Morgunblaðið - 11.07.1984, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1984
19
FLUGLEIÐIR fóru sína fyrstu ferð tíl
Narssaræuaq í gær klukkan 17, en enn
hefur ekki borLst formlegt leyfi fyrir
leiguflugi frá Keflavík tíl Narssarssu-
aq. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar,
fréttafulltrúa Flugleiða, er talið Ifklegt
að leyfið berist innan tíðar, en SAS-
flugfélagið befur haft einkaleyfi á þess-
ari áætlunarleið.
Sæmundur sagði að ráðgert væri
að fara sex ferðir til Narssarssuaq
næstu vikurnar, eina ferð á viku, og
flogið yrði á mánudögum ef veður
hamlaði ekki ferðum. Hér er um að
ræða hópferðir, sem útlendingar
hefðu sýnt mikinn áhuga. í tengslum
við ferðirnar er boðið upp á gistingu
og ýmsar skoðunarferðir.
Rannsóknir
á jarðhita
í Oxarfirði
ORKUSTOFNUN gerir í sumar
rannsóknir í Öxarfirði og miðast þær
við að bægt sé að velja rannsókna-
borholu þar stað. Hana yrði þá hægt
að bora á næsta ári.
Á árunum 1973—1977 gerði
Jarðhitadeild Orkustofnunar
nokkrar jarðhitarannsóknir i öx-
arfirði. Jarðhiti reyndist allvfða,
en hæsti hiti sem mældist þar
fyrir 1975 var um 70—80 stig. í
umbrotunum, sem hófust í öxar-
firði 1975 og rekja má til Kröflu,
urðu verulegar breytingar á hita á
þessu svæði. Hann hækkaði veru-
lega og mælist nú um 96 stig. Auk
þess breyttist efnasamsetning
heita vatnsins og mælist styrkur
klórs nú tvöfalt meiri á vissum
stöðum en áður. Grunur manna
um að háhitasvæði leyndist I
öxarfirði styrktist mjög við þess-
ar niðurstöður og fæst vonandi úr
þvf skorið, hvort svo sé, með bor-
unum. Meint háhitasvæði liggur á
sama sprungusvæði og gengur í
gegnum Kröflueldstöðina og gætu
vinnslueiginleikar háhitans f öx-
arfirði verið svipaðir og á
Reykjanesskaganum, t.d. f Svarts-
engi.
Leiðrétting
í FRÉTT Mbl. í gær um heyskap á
Norðurlandi vestra var ranglega
farið með nafn Ásthildar Páls-
dóttur á Geitarskarði. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á mistök-
unum.
Jekyll og
Hyde aft-
ur á ferð
HÁSKÓLABlÓ tekur bráðlega til
sýningar gamanmyndina „Jekyll og
Hyde aftur á ferð“. Leikstjóri er
Jerry Belson, en með helstu hlut-
verk fara Mark Blankfield, Bess
Armstrong og Krista Errickson.
Myndin fjallar um Dr. Daniel Jek-
ylls, aðstoðarlækni á sjúkrahúsi
sem finnur upp efnablöndu sem
vekur upp og eflir hina frumstæðu
löngum mannsins til að halda lffi.
(í)r rrétutilkynningii.)
Afmælishátíð í
V íðimýrarkirkju
í Skagafirði
Þátttökureglur
Keppnlna hrtdur MAZDA MOTOR CORPORATION
3-1 Shinchi, Fuchu-cho, Aki-gun, Hiroshima Japan.
Elnkunnarorö keppninnar
.Ánægja og skemmtun með MAZDA" (á ensku:
.Having fun with MAZDA cars and trucks").
Aðeins myndir sem tengjast þessu eru gjaldgengar í
keppninni. Myndir sem berast verða dæmdar á þessum
grundvelli og tekið verður tillit til frumleika,
myndsamsetningar og myndtækni.
Myndirnar verður að mega nota í almanak MAZDA tyrir
árið 1985, en þvi verður dreitt um viða veröld.
Hverjlr geta teklð þátt I keppnlnnl
Allir geta tekið þátt I keppninni án tillits til aldurs eða
þjóðernis, nema (þeim tilvikum, sem tekin eru fram hér
að neðan. Pátttaka er bundin þeim, sem tók myndina.
Til þátttöku er hvorki nauðsynlegt að kaupa eða eiga
MAZDA bíl og bæði atvinnuljósmyndurum og áhugafólki
er heimil þátttaka.
Skllafreatur:
Tll 31. ágúat 1984
Hvernlg akal tekið þátt I keppnlnnl
Allar myndir verða að vera teknar á 35 mm litskyggnur
og hver einstök merkt nafni þátttakanda. Á eyðublaði,
sem fæst hjá MAZDA umboðinu á Islandi — Bilaborg
hf., eða á venjulegum pappír, þurfa að koma fram
eftirfarandiupplýsingar: 1. Nafn2. heimilisfang 3. aldur
4. kyn 5. þjóðerni 6. starf 7. slmanúmer 8. hvaða dag
myndin var tekin 9. hvar myndin er tekin 10. nöfn allra,
sem sjást á myndinni.
Gætið þess að undirrita eyðublaðið eða bréfið og pósta
það með litskyggnunum til: MAZDA Familiy Photo
Contest, P.O. Box 93, Kyobashi Post Office, Tokyo,
Japan.
Verðlaun
20 verðlaun verða veitt, hver að upphæð US $ 3.000.00.
Auglýalng vlnnlngshafa
Vinningshafar verða tilkynntir I alþjóðaútgáfu .TIME
MAGAZINE", sem kemur út 19. nóvember, 1984.
Ennfremur munu allir vinningshafar fá bréflega
tilkynnlngu.
VarmahlíA. Sltagafirði.
Næstkomandi sunnudag, 15. júlí,
verður minnst hundrað og fimmtíu
ára afmælis Víðimýrarkirkju í
Skagafirði. Hátíðarmessa verður í
kirkjunni klukkan 14 og mun séra
Sigurður Gumundsson vígslubiskup
predika. Sóknarpresturinn, séra
Gísli Gunnarsson, fyrrv. sóknar-
prestur, séra Gunnar Gíslason, og
prófasturinn í Skagafirði, séra
Hjálmar Jónsson, þjóna fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Guðrúnar Eyþórsdóttur. Eftir mess-
una verða kaffiveitingar á hótelinu f
Varmahlíðarskóla í boði sóknar-
nefndar.
Undanfarnar vikur hefur verið
unnið að lagfæringum við kirkju-
garðinn í Víðimýri. Var garðurinn
sléttaður nokkuð og lagður þökum
auk þess sem lögð var stétt úr
náttúrulegum hellum frá sáluhliði
að kirkjudyrum. Grindverk garðs-
ins var málað og útbúið var bíla-
stæði framan við garðinn.
Flugleiöir til
Narssarssuaq
Ekkert er auðveldara en að taka
þátt í Fjölskylduljósmyndakeppni
MAZDA 1985. Það eina sem þú
þarft að gera er að senda mynd af
fjölskyldunni eða kunningjunum, þar sem
þau eiga góða stund saman með
MAZDA, hvar eða hvenær sem er.
Látið bara hugmyndaflugið ráða.
Allir geta tekið þátt í þessari
keppni, svo lengi sem innsend
mynd endurspeglar„Ánægju og
skemmtum með MAZDA“ (á
ensku:„Having fun with MAZDA
carsandtrucks"). Reglur
keppninnar eru útskýrðar nánar
hér að neðan. 20 myndir verða
valdar úr innsendum myndum
og verða þær notaðar í almanaki
MAZDA fyrir árið 1985, og mun
hver þeirra hljóta US$ 3.000.00
(Ca. 90.000.00 kr.) verðlaun.
Aðrar
keppnisreglur
og skilmálar r
• Þátttakendur mega skila inn
einsmörgummyndumog þeirvilja.
Allar myndirnar verða samt eign M AZDA Motor
Corporation og verður þeim ekki skilað aftur.
e Allar myndir verða að vera frumeintök. Pær mega ekki
hafa birst neins staðar áður, eða verið notaðar til
opinberrar sýningar. Ekki mega vera neinar lagalegar
birtingarhömlur á myndunum. Það er á ábyrgð
þátttakenda að tryggja, að notkun MAZDA Motor
Corporation á myndunum gefi ekki tilefni til skaðabóta-
krafna. Þar að auki er það á ábyrgð þátttakenda að afla
samþykkis allra þeirra sem sjást á myndunum, eða
annarra sem eiga hagsmuna að gæta.
e Ekki skiptir máli hvenær árs myndirnar eru teknar.
e Vinningshafar verða valdir af dómnefnd, sem í eru
einstaklingar, hinir færustu hverásinu sviði. Niðurstöður
dómnefndar eru endanlega bindandi.
e Allar myndir, sem skilaðer til keppninnar, verða eign
MAZDA Motor Corporation, ásamt öllum
réttindum sem þeim fylgja, þar með talinn réttur til að
birta eða nota viðkomandi myndir án þess að sérstök
greiðsla komi fyrir. Allir vinningshafar heimila MAZDA
Motor Corporation að nota nafn sitt í auglýsinga og
kynningarskyni.
• Ekki er hægt að framselja vinning. Aðeins einn aðili f
hverri fjölskyldu getur hlotið verðlaun.
• Ef I Ijós kemur að mynd, sem skilað ertil keppninnar
brýtur i bága við þessar þátttökureglur, Islensk eða
erlend lög, þar með talin höfundarréttarlög eða trúarsiði,
þá er hægt að dæma viðkomandi mynd úr keppninni,
jafnvel þótt hún hafi verið valin til vinnings.
MAZDA Motor Corporation tekur þar að auki enga
ábyrgð á skaðabótakröfum, sem orsakast af slikum
brotum.
• Er vinningshafar hafa verið valdir, mun verða farið fram
á að þeir, ásamt þeim sem birtast á myndunum, undirriti
og afsali sér öllum réttindum viðkomandi mynda til
MAZDA Motor Corporatíon
á þartilgerðu eyðublaði, sem
MAZDA Motor Corporation lætur
f té. Ef vinningshafi endursendir ekki
slíkt skriflegt afsal til MAZDA Motor
Corporation innan 20 daga frá þvi að hann móttók
það, þá mun verða litið svo á, að hann hafi dregið þátttöku
i keppninni til baka og nýr vinningshafi mun verða
valinn.
• MAZDA Motor Corporation ber enga ábyrgð á tapi
mynda, skemmdum, töfum á póstafhendingu, eða
öðrum óhöppum sem verða I póstþjónustu.
• MAZDA Motor Corporation er ekki skylt að nota
myndir, sem berast til keppninnar, þar með taldar
vinningsmyndir i almanaki sinu, né annars staðar.
• Skattar og aðrar álögur sem kunna að verða lagðar á
vinningsféð, þar með taldir skattar, sem MAZDA Motor
Corporation kynni að þurfa að greiða af þvi í Japan, eiga
að greiðast af vinningshöfum.
Ef skattar verða lagðir á vinningsféð i Japan, þá verða
þeir dregnir frá áður en því er skilað til vinningshafa.
• Vinningsféð verður greitt i mynt heimalands
vinningshafa á gengi US $ eins og það er, þegar greiðsla
fer fram.
EINKAUMBOÐ Á ISLANDI
BILABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99
Þessar lagfæringar setja mik-
inn svip á staðinn sem er fjölsótt-
ur af ferðamönnum. Búist er við
miklu fjölmenni við afmælishátíð-
ina og verður komið upp hátölur-
um utan kirkju þannig að enginn
þarf frá að hvera. Allir eru vel-
komnir. pn
UOSMYNDAR
ÞU VINNINGS-
BR0SIÐ
1985?
Það bros getur gert þig
3.000 dollurum ríkari!