Morgunblaðið - 19.08.1965, Side 8
8
MORCUNBLADID
Fimmtu'dagiír 19. ágúst 1965
Syndafallið á fjölunum
eftir 3 vikur
Þorsteinn Ö. leikur i Endasprettinum
NÆSTKOMANDI mánudag tek-|
* ur Þjóðleikhúsið til starfa eftir
sumarleyfið. Mbl. spurðist fyrir
um það hjá Þjóðleikhússtjóra,
hver yrðu fyrstu verkefni leik-
hússins. Fyrsta leikritið í haust
verður Syndafallið eftir Arthur
Miller og verða teknar upp æf-
ingar á því aftur á mánudag.
f aðalhlutverkum eru Herdís
Þorvaldsdóttir og Rúrik Haralds
son. Leiritið var fullæft án leik-
tjalda fyrir sumarleyfin, en leík
tjöld hafa nú verið unnin og
hægt að byrja æfingar með
þeim. Væntanlega verður frum-
sýning 10. september.
Þann fyrsta september hefj-
ast æfingar á Afturgöngunum
eftir Ibsen, en norski leikstjór-
inn Gerda Ring kemur og setur
það á svið. Bjarni Benediktsson
frá Hofteigi þýddi leikritið í vor
og sumar. Aðalhlutverkin leika
Gunnar Eyjólfsson og Guðbjörg
Þorbj arnardóttir.
Einnig verður nú tekið til æf-
inga leikrit eftir Peter Ustinoff,
sem líklega hlýtur nafnið Enda-
spretturinn, en það heitir á frum
málinu Photofinish. Þorsteinn Ö.
Stephensen leikur aðalhlutverk-
ið, en hann hefur ekki leikið
hjá Þjóðleikhúsinu síðan í ís-
landsklukkunni er hún var sýnd
í tilefni af Nobelsverðlaunum
Halldórs Kiljans Laxness 1956.
Þetta eru þau leikrit sem nú
í haust verða tekin til æfinga
og byrjað verður að sýna fyrri
hluta vetrar.
Jane Fonda
ogRoger Vadim
ganga í
hjónaband
Las Vegas, 16. ágúsrt (AP)
Á LAUGARDAGINN gengu í
hjónaband í Las Vegas banda
rísika leikikonan, Jane Fonda,
og franski leiks'tjórinn
>g kvikmyndaframleiðandinn,
Etoger Vadim. Jane er dóttir
leikarans fræga, Henry
Fonda, en hann gat ekiki verið
viðstaddur brúðkaupið vegna
'anna I New York. Þetta er
fyrsta hjónaband Jane, en hún
ar þriðja kona Vadims. Fyrsta
kona hans var Brigitte Bardot,
;n önnur dansika kvikmynda-
leikkonan, Anette Ströyberg.
Um miðja vik>una hailda
brúðhjónin til Parísa-r. Þar
aetlar Vadim að hefja gerð
nýrrar kvifcmyndar og leikur
kona hans aðalhlutverkið.
Haflinger í reynsluakstri í Skerjafirði.
Haflinger — ný
landbúnaðar-
Margir þekktu
Jeppa úti á landi
Sýndur 43 sinnum á 43 dögum
bifreið
JEPPAFLOKKURINN svnefndi,
þ.e. leikflokkurinn sem fór með
leikritið „Jeppa á Fjalli“ í leik-
för um landið, er kominn heim.
Jeppaflokkurinn hafði 43 sýning
ar á 43 dögum á 40 stöðum á
Norður- Vestur- og Austurlandi
við mjög góðar undirteknir.
— Jeppi á marga gamla vini,
sögðu þeir Karl Guðmundsson
og Jón Kjartansson, er þeir litu
inn á Mbl. í gær. Fólk þekkir
hann ákaflega víða. Við hittum
t.d. 3 fyrrverandi Jeppa, einn í
Bolungarvík, annan á Sauðár-
króki og þann þriðja í Vopna-
firði. Sá síðastnefndi er Nikulás
Albertsson, sem í 40 ár hefur
verið viðriðinn leiklistarstarf-
semi á Vopnafirði og árið 1918
Myndorleg gjöf
tíl Sólvangs
Hinn 9. ágúst ’65 barst Sólvangi
svohljóðandi bréf frá herra Páli
Guðmundssyni Höfða v/Hvamms
tanga: Hér með sendi ég Sól-
vangi, Hafnarfirði kr. 20.000,00
— tuttugu þúsund krónur 00/100,
til minningar um móður mína,
Guðrúnu Daníelsdóttur og syst-
ur mína, Jónu Helgadóttur. minn
ugur þess, að móðir mín naut
skjóls og aðhlynningar á ævi-
kvöldi sínu á Elliheimili Hafnar-
fjarðar.
Fjárhæðinni má ráðstafa eftir
ákvörðun forstjóra Sólvangs og
Bæjarráðs, þó legg ég til að fénu
þýddi hann Jeppa á Fjalli, stjórn
aði leiksýningunni, lék Jeppa og
samdi lokasöng, sem hann leyfði
okkur að heyra.
Ferðin gekk vel, að sögn þeirra
félaga. Að vísu með tilheyrandi
bilunum á farartækjum, en
aldrei þurfti að fella niður sýn-
ingu af þeim sökum. Jepparnir
björguðu því, enda tókst alltaf
að fá jeppa til að bjarða málinu
og flytja leikara og útbúnað á
sýningarstað.
Nú eru leikararnir aðeins að
kasta mæðinni, en síðan er ætlun
in að sýna á Suðvesturlandi, fara
á Suðurnes, á Akranes og í Borg
arnes og til Vestmannaeyja og
byrja væntanlega um næstu
helgi.
verði varið til kaupa á einhverj-
um hlut, sem megi verða til
ánægju vistfólki á dvalarheimili
því, sem í undirbúningi er að
byggja á Sólvangi".
Sólvangur þakkar innilega
þessa höfðinglegu gjöf og þá vin
semd, sem gefandinn með henni
sýnir stofnuninni.
Hafnarfirði, 16. ágúst 1965.
F.h. Sólvangs:
Jóh. Þorsteinsson.
Vatnslitamyndír
í IViokkakaffi
EGGERT Laxdal sýnir um
þessar mundir um 30 vatnslita-
myndir i Mokkakaffi við Skóla-
vörðustíg.
Vinabæjofundur
í Kópavogi
í SAMBANDI við XIX. norræna
skólamótið bauð Norrænafélagið
í Kópavogi þátttakendum þess,
sem komu frá vinabæjum Kópa-
vogs til kaffidrykkju og kynnis-
ferðar um Kópavog og nágrenni
að kvöldi laugardagsins 23. júlí
s.l. Um 20 manns þekktust boðið,
flestir frá Þrándheimi í Noregi,
ennfremur frá Odense í Dan-
mörku og Norrköping í Svíþjóð.
Því miður gat enginn komið frá
Tampere í Finnlandi, en allir
Færeyingarnir á skólamótinu,
fjórir talsins, voru meðal gest-
anna.
Formaður félagsins, Hjálmar
Ólafsson, bæjarstjóri, bauð hóp-
inn velkominn, bauð honum
á skriístofu sína og rakti þar
sögu byggðarinnar í stuttu máli.
Því næst var ekið um bæinn
og komið við í skólunum, þar
sem skólastjórarnir sýndu gest-
unum húsakynni. Þá var sezt að
kaffiborði í Félagsheknilinu, þar
tóku til máls fulltrúar vinabæj-
anna. Axel Benediktsson og
Hjálmar Ólafsson þökkuðu kenn
urunum komuna. Síðan var ekið
um Álftanes og Hafnarfjörð und
ir leiðsögn formanns félagsins.
Veðurblíða átti sinn þátt í að
auka á ánægju þessarar kvöld-
stundar.
Meint ölvun við
akstur
Akranesi, 17. ágúst. —
ÞAÐ er sjaldigæft að varnarliðs-
menn sjáist hér í bænum. Þó bar
út af þessu í fyrradag. Lögregl-
únni var til'kynnt að Ghervolet-
bíM með 3 varnarliðsmönnum
seki ógætilega og fremur glæfra-
lega í nágrenni bæjarins. Lög-
regilan fór á stúfana og fann
mennina, nýkamna inn á hótelið.
Hún fór með einn manninn, sena
kvaðst hafa ekið bifreiðinni á
sjúkralhúsið tiil blóðrannsóknar.
Lögreglan ætlaði niður á hóteiið
aftur, en mætti þá hiinum 2 á
götunni og höfðu þeir teikið bíll-
inn, og var sá ökumaðurinn
einnig tekinn til blóðrannsóknar.
Þá um kvöldið flutti lögreglu-
maðurinn á Miðsandi, Finnur
Eyjólfsson mennina inn í her-
mannabústaði í Hvalfirði. Dag-
inn eftir sótti Finnur bíl þeirra.
Mun þetta meint ölvun við akst-
ur.
Eru mennirnir af Keflavikur-
vellli. — Oddiur.
BLAÐAMÖNNUM var nýlega
boðið að sikoða jeppabifreið að
gerðinni Haflinger, en innflutn-
ingur er nýlega hafinn á þeirri
ger'ð bifreiða. Haflinger er fram
leiddur í verksmiðjum Steyr-
Daimler-Pueh samsteypumnar í
Austurríki, en þær verksmiðjur
framleiða flestar gerðir farar-
tækja. Hlutafélagið Skorri hefur
tekið að sér innflutning þessara
bifreiða til lamdsims, en fram-
kvæmdastjóri félagsins er Har-
aldur Vilhelmsson. Lýsti hann
tæknilegum atriðum bifreiðar-
imnar fyrir blaðamönnum.
Haflinger jeppabifreiðin er fá-
anleg í mörgum gerðum. Sam-
eiginlegt méð öllum gerðurn er
eftirfarandi: Loftkæld, tveggja
strokka fjórgengisvél, 24 hestafla
(DIN), fjögurra gíra kassi með
öilum gírum samstilltum, más-
munadrifstæsingar að framan og
lltsvör í
Stykkishölmi
STYKKISHÓLMI. — Niðurjöfn-
un útsvara í Stykkishólmi er ný-
lega lokið. Var lagt á eftir hin-
um lögbiðna skala en útsvör síð-
an hækkað um 12%. Útsvör sem
náðu kr. 1000,00 voru felld niður,
almannatryggingar að undantekn
um fjölskyldubótum voru undan-
þegnar útsvari og eins hálfur
sjómannafrádráttur. Alls voru út
svör rúmar 4 millj. en aðstöðu-
gjöld um 1 millj. Hæstu útsvör
greiða Geir Jónsson sjúkrahús-
læknir kr. 103.000,00. Guðmund-
ur H. Þórðarson héraðslæknir kr.
75.800,00. Hæsta aðstöðugjald
Kaupfélag Stykkishólms með 450
þúsnd. Niðurstöðutölur fjárhags-
áætlunaf" eru kr. 7.300.00,00. Til
menntamála er veitt kr. 1,2 millj.
til verklegra framkvæmda rúm
1 milljón. Eignabreytingar 1,5
millj. og lýðtryggingar kr. 850
þús. krónur.
IVfik.il! ferða-
mannastraumur
Stykkishólmi: —r
VEÐURBLÍÐA hefir verið mikil
við Breiðafjörð í júlí og ágúst
enda ferðamannastraumurinn um
Snæfellsnesið eftir því. Sumar-
hótelið í Stykkishólmi hefir haft
mikil viðskifti í sumar það sem
af er og hefir veitt ákjósanlega
þjónustu. Þangað sækja æ fleiri
enda húsakynni með því bezta,
sem þekkist svo og öll fyrir-
greiðsla. Hótelstjórinn Lúðvík
Halldórsson lét vel af aðsókn—
inni í sumar er ég ræddi við hann
um daginn. — Fréttaritari.
aftan (ekki sjálfvirkar), sjálf-
stæð fjöðrun á hverju hjóli
(gormar og höggdeyfar) og
„filjótandi“ öxlar.
í einföldustu útgáfu á bifreið-
in að kosta kr. 114 þús. Hægt er
að fá með bifreiðinni sérstakt
drif fyrir úðunartæki, slökkvi-
tæki, loftpressu eða þ.h. Einnig
, er hægt að fá bifreiðina útbúna
sem sjúkrabifreið eða snjóplóg.
Fyrir ófærur er hægt að fá mis-
munandi gerðir af hjólbörðum
fyrir sand eða snjó. Lengd bif-
reiðarinnar milli öxla er 150
cm, en lengri gerð er fáanleg
með 180 cm milli öxla.
Eins og áður er sagt, er grunn-
verð Haflinger 114 þús. krónur.
Benzíneyðsla er talin 9 lítrar á
hverjum 100 km. í innanbæjar-
j akstri en 3—5 lítrar á klst. í
I ófæru. Hæð undir lægsta
hluta bifreiðarinnar eru 24cm.
Með pólmonn
í höndnnum
Akranesi þriðjudag 17. ág.
Kna ttspy rnuk a pple ik.u r fór
fram í Miðgarði í Staðarsveit kil.
4 síðdegis, sunnudaginn 15. ágúst
milli UMF Staðarsveitar o>g UMF
Þrastar í Innri-Akraneshreppi.
Veður var stillt. f hálfieik stóðu
Staðarsveitarmenn með páknann
í höndunum með 3 mönk gegn
1 marki.
Sáu Innnesingar að við svo
búið mátti ekiki sanda og hófu
nú harða sókn, gerbreyttu sig-
urhorfum andstæðinganna, svo
leiknum lyktaði með sigri Þrasta
•með 4 mörkum gegn 3. — Dóm-
ari var Jóhann Ólafsson.
Kennedybók
ÍSLENZK-AMERÍSKA féiagið
hefur fyrir nokkru gefið út
minningarrit um John F. Kenne-
dy, hinn myrta Bandaríkjafoir-
seta. Málverk af Keninedy prýðir
kápu bókarinnar, en í henni er
að finna ýmislegt af því, sem um
hinn látna forseta var ritað í ís-
lenzik blöð. Forseti ísilands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, ritar inn-
gangsorð. Þá fara á eftir ummæli
leiðtoga stjórnmálaflóklkánna um
forsetann, og ræða herra Sigur-
björns Einarssonar biskups við
minningarathötfin í Dómkinkj-
unni. Loks eru í bókinni þrjú
ljóð um Kénnedy. —Ensk þýðimg
fylgir bæði ljóðum og ábundmu
máli, og loks er bókin prýdd
myndum. Hún er tiil sölu í bóka-
verzlun Sigfúsar Eyimiundssonar
í Austuirstræti.
Á sunnudag vallt bíll frá Sauðárkróki í brekkunni ofan við
Víðimýri í Skagafirði. Þrjá stúlkur voru í bílnum, auk bílstjór-
ans, en ekki er vitað til að neinn hafi meiðzt. Þessa mynd tók
fréttaritari blaðsins, Sv. P., er leið átti fram hjá slysstaðnum.