Morgunblaðið - 04.03.1971, Blaðsíða 25
MORCrUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1971
25
85 ára í dag:
Kristján Bjartmars
fyrrum oddviti
KRXSTJÁN Bjantmiairs, fynruim
oddvilti í Stykkiishólimi, er 85 ára
í diaig. Hiamin er fædduir aið Hiainna-
StxxSuim í Vesturhópi, saniur Ingi-
bjargair Guðamimdisd'óttur og
Bj<artm.ars Kristj ánssonar, síðar
bómda aið Bnuininá í Daílasýsliu.
Kiri®tj’ám hefur verið búsettur í
StýkkiShólimi fná 1907 og fenigizt
þair viið fjö'bnöng störf, verið
■verzjliumiainmiaðuT í 20 ár, oddviti
23 ár. Eiminig var hamin keninari
um Skeið. Hatnin var lengi í sókti-
ainnefnd, safinaðai-fuflllitrúi, stairf-
aði i leikfélagi og glikniutféíliaigi og
þótti j afmiam liðtækur. Lengi vair
hiamm í skattaimefnd og í stjórm
S j áltfst. æð i s f étags ins var hamm
maörg ár.
Kristján er tvikvæmtuir. Fynni
komia harns var Anma Petrímia Imig-
ólfsdóttur frá Slitvimdastöðum í
Staíðasveilt og eignfuðust þau
fjögur börn. Síðari kocnia hainis er
Sólborg, alsystir fyrnri korniu hams
og eiga þau eirna dóttur.
Kriistján er vinsiæM. með atf-
brigðuim og naut þess ekki sízt
í erfiðri oddviitatíð. Gllaðsiinina og
skemimtimin, viniafastur og hilýr.
Heflur hamm því eigraazt fjölda
viinia og á heimill'i þeinna hjóna
hafa miargir átt ánægjulegar
samvenustundir og þar er afliibaif
gott að dvölja, sú hefur mín
reyniáia verið. Ég óska þeiim
hjóniuim allis hins bezta í fraim-
tíðinmii og þaíkka góða samtfyligd.
U'ndir þær óskir taka eflaust
fjölimangir.
Árni Helgason.
Ný reglugerð um mat
á grásleppuhrognum
MORGUNÍILAÐINU hefur bor-
izt fréttatilkynning frá Sjávar-
útvegsmálaráðuneytinu um
reglugerð, sem ráðuneytið hefur
gefið út um eftirlit á mati á
soltuðum grásleppuhrognum til
útflutnings. Hefur reglugerðin
mm. að geyma eftirgreind
ákvæði:
Húsnæði, áhöld og hreinlætis-
búnaður við verkun grásleppu-
hrogna til útflutnings skal frá
og með 1. janúar 1972 vera í
samræmi við ákvæði III. og IV.
kafla í „Reglugerð um eftirlit
og mat á ferskum físki o.fI.“,
útg. 20. marz 1970.
Séu notuð rotvarnarefni til
blöndunar við söltun hrogn-
anna, er notkun þeirra háð
samþykki gerladeildar Ranm-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Hrognin skal aðeins salta í
Irar vilja sérsamn-
inga varðandi
fiskveiðar
Brussiel, 2. marz — NTB
ÍRLAND tök í dag undir þá ósk,
sem Norömonin hafa borið fram
við EBE að fá sérsiamniinga um
fislkveiðaæ verði landið aðilli að
baindailiaginiu. Patriek Htffliery, ut-
arnrikisráðherra, sagði á fundi
raðherraniefndair EBE, að það
gfoti haifit alvarlegar afleiðingar
fyrir fiskveiðar íriands, ef öll
lönd ifnmam himis staókkaða EBE
goatu sftumdað fiisikveiðar á mið-
uim þessum. Þvi lagði Hi'lllery
áherZliu á að Iriand fengi að gera
sérstakt saanlkomiulaig varðamdi
fiiskveiðar, ef svo færi að það
genigi í bamdaHagið.
nýjar, hreinar og þéttar trétunn
ur eða tunnur úr öðru efni, er
kynni að verða æskilegt og við-
urkennt.
Eftir söltun skal geyma hrogn
in á köldum stað (+2°--------[-4°
C), en þau mega ekki frjósa.
Hrogntunnur skulu a.m.k.
merktar eftirtöldum merkjum:
Merki framleiðanda, útflytjanda
og Produce of Iceland.
Útflytjendur skulu tilkynna
til Fiskmats ríkisins útflutning
á hrognum með hæfilegum fyr-
irvara, sem er að dómi Fiski-
mats rikisins nægur til þess að
framkvæma gæðamat á hrogn-
um til útflutnings.
Jafnframt ber þá útflytjend-
um að tilkynma um nettóvigt
hrognanna samkvæmt sölusamn
ingi.
Fiskmat ríkisins gefur fisk-
matsmönnum skriflegar leið-
beiningar og fyrirmæli um fram
kvæmd gæðamatsins. Komi
fram skemmdir við gæðamat
hrognanna ber að stöðva útflutn
ing á þeim þar til nánari rann-
sókn hefur farið fram, en þá
skal viðkomandi yfirfiskmats-
maður taka eða láta taka sýni
af þeim hrognum og senda
gerladeild Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins til rannsóknar.
Við gæðamat á hrognum til
útflutnings skulu fiskmatsmenn
láta opna hverja tunmu á þann
hátt, að þeir geti fullvissað sig
um, að hrognin séu óskemmd
vara, t.d. ekki vottur af súr,
þránun eða öðrum skemmdum
og litur sé eðlilegur.
Þá ber einnig að prófa vigt-
Eigi má tollafgreiða til út-
flutnings grásleppuhrogn nema
útflytjandi leggi fram gæða-
vottorð frá Fiskmati ríkisins.
Sj ávarút vegsráðuneytið,
2. marz 1971.
Athugasemd
frá verktökum við Vögaskóia
MBL. hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá verk-
tökum við Vogaskóla.
VEGNA athugasemdar, sem
borgarstjórinn í Reykjavík læt-
ur gera í Morgunblaðinu, við
greinagerð okkar um verðbóta-
mál varðandi byggingu 4.
áíanga Vogaskóla, viljum við
gera smávægilega athugasemd.
Borgarstjóri lætur vitna í
fundargerð frá byggingadeild
borgaryerkfræðings þar sem
verið er að áætla um hvenær
einstakir áfangar geti orðið til-
búnir. Þegar þessi áætlun er
gerð þá er búið að. taka meiri-
hluta kennslurýmis skólans í
notkun, þess getur borgarstjóri
ekki í athugasemdum sínum að
því var skilað nokkru fyrr en
samningar sögðu til um. Um þá
liði sem borgarstjóri telur sig
þurfa að láta gera athugasemd-
ir við afhendingartíma á, er í
fyrsta lagi: Kennslueldhús, en
því var skilað á réttum tíma.
f öðru lagi er talað um húsnæði
fyrir læknaþjónustu. Það hús-
rými er fullklárað og löngu svo
langt komið að þangað hefði
mátt flytja tæki, en af einhverj-
um ástæðum þá virðist ekki
hafa legið eins mikið á því hús-
næði og borgarstjóri vill vera
Láta.
Varðandi íþróttahús, búnings-
klefa og lokafrágang hússins er
því til að svara að um það var
gerður fyrirvari varðandi loft-
ræsti- og hitunartæki hússins.
Þessi tæki hafa verið að koma
til landsins fram að þessu en
þau reyndist ekki unnt að fá
frá sama aðila. Borgarstjóri
gæti vitað að þessi dráttur var
ekki okkar sök þar sem ákvörð-
un var tekin um breytingu á
gerð þeirra án orsaka sem
snertu okkur sem verktaka.
Varðandi það atriði að við
óskuðum ekki sérstaklega eftir
að tekið væri fram um fyrirvara
um verðbætur í umræddri fund-
argerð frá 2. nóvember stafar
einfaldlega af því að þá stóðu
yfir viðræður við borgarstjóra
um þau mál, sem ekki var slitið
fyrr en með bréfi borgarstjóra
frá 19. janúar 1971.
Þess má geta í þessu sam-
bandi að samningar okkar við
undirverktaka stóðu þannig á
þessum tíma þegar ljúka átti
verkinu að sumir þeirra höfðu
alveg stöðvað sína starfsemi og
aðrir fóru sér hægt á meðan
þeir biðu úrslita um málalok.
Hjá sumum þeirra voru uppi
efasemdir um að við sem aðal-
verktakar héldum nægilega vel
á þessum verðbótamálum, svo
augljós var réttur okkar að
þeirra dómi.
Borgarstjóri á erfitt með að
skilja að ágreiningur um nokkr-
ar milljónir í verðbótum geti
haft áhrif á byggingarhraða
hússins, það má vel vera að frá
sjónarmiði hans sé um smá-
muni að ræða, en í okkar
rekstri hafa þessi viðskipti við
borgarsjóð valdið okkur stór-
tjóni, verkið hefur gengið
seínna af þessum ástæðum; orð-
ið okkur dýrara og það sem
e.t.v. mestu máli skiptir að all-
ur rekstur fyrirtækis okkar
hefur lamazt við það að allt
okkar rekstrarfé er óeðlilega
mikið bundið í þessu eina verki.
Að síðustu viljum við koma
að einu atriði í tilskrifi starfs-
manns borgarstjórans, en það er
tilvitnun hans í 4. gr. verksamn-
ingsins, þar sem segir: „Verði
um snögga verðbreytingu að
ræða á samningstímabilinu, sem
að dómi.beggja aðila kæmi of
seint fram í þessari vísitölu
. . . . o. s. frv. . . .“ Þar lætur
borgarstjóri feitletra orðin „að
dómi beggja aðila“. Þarna er
borgarstjóri að reyna að benda
á færa leið sem hann eigi til
að snuða verktakana um þann
rétt, sem þessi málsgrein á að
tryggja þeim. Ekki verður sagt
að borgarstjóri meti embættis*
titil sinn háu verði að haxm
skúli telja sér sæma þessi fram-
koma, miðað við það að honum
hlýtur að vera fullkunnugt um
það að Innkaupastofnun Reykja-
víkut'borgar hefur svarað verk-
tökum sem hafa gert athuga-
semdir við þetta orðalag því, að
þetta samningsákvæði með
þessu orðalagi tryggi fullan rétt
þeirra gagnvart snöggum verð-
breytingum. Enda munu íslenzk-
ir dómstólar ekki vera reknir á
svo lágu plani að slík hrekkja-
brögð geti haft þýðingu um
gang mál-a.
Það er hins vegar læi'dóms-
ríkt fyrir verktaka og aðra við-
skiptamenn borgarinnar að vita
af því að svona hugarfar sé til
allt upp í hásæti höfuðborgar-
irmar.
Reykjavík 2/3 1971
Jónas Jónsson
Sigurður B. Magnússon
Guðni Daníelsson.
I.O.O.F. 5 = 152348% = S.K.
I.O.O.F. 11 = 152348%
St' St 5971347 — VIII — 7
Kvenfélag Hallgríinskirkjii
heldur sína árlegu samkomu
fyrir aldrað fólk, sunnudag
inn 7. marz kl. 3 síðdegis.
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ræðu. Frú Ruth
Magnússon syngur einsöng.
Upplestur.
Konur í Styrktarfélagi
vangefinna
Fundur að Hallveigarstöð-
um fimmtudaginn 4. marz
kl. 20.30. Fundarefni: Félags
mál, bókmenntakynning.
Afmælismót Vals I badmin-
ton verður haldið I Valsheim
ilinu 27. marz n.k. Keppt
verður í A-flokki í einliða
og tvíliðaleik. Þátttaka til-
kynnist fyrir 15. marz Erni
Ingólfssyni í síma 33880.
Kökubasar
• Systrafélag Keflavikur-
kirkju heldur kökubasar I
Tjarnarlundi laugardaginn
6. marz kl. 3. Tekið á móti
kökum frá kl. 12 sama dag.
Nefndin.
K.F.U.M.
Aðaldeildarfundur í húsi fé
lagsins við Amtmannsstíg i
kvöld kl. 8.30. Dr. med. Ás-
geir Ellertsson og Sigurður
Pálsson, skrifstofustjóri,
ræða um efnið: „Kynlíf, ást
og fóstureyðingar." — Séra
Ingólfur Guðmundsson hef-
ur hugleiðingu. Allir karl-
menn eru velkomnir á fund
inn.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld
kl. 8.30. Ræðumaður Einar
Gíslason. Ungir menn flytja
stutt ávörp.
Á morgun
er Alþjóðlegur bænadagur
kvenna. Samkomur verða
viða um land og annað
kvöld kl. 8.30 verður sam-
koma I Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins
götu Ga í kvöld kl. 20.30.
Sungnir verða passíusálm-
ar. Allir velkomnir.
fþróttafélagið Fylkir
Æfingartafla vetrarins í
iþróttahúsi Árbæjarskóla.
Knattspyrna karla
6. fl. C sunnudaga kl. 10.20.
6. fl. laugardaga kl. 14.50.
5. fl. A og B. þriðjudaga
og föstudaga kl. 19.40.
5. fl. C laugardaga kl. 13.00.
4. fl. mánudaga kl. 21.20 og
laugardaga kl. 15.30.
3. fl. miðvikudaga kl. 20.30
og laugardaga kl. 16.20
Old boys
Laugardaga kl. 14.50.
Handknattleikur karla
4. fl. þriðjudaga og föstu-
daga kl. 18.50.
3. fl. þriðjudaga kl. 20.30
og fimmtud. kl. 21.20.
2. fl. þriðjudaga og föstu-
daga kl. 22.10.
Leikfimi karla
Sunnudaga kl. 11.10 og
fimmtudaga kl. 22.10,
Handknattleikur kvenna
Byrjendaflokkur
sunnudaga kl. 9.30.
3. fl. mánudaga og fimmtu-
daga kl. 18.50.
2. fl. mánudaga kl. 22.10 og
föstudaga kl. 20.30.
Frúarleikfimi
Fl. A mánudaga og fimmtu-
daga kl. 19.40.
Fl. B mánudaga og fimmtu
daga kl. 20.30.
Fl. C þriðjudaga og föstu-
daga kl, 21,20.
HvETTA Á NÆSTA LEITI • cttir John Saunders og Alden McWilliams
I PROMISED LORI
WE WOULDN'T
LEAVE TOWN UNTIL
3HE'S OUT OF THft
H05PITAL/...
BUT, IF IT'LL HELP VOU STOP
WORRyiN', MAN, WE'LL CUT
OUTA TH13 NEI6HBORHOOD/
Mér er alvara, .Jerry, ef við höngum
hér áfram yfirgefur heppnin okkur. Ég
lofaði Ixiri að við myndum ekki fara úr
borginni fyrr en hún slyppi af sjúkra-
húsinu. (2. mynd). En ef það hjálpar
þér eitthvað, getum við farið úr þessu
hverfi. (3. mynd). Sjáðu mig leggja
gúmiuilínu og . . . hver fj. . . .
Allsherjarverkfal!
í Pakistan
Nýju Delhi, 2. marz — NTB
ALLSHER.IARVERKFAI.L lam-
aði í dag alla starfsemi í Dacca,
höfuðborg Austur-Pakistan og
var það til að mótmæla ákvörð-
un Yaya Khan, forseta, um að
liann frestaði því að kalla þjóð-
þing landsins saman. Áður hafði
forsetinn tilkynnt að þingið
myndi konia samau á morgun,
miðvikudag, til að iindirbúa nýja
stjórnarskrá fyrir landið.
Á morgun eru að nýju boðuð
verkföl'l mjög víða um landiS
vegna þessa. Forsetinn gaf mjög
óljósa skýringu á því, hvers
vegna hanm hefði ákveðið aðf
fresta þingsetningu.