Morgunblaðið - 11.07.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.07.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1984 19 FLUGLEIÐIR fóru sína fyrstu ferð tíl Narssaræuaq í gær klukkan 17, en enn hefur ekki borLst formlegt leyfi fyrir leiguflugi frá Keflavík tíl Narssarssu- aq. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar, fréttafulltrúa Flugleiða, er talið Ifklegt að leyfið berist innan tíðar, en SAS- flugfélagið befur haft einkaleyfi á þess- ari áætlunarleið. Sæmundur sagði að ráðgert væri að fara sex ferðir til Narssarssuaq næstu vikurnar, eina ferð á viku, og flogið yrði á mánudögum ef veður hamlaði ekki ferðum. Hér er um að ræða hópferðir, sem útlendingar hefðu sýnt mikinn áhuga. í tengslum við ferðirnar er boðið upp á gistingu og ýmsar skoðunarferðir. Rannsóknir á jarðhita í Oxarfirði ORKUSTOFNUN gerir í sumar rannsóknir í Öxarfirði og miðast þær við að bægt sé að velja rannsókna- borholu þar stað. Hana yrði þá hægt að bora á næsta ári. Á árunum 1973—1977 gerði Jarðhitadeild Orkustofnunar nokkrar jarðhitarannsóknir i öx- arfirði. Jarðhiti reyndist allvfða, en hæsti hiti sem mældist þar fyrir 1975 var um 70—80 stig. í umbrotunum, sem hófust í öxar- firði 1975 og rekja má til Kröflu, urðu verulegar breytingar á hita á þessu svæði. Hann hækkaði veru- lega og mælist nú um 96 stig. Auk þess breyttist efnasamsetning heita vatnsins og mælist styrkur klórs nú tvöfalt meiri á vissum stöðum en áður. Grunur manna um að háhitasvæði leyndist I öxarfirði styrktist mjög við þess- ar niðurstöður og fæst vonandi úr þvf skorið, hvort svo sé, með bor- unum. Meint háhitasvæði liggur á sama sprungusvæði og gengur í gegnum Kröflueldstöðina og gætu vinnslueiginleikar háhitans f öx- arfirði verið svipaðir og á Reykjanesskaganum, t.d. f Svarts- engi. Leiðrétting í FRÉTT Mbl. í gær um heyskap á Norðurlandi vestra var ranglega farið með nafn Ásthildar Páls- dóttur á Geitarskarði. Morgun- blaðið biðst velvirðingar á mistök- unum. Jekyll og Hyde aft- ur á ferð HÁSKÓLABlÓ tekur bráðlega til sýningar gamanmyndina „Jekyll og Hyde aftur á ferð“. Leikstjóri er Jerry Belson, en með helstu hlut- verk fara Mark Blankfield, Bess Armstrong og Krista Errickson. Myndin fjallar um Dr. Daniel Jek- ylls, aðstoðarlækni á sjúkrahúsi sem finnur upp efnablöndu sem vekur upp og eflir hina frumstæðu löngum mannsins til að halda lffi. (í)r rrétutilkynningii.) Afmælishátíð í V íðimýrarkirkju í Skagafirði Þátttökureglur Keppnlna hrtdur MAZDA MOTOR CORPORATION 3-1 Shinchi, Fuchu-cho, Aki-gun, Hiroshima Japan. Elnkunnarorö keppninnar .Ánægja og skemmtun með MAZDA" (á ensku: .Having fun with MAZDA cars and trucks"). Aðeins myndir sem tengjast þessu eru gjaldgengar í keppninni. Myndir sem berast verða dæmdar á þessum grundvelli og tekið verður tillit til frumleika, myndsamsetningar og myndtækni. Myndirnar verður að mega nota í almanak MAZDA tyrir árið 1985, en þvi verður dreitt um viða veröld. Hverjlr geta teklð þátt I keppnlnnl Allir geta tekið þátt I keppninni án tillits til aldurs eða þjóðernis, nema (þeim tilvikum, sem tekin eru fram hér að neðan. Pátttaka er bundin þeim, sem tók myndina. Til þátttöku er hvorki nauðsynlegt að kaupa eða eiga MAZDA bíl og bæði atvinnuljósmyndurum og áhugafólki er heimil þátttaka. Skllafreatur: Tll 31. ágúat 1984 Hvernlg akal tekið þátt I keppnlnnl Allar myndir verða að vera teknar á 35 mm litskyggnur og hver einstök merkt nafni þátttakanda. Á eyðublaði, sem fæst hjá MAZDA umboðinu á Islandi — Bilaborg hf., eða á venjulegum pappír, þurfa að koma fram eftirfarandiupplýsingar: 1. Nafn2. heimilisfang 3. aldur 4. kyn 5. þjóðerni 6. starf 7. slmanúmer 8. hvaða dag myndin var tekin 9. hvar myndin er tekin 10. nöfn allra, sem sjást á myndinni. Gætið þess að undirrita eyðublaðið eða bréfið og pósta það með litskyggnunum til: MAZDA Familiy Photo Contest, P.O. Box 93, Kyobashi Post Office, Tokyo, Japan. Verðlaun 20 verðlaun verða veitt, hver að upphæð US $ 3.000.00. Auglýalng vlnnlngshafa Vinningshafar verða tilkynntir I alþjóðaútgáfu .TIME MAGAZINE", sem kemur út 19. nóvember, 1984. Ennfremur munu allir vinningshafar fá bréflega tilkynnlngu. VarmahlíA. Sltagafirði. Næstkomandi sunnudag, 15. júlí, verður minnst hundrað og fimmtíu ára afmælis Víðimýrarkirkju í Skagafirði. Hátíðarmessa verður í kirkjunni klukkan 14 og mun séra Sigurður Gumundsson vígslubiskup predika. Sóknarpresturinn, séra Gísli Gunnarsson, fyrrv. sóknar- prestur, séra Gunnar Gíslason, og prófasturinn í Skagafirði, séra Hjálmar Jónsson, þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Guðrúnar Eyþórsdóttur. Eftir mess- una verða kaffiveitingar á hótelinu f Varmahlíðarskóla í boði sóknar- nefndar. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að lagfæringum við kirkju- garðinn í Víðimýri. Var garðurinn sléttaður nokkuð og lagður þökum auk þess sem lögð var stétt úr náttúrulegum hellum frá sáluhliði að kirkjudyrum. Grindverk garðs- ins var málað og útbúið var bíla- stæði framan við garðinn. Flugleiöir til Narssarssuaq Ekkert er auðveldara en að taka þátt í Fjölskylduljósmyndakeppni MAZDA 1985. Það eina sem þú þarft að gera er að senda mynd af fjölskyldunni eða kunningjunum, þar sem þau eiga góða stund saman með MAZDA, hvar eða hvenær sem er. Látið bara hugmyndaflugið ráða. Allir geta tekið þátt í þessari keppni, svo lengi sem innsend mynd endurspeglar„Ánægju og skemmtum með MAZDA“ (á ensku:„Having fun with MAZDA carsandtrucks"). Reglur keppninnar eru útskýrðar nánar hér að neðan. 20 myndir verða valdar úr innsendum myndum og verða þær notaðar í almanaki MAZDA fyrir árið 1985, og mun hver þeirra hljóta US$ 3.000.00 (Ca. 90.000.00 kr.) verðlaun. Aðrar keppnisreglur og skilmálar r • Þátttakendur mega skila inn einsmörgummyndumog þeirvilja. Allar myndirnar verða samt eign M AZDA Motor Corporation og verður þeim ekki skilað aftur. e Allar myndir verða að vera frumeintök. Pær mega ekki hafa birst neins staðar áður, eða verið notaðar til opinberrar sýningar. Ekki mega vera neinar lagalegar birtingarhömlur á myndunum. Það er á ábyrgð þátttakenda að tryggja, að notkun MAZDA Motor Corporation á myndunum gefi ekki tilefni til skaðabóta- krafna. Þar að auki er það á ábyrgð þátttakenda að afla samþykkis allra þeirra sem sjást á myndunum, eða annarra sem eiga hagsmuna að gæta. e Ekki skiptir máli hvenær árs myndirnar eru teknar. e Vinningshafar verða valdir af dómnefnd, sem í eru einstaklingar, hinir færustu hverásinu sviði. Niðurstöður dómnefndar eru endanlega bindandi. e Allar myndir, sem skilaðer til keppninnar, verða eign MAZDA Motor Corporation, ásamt öllum réttindum sem þeim fylgja, þar með talinn réttur til að birta eða nota viðkomandi myndir án þess að sérstök greiðsla komi fyrir. Allir vinningshafar heimila MAZDA Motor Corporation að nota nafn sitt í auglýsinga og kynningarskyni. • Ekki er hægt að framselja vinning. Aðeins einn aðili f hverri fjölskyldu getur hlotið verðlaun. • Ef I Ijós kemur að mynd, sem skilað ertil keppninnar brýtur i bága við þessar þátttökureglur, Islensk eða erlend lög, þar með talin höfundarréttarlög eða trúarsiði, þá er hægt að dæma viðkomandi mynd úr keppninni, jafnvel þótt hún hafi verið valin til vinnings. MAZDA Motor Corporation tekur þar að auki enga ábyrgð á skaðabótakröfum, sem orsakast af slikum brotum. • Er vinningshafar hafa verið valdir, mun verða farið fram á að þeir, ásamt þeim sem birtast á myndunum, undirriti og afsali sér öllum réttindum viðkomandi mynda til MAZDA Motor Corporatíon á þartilgerðu eyðublaði, sem MAZDA Motor Corporation lætur f té. Ef vinningshafi endursendir ekki slíkt skriflegt afsal til MAZDA Motor Corporation innan 20 daga frá þvi að hann móttók það, þá mun verða litið svo á, að hann hafi dregið þátttöku i keppninni til baka og nýr vinningshafi mun verða valinn. • MAZDA Motor Corporation ber enga ábyrgð á tapi mynda, skemmdum, töfum á póstafhendingu, eða öðrum óhöppum sem verða I póstþjónustu. • MAZDA Motor Corporation er ekki skylt að nota myndir, sem berast til keppninnar, þar með taldar vinningsmyndir i almanaki sinu, né annars staðar. • Skattar og aðrar álögur sem kunna að verða lagðar á vinningsféð, þar með taldir skattar, sem MAZDA Motor Corporation kynni að þurfa að greiða af þvi í Japan, eiga að greiðast af vinningshöfum. Ef skattar verða lagðir á vinningsféð i Japan, þá verða þeir dregnir frá áður en því er skilað til vinningshafa. • Vinningsféð verður greitt i mynt heimalands vinningshafa á gengi US $ eins og það er, þegar greiðsla fer fram. EINKAUMBOÐ Á ISLANDI BILABORG HF Smiöshöföa 23, sími 812 99 Þessar lagfæringar setja mik- inn svip á staðinn sem er fjölsótt- ur af ferðamönnum. Búist er við miklu fjölmenni við afmælishátíð- ina og verður komið upp hátölur- um utan kirkju þannig að enginn þarf frá að hvera. Allir eru vel- komnir. pn UOSMYNDAR ÞU VINNINGS- BR0SIÐ 1985? Það bros getur gert þig 3.000 dollurum ríkari!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.