Morgunblaðið - 19.08.1965, Síða 16
MORCUN BLAÐIÐ
Fimmtudagiír 19. ágúst 1965
\n
Zylinder prentvél
ítöisk. — Formslærð 40x57 cm, til sölu.
Guðjón Ó.
Haliveigarstíg 6A.
Vuntor 45—50 þúsund
króna lán í 3 ár. — Örugg trygging. — Þeir, sem
vilja sinna þessu, vinsamlegast sendi afgr. Mbl.
upplýsingar, merktar: „Trygging — 6981“ fyrir
21. þessa mánaðar.
Stórkostleg
Svo eitthvað sé nefnt:
börn:
nankingallabuxur
verð 115 kr.
Allar stærðir.
smekkbuxur
verð 115 kr.
Stærð 1—6.
drengj askyrtur
verð 65 kr.
dreng jasokkar
verð 25 kr.
drengjanáttföt
verð 120 kr.
unglingabuxi1 v
verð 105 kr.
ung lingablússur
verð 140 kr.
telpnakápur
verð 140 kr.
barnanáttföt
verð 75 kr.
telpnabuxur
verð 25 kr.
nælonskjört
verð 85 kr.
konur:
peysur
verð 45 kr.
kvenblússur
verð 60 kr.
Margar tegundir.
kvenbuxur
verð 25 kr.
sportbuxur
verð 145 kr.
Lítil númer.
slæður
verð 45 kr.
anorakkar
verð 450 kr.
ullargarn
18 kr. 50 gr.
karlmenn:
karlm. skyrtur
verð 100 kr.
sportskyrtur
verð 150 kr.
skyrtupeysur
verð 160 kr.
karlm. rykfrakkar
verð 650 kr.
Stærsfta úftsalan er ávallft
hjá okkur, allft selft fyrir
ótrúlega lágt verð
Austurstræti 9.
Þórður Þórðarson trésmíða-
meistari — Minning
„Mínir vinir fara fjöld,
feigöin þeirra heimtar köld.
Ég kem eftir kannski í kvöld,
með klofinn hjálm og rofinn
skjöld.
Brynju síitna sundrað sverð,
og synda-gjöld.“
Þeim fækkar nú smámsaman
gömlu leikbræðrunum, en Þórð-
ur var einn af þeim. Þórður var
fæddur, að Neðra-Hálsi í Kjós,
og ólst þar upp hjá foreldrum
sínum fram yfir fermingar-
aldur. Hann var fæddur 23. okt.
1884, Og því rúmlega 80 ára er
hann lézt, þann 12. þ.m.
Foreldrar hans voru þau mætu
hjón Guðrún Guðmundsdóttir,
og Þórður Guðmundsson hrepp-
stjóri. Og gegndi hann því starfi
í full 50 ár, auk þess oddviti
jafn lengi. Guðrún og Þórður
áttu 7 börn, og var Þórður þeirra
yngstur. En þau voru þessi, tal-
in eftir aldri, og eru þau nú
öll látin: Kristín, Guðmundur,
útgerðarmaður í Garði, Þorbjörn
héraðslæknir, Þorgeir skipstjóri
og búsettur í Noregi, Hjörleifur
trésmíðameistari, Pétur sem dó á
unga aldri. Og svo Þórður þeirra
yngstur, sem hér getur. Hann
iærði trésmíði og stundaði þá
iðngrein á meðan heilsan leyfði,
og þótti hans rúm þar vel skip-
að, sem og við önnur störf er
hann lagði hendi á. En hin síð-
ari árin var heilsan á völtum
fæti, svo, að hann var dæmdur
úr leik til venjulegra starfa.
Þórður var prýðilega greindur,
eins og hann átti kyn til. Hann
las mikið, einkum eftir að heils-
an fór að bila. Hann hafði gott
minni og var fróður vel. Hann
var einn hinna kunnu og merku
Háls systkina. Hann var traustur
og góður sjálfstæðismaður og
bar hag hans mjög fyrir brjósti
og starfaði þar fyrr á árum á
meðan heilsan leyfði.
í minu ungdæmi, var það gert
hér á Valdastöðum og Hálsi, að
geyma stóðhrossin í rétt, að næt-
urlagi, til þess að varna þeim
engjarnar. Þá var allmikið stóð
á Neðra-Hálsi, því Þórður bjó
stóru búi á þeirrar tíðar mæli-
kvarða ,en lönd þessara jarða
bggja saman. Sjást enniþá tóft-
arbrotin, þó að tímans tönn hafi
nú á þeim unnið. Þennan starfa
höfðum við unglingarnir til
skiptis.
Oft hefur verið á þetta minnst,
þegar fundum hefur borið sam-
an. Og ekki var alltaf komið
snemma heim, að kveldi, og
þótti gott ef að ekki þurfti að
hefja leit. Frá þessum tímum á
ég hugstæðar endurminningar,
um Þórð og bræður hans, sem
allir reyndust mér, sem sannir
vinir. En nú eru þeir allir Játn-
ir og var Þórður sá síðasti, sem
ég kveð með söknuði og einlægri
þökk fynr gömlu og góðu árin,
allt til hins síðasta. Og við fráfall
Þórðar rifjast upp ótal minn-
ingar frá æskuárunum. Eftirlif-
andi kona Þórðar, er Gíslanna
Gísladóttir frá Brekku f Garði.
Þau eignuðust 4 börn og eru 3
þeirra á Jlfi, Jóna heima hjá
foreldrum sínum (stundar
sauma), Þórður múrarameisfari
og Gísli, loftskeytamaður. Öll
bera þau foreldrum sínum fag-
urt vitni um myndarbrag. Það
var ánægjulegt að koma til þess
ara hjóna og dótturinnar, sem
með þeim bjó. Samfundir urðu
heldur færri eftir að þau skiptu
um bústað, nú um það bil fyr-
ir 2 árum. Þá eignuðust þau
vistlegra heimili og rýmra um-
hverfi og gátu notið sólarinnar,
þegar hennar naut við. En nú
hefir skuggi færst yfir þeirra
friðsama heimili. En svona er
lífið, að allir dagar eiga kvöld.
Eiginkonu og börnum þeirra,
svo og öðrum nákomnum ætt-
ingjum sendi ég einlægar sam-
úðarkveðjur, og bið þeim bless-
unar guðs.
Steini Guðmundsson
Preben Sigurðsson
IVIinning
,,Er þegar öflgir
ungir falla
sem sigi í ægi
sól á dagmálum."
(Bjarni Thorarensen)
Preben Sigurðsson var fæddur
á Isafirði, 4. júlí árið 1920, sonur
hjónanma Ólafs Sigurðssonar og
Petrínar Sigurðsson, Ungur að
érum fluttist hann til Danmerk-
ur með foreldrum sínum og eldri
bróður og dvaldi þar til 12 ára
aidurs, er þau sneru aftur til ís-
lands og settust að í Reykjavík.
A unglingsáruinum stundaði
hann nám í Flensborg og síðar
nam hann mjólkurfræði í Mjólk-
urstöðinni í Reykjaví'k og í
Mjólfcurbúi Flóamanna, en þar
starfaði hann síðan næstum
óslitið til hinzta dags. Kvæntur
var Preben Karenu Vilbergsdótt-
ur og lifir hún mann sinn ásamt
þrem somum þeirra, Pétri, Vil-
bergi og Ólafi, en dóttur sína
misstu þau átita ára gamla árið
1953.
Sár er harmur þeirra ■ er ef tir
lifa, og ég bið guð að styrkja þau
í raunum og sorg.
Preben var traustur vinur og
kom hvarvetna fram af prúð-
mennsku og iháttvísi. Hamn hafði
mikinn hug á félagsmálum og
lagði þar gjörva hönd að, þó starf
hans gæfi honum eikki nema tak-
markaðan tíma til slíks, sökum
þess hve bindandi það var. Hann
sóttist ekki eftir frama eða veg-
tyllum, en rækti öll sín störf að
aiúð.
Preben var sanngjarn og góð-
samur, lipurmenni hið mesta, og
gat þó verið fastur fyrir, ef því
var að skipta. Hann lagði mikla
rækt við heimili sitt og fjöl-
skyldu og var sonum sínum góð-
ur félagi.
Slikxa manna er gott að minn-
ast.
Góði vinur. Þessi fáu orð
megna á engan hátt að draga
þó mynd, sem ég hefði viljað. Nú
þegar þú hverfur okkur, vil ég
þakka þér allar þær stundir sem
við höfum saman átt.
Guð blessi þig.
Vinur.
Hafnarfjörður
3ja herb. íbúð við Arnarhraun er til leigu frá 1.
<
október nk. — íilboð, merkt: „2596“ leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld.
Herbergi — Fæði
Menntaskólanemi óskar eftir herbergi frá 1. okt.
nk. — Helzt fæði á sama stað. —
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m., merkt:
„Reglusamur — 6982“.
Afgreiðslustarf
Dugleg stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax f eina
kjötverzlun okkar. :— Nánari upplýsingar í skrif-
stofunni, Skúlagötu 20.
Sláfturfélag Suðurlands
Litli ferðaklúbburinn
efnir til hópferðar á Æskulýðsmót Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu helgina 21.—22. ágúst. —
Margt verður til skemmtunar.
Larmiðasala að Fríkirkjuvegi 11, daglega. —
Simi 15-9-37.