Morgunblaðið - 11.07.1984, Qupperneq 17
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1984
17
(Lóósm. Mbl. Júlíus.)
tfisk
l landanna"
um við meiri efnahagsvanda að etja
en nokkru sinni fyrr. Þvf bfðum við
nú eftir því að myndarlegt átak
verði gert til að jafna þennan mikla
mun. Það gekk bærilega fyrir
nokkrum árum, þegar tekið var boð-
um Portúgala í alls konar orku-
framkvæmdir, smíðaðir voru tveir
togarar í Portúgal og fleira mætti
nefna. Við gerum okkur fullkomlega
grein fyrir því að við getum ekki
vænst þess að allt gerist í einu vet-
fangi vegna þess hve fámenn þjóð
tslendingar eru og markaðurinn þar
af leiðandi takmarkaður. En við
höfum mikinn hug á að gera tilboð f
verk við Blönduvirkjun sem verður
boðið út í ágúst, slík stórverk geta
farið mjög langt til að jöfnuður ná-
ist. Fiskur er ykkur mikilvægastur,
hann er ykkur það sem rafvélabún-
aður er hjá okkur, en sá iðnaður
stendur á háu stigi og hefur tekið
stórkostlegan fjörkipp á tiltölulega
fáum árum. Ýmis önnur atriði
kæmu til greina, en þetta verður
væntanlega allt saman kannað vel
og vandlega.
Við erum ekki að fara fram á for-
réttindi, fjarri því. Við erum frjáls-
ar þjóðir sem búum við frjáls mark-
og aðr-
túgali"
Á blaðamannafundinum var vikið
að þeirri tregðu sem hefði verið af
hálfu íslendinga að kaupa portú-
galskar vörur og að fslenskir kaup-
sýslumenn hefðu kvartað undan
seinni afgreiðslu frá Portúgal. Barr-
eto sagði að skriffinnska væri
hvarvetna vandamál. Kannski væri
þó ekki sfður um að kenna áhuga-
leysi ytra, markaðurinn hér væri
litill og einatt vanmetinn og þyrfti
að kynna hann betur portúgölskum
viðskiptaaðilum.
Barreto og föruneyti hans sat há-
degisverðarboð Landsvirkjunar f
veitingahúsinu Arnarhóli að Iokn-
um fundinum með fulltrúum við-
skiptaráðuneytisins. Hann gekk á
fund forseta íslands á Bessastöðum
og í gærkvöldi sat hann boð Matthí-
asar Á. Mathiesen f Ráðherrabú-
staðnum.
Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra, Raquel Ferreira, aðstoðarviðskipta-
ráðherra, og Alvaro Barreto, utanrfkisviðskiptaráðherra.
aðskerfi, en gagnkvæm viðskipti eru
sjálfsögð og f takt við tfmann, þar
eð Portúgalir hafa margt að bjóða
íslendingum og á því verði sem þeir
geti við unað.
Barreto sagði að honum hefði
þótt mjög fróðlegt að skoða sig um á
Svartsengi á leiðinni frá Keflavík til
Reykjavíkur. Á sviði varmaveitna
kynni einnig að finnast grundvöllur
til samstarfs. Á Azor-eyjum væri
jarðhiti í jörðu, og er það eini stað-
urinn af portúgölsku landi þar sem
svo er. Barreto sagði að þarna
kynnu einnig að vera möguleikar
sem gætu eflt samvinnu íslands og
Portúgals.
Eins og fram kemur f baksfðu-
frétt hefur Barreto ákveðið að flýta
för sinni heim til Portúgal, hann
heldur héðan f fyrramálið i stað
þess að fara síðdegis. Ástæðan er
augljóslega að hann vill beita áhrif-
um sínum til að liðka fyrir þvf að
Keflavík, saltfiskskipið sem hefur
beðið afgreiðslu f Aveiro í tíu daga,
verði affermað. „Ég hef haft sam-
band við mína menn f Lissabon
varðandi þetta mál,“ sagði hann.
„Það er nú oft svo þegar nýjar
reglugerðir eru settar, að það eru
alls konar mistúlkanir og hindranir,
m.a. vegna breytingar á tollskrán-
ingu o.fl. og síðan vefst þetta fyrir
sjálfu sér í öllu kerfinu. Þar sem ég
fór frá Portúgal fyrra mánudag,
vissi ég ekki af þessu fyrr en ég kom
hingað. Ég er bjartsýnn á að málið
verði leyst um það leyti sem ég kem
heim síðdegis á morgun, ef ekki
mun það gerast snöfurmannlega
eftir heimkomu mfna. Það mun síð-
an flytja mikið timbur og dyrafarm
frá Portúgal til íslands, sem eru
geysileg verðmæti.
Barreto sagði að hann hefði verið
bjartsýnn fyrir þessar viðræður.
Menn hefðu talað saman af einurð
og viti og menn hér gerðu sér grein
fyrir erfiðri stöðu Portúgala og að
ekki yrði hér neinu um breytt varð-
andi tollaálagningu, þó svo að hún
breytti engu með tilliti til verðsins
sem um hefði verið samið. Hann
sagði að fiskfloti Portúgala væri
orðinn heldur hrörlegur og kallaði á
endurnýjun hið fyrsta. Þessar toll-
tekjur sem þannig kæmu inn yrðu
lagðar óskertar til uppbyggingar
hans.
„Ég sagði það þegar við hittumst í
Lissabon, að íslendingum yrði ekki
mismunað. Ég hef ftrekað það hér
og mér finnst menn hafa sýnt ótvf-
ræðan skilning á stöðu okkar og ég
vona að ég geti leyft mér að segja,
að það er af minni hálfu gagn-
kvæmt,“ sagði Alvaro Barreto að
lokum.
Texti: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Steingrímur Hermannsson og Alvaro Barreto.
„Hélt mér í neta-
dræsu þar til
hjálpin barstu
— segir Sigtryggur Bjartur Kristinsson, átta
ára, sem bjargaði fímm ára gömlum bróður sín-
um frá drukknun í höfninni á Seyðisfirði
Seyðtefirði, 1«. júlí.
EINS OG fram kom í blaðinu í gær
vann átta ára gamall drengur, Sig-
tryggur Bjartur Kristinsson, það af-
rek að bjarga fimm ára gömlum
bróður sínum, Baldri, frá drukknun
í höfninni hér á Seyðisfirði síðastlið-
inn laugardag. Fréttaritari Mbl.,
ásamt Ijósmyndara, heimsótti dreng-
ina, sem eru í heimsókn hjá afa sín-
um og ömmu, ásamt móður sinni og
eldri bróður.
„Við vorum að leika okkur á
Pöntunarbryggjunni og vorum
saman þrír bræðurnir, ég, Baldur
ogörn," sagði Sigtryggur Bjartur.
„Eg var að veiða með færi, en þeir
Baldur og örn voru skammt frá og
reyndi Baldur að stökkva út í lít-
inn bát sem var við bryggjuna.
Bilið milli báts og bryggju var
kannski tvö til þrjú skref og skrik-
aði honum fótur og féll í sjóinn.
Örn bróðir kallaði strax og sá ég
þá hvað komið hafði fyrir. Ég
henti frá mér færinu og hljóp á
staðinn og sá hvar Baldur svaml-
aði í sjónum. Ég gat klifrað niður
bryggjuna á þverspýtum og henti
mér síðan í sjóinn og náði fljót-
lega taki á Baldri. Sfðan synti ég
með hann að bryggjunni, en þurfti
að fara svona tíu metra meðfram
henni þar sem ég sá netadræsu
hanga niður og náði að halda mér
í hana með annarri hendi, en hélt
Baldri uppi með hinni þar til hjálp
barst. Menn sem voru að vinna við
fiskvinnsluna hafa sennilega
heyrt í Erni og komu til okkar og
hjálpuðu okkur upp.“
„Var mér ekki kalt? Nei, ekki
þegar ég var í sjónum, en þegar
við komum upp úr þá varð okkur
voðalega kalt. Við vorum fluttir
beint heim og settir í heitt bað og
fengum líka heitt kakó og þá hlýn-
aði okkur fljótt,“ sagði Sigrtyggur
Bjartur. Hann sagðist vera alveg
syndur og færi í sundhöllina í
Vestmannaeyjum á hverjum degi.
Baldur bróðir hans fer líka oft
með og hann var á sundnámskeiði
í vor og kann svolftið að synda.
Þess má geta að þeir bræður eru
synir hjónanna Sigrúnar Guð-
mundsdóttur og Kristins Sig-
tryggssonar, sem bæði eru héðan
frá Seyðisfirði en búa nú í Vest-
mannaeyjum.
Ólafur Már
Morgunblaðiö/Kj artan.
Þremenningarnir Baldur, Örn og Sigtryggur Bjartur á Seyðisfirði f gærdag.
Jóhann með 4 vinn-
inga eftir 11 umferðir
JÓHANN Hjartarson hefur átt við
talsverðan mótbyr að stríða á móti
því sem hann hcfur tekið þátt f að
undanförnu í Leningrad f Sovétríkj-
unum. Hann er kominn með 4 vinn-
inga að afloknum 11 uroferðum af
13 og sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hann hefði verið
óheppinn og oft tapað slysalega.
„Eg tefldi við Kociev, sovéskan
stórmeistara, í dag og tapaði
slysalega. Ég var með góða stöðu
og hann bauð mér jafntefli í bull-
andi tímahraki okkar beggja, en
ég hafnaði því maður verður að
reyna að bæta stöðu sína í mótinu
og lék ég skömmu síðar af mér,“
sagði Jóhann.
Staðan á mótinu er óljós vegna
fjölda biðskáka, en efstir og jafnir
með 6Vfe vinning eru Rivas frá
Spáni og Cherepkov og Lukin frá
Sovétríkjunum. Mótið er lokað
þannig að allir keppa við alla og af
14 keppendum eru fimm frá lönd-
um utan Sovétríkjanna.
Jóhann sagði mótið vera sterkt
og í raun sterkara en stigin gæfu
til kynna, því Sovétmennirnir
fengju fá tækifæri til að keppa á
Vesturlöndum og hækka í stigum.
Hann sagði að það væri eins og
eitthvað skorti á úthaldið hjá sér,
því hann hefði oft leikið niður góð-
um stöðum á fimmta tímanum.
Mótinu lýkur 14. júlí og hvað
Jóhann allan aðbúnað og skipu-
lagningu hafa verið til fyrirmynd-
ar.