverska þjóð
ernissinna og kynntist skoðun-
um þeirra. Heim kom Nehru 1912.
Hann sneri sér ekki að stjórn-
málum þegar í stað, en hóf lög-
fræðistörf í Allahbad. Skömmu
síðar gekk hann í Þjóðþings-
flokkinn og faðir hans hvatti
hann til þess að taka virkan þátt
í stjórnmálum.
Nehru kvæntist 1916, 17 ára
stúlku, sem hét Kamala. Það
voru foreldrar þeirra, sém réðu
ráðahagnum. Kamala var ó-
menntuð, en hafði mjög líka skap
gerð og eiginmaður hennar. Hús-
ið, sem þau bjuiggu í var mjög
giæsilegt, en það var nokkurs
konar gullibúr fyrir Kamölu. Eig
inmaður 'hennar var oft að heim-
an og þegar hann var heima
skipti hann sér litið af henni.
Hún lézt 1936 og eftir dauða
hennar skrifar Nehru: „Hún
veitti mér styrk, en hún hlýtur
að hafa þjáðst og fundizt hún
vera vanrækt. Það hefði jafnvel
'hvörfum í sögu Indlands. Milli
10 og 20 þúsund Indverjar höfðu
safnazt saman í garði f Amritsar,
þrátt fyrir bann stjórnarinnar
við opinberum fundum. Brezkur
hershöfðingi, Reginald Dyer,
kom með hersveit á vettvang og
skipaði mönnum sínum að hefja
skothríð á mannfjöldan í þeim
tilgangi, eftir því sem hann sjálf
ur sagði síðar, að framkalla
„nægilega sterk siðferðileg
áhrif“. Skothriðin stóð í 10 mín-
útur, og að minnsta kosti 379
menn létu lífið og 1140 særðust.
Atvik þetta vakti mikla reiði
meða’l Indverja af öllum stéttum
og sameinaði þá í andstöðunni
gegn Bretum. Hjálparvana gegn
svona grimmileigri valdbeitingu
leituðu indverskir stjórnmálaleið
togar á náðir Gandhís. Þeir sáu
sína einu von í hinni róttæku
andspyrnuhreyfingu hans. Meðal
þessara manna var Nehru og með
fordæmi sinu fékk hann ýmsa
Indverja, sem hlotig höfðu vest-
ræna menntun, til a ðláta af tor-
tryggni gegn Hindúasið Gandhis.
Eftir því sem árin liðu varð
Nehru áhrifamestur' meðal liðs-
manna Gand'hís í Þjóðþings-
floikknum. 1929 bar hann, sem
forseti flokksins, í fyrsta sinn
fram ályktun um algert sjálf-
stæði Ind'lands. Nehru studdi
stefnu Gand-hís um aðgerðalausa
andstöðu og leit á 'hana sem eina
vopnið, er Indverjar gætu beitt
gegn Bretum. Nehru sat oft í
fangelsi Breta vegna baráttu
sinnar fyrir sjálfstæði Indlands.
í þessari baráttu sýndi Nehru
óvenjulegt hugrekki, líkamlegt
þolgæði og persónuleiki hans
hreif með sér sljóa fólksmergðina
og féfck hana til þess að samein-
ast í baráttunni fyrir fullveldi
sinu. Meðan Nehru sat í fangels-
um Breta igafst 'honum tími til
íhugunar og sjá'lfsskoðunar og
Jawaharlal Nehru, forsætisráðherra Indlands.
Sameiningartákn Indlands
verið betra að sýna henni óvin-
gjarnleika, en þessa hálf-
gleymsku og tilviljanakenndu
umgenigni.“
Jawaharlal og Kamala eignuð-
ust eitt barn, Indiru, sem fædd-
isf 1917 og 'hefur látið mikið á
sér kveða í stjórnmálum Ind-
lands .Indira var við banabeð
föður síns.
Það sem endanlega réði úrslit-
um u-m, að Nehru hóf afskipti
af frelsisbaráttu þjóðar sinnar,
var atburður í Púnsjab 13. apríl
1919, en sá atburður olli straum-
ritin, sem hann samdi í fangels-
unum hafa kynnt mannkyninu
hugarheim hans. Meðal þeirra
eru „Sjálfsævisaga", sem ber hug
sjónamanninum vitni, „Uppgötv
un Indlands", sem hefur ein'kenni
rómantísks og listræns skapferlis
og „Leiftur úr mannkynssög-
unni“, sem dregur upp mynd af
íburðinum, glæsileikanum og
ógæfunni í sögu mannanna og
birtir lesandanum innsýn raun-
vísindamannsins í samleik frum-
afla mannkynssöguflnar.
Þegar Nehru talaði við bændur átti hann það til að skamma þá eins og óþæg börn fyrir kúadýrkun
o.fL Samband hans við alþýðuna var nefnt „darsjan“ heilagt samneyti).
Hin yfirgripsmifclu rit Nehrus
ættu að hafa opnað öllum mönn-
um hugarheim hans, en á Vestur
löndum er hann talinn bera vi'tni
„óræðri hugsun Austurlanda" og
hinir rétttrúuðu í Indlandi líta
hann sem óvelkomið dæmi um
„vestræna menningu". Nehru hef
ur sjálfur sagt, að hann eigi sér
rætur bæði í Austri og Vestri,
stingi allsstaðar í stúf og eigi
hvergi heima.
Á árunum fyrir síðari heims-
styrjöl'dina varð gagnger breyt-
ing á stjórnmálum Indlands.
Starfsemi Gandhís og umræður-
í brez'ka þinginu um lögin frá
1935, sem veittu Indverjum tak-
marikaða sjálfsstjórn, sýndu að
brezka 'heimsveldið var ekki ó-
hagganlegt. Indverjar tóku smám
saman að hugsa um framtíðar-
stjórn landsins eftir að Bretar
væru farnir. Líkur bentu til þess
að stund frelsisins væri ekki
langt undan. Þá dró Gand'hí sig
heldur í hlé í stjórnmá'labarátt-
unni og helgaði krafta sína æ
meir vandamálum alþýðunnar.
Augljóst var, að Nehru yrði eftir
maður Gandhís á stjórnmálasvið-
inu, því að Gandhí leit á hann
sem son sinn í andanum. Þótt
Gandhí og Nehru væru sammála
í baráttunni fyrir sjálfstæði Ind-
lands, greindi þá á um framtíð
þess .Gandhí, hinn heittrúaði
Hindúi, hafði litla trú á tækni-
legum framförum og vísindum
og vildi, að Indverjar héldu sín-
um fyrri búskaparháttum. Nehru
lét sig minna varða hinn trúar-
lega grundvöll siðgæðisins og
hafði trú á framtíð Indlands sem
iðnaðarlands, trúði á þjóðfélags-
legar umbætur og mátt vísind-
anna.
Við upphaf heimstyrjaldarinn-
ár síðari varð ljóst, að ekki
myndi líða á löngu þar til Bret-
ar afsöluðu sér yfirráðum yfir
Indlandi. Þegar árið 1939 krafð-
ist Þjóðþingsflofckurinn sjálfstæð
is tafarlaust, en brezka stjórnin
neitaði að verða við þeirri kröfu.
Flofckurinn átti þá ráð!herra I 7
af hinum 11 fylkjum Indlands og
skipaði hann þeim að segja af
sér. Áformað hafði verið að Ind-
verjar fengju í hendur ö1!! völd
nema í hermálum, en það fór út
um þúfur. Nehru var svarinn and.
stæðingur nazista og fasista, og
talið er að það hafi ráðið nokkru
um, að Indverjar notuðu sér ekki
'hina erfiðu aðstöðu Breta á styrj-
aldarárunum til þess að igera upp
reisn gegn þeim. En Þjóðþings-
flokkurinn endurnýjaði kröfu
sína um sjálfstæði þegar
1942 og þá voru Gandhí, Nehru
og fleiri þjóðernisleiðtogar fang-
elsaðir. Þetta var í niunda og
síðasta sinn, sem Nehru sat í
fangelsi Breta.
Sjálfstæði Indlands komst á
dagskrá í Bretlandi á ný 1945,
og Clement Attlee, forsætisráð-
herra lýsti því yfir ag Bretar
myndu yfirgefa Indland ekki sið
ar en í júní 1948. Sem helzti
stjórnmálaleiðtogi Þjóðþings-
fiokksins þótti Nehru sjálfkjör-
inn forsætisráðherra og 1946 hóf
hann undirbúning að myndun
bráðabirgðastjórnar alls landsins.
Múhameðstrúarmenn undir for-
ystu Múihcimeðs Alí Jinnah,
kröfðust þess að Indlandi yrði
skipt og stofnað sjálfstætt rifci