Morgunblaðið - 11.07.1984, Síða 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
156. tbl. 71. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Búizt við stormasömum OPEC-fundi:
Nígería krefst
stærri fram-
leiðslukvóta
Vínarborg, 10. júlí. AP.
OLÍUMALARÁÐHERRAR OPEC-ríkjanna hófu í dag viðræður í Vínarborg.
Gert er ráð fyrir stormasömum fundi, þar sem mjög örðugt er að finna lausn
á því deilumáli aðildarríkjanna, bvernig skipta skuli olíusölunni milli þeirra
á heimsmarkaðinum. Hann hefur stöðugt dregist saman á undanförnum
Samkomulag virðist þó að
mestu um að halda olíuverðinu
óbreyttu, sem verði áfram 29 doll-
arar fyrir hverja tunnu af olíu.
íranir krefjast þó eindregið hækk-
unar á olíuverðinu. Yamani, olíu-
málaráðherra Saudi-Arabíu, sagði
hins vegar í dag, að hann gerði
ekki ráð fyrir neinum breytingum
á olíuverðinu sem máli skiptu, en
það hefur haldist óbreytt frá því
vorið 1983 er OPEC-rfkin lækkuðu
oliuverðið úr 34 dollurum. Var það
fyrsta opinbera lækkunin á olíu-
verði, sem gerst hafði í sögu sam-
samtakanna.
Helsta hindrunin í vegi fyrir
nýju OPEC-samkomulagi virðist
vera sú fullyrðing Nígeríu, að nú-
verandi markaðsfyrirkomulag sé
að eyðileggja efnahag landsins,
sem var þó bágur fyrir. Nú er Níg-
eríu heimilt að selja 1,3 millj.
tunna af olíu á dag, en stjórn
landsins heldur því fram, að það
sé allt of lítið til þess að reisa við
efnahag landsins.
Tam David-West, sem tók við
embætti olíumálaráðherra Níg-
eríu eftir að herinn tók þar völdin
i sínar hendur um áramótin, seg-
ist munu krefjast hærri fram-
leiðsluheimildar fyrir Nígeríu og
kvaðst í dag vera „mjög bjart-
sýnn“ á, að það eigi eftir að takast.
„Allir gera sér grein fyrir hinu
hörmulega efnahagsástandi í Nig-
eríu og hljóta þá að skilja það um
leið, að við verðum að eiga kost á
einhverjum úrræðum okkur til
bjargar," sagði David-West á
fundi með fréttamönnum.
Erlendar skammtímaskuldir
Nigeríu nema nú um 5 milljörðum
dollara og á landið í stórfelldum
erfiðleikum með að greiða af þeim
afborganir og vexti. Er talið, að
valdarán hersins megi að verulegu
leyti rekja til efnahagserfiðleika
landsins.
Kanel Hassan Maghur, olíumálaráðherra Lfbýu, setur ráðstefnu OPEC-
ríkjanna í Vínarborg í gær. í setningarræðu sinni gagnrýndi hann Bretland
og Noreg fyrir að framleiða of mikla olíu til mikils tjóns fyrir OPEC-ríkin.
Hreyfingarlausir hafnarkranar í höfninni í London í gær. Með verkfalli hafnarverkamanna hafa verkfallsátökin
í Bretlandi magnazt mjög.
Bretland:
Verkfoll lama flestar
stærstu hafnir landsins
London, 10. júlí. AP.
FLESTIR af 13.700 hafnarverka-
mönnum Bretlands lögðu niður
vinnu í dag til stuðnings verkfalli
kolanámumanna. Verkfall þetta
lamaði alla vinnu í stærstu hafnar-
borgum landsins svo sem Liverpool,
Southampton, Bristol svo og London
sjálfri. Vinnu var hins vegar haidið
áfram í sumum borgum eins og
Plymouth og Ipswich.
Talið er, að með verkfalli hafn-
arverkamanna hafi verkfallsátök-
in í Bretlandi magnazt mjög. í
neðri deild brezka þingsins hélt
frú Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra ræðu, þar sem hún var-
aði við afleiðingum verkfallsins og
skoraði á hafnarverkamenn að
taka strax upp vinnu. Sagði hún,
að þeir ættu á hættu að missa
vinnu sína, þar sem skipaeigendur
myndu freistast til þess að nota
hafnir á meginlandi Evrópu í stað
brezkra hafna.
„Hafnarverkamenn hér, sem
eru í verkfalli, munu eiga þátt í
því að leysa atvinnuleysisvanda-
mál Belgíu, Hollands og Þýzka-
lands en auka á eigið atvinnu-
leysi," sagði frú Thatcher. Síðdeg-
is í dag hófust viðræður milli
Sambands flutningaverkamanna
(TGWU), sem efnt hafði til verk-
fallsins og vinnuveitenda. í Sam-
bandi flutningaverkamanna eru
1,5 millj. manns og er það fjöl-
mennasta verkalýðssamband
Bretlands. Er talið, að verði
áframhald á stuðningi þess, þá
kunni það að ráða miklu um úrslit
kolanámuverkfallsins.
40 % verðfall á freð-
físki í Bandaríkjunum
Osló, 10. júlí. Frá frétUriUra \lorgunbla<Vsins,
Jan Erik Lauré.
VERÐ á frosnum fiski hefur fallið
allt að 40% í Bandaríkjunum á þessu
ári. Búist er við, að verðfallið eigi
eftir að hafa mikil áhrif á afkomu
Frionor, en á síðasta ári fór þriðj-
ungur af framleiðslu þess til Banda-
ríkjanna.
Við síðustu áramót voru birgðir
Sovézki norðurflotinn
óstarfhæfur í hálft ár?
London, lO.júlí. AP.
NORÐURFLOTI Rússa verður óstarfhæfur næstu sex mánuði, þar sem
hann missti tvo þriðju loftvarna- og herskipaeldflauga sinna í sprenging-
unni í flotastöðinni í Severomorsk á Kolaskaga í maí að sögn ritsins
Jane’s Defense Weekly.
Blaðið segir þetta mesta áfall
sovézka sjóhersins siðan í seinni
heimsstyrjöldinni.
A.m.k. 200 sjóliðar biðu bana
og álíka margir særðust í
sprengingunni. Eldflaugar sem
sovézkir kafbátar við austur-
strönd Bandaríkjanna nota eyði-
lögðust ekki. Talið er að flota-
stöðin sjálf komi ekki að fullum
notum á ný fyrr en eftir tvö ár.
Alls eyðilögðust um 580 af 900
SA-N-I-flaugum flotans og tæp-
lega 320 af 400 SS-N-3 og
SS-N-12-langdrægum skipa-
flaugum. Einnig skemmdust all-
ar 80 flaugar flotans af SS-N-
22-gerð, sem geta borið kjarna-
odda, og fjölmargar af SS-N-19-
gagnskipaflaugum hans.
Heimildir í NATO herma að
frásögn Jane’s sé í aðalatriðum
rétt, en Bob Elliott við Her-
fræðistofnunina í Lundúnum
sagði að þar sem Norðurflotinn
ætti í hlut léki enginn vafi á því
að hann hefði fengið varabirgðir
frá öllum öðrum flotum Sovét-
ríkjanna til að bæta tjónið.
I Washington drógu heimild-
armenn í bandarísku leyniþjón-
ustunni frásögnina í efa og
sögðu að engar áreiðanlegar töl-
ur lægju fyrir um tjónið.
Jane’s segir að mikill hluti
varahlutabirgða norðurflotans
hafi eyðilagst.
Mesta tjónið varð í aöaleld-
flaugageymslunni í flotastöð-
inni. Hins vegar urðu kafbáta-
eldflaugar af SS-N-17-gerð ekki
fyrir skemmdum. Ef þær hefðu
eyðilagst hefði kafbátafloti
Sovétmanna á Atlantshafi lam-
ast.
Jane’s segir að ekki séu til
varaflaugar í stað eldflauga af
SS-N-36-gerð, sem skemmdust í
sprengingunni, því hætt var að
framleiða þær fyrir nokkrum ár-
um.
fyrirtækisins af þorskblokkum
þrisvar sinnum meiri í Bandaríkj-
unum en við áramót þar á undan.
Það sem af er þessu ári hefur
Danmörk flutt út þrisvar sinnum
meira en á sama tímabili í fyrra
og framboð frá íslandi og Kanada
er einnig mikið.
Framleiðsla Norðmanna er ekki
mikil í samanburði við framleiðslu
Dana, Kanadamanna og íslend-
inga. Nær 95% af framleiðslu
Frionor eru hins vegar flutt út og
af þeim sökum getur þetta verð-
fall leitt til mikilla erfiðleika fyrir
fyrirtækið.
Loftárás
á olíuskip
Mlnama, Bnhrain. 10. júli. AP.
BRESKT olíuskip á Persaflóa vard
fyrir árás herþotu í dag. Nokkur eldur
kom upp, en áhöfn skipsins slökkti
hann.
Skipið, Renown, var á leið til olíu-
skipsins Tiburon, sem varð fyrir ír-
akskri loftárás, og átti að taka olíu-
farm þess.
Engin slys urðu á 26 manna
áhöfn breska skipsins í loftárásinni
í dag. Talið er, að herþotan, sem
árásina gerði, hafi verið frá íran.
Skipið var á aiþjóðlegri siglingaleið
fyrir utan lögsögu nokkurs lands er
árásin á það var gerð.