Morgunblaðið - 19.08.1965, Page 26
26
MOkCUNBLAÐIÐ
FimmtudaguT 19. ágúst 1965
14 ára
telpa
bætti eigið
heimsmet
Ferensvaros írá Ungverjalandi. A myndinni eru frá vinstri, Matrai (67 landsleikir), Gezci (2 landsleikir), Fenyvesi, (71 iands-
leikur), Galambos (kemur ekki) Hagelmann, Juhasc (Olympíumeistari) Orosz (Olympíumeistari) Rakosi (25 landsleikir) Nov-
ak (Olympíumeistari).
Eitt harðsnúnasta knattspyrnulið
Evrópu kemur í næstu viku
Leikur við Keflvlkinga í
Evrópukeppni meist.liða
Á FÖSTUDAG í næstu fiku kemur hingað ungverska knattspyrnu-
liðið Ferencvaros og leikur fyrri leik sinn við Islandsmeistara
Keflavíkur í 1. umferð bikarkeppni Evrópu milli meistaraliða. —
Leikur liðanna verður kl. 5 annan sunnudag á Laugardalsvelli.
Óhætt mun að fuUyrða að hér er um að ræða eitt sterkasta félags-
lið í knattspyrnu, sem hingað hefur komið.
I liðinu eru 7 menn sem Ieikið hafa í A-Iandsliði Ungverjalands,
en óviða er standard jafn hár í knattspyrnu og þar í landi.
Fjórir af leikmönnum liðsins hafa leikið í B-Iandsliði.
Þrír af leikmönnum liðsins voru í Olympíuliði Ungverja er sigr-
aði í knattspymukeppni Olympíuleikanna.
Fjórir leikmanna liðsins voru í landsliði Ungverja í lokakeppni
um heimsmeistaratitil í Chile 1962.
Á sl. vetri vann liðið Evrópubikar í „borgakeppni Evrópu“ en til
þess varð liðið að ,rslá út“ Bilbao á Spáni, Manchester United
(ensku meistarana) og Juventus á Ítalíu.
ÍBK hefur skipað sérstaka
móttökunefnd til að annast mót-
tökur Ungverjanna. í nefndinni
eiga sæti: Albert Guðmundsson
form., Atli Steinarsson, Baldur
Þórðarson, Hafsteinn Guðmunds
son og Steinþór Júlíusson. Á
Florian Albert, miðherji
— talinn betri en Puskas
fundi með blaðamönnum í gær
kom þetta m. a. fram.
FERENCVAROS er elzta
knattspyrnufélagð_ í Ungverja-
landi, stofnað 1899. Lið þess hef-
ur átt sæti í keppni beztu liða
(1. deild) þar í landi óslitið síðan
1901, og á þessu tímabili hefur
Ferencvaros 20 sinhum unnið
meistaratitil Ungverjalands.
Allir leikmenn liðsins hafa
leikið í A og/eða B landsliði,
Olympíuliði og/eða unglinga-
landsliði.
Ferencvaros vann ungverska
meistaratitilinn á síðasta keppn-
istímabili, og tekur liðið þvi þátt
i Evrópukeppni meistaraliða í ár.
Á s.l. vetri lék liðið í „Borga-
keppni Evrópu“ (Cup of Fair
Cities) í þeirri kepþni sigraði
Ferencvaros m. a. Bilbao Spáni
og síðar Manch. United, og lék
til úrslita við Juventus og unnu
Ungverjar 1—0. í þeim leikjum,
sem eru þeir síðustu er liðið gekk
til, áður en heldið var til Banda-
ríkjanna, til þátttöku í keppni
frægra Evrópuliða, sem fram fer
árlega í New York, var lið
Ferencvaros þannig skipað:
Ceczi
Novak Matrai
Horvat Juhasz Orosz
Varga Rakosi
Karaba Albert Fenyvesi
Þetta lið hefur á síðustu árum
ekki einungis aukið frægð og j
hróður Ferencvaros, sem elzta
knattspyrnufélags Ungverja-
lands, heldur hafa og allir leik-
mennirnir átt sinn þátt í að
skapa þann ljóma, sem aftur
stafar af ungverskri knatt-
spyrnu, eftir nokkurn öldudal,
sem fylgdi í kjölfar þess, að hið
fræga lið Ungverja, Honved,
leystist upp og sundraðist. Allir
minnast hinn frægu sigra Ung-
verja yfir Englendingum 1953—
1954, er Ungverjar sigruðu með
6—0 og 7—1 í landsleikjum á
Wembley og í Budapest. Það er
ekki sízt fyrir snilli liðsmanna
Ferencvaros, sem ungversk
knattspyrna er aftur að rísa til
þess veldis, sem hún stóð í á
þeim tíma.
Hvert lið í Evrópukeppninni
verður að gefa upp nöfn 20 leik-
manna er einir mega keppa í 1.
umferð keppninnar. Meðal
þeirra 20 sem Ferencvaros hefur
gefið upp í leikjunum við Kefla-
vík, (hér annan sunnudag og í
Budapest 8. september) eru allir
þeir 11 er frægasta sigra hafa
unnið undir merki félagsins. Um
þá liggja m. a. þessar upplýsing-
ar fyrir:
Istvan GECZI, markvörður,
22 ára gamall, fulfctrúi að starfi.
Hann á 2 landsleiki að baki. Tal-
inn „markvörður framtíðarinn-
ar“ í Ungverjalandi.
Dezsö NOVAK, h. bakv. er 26
ára gamall, skrifstofumaður að
starfi. Hann hefur leikið 6 lands
leiki og var m. a. fyrirliði Olym-
píuliðs Ungverja í Tokíó.
Sandor Matrai, v. bakv. er 32
ára gamall, innkaupastjóri að
starf. Hefur leikið 67 landsleiki.
Var í liði Ungverjal. í heims-
meistarakeppninni í Chile.
Laszló HORVATH, h. framv.,
21árs gamall, kjötiðnaðarmaður
að starfi. Hefur leikið í B-lands-
liði Ungverjalands.
Istvan JUHASZ, miðvörður, 20
ára gamall, iðnaðarmaður að
starfi. Hann er í unglingalands-
liði Ungverjalands og hefur
vakið mikla athygli.
Pal OROSZ, v. framv., 21 árs
gamall, íþróttakennari að starfi.
Hann var í Olympíuliði Ung-
verja í Tokíó, og hefur verið í
unglingalandsliði.
Janos KARABA, h. úth., 23 ára
gamall, skrifstofumaður að
starfi. Hefur leikið í B-landsliði
Ungverjalands.
Zoltan VARGA h. innh., tví-
tugur að aldri, en talinn einn
mesti knattspyrnumaður Ung-
verja og er líkt við Sandor
Kocsis, hinn fræga leikmann frá
„gullaldarárunum". Hann var í
Olympíuliðinu í Tokíó og þar tal
inn skara fram úr í ágætu lands
liði Ungverja. Á 2 landsleiki.
Florian ALBERT, miðherji,
24 ára, blaðamaður að starfi.
Hann hefur leikið 48 landsleiki
og þykir einn snjallasti miðherji
heimsins. Hann var í liði Ung-
verja í heimsmeistarakeppninni
í Chile.
Gyula RAKOSI, v. innh., er
26 ára gamall. Hann er vörubíl-
stjóri að starfi. Hann hefur leikið
25 landsleiki og var m. a. í liði
Ungverja í heimsmeistarakeppn
inni í Chile.
dr. Male Fenyvesi, v. útherji,
FJÓRTÁN ára gömul bandarísk
stúlika hefur sett þriðja heims-
metið á bandaríska sundmótinu.
Hún heitir Patti Garetto og er
fró Kaliforníu. Hún bætti eigið
Iheimsmet í 1500 m. sikriðsundi.
Synti hún á 18:23.7, en gamia
heimsmetið var 18:30.5.
er næstelztur liðsmanna, 32 ára
dýralæknir. Hann er reyndasti
maður liðsins, á 71 landsleik að
baki og var m. a. í liði Ungverja
í Chile 1962. Hann þykir heldur
tekinn að dala en var um tíma
talinn einn bezti útherji Evrópu.
Eins og sjá má af upptalningu
leikmanna, eru hér frægir menn
í sínu heimalandi — og víðar
reyndar — á ferðinni.
7 í landsliðinu.
í A landsliði Ungverja hafa
eftirtaldir leikmenn liðsins leik-
ið (landsleikjafjöldi í svigum):
dr. Fenyvesi (71), Matrai v. bak
vörður (67), Albert, miðherji
(48), Rakosi, innh. (25), Novak,
h. bakv. (6), Geszi, h. bakv. (2),
Varga, innh. (2).
í B-landsliði hafa leikið: Kara-
ba, h. úth., Havasi, Orosz v. fram
vörður og Peressi, framherji.
í Olympíuliðinu í Tokíó léku:
Novak, bakv. (fyrirliði), Varga,
innh. og Orosz, framvörður.
í heimsmeistarakeppninni í
Chile 1962 léku: Matrai, bakv.,
Albert miðherji, Rakosi innh. og
dr. Fenyvesi, v. úth.
Betri en Puskas.
1 júníhefti hins kunna enska
blaðs „World Soccer“ ræðir Eric
Batty um ungverska landsliðið
"Framh. á bls. 27.
Valbjörn tekur við meistaratitlinum
MBL. fékk þessa mynd
símsenda frá Helsinki. Hún
sýnir Valibjörn Þorláksso'n á
verðlaunajjalliinum að unnum
sigri í tugiþrautinni. Ti’l
vinstri er Svíinn Tore Carbe
sem varð annar og t.h, Finn-
inn Stig Nymander sem varð
þriðji. Á balk við má sjá loika-
úrslitin á ljóstöflu Olympiu-
leilkivangsinjs.